Morgunblaðið - 29.01.1995, Qupperneq 16
16 B SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU AUGL YSINGAR
Atvinna óskast
Húsasmiður, þungavinnu- og meiraprófs-^
maður óskar eftir starfi.
Margt kemur til greina.
Svör óskast send afgreiðslu Mbl., merkt:
i.LL - 21 “.
Gott fólk ath.!
Leita eftir vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Er með
tvær B.S. gráður í íþróttalækningaþjálfun og
sálfræði, einnig menntaður sem nuddari.
Nánari upplýsingar gefur Kristinn Magnús-
son í síma 565-3554.
Jarðeðlisfræðingur
Norræna eldfjallastöðin auglýsir stöðu jarð-
eðlisfræðings lausa til umsóknar. Áskilið er
að umsækjendur hafi doktorspróf eða sam-
bærilega háskólamenntun auk reynslu af
rannsóknum á hægfara hreyfingum jarð-
skorpunnar. Starfið felst í sjálfstæðum rann-
sóknum og túlkun á jarðskorpuhreyfingum á
eldvirkum svæðum og umsjón með styrkþeg-
um sem dvelja við stofnunina. Laun sam-
kvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Norræna eldfjallastöðin er samnorræn rann-
sóknastofnun. Hlutverk hennar er að stunda
rannsóknir innan helstu stoðgreina eldfjalla-
fræðinnar, jarðefnafræði, bergfræði, jarðeðl-
isfræði og jarðeldasögu. Stofnunin veitir vís-
indamönnum og námsmönnum aðstöðu til
rannsókna, einkum Norðurlandabúum, en
stjórn stofnunarinnar getur einnig veítt fólki
af öðru þjóðerni rannsóknarstyrki.
Forstöðumaður stofnunarinnar veitir nánari
upplýsingar um starfið og tekur við umsókn-
um, sem skulu berast fyrir 7. mars 1995.
Guðmundur E. Sigvaldason,
sími: 569-4491, símbréf: 562-9767,
Netfang: ges @ norvol.hi.is.
Verkfræðingur/
tæknifræðingur
Óskað er eftir tæknimanni í gámadeild
félagsins. Gámadeild annast rekstur gáma
félagsins, sem m.a. felst í stýringu og við-
haldi gáma með sem hagkvæmustum hætti.
Leitað er að starfsmanni til að annast eftir-
farandi meginverkefni:
• Umsjón með viðgerðum gáma á íslandi
og erlendis.
• Almennt kostnaðareftirlit með viðhalds-
og viðgerðarkostnaði.
• Eftirlit með ástandi gáma og fyrirbyggj-
andi viðhaldi.
• Áætlanagerð um rekstur og kaup gáma.
• Leiðbeinir um meðferð og notkun gáma.
Leitað er að verk- eða tæknifræðingi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu á
sviði málmiðnaðar. Skilyrði er að starfsmað-
ur hafi gott vald á ensku, skrifaðri og
talaðri, og sé vanur tölvum.
Þeir, sem hafa áhuga, eru vinsamlegast
beðnir um að leggja inn umsóknir til starfs-
þróunardeildar EIMSKIPS í Pósthússtræti 2
fyrir 3. febrúar nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
EIMSKIP
Arnarnes
- blaðberar óskast
Upplýsingar í síma 691114.
JRtvgmiÞIafrifr
íslenskt-franskt hf.
Óskum eftir að ráða starfsfólk í pökkun á
matvælum.
Upplýsingar á staðnum virka daga milli
kl. 13 og 16.
íslenskt-franskt hf.,
Dugguvogi 8.
Iðntæknistofnun vinnur að tækriiþróun og aukinni fram-
leiðni i íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjónusta,
fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfsfólk til
að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Tölvari
Iðntæknistofnun óskar eftir að ráða tölvara
til starfa.
Starfssvið tölvara er að annast daglegan
rekstur tölvukerfa Iðntæknistofnunar og
veita notendum aðstoð.
Meginmarkmið er að reksturtölvukerfa gangi
sem liðlegast fyrir sig.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi til-
skylda menntun og haldbæra reynslu og
þekkingu. á eftirfarandi: Netstýrikerfi Lan
Manager, Unix og notendahugbúnaði; Word
og Excel. Áhersla er lögð á góða hæfileika
í mannlegum samskiptum, útsjónarsemi,
skipulagsgáfu auk dugnaðar og samvisku-
semi í starfi. Starfsreynsla er talin æskileg.
