Morgunblaðið - 30.07.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995 B 13
Skúmurinn er
hvergi á land-
inu einsgrimm-
ur og úti í Ing-
ólfshöfða.
Uppiájöklier
veröldin allt
önnurf fjöll allt
um kring og
tilfinningin
ólýsanleg.
ur til þess eins að gera ferðina
áhrifameiri.
Leyndarmál hans í sambandi við
skúminn er að fuglinn er ekki eins
aðgangsharður ef fólk er í hnapp
og því leggur Sigurður áherslu á
að fólkið haldi hópinn en sjálfur
gengur hann á undan til þess að
sýna því hvernig fuglinn ræðst að
fólki. „Það er tiltölulega sjaldgæft
að hann lemji ferðamennina og þá
ekki nema þeir taki sig út úr hópn-
um,“ segir hann og dregur úr fyrri
yfírlýsingu.
Ferðin út í höfða
Þegar hér er komið viðtalinu
spyr Sigurður hvort við eigum ekki
að skella okkur út í höfðann og
þegar það er samþykkt festir hann
heyvagninn við dráttarvélina.
„Þú skalt halda þér fast því
þegar þú ert ein í vagninum hrist-
ist hann meira en ella,“ segir hann
áður en við höldum af stað. Og
engu er logið um það, því ekki
ráðlegg ég bakveiku fólki að hrist-
ast þama í þann hálftíma sem ferð-
in tekur. Hitt er annað mál að ferð-
in er eftirminnileg og kannski eink-
um fyrir útlendinga sem eiga ekki
að venjast ferðalagi sem þessu
yfir vötn og sanda.
„Ingólfshöfði er einn af þremur
stærstu sögustöðum þjóðarinnar
og var hann friðlýstur 1978, en
fyrsti landnámsmaðurinn bjó á
þessum stað einn vetur.
Þjóðsagan segir að 874 þegar
Ingólfur kom hingað til lands hafi
fjörður verið hér norðan við höfð-
ann,“ segir Sigurður þegar við
stöndum við minnismerki um Ing-
ólf sem reist var fyrir þjóðhátíðina
1974. „Hann átti að leggjast að
klettinum þarna en út úr honum
stóð blágrýtishella með gati í, þar
sem hann batt skipið.“ Orðum sín-
um til stuðnings vitnar hann í frá-
sögn prests sem kallaður var
Svarti-Gísli og dó árið 1703. „Við
Selsker má sjá að kaupskip hafi
legið við klett með gati, sem hægt
er að stinga handlegg í gegnum,
og sér til búðarrústa," segir þar.
íslandssagan
Á göngu okkar að leið að bæjar-
rústum Ingólfs segir hann söguna
um Kára Sölmundarson. „Þegar
Kári hafði hefnt fyrir Njál og Njáls-
syni í Skotlandi eða Suðureyjum
kom hann til íslands við átjánda
mann og braut skip sitt við Ingólfs-
höfða. Eftir árið 1000 voru hér
tvær kirkjusóknir, Eyrarhorn og
Rauðilækur og sjálfsagt margir
bæir.
Kári átti ekki margra kosta
völ, því hann var kominn inn í
mitt ríki Flosa og gengur heim
að Svínafelli. Og Flosi gaf honum
Hildigunni, sem kom Njálsbrennu
af stað, og jörðina Breiðá. Sagt
er að Kári hafi verið lítill bóndi
en meiri veiðimaður og að hann
hafi verið við fuglatekju og fiski-
drátt í Ingólfshöfða."
Þegar við vorum komin aðeirís
lengra og Sigurður búinn að miðla
nokkuð af fróðleik sínum rétti
hann mér spýtu með þeim orðum
að nú ráðist skúmurinn auðvitað
á okkur bæði þar sem við séum
útsma
Síðasta v'ka efnum
.50% afslattur ai«
Vefnaðarvöruverslunin.
textil I i n e
Faxafen 12 s. 588 1160
Þegar sólin skín er ég friðlaus þangað til ég er lagður
af stað upp jökulinn.
einungis tvö á ferð. „Þessi er sér-
staklega grimmur, því hann er
orðinn svo gamall," sagði hann
þegar einn stefndi beint á okkur
og mér stóð ekki á sama þegar
vængjaþyturinn hvein í eyrunum,
enda hafði ég nærri því stigið á
hreiður með eggi og einum unga.
Eina sögu um skúmana lætur
Sigurður flakka, en hún er sú að
þegar þeir flokki sig saman og
gargi hver upp í annan séu þeir >
kallaðir kjaftaskúmar. „Þetta er
ekki neitt hnjóðsyrði í okkar
munni, en eitt sinn þegar Lúðvík
Jósepsson og Sverrir Hermanns-
son voru hér á framboðsfundum
töluðum við um þá sem kjafta-
skúma, því þeir létu aldri neinn
eiga neitt hjá sér. Við teljum fólki
þetta frekar til hróss en hitt, en
um það vissu þeir ekki!“
Ætt upp á jökul að nóttu
Það er farið að hvessa nokkuð
þegar við höldum til baka yfir
sandinn og því gott að vera vel
búinn. Að ferðinni lokinni býður
Sigurður upp á kaffi og þá kemur
í ljós að Einar sonur hans er kom-
inn ofan af jökli,
Hann kveðst ekki munu stoppa
lengi því hann stefni á jökulinn
aftur innan fárra klukkustunda
ásamt tveimur Þjóðverjum, sem
setja það ekki fyrir sig að leggja
af stað klukkan þtjú að nóttu.
„Það þýðir ekkert annað, því gert
er ráð fyrir að dragi fyrir sólu
seinni partinn á morgun," segir
hann.
