Morgunblaðið - 29.01.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 9
Vid hvaö fcest FIRE-hópurinnt
ROM og ról
TÖLVUR og tónlist eiga æ
meiri samleið, enda hægur
leikur þegar tónlist er hvort
eð er komin í stafrænan
búning á geisladisknum.
Meðal þess sem sótt hefur
verulega í sig verðið er út-
gáfa á svonefndum CD-
ROM diskum.
CD-ROM tæknin býður
upp á að flétta saman
tónlist, texta og myndum,
og nú þegar slíkum drifum
fjölgar óðfluga í tölvum
flölgar og diskum á mark-
að. Á næstunni kemur svo
út diskurinn Highway 61
Interactive, eða gagnvirk
þjóðbraut 61, sem á eru lög
textar við flest
laga hans. Þessu
viðbótar eru
upptökur frá
um
um Bobs
sem haldnir voru
New York á sínum
tíma.
LJósmynd/Björg Jónsdóttir
Bobs Dylans, viðtöl, fjöl-
breytt grafík og myndir.
Athygli vekur að á disknum
er óútgefin rafmögnuð út-
gáfa á House of the Rising
Sun, óútgefíð afbrigði af
Blowin’ in the Wind og
ýmsar teikningar Dylans,
sem ekki hafa áður sést og
UROKKSVEITIN góðkunna
2001 lét rækilega á sér
kræla á árinu með stutt-
disknum Frygð. Undanfarið
hefur þó verið hljótt um
sveitina og meðal annars
hafa orðið í henni manna-
breytingar. Á fímmtudaginn
er liðið ár síðan 2001 hélt
sína fyrstu tónleika í 22 og
þá kemur 2001 fram í
mynd með nýja efnis
skrá. Þeir Gaukur
Úlfarsson og Sölvi
Blöndal eru enn
sveitinni, en nýir
eru Höskuldur
Ólafsson, fyrr-
um söngvari
Wool, og Sig-
urður Guð-
jónsson áður
gítarleikari
Cranium. Tón-
leikarnir hefj-
ast á skikkan-
legum tíma og
boðið verður
upp á súrt slát-
ur.
FIRE FLOKKURINN knái hefur lagt gjörva hönd á
margt: gefið út plötur, haldið tónleika og flutt inn
erlendar rokksveitir. Nokkuð hefur kvarnast úr flokkn-
um, því af fjórum stofnsveitum eru tvær eftir, en starf-
semi hefur sjaldan verið eins lífleg og eykst enn á árinu.
FIRE samtökin, hafa
haft sig mjög í
frammi hér á landi, með
tónleikahaldi innlendra
hljómsveita og erlendra
og að auki sótt í sig veðr-
______ ið ytra.
hafi verið stödd í Lundún-
um fyrir nokkru hafi liðs-
menn gist á skrifstofu Too
Pure. Þá kom í ljós að
fyrirtækið hafði ekki
dreifingarsamning við
neitt fyrirtæki á íslandi
og í framhaldi af því tók
FIRE að sér að dreifa fyr-
ir það, en á meðal útgáfu-
sveita Too Pure hafa verið
P.J. Harvey og Stereolab,
en nú er fyrirtækið með
á sínum snærum meðal
annars síðdansrokksveit-
ina Laika, technosveitina
Mouse on Mars, jass-,
dans-, rokk- og taktsúpu-
sveitina Moonshake og
geimverudansflokkinn
Pram, sem er reyndar
væntanlegur hingað til
lands á árinu. Til viðbótar
við þessa dreifingu hafa
FIRE liðar tekið að sér
að dreifa útgáfum Dog
Faced Hermans og The
Ex, en einnig eru í burð-
arliðnum samningar við
fleiri fyrirtæki, sem Heim-
ir vill ekki nefna að svo
komnu.
Auk tónleikahalds hef-
ur FIRE gefið sitthvað út
ein og rakið var og fyrir
skemmstu kom út sjö-
tomma sem Stillupp-
hefur fé-
gefið út
geisla-
diska,
vínylskíf-
eftir Amo ur Og
Motthíasson kassett-
ur og einskonar tímarit.
Upp á siðkastið hefur
bæst við dreifing á
um plötum hér á landi,
þar á meðal frá dans-
merkinu virta Too Pure í
Bretlandi.
Heimir, einn félags-
manna í FIRE, segir dreif-
inguna til komna þannig
að þegar Stilluppsteypa
steypa og Curver tóku
upp saman, en þess má
geta að sú skífa komst á
lista yfir tíu bestu smá-
skífur ársins í Hollandi
fyrir stuttu. Á næstu dög-
um kemur svo út fyrsta
snælda Plastiks; íslensk
ambient-tónlist, sem seld
verður í lofttæmdum um-
búðum til að undirstrika
innihald snældunnar. Auk
þess gefur FIRE út smá-
skifu bandarísku lista-
rokksveitarinnar God is
My Co-Pilot, sem lék hér
á landi á síðasta ári, en í
lögunum tveimur sem á
plötunni verða, og tekin
voru upp hér á landi S
heimsókninni, koma ýms-
ir íslenskir gestir við sögu,
þar á meðal Elíza Geirs-
dóttir Kolrassa og Birgir
Curver Thoroddsen.