Hvatt er til að konur, jafnt sem karlar, sæki
um stöðuna.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila til Iðntæknistofnun-
ar, Keldnaholti, fyrir 14. feb. nk.
Allar nánari upplýsingar gefur Örn Gylfason,
fjármálastjóri, í síma 587 7000 frá kl. 10.00-
12.00 næstu daga.
Iðntæknistof nun ■ l
Keldnaholti, 112 Reykjavík,
sími 5877000.
Framleiðslustjóri
ALPAN hf. leitar að manni í starf framleiðslu-
stjóra í verksmiðju félagsins á Eyrarbakka.
Starf framleiðslustjóra felur í sér: Daglega
stjórn verksmiðjunnar, umsjón með aðföng-
um og viðhaldi sem og þróunarvinnu.
Leitað er að manni með rekstrarmenntun á
háskólastigi. Æskilegt er að viðkomandi hafi
einnig menntun og/eða reynslu í málmsmíði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi fasta búsetu
á Árborgarsvæðinu (Hveragerði, Þorláks-
höfn, Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakki) eða
sé tilbúinn að flytja þangað.
Umsóknir, sem tilgreini menntun og starfs-
reynslu, óskast sendar fyrir 10. febrúar til
framkvæmdastjóra ALPAN, sem gefur
nánari upplýsingar.
á
í
LOOK
ALPAN hf.
[Á
Laus staða
Sambýli aldraðra í Kópavogi, þar sem 14
aldraðir eiga heimili, óskar eftir að ráða
matráðskonu í fullt starf við fyrsta tækifæri.
Einhver starfsreynsla nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
sambýlisins í síma 45088 kl. 13-15 mánudag
til fimmtudags.
Umsóknum skal skil í afgreiðslu Félagsmála-
stofnunar Kópavogs, Fannborg 4, í síðasta
lagi 2. febrúar nk.
Starfsmannastjóri.
Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni fram-
leiðni í islensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaöar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjónusta,
fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfsfólk til
að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Ef na ver kf ræðing u r
- efnafræðingur
Umhverfis- og efnatæknideild Iðntæknistofn-
unar óskar að ráða til starfa efnaverkfræðing
eða efnafræðing með þekkingu á sviði um-
hverfismála.
Starfsmaðurinn mun hafa með höndum eftir-
lit og umsjón með mælitækjum og sjá um
ýmsar efnamaelingar. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi reynslu af efnagreiningum.
Starfsreynsla er einnig talin kostur.
Um er að ræða starf sem krefst frumkvæð-
is, sjálfstæðra vinnubragða og ábyrgðar.
Boðið verður upp á starfsþjálfun eftir þörfum.
Hvatt er til að konur, jafnt sem karlar sæki
um. Skriflegar umsóknir berist til Guðjóns
Jónssonar deildarstjóra fyrir 14. febrúar.
Hann veitir jafnframt allar nánari upplýsingar
um starfið.
Iðntæknistofnun 11
Keldnaholti, 112 Reykjavík,
sími 5877000.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Sérfræðingur á
markaðssviði
Auglýst er eftir sérfræðingi til starfa á
markaðssviði Landsbankans.
Umsækjendur þurfa að hafa grunnskóla-
menntun í viðskiptafræði, hagfræði eða verk-
fræði. Þar að auki er framhaldsháskóla-
menntun á sviði rekstrarhagfræði, helst með
sérstakri áhrerslu á markaðsfræði, nauðsyn-
leg. Einhver starfsreynsla er æskileg en ekki
skilyrði.
Leitað er að framsæknum og hugmyndarík-
um einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt
og í hópvinnu og er lipur í mannlegum sam-
skiptum.
Markaðssvið Landsbankans er krefjandi
starfsvettvangur þar sem unnið er að ráð-
gjöf og þjónustu fyrir bankastjóra og útibú
bankans sem og viðskiptavini.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum S.Í.B.
og bankanna.
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar nk.
Umsóknum sé skilað til Ara F. Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra starfsmanna-
sviðs, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
155 Reykjavík. Hann gefur jafnframt nánari
upplýsingar.