Morgunblaðið - 17.09.1995, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Málsvari tóbaksiðnaðarins snýr við blaðinu
Flett ofan af áróðurs-
starfi tóbaksframleiðenda
ÞEGAR Bill Clinton
B andaríkj aforseti
kynnti áætlaðar að-
gerðir sínar til að
stemma stigu við reykingum
ungmenna í Bandaríkjunum fyrir
mánuði og réðst þar með til at-
lögu gegn hinum öfluga þrýsti-
hópi tóbaksframleiðenda, naut
hann á fréttamannafundi full-
tingis Victors nokkurs Craw-
fords, sem beindi orðum sínum í
beinni útsendingu til bandarískr-
ar æsku og sagði: „Nokkrir af
slyngustu mönnum Bandaríkj-
anna helga alla sína starfskrafta
aðeins einu verkefni - að finna
leiðir til að fá ykkur til að reykja."
Victor L. Crawford vissi hvað
hann var að segja. Hann eyddi
sex árum ævi sinnar sem fær og
þekktur lögmaður í Maryland-
ríki í ötúlt starf í þágu tóbaks-
framleiðenda með því að beijast
gegn tilraunum heilbrigðisyfir-
valda til að setja reykingum
-auknar skorður. Nú hefur Craw-
ford skipt um herbúðir. Hann er
63 ára að aldri og á nú skammt
eftir óiifað sökum krabbameins
í hálsi af völdum áratuga reyk-
inga.
Árið 1991 fann Crawford fyrir
sársauka í hálsi, sem í fyrstu var
sjúkdómsgreint sem æðabólga, en
brátt kom í ljós, að um var að
ræða „skólabókardæmi um
krabbamein orsakað af reyking-
um,“ eins og læknir hans orðaði
það. Árjð 1993 uppgötvaðist
meinvarp í lungum, lifur og
mjaðmarbeini Crawfords. Hann
gekkst undir marga uppskurði og
hefðbundnar krabbameinsmeð-
ferðir. Nýlega uppgötvuðust fleiri
skemmdir vefir í lungum hans og
undirgengst hann nú lyfjameð-
ferð.
Crawford hóf reykingar 13 ára
gamall. Fyrst reykti hann sígar-
ettur en skipti yfir í pípu og vindla
þegar hann var kominn hátt á
fertugsaldur. Nú er hann 63 ára
gamall og verður ekki mikið eldri.
Eftir að Crawford varð þetta ljóst,
hóf hann snemma árs 1994 fyrir
milligöngu lögfræðings, sem hann
þekkti hjá tóbaksvamarfélagi
nokkru í Washington, að afla -
nafnlaust - blaðamanni hjá The
New York Times Magazine innan-
búðarupplýsinga um starf hinna
launuðu fulltrúa þrýstihópsins, í
þessu tilfelli „tóbakslobbýista".
Fyrsti „lobbýistinn“ sem
„kemur út úr skápnum“
Blaðamaðurinn fékk Crawford
til að „koma út úr skápnum" og
lýsa sjálfur opinberlega _______
þeim aðferðum sem
tóbaksframleiðendur
beita til að veija hags-
muni sína. Þetta er í
fyrsta sinn sem maður,
sem hefur starfað í innsta hring
þeirra, sem stjórna stefnu og
áróðri tóbaksiðnaðarins í Banda-
ríkjunum, stígur fram fyrir
skjöldu og opinberar reynslu sína.
Vitnisburður hans hefur í milli-
tíðinni m.a. leitt til þess, að í
Maryland-ríki hafa nú verið sett
ströngustu reykingavarnarlög í
Bandaríkjunum. Ein alvarlegasta
skráveifan, sem hann hefur gert
fyrrverandi umbjóðendum sínum,
er að hafa hjálpað til við að
hrinda tilraunum þeirra til að
hindra ný lög í Flórída, sem eiga
að gera stjómum einstakra ríkja
TÓBAKSFRAMLEIÐENDUR í Bandaríkjunum
eiga mikið undir sér.
»RAgcw.n
oAKSVIÐ
Bandarískur lögmaður, sem gætti hags-
muna tóbaksframleiðenda um árabil en
er nú dauðvona af völdum krabbameins
hefur vakið athygli vestra fyrir uppljóstr-
anir sínar um áróðurshætti fyrrverandi
______umbjóðenda sinna. Auðunn______
Amórsson kynnti sér það nýjasta af
tóbaksvígstöðvunum.
Bótakröfum
myndi rigna
yfir
auðveldara að sækja tóbaksfram-
leiðendur til saka til að fá þá til
að bera hluta þess kostnaðar,
sem opinberir aðilar hafa þurft
að eyða í meðferð sjúkdóma, sem
reykingar hafa valdið.
