Morgunblaðið - 29.12.1994, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
Stóra sviðið:
• FÁ VITINN eftir Fjordor Dostojevski
2. sýn. í kvöld fim., uppselt - 3. sýn. á morgun, uppselt - 4. sýn. fim. 5. jan.
nokkur sæti laus - 5. sýn. lau. 7. jan. nokkur sæti laus - 6. sýn. fim. 12. jan.
• SNÆDRO TTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
Sun. 8. jan. kl. 14, örfá sæti laus - sun. 15. jan. kl. 14.
0GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fös. 6. janúar, örfá sæti laus - sun. 8. jan. - lau. 14. jan. Ath. sýningum fer
fækkandi.
• GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman
Fös. 13. janúar. Ath. sýningum fer fækkandi.
GJAFAKORT í LEIKHÚS, SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
Afsláttur fyrir korthafa áskriftarkorta
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 til
18:00 og fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Græna linan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta.
gff BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680
F LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT — Frumsýning fös. 13. janúar,
örfá sæti laus, 2. sýn. mið. 18/1, grá kort gilda, örfá sæti laus, 3. sýn.
fös. 20. jan, rauð kort gilda.
• LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Sýn. fös. 30/12, lau. 7/1.
LITLA SVIÐiÐ kl. 20:
• ÓSKiN {GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson.
Sýn. fös. 30/12, lau. 7/1.
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. fim. 29/12, sun. 8/1 kl. 16.
Munið gjafakortin okkar - DESEMBERTILBOÐ!
Miðapantanir i síma 680680 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Lokað verður gamlársdag og nýársdag. - Greiðslukortaþjónusta.
Sýnt í Islensku óperunni.
Lokasýning fös. 30/12 kl. 24, UPPSELT.
Mióapantanir í símum 1 1475 og 1 1476. Mióasalan opin kl. 13-17.
Hár-gengið þakkar kærlega fyrir sig - gleðileg jól.
LEIKFELAG
AKUREYRAR
• ÓVÆNT HEIMSÓKN
eftir J.B. Priestley.
3. sýn. í kvöld kl. 20.30.
Lau. 7. jan. kl. 20.30.
Miðasalan opin virka daga kl. 14-18,
nema mánud. Fram að sýningu sýning-
ardaga. Sími 24073.
F R Ú E M I L í A|
f'll K H U S 1
Seljavegi 2 - sími 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftir Anton Tsjekhov.
Sýning fös. 30/12 kl. 20, uppselt.
Sýn. 4/1 kl. 20, örfá sæti laus.
Miðasalan opin frá kl. 17-20 sýningar-
daga, sími 12233. Miðapantanir
á öðrum tímum í símsvara.
Jólahappdrætti Blindrafélagsins
Degið 20. desember 1994
Vinningsnúmer eru:
9580
7813 8863 9947
3477 4618 9789
533 1079 1166 1194 4311
6902 8741 8858 8904 9131
12901 12979 14150 14878
Blindrafélagið,
samtök blindra og sjónskertra,
Hamrahlíð 17.
FÓLK í FRÉTTUM
Umdeild
ævisaga
SJÁLFSÆVISAGA bresku leikkon-
unnar Vanessu Redgrave var nýiega
gefrn út. Bókin fjallar sáraiítið um
lífshiaup leikkonunnar en meira um
pólitískar skoðanir hennar. Redgrave
hefur löngum þótt vera mjög vinstri-
sinnuð og hún hefur ítrekað tekið
upp hanskann fyrir Palestínuaraba.
Leikhæfíleikar Redgrave eru á
hinn bóginn óumdeildir, foreldrar
hennar voru leikarahjónin Michael
Redgrave og Rachel Kempson, bróð-
ir hennar er Lynn Redgrave og börn
hennar eru Natasha og Joely Ric-
hardson. Á meðal mynda sem hún
hefur leikið í eru „Blowup“,„How-
ards End“ og ^Julia" sem hún fékk
Oskarsverðlaun fyrir
árið 1978.
►ÁGÓÐI af sölu safnplötu sem
nefnist „No Toys for O.J.“
rennur til veikra barna. Á
henni má heyra toppfyrirsæt-
una Cindy Crawford gæða
sér á sleikipinna með til-
heyrandi soghljóðum í heil-
ar 55 sekúndur. „Hún gef-
ur frá sér vægar stunur
og í lokin bryður hún
sleikipinnann svo kalt
vatn hríslast milli
skinns og hörunds á
þeim sem hlusta," segir
Mark Davis sem stend-
ur fyrir útgáfunni.
Á safnplötunni má
einnig heyra útgáfu af
Iagi Smashing Pumpk-
ins „Iludolph the Red-
Nosed Reindeer" og
Geraldo Rivera syngja
um klæðskiptinga í
nýrri útsetningu á jóla-
laginu „The Christmas
Song“.
í ár?
Moore þarf
ekki að ótt-
ast málsókn
►BANDARÍSKA kvikmynda-
tímaritið Entertainment Weekly
stóð fyrir skoðanakönnun þar
sem karlmenn voru spurðir hvort
þeir myndu kæra eða láta undan
ef Demi Moore myndi áreita þá
kynferðislega. Könnunin er gerð
í framhaldi af nýjustu mynd
hennar „Disclosure" þar sem hún
beitir Michael Douglas kynferð-
islegu áreiti og hann kærir hana
fyrirvikið.
Utkoman var mjög eindregin
Moore í vil. Hvorki meira né
minna en 76 prósent þeirra
karlmanna sem tóku þátt í
könnuninni viðurkenndu
að þeir myndu láta undan
leikkonunni, þar á meðal
voru þrír samkyn-
hneigðir, 18 prósent
hefðu kært hana, þrjú
prósent hefðu gert
hvorttveggja og
þijú prósent annað.
Einn karlmaður
skar sig úr að því
leyti að hann
hefði reynt að
tala um fyrir
henni: „Eg hefði
reynt að fá hana ofan
af þessari hegðun sinni
og útlista fyrir henni
hveijar afleiðingarnar
gætu orðið. Síðan hefði ég
spurt hana út í Bruce Willis
og börnin." Sannkallaður heið-
ursmaður.
KÁRI Ellertsson vínsérfræðingur leiddi gesti vindlaklúbbsins
í allan sannleika um leyndadóma koníaksins.
INGVI Hrafn Jónsson og
Sigurður K. Kolbeinsson.
Arsfundur vindlamanna
NÝLEGA hittust meðlimir íslenska
vindlaklúbbsins á Argentínu Steik-
hús og létu fara vel um sig. ís-
lenski vindlaklúbburinn, eða Dvid-
off-klúbburinn eins og hann er
gjarnan kallaður, var stofnaður í
ársbyijun 1992 og koma meðlimir
saman árlega til að reykja vindla
og njóta annarra viðeigandi þæg-
inda. Að þessu sinni var boðið bæði
upp á Davidoff-vindla og Kúb-
anska-vindia að Partagas-gerð. Þá
flutti Kári Ellertsson vínsérfræðing-
ur erindi um gerð og eiginleika
koníaks og félögum var boðið að
smakka á ýmsum gerðum Camus-
koníaks. Þá var opnuð í fyrsta sinn
á íslandi flaska af Davidoff VSOP
Classic sem fer á markað hérlendis
á næsta ári.
Það er Niko hf., umboðsaðili
Davidoff á íslandi, sem hafði veg og
vanda af þessu kvöldi og naut til
þess stuðnings frá Camus-umboðinu.