Morgunblaðið - 29.01.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 19
Atvinna
(formax)
Óskum eftir að ráða starfsmann við ryðfría
smíði. Aðeins vanur maður kemur til greina.
Upplýsingar hjá Formax hf. í síma 562-6800.
„Au pair“ - Kalifornía
„Au pair“ óskast til að gæta tveggja lítilla
barna í 1 ár. Þægilegt heimili og fjölskylda.
Veiður að tala ensku, vera reyklaus
og barngóð. Reynsla æskileg.
Skrifið til: Moralis, 7136 Rocksprang Lane,
Highland, California 92346.
Mynd fylgi ásamt símanúmeri.
Laus staða
Staða flugvallarvarðar á Bíldudalsflugvelli hjá
Flugmálastjórn er laus til umsóknar.
Umsækjendur hafi meirapróf bifreiðastjóra og
réttindi á þungavinnuvélar. Laun samkvæmt
kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 6. febrúar 1995.
Forritari
VKS hf. óskar eftir að ráða vanan forritara
til starfa.
Viðkomandi þarf að hafa menntun og/eða
reynslu af forritun undir Windows, helst í
Visual Basic eða C + +.
VKS hf. var stofnað árið 1979 og hefur ætíð
verið í fararbroddi íslenskra hugbúnaðarfyrir-
tækja. Fyrirtækið hefur með höndum fjöl-
breytt og áhugaverð verkefni. Sérstök
áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð og er
um þessar mundir unnið að því að fá vottun
skv. ISO 9001 fyrir starfsemi fyrirtækisins.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlega komi upp-
lýsingum um menntun og reynslu til Ágústar
F. Hafberg á skrifstofu fyrirtækisins að Bílds-
höfða 14.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og verður öllum umsóknum svarað.
VKS
VERK- OG KERFISFRÆÐISTOFAN HF.
Launafulltrúi
Starfsmannahald Reykjavíkurborgar
óskar að ráða launafulltrúa til starfa.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Aðalverksvið launafulltrúa er alhliða þjón-
usta við starfsmenn Reykjavíkurborgar,
umsjón og afgreiðsla launa fyrir stofnanir
Reykjavíkurborgar.
Leitað er að nákvæmum og töluglöggum
einstaklingi. Góð undirstöðumenntun er
nauðsynleg. Þekking/kunnátta á þessu
starfssviði er æskileg.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi St.Rv.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7, Reykjavík og skal umsóknum skilað
á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 8. febrúar nk.
ftJÐNT TÓNSSON
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða aðstoðardeildarstjóra á vist-
deild. 80-100% vinna. Hjúkrunarfræðing á
kvöldvaktir á vistdeild. Vinnuhlutfall eftir
samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn-
um eða í síma 26222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
w
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Óskum að ráða þroskaþjálfa eða annað upp-
eldismenntað starfsfólk í stuðningsstarf frá
1. mars nk. í leikskólann Leikgarð, Eggerts-
götu 14.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 551-9619.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Grafískur hönnuður
Öflugt og vaxandi þjónustufyrirtæki á höfuð-
borgarsvæðinu óskar að ráða grafískan
hönnuð. Um er að ræða fjölbreytt starf í
krefjandi umhverfi. Viðkomandi þarf bæði að
geta unnið sjálfstætt og með öðrum að
margvíslegum skapandi verkefnum.
Vinsamlegastsendið umsóknir, merktar: „BK
- 1000“, til afgreiðslu Mbl. fyrir 6. febrúar.
Kvöldvinna
- aukatekjur
Getum bætt við okkur sölufólki í símasölu.
Vinnutími frá kl. 17.00-22.00.
Upplýsingar gefur Edda Hrafnhildur í síma
581 1743 mánudag og þriðjudag milli
kl. 10 og 12.
Skjaldborg hf.
Tollstjórinn
í Reykjavík auglýsir
Laus eru til umsóknar störf endurskoðenda
í tollheimtudeild.
Laun samvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Skilyrði fyrir fastráðningu er að umsækjendur
hafi lokið prófi frá Tollskóla ríkisins.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
á skrifstofu embættisins í Tryggvagötu 19,
Reykjavík, fyrir 23. febrúar nk.
Reykjavík, 23. janúar 1995.
Tollstjórinn í Reykjavík.
Kerfisstjóri
Við óskum eftir að ráða starfsmann til að
hafa daglega umsjón með tölvu- og upplýs-
ingakerfi Húsasmiðjunnar hf. ásamt því að
aðstoða notendur kerfisins við ýmis verkefni
tengd því.
Skilyrði er að viðkomandi hafi ménntun sem
tölvunarfræðingur, aðra menntun tengda
tölvufræðum eða mikla starfsreynslu við fjöl-
notendatölvukerfi.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist starfsmannahaldi Húsasmiðjunnar
hf. fyrir 4. febrúar 1995.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum svarað.
Ert þú
góður sölumaður?
Áskriftardeild Fróða hf. getur bætt við sig
duglegu og áhugasömu sölufólki til að selja
áskriftir að tímaritum í gegnum síma á kvöldin.
Fast tímakaup auk mjög góðs og hvetjandi
launaprósentukerfis í boði en það hefur gef-
ið sölufólki okkar allt að 100.000,- króna laun
á mánuði fyrir aðeins 4 kvöld í viku.
Vinnutíminn er frá kl. 18.00-22.00 mánu-
dags-, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtu-
dagskvöld. Ef þú ert eldri en 20 ára og hefur
reynslu af sölustörfum, þá er þetta vissulega
eitthvað fyrir þig.
Nánari upplýsingar gefur Unnur í síma
987-5380 mánudag og þriðjudag á milli kl.
9.00 og 12.00.
FROÐI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Ármúla 18, 108 Reykjavík
Hf. Olgerðin
Egill Skallagrímsson
óskar eftir starfsmanni við útibú fyrirtækisins
á Reyðarfirði. Starfið felur í sér útkeyrslu,
lagerhald og annað er snýr að starfsemi
Ölgerðarinnar á svæðinu.
Þar sem starfsemin er gerð út frá Reyðar-
firði er nauðsynlegt að starfsmaður búi á
Reyðarfirði eða nágrenni.
Leitað er eftir starfsmanni á aldrinum 20-35
ára sem hefur meirapróf og metnað til að
standa sig vel í starfi.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Ölgerðin, Reyðarfirði“ fyrir 7. febrúar 1995.
ÖLFUSHREPPUR
Byggingafulltrúi
Staða byggingafulltrúa Ölfushrepps er laus
til umsóknar.
Próf í byggingatæknifræði, byggingaverk-
fræði eða sambærileg menntun er nauðsyn-
leg auk reynslu við umsjón og eftirlit með
verklegum framkvæmdum.
Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf í
lok apríl eða byrjun maí.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7, Reykjavík og skal umsóknum skilað
á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk.
GUÐNIIÓNSSON
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKjAVÍK, SÍMI 62 13 22