Ný dómsmál þjarma að
tóbaksframleiðendum
Fjöldi einstaklinga, sem hafa
sýkzt af sjúkdómum orsökuðum
af reykingum, hefur reynt að fá
tóbaksframleiðendur dregna til
ábyrgðar fyrir dómi á afleiðing-
um tóbaksneyzlu, en í fjörutíu
________ ár hafa framleiðendur
farið með sigur af
hólmi í hveiju einasta
siíku dómsmáli. Nú
skýtur hins vegar svo
við, að ríki eru farin
að draga tóbaksframleiðendur
fyrir rétt. í Louisiana var fyrsta
málinu af þessu tagi hleypt af
stað, og Flórída-ríki freistar þess
nú að fá tóbaksframleiðendur til
að greiða „milljarða dollara“ fyr-
ir kostnað sem ríkið hefur þurft
að bera af meðferð sjúkdóma,
sem orsakaðir eru af reykingum.
Fleiri slík mál eru í uppsiglingu,
en niðurstaða ekki fengin enn.
Ef tóbaksframleiðandi yrði
dæmdur á þessum forsendum
skapaði slíkur dómur fordæmi,
sem gæti haft mjög afdrifaríkar
afleiðingar fýrir tóbaksiðnaðinn.
Bótakröfum myndi rigna yfir
hann.
Einstaklingar, sem eiga um
sárt að binda af völdum reyk-
inga, eygja líka sterkari von nú
en áður til að takast muni að fá
tóbaksframleiðendur dregna til
ábyrgðar á skaðsemi framleiðslu
sinnar.
David Kessler, yfírmaður
FDA, matvæla- og lyfjaeftirlits
Bandaríkjanna, hefur barizt fyrir
því að fá tóbak flokkað sem lyf,
sem verði þar af leiðandi að hlíta
reglum sem slíkt. Tillögur Clint-
ons forseta ganga út ___________
frá þessari flokkun tób-
aks. Hún byggist á
gögnum úr rannsókn-
um tóbaksframleiðenda
sjálfra, þar sem fram ""
kemur, að þeir stilli níkotínmagn
í sígarettum til þess að halda
neytendum þeirra háðum þeim.
Níkotínið í tóbaki sé vanabind-
andi lyf sem réttlæti að sölu og
meðferð tóbaks.séu settar sam-
bærilegar reglur og gilda um lyf
almennt.
Tóbaksiðnaðurinn hefur alla
tíð byggt málsvörn sína á því að
reykingar séu ekki fíknivaldandi,
heldur kjósi fólk hvort það reyki
eða ekki af fijálsum vilja. Nú
binda Kessler og samheijar hans
vonir við að hægt verði í kom-
andi dómsmálum að hnekkja
Krabbamein
af völdum-
reykinga
þessum rökum og takast muni
að fá það staðfest af dómi að
þegar um fíknivaldandi neyzlu-
vöru sé að ræða sé ekki hægt
að tala um fijálst val. Þegar verð-
ur hægt að sanna fyrir dómi að
tóbaksframleiðendur miði mark-
aðssetningu framleiðslu sinnar
við það að byggja vísvitandi upp
fíkn hjá neytandanum, án þess
að viðurkenna opinberlega hinn
fíknivaldandi eiginleika, verði
hægt að draga framleiðendur til
ábyrgðar fyrir skaðlegar afleið-
ingar tóbaksneyzlu. Tóbaksfram-
leiðendur álíta Kessler vegna
þessarar baráttu sinnar vera einn
höfuðóvin sinn.
„Snjallasta og harðsnúnasta
lið sem völ er á“
Crawford hefur komið fram í
mörgum viðtöium, í tímaritum,
útvarpi og sjónvarpi, m.a. í hinum
kunna þætti „60 minutes“, sem
vakti mikla athygli.
I viðtali, sem birtist nýlega í
heilbrigðistímaritinu JAMA í
Bandaríkjunum, lýsir hann fjálg-
lega hörkunni og klókindunum,
sem „tóbakslobbýistarnir“ beita.
Þar nefnir hann meðal annars
að miklir peningar fljóti frá tób-
aksframleiðendum í hluti, sem
virðist ekki, við fyrstu sýn, tengj-
ast hagsmunum þeirra. Þessu til
skýringar segir hann eftirfarandi
dæmisögu: Tóbaksframleiðendur
styrkja baráttusamtök alnæmis-
sjúklinga þegar þeir sjá sér lag
á því að espa þau til fjandskapar
við fyrmefndan „höfuðóvin“
sinn, yfirmann FDA, David
Kessler, á grundvelli þess að
hann hafi ekki sett rannsóknir á
nýjum eyðnilyfjum í forgang, unz
alnæmissjúklingarnir krefjast
þess að hann fari frá. Þannig eru
tóbaksframleiðendur sem þrýsti-
hópur ekki sýnilegur, en fá með
þessum aðferðum einn óþægileg-
asta þyrninn í auga sínu rutt úr
vegi.