Eins og áður er getið
hefur FIRE-flokkurinn
aukið umsvif sin erlendis,
en meðal annars hefur
hann dreift íslenskri tón-
list ytra með aðstoð pönt-
unarlista og erlend fyrir-
tæki hafa dreift útgáfum
FIRE. Á næstu dögum
kemur út í Los Angeles á
vegum Drunken Fish Rec-
ords sjötomman A Taxi
to Tijuana með Stillupp-
steypu. Því til viðbótar
hyggst Stilluppsteypa
taka upp breiðskífu i
hljóðveri FIRE, sem þýskt
fyrirtæki, Very Good Ree-
ords, gefur út i vor. Öll
þau erlendu umsvif kalia
á tónleikahald ytra og
Heimir segir að sem
stendur sé verið að skipu-
legg)a tónleikaför um
Evrópu í sumar, en ekki
sé búið að festa neina tón-
leika.
Söngfugl
Sade Ardu.
Sadesafn
SÖNGFUGLINN Sade Ardu lagði heiminn að fótum sér
um miðbik níunda áratugarins og hefur haldið vinsældum
sínum að mestu síðan. Alls hefur hún sent frá sér fjórar
breiðskífur, sem selst hafa samtals í rúmum 30 milljónum
eintaka, og því tímabært að safna því besta saman á eina
breiðskífu.
Sade kom fram sem full-
mótuð stjarna þegar á
fyrstu breiðskífu sinni, með
sérstakt lágstemmt jassskotið
popp og frumraun hennar
seldist í bílförmum um allan
heim. Fyrir stuttu kom svo
út safn helstu laga Sade og
glöggt má heyra að þó að
Sade Ardu og liðsmenn henn-
ar hafí snemma náð tökum á
mjúku jasspoppinu, sem er
aðal hennar, hafa þau fágað
tónmálið smám saman og
slípað. Lögin þekkja líklega
flestir, Your Love is King,
Smooth Operator, Diamond
Life, The Sweetest Taboo, Is
it a Crime og Cherish the Day
en í þeim má vel heyra þró-
unina í sveitinni, sem er vissu-
lega hæg, en þó markviss.
Heyrðu aftur 94
SAFNPLÖTUR með úrvali vinsælustu laga ársins eru
algeng útgáfa víða um heim. Hér á landi hefur Skífan
gefið út slíkar plötur; fyrir ári kom út Heyrðu aftur 93
og nú Heyrðu aftur 94.
AHeyrðu aftur 94 eru
sautján lög erlendra
flytjenda og innlendra; allt
lög sem urðu vinsæl á ár-
inu. Erlendir flytjendur eru
Cranberries, Soundgarden,
Crash Test Dummies,
Jimmy Cliff, Big Mountain,
Reel2Real, Morrissey,
Aswad, Enigma og Pato
Banton. íslenskir flytjendur
eru Scope, með útgáfu sína
af Was that All it Was, Plá-
hnetan á tvö lög, Sæla með
Emilönu Torrini og Ég vissi
það með Björgvin Halldórs-
syni, Vinir Vors og blóma
flytja Fijáls, Margrét Eir
syngur gömlu hippalum-
muna Að eilífu, SSSól syng-
ur Lof mér að lifa, og Bubbi
Morthens syngur Sumar
konur.
Körfuboltarapp
KÖRFUBOLTARISINN Shaquille O’Neal sannaði það
rækilega að honum er fleira til lista lagt en að reka bolta
þegar hann sendi frá sér breiðskífuna Sahq Diesel og
seldist í milljónaupplagi. Fyrir skemmstu kom út breiðskíf-
an B-Balls best kept secret þar sem fleiri knattfimir láta
reyna á spunann.
Rappið er tónlist þar sem
útsetjari og upptöku-
stjóri skipti lítt minna máli
er sá sem spinnur textann,
og því voru nokkrir helstu
upptökustjórar rappsins
fengir til að stýra körfuhetj-
unum í hljóðverinu. Þannig
leiðir Warren G Cedric Ce-
ballos, sem er fyrsta smá-
skífan af plötunni, en aðrir
eru meðal annars QDIII,
DJ Slip, Diamond D, Lucien
og DJ Alamo. Rapararnir
eru svo auk Ceballos Dana
Barros, Jason Kidd, Chris
Mills, Shaquille Ó’Neal,
Gary Payton, Isaiah Rider,
Dennis Scott, Malik Sealy
og Brian Shaw, en auk sóló-
laga taka þeir eitt saman
Cedric Ceballos og Dana
Barros. Körfuþijótunum
eru eðlilega mislagðar
hendur í rappinu, en kom-
ast furðu vel frá sínu, sér-
staklega Ceballos.
!