Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 35
r MORGUNBLAÐIÐ Krossgátu- bók ársins komin út KROSSGÁTUBÓK ársins 1995 er komin út á vegum ÓP-útgáfunnar. Þetta er í 12. sinn sem krossgátuhandbókin kemur út. í bókinni er að finna yfir 60 krossgátur af margvís- legum gerðum. Prentstofa G.Ben-Edda annaðist prentun og bókband en Jens Kr. Guð. teiknaði kápumynd. Opið hús FÉLAGSHEIMILI Sjálfs- bjargar í Hátúni 12 verður opið á morgun, föstudag 30. desember, frá klukkan 13 til 21. Á dagskrá verður ljóðalest- ur, tónlist, miðlar og í lokin fer fram heilun. Aðgangur er ókeypis, en samkoman er á vegum hóps fólks með áhuga um betra mannlíf. Jólaball Kvennakórs Reykjavíkur KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur jólaball föstudaginn 30. desember kl. 16-18. Jólaballið verður haldið í húsakynnum Kvennakórsins á Ægisgötu 7 og er öllum heimill aðgangur. Aðgangseyrir er 300 krónur. Jólasveinninn mætir á staðinn og að sjálfsögðu verður mikið sungið. FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 35 FRÉTTIR Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Leyfi þarf fyr- ir bálköstum í borginni HEILBRIGÐISEFTIRLITIÐ vill að gefnu tilefni benda á að skv. 13. gr. lögreglusamþykktar fyrir Reykjavík er óheimilt að kveikja í bálköstum nema að fengnu leyfi lögregluyfirvalda. Með stoð í 29. gr. mengunarvarnareglugerðar nr. 48/1994 hvetur Heilbrigðiseftirlitið alla þá sem leyfí hafa fyrir brennum að gæta fyllstu varúðar við val á brennuefni og við íkveikju þess. Við brennur þarf að hafa eftir- farandi í huga: 1) Óheimilt er að kveikja í brennunni ef vindátt er óhagstæð að mati slökkviliðs. 2) Sé olía notuð við brennuna ber að halda notkun hennar í lág- marki. Við venjulegar aðstæður er hæfílegt að nota 400 lítra af dísel- olíu á stóra brennu (500-1000 m3. Ekki skal hella olíu á brennuna fyrr en rétt áður en kveikt er í. Eingöngu má nota olíu sem afhent er beint frá olíufélagi; Óheimilt er að brenna úrgangsolíu þar sem í henni geta verið hættuleg spilliefni. 3) Á brennustæði skal vera þétt- ur jarðvegur sem dregið getur úr mengun af völdum olíu og annarra spilliefna. Skylt er að sjá svo um að á brennuna fari ekki sorp, plast- og gúmmíefni (t.d. plastkassar, fiskkör, netaafskurður, bíldekk og þess háttar), ílát undan eða með eldfimum efnum eða annað sem gæti valdið sprengingu. Þess vegna þarf að vakta brennusvæðið og takmarka aðganga að því á meðan safnað er í brennuna. 5) Vegna fokhættu er óheimilt að hefja söfnun fyrr en einni viku áður en brenna fer fram. 6) Brennusvæðið skal hreinsað sem fyrst að brennu lokinni og ösku og öðrum úrgangsefnum farg- að í samráði við hreinsunardeild Reykj avíkurborgar. Flugfreyjufélag íslands 40 ára FLUGFREYJUFÉLAG íslands verður 40 ára á morgun, föstu- daginn 30. desember. Af því til- efni verður haldinn afmælisfagn- aður í efri þingsal á Scandic Hót- el Loftleiðum klukkan 18-20. Til fagnaðarins er boðið bæði núver- andi og fyrrverandi flugfreyjum og flugþjónum. Myndin sýnir flugfreyjur Loftleiða á Kennedy- flugvelli í New York á dögum DC-8 þotnanna. Þær eru frá vinstri: Suzette Carlén, Nína Birg- isdóttir og Erna Hrólfsdóttir. Borðdagatal Búnaðar- bankans Abendingar frá lögreglunni Meðferð flugelda o g blysa BÚNAÐARBANKI íslands hefur gefið út borðdagatal fyrir árið 1995. Myndirnar á dagatalinu eru hluti af myndlistaverkefni ungra íslendinga á vegum ferðaátaksins „íslandsferð fjölskyldunnar" og Félags íslenskra myndlistarkennara. Markaðsdeild bankans hafði umsjón með gerð dagatalsins en hönnun og prent- vinnslu annaðist Prentsmiðjan Oddi. Búnaðarbankinn er stuðningsaðili við átakið „ísland, sækjum það heim“ og styrkti sérstaklega mynd- listaverkefnið, þar sem yrkisefnið var „fjölbreytileiki íslands sem ferðamannalands“. Um 20.000 ung- menni tóku þátt í verkefninu. Haldin var sýning á 130 myndum í Ráðhús- inu og víðsvegar um landið. Auk þess stóð Búnaðarbankinn fyrir sýn- ingu á um 100 myndum í Kringlunni. SKOTELDA má einungis selja á stöðum sem staðbundin leyfi lögreglustjóra segja til um að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um. Þannig er óheimilt að bera út og selja