Morgunblaðið - 09.07.1995, Blaðsíða 1
Hl 4
Á HÁTINDINUM 2 P o 1 fta s a m f é 1 ö) o
SUNNUDAGUR
SUNMDAGUR
9. JULI 1995
plnrgmtiMaltií
BLAÐ
B
Það er hvergi komið að tómum kofunum hjá þeim Guðjoni og Óskari Garðakotsbræðrum
við Dyrhólaey skrifar, Árni Johnsen. Þeir séu víðlesnir, glöggir og snöggir að vinsa hismið
frá kjarnanum, góðir sögumenn og krydda þá gjarnan með nýyrðum og tilsvör þeirra eru
oft hvöss og gamansöm í senn. Árni og Ragnar Axelsson Ijósmyndari sóttu þá bræður heim.
:
ÞEIR draga mjög dám af um-
hverfi sínu, búa yfir tærri
náttúrlegri hugsun og
stundum veit maður ekki hvort þeir
eru fremur hluti af sérstæðri náttúru
Dyrhólaeyjar eða umhverfið hluti af
þeim. Að minnsta kosti hljómar þetta
allt saman. Augnsvipurinn getur
verið blíðari en allt sem blítt er gagn-
vart blómi í haga eða fugli við hreið-
ur eða gesti í garði, því gestrisni
þeirra er einkar hlý og mikil. í ná-
vist þeirra finnst manni á auga-
bragði að maður sé heimamaður en
ekki gestkomandi. Er hægt að hugsa
sér betri gestrisni? En það getur
hvesst hjá þeim eins og í Tóargatinu
á Dyrhólaey, hvesst í augum og orð-
um. Og þá er nú gaman, það er sem
brimskaflarnir dynji. Svo skellur á
með blíðviðri aftur, því náttúran er
söm við sig. Það fylgir enginn há-
vaði mannlífinu í Mýrdalnum, en það
hefur ekki alltaf verið logn þar.
Smáatriðin geta geta orðið glettilega
stór og þá er tekist fast á og glímt
með orðanna hljóðan. Þeir bræður,
Guðjón og Óskar Þorsteinssynir,
bændur í Garðakoti í Dyrhólahverf-
inu, hafa lifað lífinu á sama stað, á
heimaslóðinni. Hvergi er komið að
tómum kofunum hjá þeim, víðlesnir,
glöggir og snöggir að vinsa hismið
frá kjarnanum, góðir sögumenn og
krydda þá gjarnan með nýyrðum og
tilsvör þeirra eru oft
hvöss og gamansöm
í senn. Einu sinni
'O'/vn
sigldi ég með þeim inn í Lundadrang
við Dyrhólaey. Siglt er inn um op í
bergveggnum, en fyrir innan er höfn
af náttúrunnar hendi eins og heiðat-
jörn í faðmi bjargveggjanna. Ég
spurði Guðjón dolfallinn hvort þetta
fyrirbæri héti eitthvað. Já, svaraði
Guðjón að bragði, þetta heitir Atl-
antshafið. Þannig
er leikurinn þar
um slóðir,
kreskni, gamansemi og vísdómur í
senn.
Það var milt veður einn júnídaginn
þegar við heimsóttum þá bræður og
fórum með þeim niður á sanda. Oft
er farið á fjöruna að huga að reka,
timbri, belgjum, kúlum. Raftarnir
eru notaðir í girðingarstaura og úr
öllu nýtilegu má vinna verðmæti. í
suðvestanátt er rekinn mestur, en
það eru áraskipti að þessu eins og
öðru, fer meðal annars eftir vinnu-
gleði þeirra og hirðusemi austur í
Rússíá á fljótunum stóru þegar
stofnum er fleytt fram.
SJÁ SÍÐU 11
fSÍS ?