Einar býður upp á ýmsar ferðir
en segir að ísklifið í Svínafells-
jökli eigi einna mestum vinsældum
að fagna. Hann er sá eini sem
býður upp á slíkt, en er í sam-
keppni við nokkra aðra um ferðir
á jökulinn.
Til að komast á Hvannadals-
hnúk ekur hann með farþega
fyrstu 900 metrana þar til komið
er að snjólínu. Á sumrin er sólbráð
mikil og til að auðvelda gönguna
setur Einar skinn undir skíðin en
á niðurleið dregur hann þau á
farangurssleða. Áður en hann
byijaði að nota skíðin varð hann
að hefja ferðirnar á kvöldin til að
forðast sólbráðina.
Líkt og Ingólfshöfði er paradís
Sigurðar eru jöklarnir drauma-
staður Einars. „Þarna er maður
kominn í allt aðra veröld og langt
frá allri gróðursæld. Hvert sem lit-
ið er blasa við fjöll. Tilfinningin
er ólýsanleg," segir hann.
„Þegar sólin skín er ég friðlaus
þangað til ég er lagður af stað upp
jökulinn, svo er þetta örugglega í
blóðinu," heldur hann áfram, en
svo skemmtilega vill til að nýlega
uppgötvaðist að langafi hans, Páll
Jónsson, var fyrsti maður til að
ganga á hæsta tind Öræfajökuls.
„Fram til þessa hefur verið álitið
að hæsta ijall íslands hafi verið
klifið 1813. En Snævar Guðmunds-
son sem er að gefa út bók um
Öræfajökul, fann út að í raun var
það ekki fyrr en 1891 og var lang-
afi minn fylgdarmaður í þeim túr.
Eg fullyrði að langafi hafi verið
fyrstur á tindinn því hann var leið-
sögumaðurinn," segir Einar og
kveðst hafa gaman af þessari sögu.
Lærður Ijósmyndari
Einar lærði jsklifur bæði í
Frakklandi og á Ítalíu, en fyrst lá
leið hans þó til Svíþjóðar að læra
ljósmyndun. „Það var svo flatt í
Stokkhólmi að ég fór til Frakk-
lands í allt annað. Þar kunni ég
betur við mig innan um fjöllin,"
segir hann. „Þar lærði ég mest í
skíðamennsku og klettaklifi, en á
Ítalíu lærði ég meira í jökla-
mennsku eins og að bjarga mér
eða félögum mínum úr sprungum.
Ég held að ég kunni ýmislegt fyr-
ir mér í jöklamennsku sem enginn
annar kann á íslandi," heldur hann
áfram.
Hann segist ennþá sjá menn
gera sömu mistök og hann hafi
gert í upphafi, þ.e. að binda línu
um mittið. „Menn gera ekki beinlín-
is ráð fyrir að detta í sprungu. En
komi það fyrir þrengir bandið svo
að manninum að líðanin verður
óbærileg og þá er jafnvel eina
lausnin að skera sig lausan sjálfur."
Þetta er fyrsta sumarið sem Ein-
ar sinnir fjallaferðunum eingöngu
því í fyrrasumar vann hann sem
landvörður í Skaftafelli og átti einn
frídag í viku. Sá dagur var notaður
til að klífa Hvannadalshnúk. Meðan
flestir láta sér nægja að klífa hæsta
tind landsins einu sinni á ævinni
hefur Einar klifið hann rúmlega 40
sinnum og er spuming hvort hann
eigi íslandsmet í því. „I lok sumars-
ins er gangan orðin auðveld fyrir
mig en hún tekur á í fyrstu, því
ég er venjulega með öryggisbúnað
sem vegur um 20 kíló og á niður-
leið hafa skíðin bæst við,“ segir
hann.
Vill Telemark-keppni
Aðspurður hvaða ferðir honum
finnist mest heillandi segir hann
það vera Telemark-tækni á göngu-
skíðum. „Það er sérstök aðferð til
að fara niður brattar brekkur. Ég
fer til dæmis á skíðum frá efsta
hnúk og niður að bíl, en að vísu
ekki yfir hásumarið vegna þess að
þá eru meiri hættur á að sprangur
hafi myndast frá því við fóram
uppeftir," segir hann og í framhaldi
af því segist hann gjarnan vilja sjá
keppni í slíkri tækni hér á landi,
en sjálfur hefur hann keppt á al-
þjóðlegu Telemark-móti.
Hann er bjartsýnn á framtíðina
og hyggst byggja starfsemina einn-
ig upp yfir vetrartímann, þ.e. eftir
áramót og segir bókanir næsta vet-
ur þegar lofa góðu. „Þegar gott
veður er á vetrin er oft meira meg-
inlandsloftslag en á sumrin, en ef
eitthvað er tvísýnt framundan
hreyfir maður sig ekki,“ segir hann
aðspurður hvort veðrið hamli ekki
ferðum.
Hann segist auk jeppa- og skíða-
ferða stefna að hálfsmánaðar vetr-
arferðum fyrir vant erlent skíða-
fólk, þar sem gengið verði á Öræfa-
jökul og Eyjafjallajökul og hugsan-
lega Snæfellsjökul. „Röðin af
gönguferðunum stjórnast auðvitað
af veðrinu," segir hann þegar tími
er kominn til að hætta spjallinu svo
hann nái nokkurra klukkustunda
svefni fyrir næstu ferð.
Lokað mánudaginn 31. ágúst
hefst á þriöjudaginn
kl. 7.00
Ioppskórinn
VELTUSUNDl • SÍMI 552 1212
VIÐ INGÓLFSTORG