Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 15
LISTIR
Söngskólinn Hjartansmál tekinn til starfa
NOKKRIR af kennurum við nýja söngskólann Hjartansmál. Morgunblaðið/Kristinn
Söngnrinn mun lifa
KENNSLA hefst í nýja
söngskólanum Hjartans-
mál á morgun. Tekur
hann við af söngdeildinni
Söngsmugunni sem komið var á fót
á liðnu hausti. Deildin varð, að sögn
Guðbjargar Siguijónsdóttur skóla-
stjóra, til vegna samstarfs nokkurra
söngvara og píanóleikara. „Nú viljum
við efla starfið enn frekar og gera
þessa deild að söngskóla sem stefnir
að því að mæta kröfum samtímans
í söngkennslu."
Guðbjörg segir að Hjartansmál
höfði til almennings á breiðum
grundvelli. „íslendingar eru söngelsk
þjóð og það eru margir sem vilja
reyna hljóðfærið sem við erum fædd
með án þess að taka próf. Við vinn-
um því út frá stórum markaði; úr
honum sþrettur sá góði efniviður sem
er fyrir hendi.“
Deildir skólans eru tvær, undir-
búningsdeild og Einsöngsdeild. Sú
fyrrnefnda er opin öllum sem vilja
læra að syngja. Ekki er krafist kunn-
áttu í tónlist. Inntökupróf er tekið í
éinsöngsdeild og er miðað við að
nemandi hafi lært eitthvað í tónlist.
Námið skiptist árlega í tvær annir:
Haust- og vorönn. Hverri önn lýkur
með prófum og/eða tónleikum.
„í Einsöngsdeildinni verður lögð
áhersla á að hjálpa þeim sem hafa
getu og vilja til að ná lengra," segir
Guðbjörg. „Við byijum í raun frá
grunni en stefnum á toppinn. Við
gefum okkur hins vegar þann tíma
sem þarf til þess.“
Skólinn leggur áherslu á fjöl-
breytni en hann býður uppá ein-
söngstíma, samsöngstíma, undir-
Ieikstíma, tónheym, tónfræði, tón-
listarkynningu, tónlistarsögu, hljóm-
borðs- og píanókennslu og tungu-
málanámskeið. Þá hefur skólinn
áhuga á að efna til óperu- og mynd-
bandakvölda, fyrirlestra um radd-
beitingu, leikræna tjáningu og fleira.
Kennarar við skólann verða Björk
Jónsdóttir, Björn Björnsson, Dagný
Björgvinsdóttir, Dúfa S. Einarsdótt-
ir, Einar Sturluson, Friðrik S. Krist-
insson, Guðbjörg Siguijónsdóttir,
Jóhanna G. Linnet, Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir, Margrét J. Pálmadóttir,
Matthildur Ó Matthíasdóttir, Ragn-
heiður Linnet og Þórunn Guðmunds-
dóttir.
Verndari skólans er Sigurður De-
metz og mun hann halda námskeið
á vori fyrir þá nemendur sem lengst
eru komnir. „Sigurður er einn besti
söngkennari samtímans á íslandi og
hefur að auki unnið ómetanlegt starf
fyrir íslenskt sönglíf og komið mörg-
um söngvurum til starfa erlendis.
Það er okkur því dýrmætt að mega
sækja í hans söngviskubrunn,“ segir
Guðbjörg.
Söngskólinn Hjartansmál er til
húsa að Ægisgötu 7, í húsnæði
Kvennakórs Reykjavíkur. Guðbjörg
leggur hins vegar áherslu á að hann
sé síður en svo „kvennaklúbbur."
„Við höfðum jafnt til karla og
kvenna. Það voru nokkrir karlar í
Söngsmugunni í fyrra og við gerum
ráð fyrir að þeim fjölgi nú þegar
skólinn er tekinn til starfa."
