Morgunblaðið - 29.01.1995, Page 14

Morgunblaðið - 29.01.1995, Page 14
14 B SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 MORGUNBLAÐIÐ NÁTTÚRUGRIPASAFN ÍSLANDS ÚR NÁTTÚRUGRIPASAFNINU á neðri hæð Safnahússins, þar sem því var ætlaður staður og það flutti inn um leið og húsið var tekið í notkun 1908. AFTURA BYRJUNARREIT Náttúrugrípasafnið sækist eftir að fá aftur inni í Safnahúsinu þar Sem því var ætlaður staður á byggingarteikningum 1906. Yrði safnið vel staðsett og yki líf í Miðbænum ekki síst með vaxandi straumi ferðamanna, sem sækjast eftir að kynnast náttúru ís- lands, að því er forstjórí Náttúrufræðistofn- unar tjáði Elínu Pálmadóttur, sem hér rek- ur hrakningasögu eins elsta safns landsins. Á FYRRI hluta aldarinnar komu um áratuga skeið börn og full- orðnir í Náttúrugripasafnið á sunnudögum og skoðuðu uppstopp- uð dýr, tvíhöfða lamb og furðufugla í spritti. NATTURU- GRIPASAFN íslands á sér langa sögu, glæsta framan af, en hörmung- arsögu síðustu 50 árin, frá því ríkið tók við safninu, innlimaði sjóð þess og flutti það svo til bráða- birgða í lítið húsnæði uppi á þriðju hæð í lyftulausum stigagangi við Hlemm. Ferill safnsins og Náttúru- fræðistofnunar er löng saga svik- inna samþykkta og loforða. Háskól- inn fékk í eina tíð framlengingu á einkaleyfi Happdrættisins til að byggja yfir það á Háskólalóðinni og ófáar eru þær teikningar og lóð- ir sem ætiaðar hafa verið fyrir safn- ið þar, en ætíð aðrar byggingar fengið forgang, Háskólabíó, Áma- safn, Þjóðminjasafn o.s.frv. Fjár- munir hafa verið ætlaðir til þess, en þá ætíð komið eitthvert babb i bátinn. Síðast samþykkti Alþingi að nú yrði byggt og frumvarp sam- þykkt 1992. Var ákveðin bygging yfir náttúrufræðistofnanir skammt frá Norræna húsinu, en nú er búið að ákveða að byggja þar yfir Nor- rænu eldfjallastöðina og jarðfræði- og líffræðikennslu Háskólans, en Náttúrugripasafnið situr eftir. Umhverfisráðherra skrifaði því menntamálaráðuneytinu í haust, að tillögu stofnunarinnar, og spurðist fyrir um möguleika á því að Nátt- úrugripasafn íslands, sem nú sé í allsendis ófullnægjandi húsnæði við Hlemm, verði flutt í Safnahúsið við Hverfisgötu þegar það losnar. Sagði Ossur Skarphéðinssson ráðuneyti sitt þeirrar skoðunar að hér kunni að vera um fýsilegan kost að ræða með hliðsjón af staðsetningu húss- ins, virðuleik þess og sögulegum tengslum við Náttúrugripasafn ís- lands. Það hafi verið keppikefli ná- grannaþjóðanna að hýsa slík söfn í áberandi húsum á góðum stað og með góðu aðgengi. Menntamálaráðherra hefur skip- að nefnd þriggja ráðuneytisstjóra sem á að skila áliti fyrir 20. mars um notkun hússins, sem fleiri eru að bera víumar í. Formaður er Guðríður Sigurðardóttir frá menntamálaráðuneytinu, en aðrir í nefndarmenn eru Magnús Péturs- son frá fjármálaráðuneytinu og Ól- afur Davíðsson frá forsætisráðu- neytinu. Menntamálaráðherra hef- ur svo skipað málum til bráðabirgða að Landsbókasafn og Þjóðskjala- safn, sem enn eru þar með star- semi, nýti húsið. Aðdráttarafl í Miðbænum Ástæðan fyrir því að Náttúm- fræðistofnun Islands sækist nú eft- ir því að koma Náttúrugripasafninu aftur fyrir í gamla Safnahúsinu er ekki einungis óbrúkleg aðstaða til margra ára og vonleysi um að úr verði bætt, heldur engu síður að náttúrugripasafn nýtist í Miðbæn- um og verði aðdráttarafl fyrir ferða- mennskuna í landinu, um leið og það sé aðgengilegt skólunum til fræðslu svo og almenningi. Akur- eyringar hafa áttað sig á þessum þætti og hafa fest húsnæði við aðal- Þar er einnig fullt af öórum verum af ýmsu kyni sem liggja andaóar i brennivini um aldur og æfi: þaó eru fisk- ar, ormar, krabbar og margskonar önnur sækvikindi götuna til að flytja með haustinu í sitt náttúrugripasafn, sem þegar sækja 100 manns daglega á sumr- in. En eins og Jón Gunnar segir þá er stærstur hluti ferðamanna að sækja ísland heim til að skoða nátt- úmna og við auglýsum landið sem slíkt. Það sem fólk gerir þá gjarnan er að leita fyrst uppi náttúrufræði- safn og setja sig inn í hvað hér er að finna og afla sér fróðleiks áður en lagt er í skoðunarferðir út á land. Hér í Reykjavík er það eins óað- gengilegt og fátæklegt og hugsast getur, samt kemur alltaf reytingur af fólki í þetta litla safn á þriðju hæðinni við Hlemm, þar sem ekki eru bflastæði og vart hægt að finna það í símaskrá. Þangað var það flutt í 100 ferm skonsu 1967. Ferða- málaráð hefur ályktað að æskilegt sé að fá náttúrugripasafn í Miðbæ- inn og mundi færa líf í hann. Ógurleg er andans leið Riíjum upp hrakfallasögu þessa safns, sem fyrst var til húsa á Vest- urgötunni í núverandi húsi utanrík- isráðherra, en Hið íslenska náttúr- fræðifélag var stofnað 1889 að fmmkvæði Stefáns Stefánssonar skólameistara „með það fyrir mark og mið að koma upp náttúmgripa- safni hér í Reykjavík, því vér erum sannfærðir um, að slíkt safn hlýtur með tímanum að verða aðalupp- spretta alls náttúrufróðleiks hér á landi og fá stórmikla vísindalega þýðingu, auk þess sem það yrði til mikils sóma fyrir land og þjóð“, eins og segir í áskomn félagsins frá 9. júlí 1889. Safnið var í eigu Hins íslenska náttúrufræðifélags þar til í ársbytjun 1947 að ríkið tók við rekstri þess. Fyrstu lögin voru sett 1951 og hlaut Jjað þá nafnið Nátt- úmgripasafn Islands, en nafninu breytt í lögum í Náttúmfræðistofn- un íslands 1965 til samræmis við það markmið að safnið skyldi vera miðstöð almennra náttúrurann- sókna, þ.e. undirstöðurannsókna í dýrafræði, grasafræði ogjarðfræði. Samkvæmt lögunum var stofnun- inni einnig falið að koma upp vís- indalegu safni náttúrugripa og sýn- ingarsafni sem opið sé almenningi og veiti sem gleggst yfirlit um nátt- úm landsins. Sögunni hefur verið skipt upp í 4 tímabil: tímabil Bene- dikts Gröndals 1889-1900, tímabil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.