Morgunblaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 28
28 D FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐURKENNINGU fyrir frágang húss og lóðar á nýbyggingarsvæðinu hlutu raðhúsin við Lindasmára 44- 54. Mynd þessi er af Friðrik Haraldssyni og Kristr- únu Hólm Zakaríasdóttur, en þau búa á Lindasmára 50. GUÐMUNDI Jónssyni, fyrrverandi forsljóra BYKO, var veitt viðurkenning fyrir ræktun í Vatnsendahlíð. Guðmundur hóf ræktun á þessu svæði 1967 og nú er þarna kominn fallegur greniskógur á stóru svæði. BÆJARSTJÓRN Kópavogs veitti íbúum Brekkutúns viðurkenningu fyrir fegurstu húsagötuna. Brekkutún byggðist upp í kringum 1982. Hús og umhverfi mynda samræmda og skemmtilega heild. *» UMHVERFISRÁÐ og bæjarstjórn Kópavogs veittu fyrir skömmu árlegar viðurkenningar sínar fyr- ir snyrtilegt umhverfi íbúðarhúsa og fyrirtækja í bænum. Að þessu sinni voru veittar sjö viðurkenn- ingar, en alls hefur 164 lóðum verið veitt viðurkenning frá 1964. I ár var tekin upp sú ný- breytni, að Umhverfisráðið veitti viðurkenningar fyrir endurgerð húsnæðis, hönnun, frágang húss og lóðar á nýbyggingasvæði, framlag til ræktunarmála og at- hyglisvert framlag til umhverfis- mála. Endurgerð húsnæðis Viðurkenning fyrir endurgerð húsnæðis var veitt hjónunum Sig- fúsi M. Karlssyni og Jónu Sigríði Valbergsdóttur vegna hússins Kópavogsbraut 80. Húsið er timb- urhús reist árið 1954 af Jóhönnu I. Sigurðardóttur og Ásgeiri Jóns- syni. Síðan hefur tvisvar sinnum verið byggt við húsið af núverandi eigendum. Viðurkenningu fyrir frágang h'úss og lóðar á nýbyggingasvæð- inu hlutu eftirtaldir eigendur rað- húsanna við Lindasmára 44-54. Óskar Örn Garðarson og Stein- unn Ásta Finnsdóttir, Lindasmára 44. Sveinn Mikael Árnason og Mar- ía Gréta Guðjónsdóttir, Linda- smára 46. Tómas Þór Tómasson og Helga Kópavogur Viðurkenningar fyrir fallegt umhverfi Jónasdóttir, Lindasmára 48. Friðrik Haraldsson og Kristrún Hólm Zakaríasdóttir, Lindasmára 50. Halldór Nguyen og Sæfríður Björnsdóttir, Lindasmára 52. Sigurjón Sveinn Randversson og Fjóla Finnsdóttir, Lindasmára 54. Byggingarframkvæmdir hófust á árinu 1991 og eru hús og lóðir því sem næst fullfrágengin. Frá- gangur húsa og Ióða er til fyrir- myndar og ber vott um, að sam- staða er meðal eigenda um að ganga snyrtilega frá umhverfi sínu. Framlag til ræktunarmála Guðmundi Jónssyni, fyrrver- andi forsljóra BYKÖ, var veitt viðurkenning fyrir ræktun í Vatnsendahlíð. Guðmundur hóf ræktun á þessu svæði árið 1967 og nú er þarna kominn fallegur greniskógur á stóru landsvæði. Bæjarsljórn Kópavogs veitti Morgunblaðið/Magnús Pjalar VIÐURKENNING fyrir endurgerð húsnæðis var veitt hjónun- um Sigfúsi M. Karlssyni og Jonu Sigríði Valbergsdóttur vegna hússins að Kópavogsbraut 80. Húsið er timburhús reist árið 1954, en síðan hefur tvisvar sinnum verið byggt við það af núverandi eigendum. Mynd þessi er af þeim Sigfúsi M. Karls- syni og Hjalta syni hans fyrir framan