Guðbjörg er sannfærð um að þörf
sé fyrir skóla á borð við Hjartans-
mál. „Ánægjan með Söngsmuguna
var mikil, bæði meðal nemenda og
kennara og skólinn á án efa framtíð
fyrir sér. Söngurinn sem fylgt hefur
manninum frá upphafí mun líka lifa
áfram og það ætti því alltaf að verða
markaður fyrir skóla sem þennan."
kSTREITU OG KVIÐASTJORNUN
Láttu kvíða ekki stjórna lífi þínu og samskiptum
Helgarnámskeið fyrir karla og konurtil að ná
tökum á streitu, kvíða og spennu
með slökun, fræðslu og samskiptaþjálfun.
Öll námsgögn og "Slökun og vellíðan" innifalin.
Upplýsingar og skráning öll kvöld
frá kl. 20-22 í síma 553 9109.
rlingsson, sálfræðingur
VEFGRUNNURINN „ÞETTA ER REYKJAVÍK" MÆTTUR !
A INTERIXIETIIXIU
^Bráöskemmtileg kynning á öllu sem Reykjavík
og næsta nágrenni hefur upp á bjóöa.
*Viö hönnum heimasíöurnar. Tengjum þær við grunninn.
Dreifum þeim á hámarkshraöa.
QLAN INTERNET AUGLÝSINGASTOFA
mmmm
Við rýmum fyrir nýjum vörum
og höldum tilboðsdaga
10“ 30% afsláttur
af húsgögnum
dagana 16.-23. september
Opið í dag, sunnudaginn 17. sept., kl. 14-17.
örkinni 3, sími 588 0640.
Tímarit
• ÚT er komið nítjánda tölublað
bókmennta- og leikhústímaritsins
Bjartur ogfrú Emilía. í þetta sinn
er tímaritið helgað svissneska rit-
höfundinum Robert Walser. Walser
varð aldrei mjög
þekktur meðan
hann lifði, en á
síðustu áratug-
um hefur vegur
hans vaxið og
hefur vaknað
mikill áhugi á
skrifum hans.
Samtímamaður
Walsers, skáldið
Hermann Hesse
var dyggur
aðdáandi og
skrifaði eitt sinn í ritdómi um eina
af bókum Walsers: „Heimurinn
væri betri ef Robert Walser ætti
hundrað þúsund lesendur." Bækur
Walsers eru nú þýddar á helstu
heimstungur og er honum hvar-
vetna fagnað sem einum af merk-
ari rithöfundum aldarinnar.
Hjálmar Sveinsson hefur safnað
saman þeim sögum sem birtast í
heftinu og gerir einnig grein fyrir
rithöfundinum í forspjalli.
Tímarítið er 80 blaðsíður. Gut-
enbergsá um prentun. Bjaiturog
frú Emilía kemur út fjórum sinnum
á árí. Árgjald ernú 1.995 krónur
oghækkar um eina krónu árbvert.
Blab allra landsmanna!
-kjarni málsins!
Verkefnin þurfa að falla að þeim
markmiðum sem Evrópuráðið
hefur helgað árið 1995:
að varðveita fjölbreytileika
náttúrunnar, ekki síst á svæðum
í nágrenni þéttbýlis sem eru utan
friðlýstra svæða.
Styrkveitingar
verða í þrennu lagi:
a. til gróður- og náttúruverndar
b. til rannsókna
c. til fræðslu
og verða styrkir allt að kr. 500.000,-
í hverjum flokki.
1995 Náttúruvemdarár í Evrópu
Styddr til
verkefna á sviði i
náttúru- og umhverfis-
vemdar
1. Um styrk geta sótt félög, samtök
og einstaklingar.
2. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu
almennings.
3. Verkefnin sem sótt er um styrk til
þurfa að vera vel afmörkuð
og skilgreind.
Styrkumsókn þarf að fylgja:
a. Verklýsing
b. Kostnaðaráætlun, þar sem fram
kemur heildarkostnaður,
og skipting kostnaðarhlutdeildar
milli umsækjenda og annara.
c. Upphæð styrkumsóknar.
Styrkþegar skuldbinda sig til
að skila skýrslu um framkvæmd
og árangur verkefnisins innan
árs frá úthlutun.
Styrkumsóknir þurfa að berast
skrifstofu Landvemdar fyrir
7. október 1995.
Úthlutun verður kynnt á aðalfundi
samtakanna í október 1995.
Land\úrnd
Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík
Sími 552 5242 Bréfasími 562 5242