skotelda í heimahús og á vinnustaði. í reglugerð um sölu og með- ferð skotelda segir m.a. að bann- að sé að selja eða afhenda þá barni eða unglingi innan 16 ára ef slíks er getið í leiðbeiningun- um. Öll sala á skoteldum til barna yngri en 12 ára er óheim- il. Þá segir í sömu reglum að óheimilt sé að flytja inn og selja svokallaða kínverja, reyk- og lyktarsprengjur ýmis konar og sprengikúlur. Óheimilt sé að breyta á nokkurn hátt skoteldi, þannig að hann hljóti aðra eigin- leika en framleiðandi hans ætl- ast til. Innflytjandi skotelda skuli sjá um að allar tegundir skotelda, sem hann flytur inn og hefur leyfi fyrir, séu með álímdum eða áprentuðum leið- beininguin á íslensku. Lögreglu- stjóri getur þó heimilað að minnstu og einföldustu tegundir skotelda verði ekki merktar enda verði dreift vönduðum og skýr- um leiðbeiningarbæklingi til kaupenda. Með skoteldum er átt við flugelda, reyk- og hvell- sprengjur og ýmis konar skraut- elda. Lögreglan vekur athygli fólks á að fara varlega í meðferð flug- elda og blysa um áramótin. Börnin eru stundum áköf og vilja gleyma sér við spennandi að- stæður og vilja þá stundum ganga lengra en æskilegt er. Fullorðnir þurfa að hafa vit fyr- ir börnunum og gæta þess að þeim stafí ekki hætta af flugeld- um og blysum. Allflest slys er hægt að koma í veg fyrir með aðgæslu. Lesið leiðbeiningarnar, sem fylgja flugeldum og blysum og umfram allt: farið eftir leiðbein- ingunum. Lögreglan óskar öllum gleði, farsældar og friðar á nýju ári. Morgunblaðið/Amór Ragnarsson VERÐLAUNAHAFARNIR i Keflavíkurverktakamótinu, sem haldið var sl. þriðjudagskvöld í Stap- anum. Talið frá vinstri: Margrét Karlsdóttir, Kári Ölversson, Ragnar Ragnarsson, Erla Siguijóns- dóttir, Þorsteinn Kristmundsson, Guðjón Jensen og Gísli Hauksson. A myndina vantar Arnór Ragnarsson af skiljanlegum ástæðum. BRIPS Umsjón Arnðr G. Kagnarsson Góð þátttaka í Keflavíkurverk- takamótinu Mjög góð þátttaka var í Kefla- víkurverktakamóti Bridsfélags Suðurnesja, vanir/óvanir, sem haldið var í Stapanum sl. þriðju- dagskvöld. Liðlega 70 manns spil- uðu á 18 borðum og var spilaður 9 umferða Mitchell. Veitt voru verðlaun fyrir tvö efstu sætin í hvorum riðli. Keppnin í báðum riðlum var jöfn og spennandi og réð síðasta spilið úrslitum í báðum riðlunum. í N/S riðli sigruðu Erla Siguijóns- dóttir og Þorsteinn Kristmunds- son, hlutu 257 stig, en meðalskor var 216. Næstu pör í N/S: Kári Ölversson - Margrét Karlsdóttir 254 Kristján Kristjánss. - Gunnar Guðbjörnsson 239 Kristín Andrewsdóttir - Hulda Hjálmarsd. 238 KjartanSævarsson-SigfúsIngvason 235 í A/V riðlinum sigruðu bræð- urnir Ragnar Ragnarsson og Arn- ór Ragnarsson eftir hörkukeppni, hlutu samtals 258 stig. Næstu pör í A/V: Guðjón Jensen - Gísli Hauksson 253 Óli Þór Kjartanss. - Björn Stefánsson 245 Grethe Iversen - Guðjón Guðjónsson 244 Valur Símonarson - Birna Valdimarsd. 244 Þetta er þriðja árið í röð sem Bridsfélag Suðurnesja heldur Keflavíkurverktakamót milli jóla og nýárs, en verktakarnir eru helstu styrktaraðilar félagsins. Mótið tókst vel í alla staði. Keppn- isstjóri var ísleifur Gíslason. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Lokastaðan í stigamótinu sem staðið hefir yfir frá 4. ágúst til 15. des. sl. Þórarinn Árnason 223 Bergur Þorvaldsson 223 Sigurleifur Guðjónsson 198 Eysteinn Einarsson 198 Eyjólfur Halldórsson 162 VilhjálmurGuðmundsson 104 Ragnar Halldórsson 101 Baldur Helgason 100 Haukur Guðmundsson 100 Ingunn Bernburg 88 Vigdís Guðjónsdóttir 88 Þórólfur Meyvantsson 79 Alls hafa 76 einstaklingar feng- ið stig í þessari keppni, en það er mikil aukning frá fyrra ári. Byijum aftur á nýju móti 5. janúar eftir gleðilega jólahátíð og nýár. Gleðilegt ár - þökkum liðið. Bridsdeild Barðstrendingafélagsins Starfsemi deildarinnar á nýju ári hefst mánudaginn 2. jan. kl. 19.30. Þá verður spilaður 1 kvölds tvímenn- ingur Mitchell. Spilað í Þönglabakka 1. Mánudaginn 9. jan. hefst Aðal- sveitakeppni deildarinnar. Sem fyrr stjómar Isak Örn. Hann veitir upplýsingar og tekur á móti þátttökutilkynningum í síma 632820. Það gerir líka Ólafur í síma 71374.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.