húsið. íbúum Brekkutúns viðurkenningu fyrir fegurstu húsagötuna. Brekkutún byggðist upp í kring- um 1982 og fluttu fyrstu íbúarnir inn það sama ár. Hús og um- hverfi mynda samræmda og skemmtilega heild. Benjamín Magnússon, arkitekt í Kópavogi, fékk viðurkenningu fyrir hönnun á Listasafni Kópa- vogs, Gerðarsafni og Digranes- kirkju. Viðurkenning fyrir athyglisvert framlag til umhverfismála var veitt Hauði Kristinsdóttur, mynd- menntakennara í Kópavogi, fyrir merkingar á miðbæjarsvæðinu. Sögu- og náttúruminjar Viðurkenningar þessar voru veittar í samvinnu við Lionsklúbb Kópavogs, Rótaryklúbb Kópa- vogs, Kiwanisklúbbinri Eldey, Lionsklúbbinn Muninn og Lyons- klúbbinn Yr. Þessir klúbbar hafa ennfremur tekið að sér að merkja sögu- og náttúrminjar í bæjarland- inu. Eftirtaldir staðir verða merktir i ár: Borgir (Borgarholt), friðlýst náttúrvætti. Tröllabörn í Lækjarbotnum, friðlýst náttúruvætti. Efri-Víghóll, friðlýst náttúru- vætti. Þingnes við EUiðavatn, friðlýst- ar söguminjar. Þinghóll, friðlýstar söguminjar. Seltjarnarnes Hofgarðar fegursta gatan HOFGARÐAR voru valdir feg- ursta gatan á Seltjarnarnesi í ar. í umsögn umhverfisnefndar Sel- Ijarnarness segir, að íbúum þess- arar götu hafi verið veitt þessi viðurkenning fyrir vel hirtar lóð- ir og fallega garða, er beri íbúum götunnar gott vitni. — Við þessa götu er að finna marga garða með fjölbreytileg- um gróðri, sagði Jens P. Hjalt- ested, formaður umhverfis- nefndar Seltjarnarness. — Þeir sýna, að þrátt fyrir allt tal um, að veðurfar á Nesinu geti reynzt garðeigendum erfitt, er ekkert því til fyrirstöðu að koma þar upp fallegum görðum, ef viljinn er fyrir hendi. Fallegasti garðurinn á Sel- tjarnarnesi var að þessu sinni valinn garðurinn við Sólbraut 19, en eigendur eru María Ólafsdótt- ir og Guðmundur Ólafsson. Auk þess fengu tveir aðrir garðar sérstaka viðurkenningu, en þeir eju: Vallarbraut 22, en eigendur eru Siguijón Stefánsson og Ingi- björg E. Halldórsdóttir og Hof- garðar 24, en eigendur eru Gunn- ar H. Pálsson og Sesselja Krist- insdóttir. Viðurkenning fyrir fallegt umhverfi við fyrirtæki eða stofn- un fór að þessu sinni til íbúða áidraðra við Skólabraut 3-5. FALLEGASTI garðurinn á Seltjarnarnesi var að þessu sinni valinn garðurinn við Sólbraut 19. Eigendur eru María Ólafsdóttir og Guð- mundur Ólafsson. Viðurkenningarathöfnin fór fram á Eiðistorgi, þar sem Jens P. Hjaltested bauð gesti vel- komna og Hildur Jónsdóttir, umsjónarmaður með garðaskoð- un 1995, veitti viðkomandi eig- endum viðurkenningarslgal. Morgunblaðið/Magnús Fjalar HOFGARÐÁR voru valdir fegursta gatan á Seltjarnar- nesi í ár. Viðurkenningin var veitt fyrir vel hirtar lóðir og fallega garða, er bera íbúum götunnar gott vitni, segir í umsögn umhverfisnefndar bæjarins. VIÐURKENNING fyrir fal- legt umhverfi við fyrirtæki eða stofnun fór að þessu sinni til íbúða aldraðra við Skóla- braut 3-5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.