Crawford segir ennfremur í
viðtalinu, að iðnaður, sem skilar
yfir 100 milljörðum Bandaríkja-
dala hagnaði á ári, hafí efni á
að halda úti hagsmunabaráttu á
bókstaflega öllum vígstöðvum,
ekki sízt fyrir kosningar, þegar
„ýmis sambönd þurfa á smum-
ingi að halda“.
Þar sem „The Tobacco Instit-
ute“ er, segir Crawford, sé við
„snjallasta, harðsnúnasta og
klókasta hóp fólks [að etja], sem
þú hefur nokkru sinni fyrir hitt.“
Aðspurður hvort hann hafí haft
nokkra bakþanka með-
an hann var sjálfur fé-
lagi þessa harðsnúna
liðs, segir hann: „Ég
er lögmaður. . . . Ég
vissi innra með mér að
reykingar væm vont mál, en ég
hélt alltaf að það [krabbamein]
myndi aldrei henda mig. Það sem
ég ekki vissi var hvers konar kval-
ir þær valda í raun, og enginn
gerir sér grein fyrir því fýrr en
hann gengur í gegn um afleiðing-
amar sjálfur. ' . . [Og] kval-
imar sem þeir [sem beijast fyrir
reykingum] valda eru meiri en
orð fá lýst.“
Heimildir: JAMA (Journal of
The American Medical Associati-
on), Reuter.
Kosningar í
Hong Kong
FYRSTU og líklega síðustu lýðræð-
islegu kosningarnar í Hong Kong
fara fram í dag, sunnudag, þegar
kjörið verður nýtt þing sem Kínveij-
ar segjast ætla að leysa upp þegar
þeir taka við bresku nýlendunni
eftir tæp tvö ár.
Síðustu skoðanakannanir benda
til þess að Demókratar, undir for-
ystu lögfræðingsins Martins Lee,
verði stærsti flokkurinn eftir kosn-
ingamar en nái ekki meirihluta.
Lýðræðisbandalagið, sem styður
Kínastjórn, er næststærsti flokkur-
inn, ef marka má kannanirnar.
Kínverska verslunarráðið í Hong
Kong birti í gær heilsíðuauglýsingar
í dagblöðum þar sem kjósendur
voru hvattir til að kjósa frambjóð-
endur sem „elska Kína og elska
Hong Kong“. Þá voru starfsmenn
fyrirtækja, sem Kínveijar hafa fjár-
magnað, hvattir til að kjósa stuðn-
ingsmenn Kínastjórnar með loforð-
um um aukafrídag.
Samþykki
NAFO fagnað
EVRÓPUSAMBANDIÐ og stjórn
Kanada fögnuðu á föstudag þeirri
ákvörðun embættismanna Norð-
vestur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
arinnar (NAFO) að samþykkja sam-
komulagið sem batt enda á deiluna
um grálúðuveiðar skipa ESB
skammt utan við landhelgi Kanada.
Evrópusambandið fékk rúm 55%
grálúðukvótans á miðunum og
Kanada 15%.
Bítlarnir enn
tekjuhæstir
BÍTLARNIR eru enn tekjuhæsta
hljómsveitin í Bandaríkjunum, 25
árum eftir að hún leystist upp, sam-
kvæmt tímaritinu Forbes. Tekjurn-
ar af plötum þeirra og geisladiskum
nema sem svarar 8,5 milljörðum
króna í fyrra og í ár.
Bítlarnir eru í þriðja sæti á lista
Forbes yfir auðkýfinga sem tímarit-
ið flokkar sem skemmtikrafta.
Kvikmyndajöfurinn Steven Spiel-
berg er þar efstur, með 18,8 millj-
arða í tekjur, og sjónvarpskonan
Oprah Winfrey er í öðru sæti.
16 ára stúlka
dæmd til dauða
FILIPPSEYINGAR urðu í gær
ókvæða við ákvörðun dómstóls í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um um að dæma 16 ára filippeyska
stúlku til dauða. Stúlkan var vinnu-
kona manns sem hún myrti með
34 hnífstungum. Hún hafði haldið
því fram að maðurinn hefði nauðg-
að henni.
Verkfall í
Bangladesh
NÁNAST allt atvinnulífið í Bangla-
desh lamaðist í gær vegna þriggja
daga verkfalls sem stjórnarandstað-
an stendur fyrir til að knýja fram
kosningar. Ferðir strætisvagna og
lesta lögðust niður og flugfélög af-
lýstu flugferðum. Stjórnarandstað-
an krefst þess að Begum Khaleda
Zhia forsætisráðherra segi af sér.