Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.09.1995, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/REGNBOGINN og HÁSKÓLABÍÓ hafa tekið til sýninga stórmynd- ina Braveheart. í aðalhlutverki er Mel Gibson. Hann er jafnframt leikstjóri og framleið- andi þessarar þriggja tíma epísku stórmyndar í anda Ben Hur, Spartacus og E1 Cid. þann veginn að gera myndina annálaða voru hins vegar festar á filmu með þátttöku og aðstoð 1.700 meðlima í varaliði írska hers- ins. Þeir fóru með hlutverk fót- gönguliðs, bogmanna og riddara- liðs skosku og ensku herjanna sem börðust við Stirling og Falkirk á árunum í kringum aldamótin 1300. Gibson sjálfur þaulhugsaði bar- dagaatriði frá upphafi til enda og lagði gífurlega vinnu á um 40 áhættuleikara sem látnir voru þaulæfa hvem einasta bardaga sem taka átti í nærmynd vikum saman. Alls tóku 3.000 leikarar þátt í því að festa orustuna við Stirling á filmu. Fyrir þennan fjölda sniðu búningahönnuðir skotapils úr fleiri kílómetmm af köflóttu efni og smíðuðu hringabrynjur handa ridd- urum enska hersins. í stríðsátökum miðalda féllu hestar í valinn ekki síður en riddar- arnir sem sátu þá. í nútímanum vaka dýravemdunarsamtök um heim allan hins vegar yfir því að dýrum sé ekki unnið mein eða þau lögð í áhættu að óþörfu við kvik- myndagerð. Hyggnir kvikmynda- gerðarmenn taka ekki þá áhættu að fá volduga dýravinina upp á móti sér. Þess vegna var ekki nóg að fá 150 hesta stóð til að setja undir riddaraliðið heldur varð að leita annarra leiða tii að kvikmynda átök riddaranna í nærmynd. í því skyni voru smíðaðir sérstakir vél- fákar sem ganga á járnbrautar- spori og pá allt að 50 km hraða á klukkustund. Riddamir sem falla í valinn í myndinni sitja þesskonar fáka. Myndin Braveheart fjallar um skoska þjóðsögu og aðstandendur hennar draga ekki fjöður yfir það að eins og í sannri epískri stór- mynd sé taumur söguhetjunnar hjartahreinu dreginn einarðlega en úrkynjaðir óvinirnir að sama skapi málaðir dökkum litum. En þó segj- ast þeir vera sagnfræðilegum heimildum trúir að svo miklu leyti sem það er unnt þegar tjallað er um tímabil þar sem ritaðar heim- ildir em af skomum skammti. Þar stendur eitt atriði upp úr. í upp- hafi einnar orrastunnar svipta hundruð Skotar samtímis upp um sig skotapilsunum og svipta í eitt skipti fyrir öll hulunni af ráðgát- unni um það hveiju Skotamir klæðast undir pilsunum sínum. WILLIAM Wallace (Mel Gibson) og hans menn búast til bardaga í návígi í einu hinna stórbrotnu bardagaatriða í myndinni Braveheart. Hugnmstóra þjóðfrelsishetjan "RrAVEHEART gerist á 13. öld og segir söguna af William Wallace, sem ku vera ein heista þjóðsagna- og frelsishetja Skota og leiddi þá í uppreisn gegn ofur- valdi Játvarðs I Englandskonungs um aldamótin 1300. Eina heimildin um ævi þessarar hetju er skoskt sagnaljóð frá miðöldum. Á því er handrit myndarinnar m.a. byggt en saman við er blandað hæfileg- um skammti af seinni tíma þjóð- emisrómantík og gamansemi, að ógleymdum ástarævintýrunum og einhveijum stórbrotnustu bar- dagasenum sem sést hafa á hvíta tjaldinu áram saman. Bandaríski kvikmyndagagnrýnandinn Michael Medved segir að fara verði allt aftur til ársins 1938 og myndar Eisensteins um Alexander Nevsky til að sjá jafnáhrifamiklar og trú- verðugar sviðsetningar á miðalda- hemaði. Sagan af William Wallace (Mel Gibson) hefst þegar hann bam að aldri horfir á enska hermenn myrða föður sinn. Þar er sáð fræj- um haturs í garð útlendinganna sem hersitja föðurland hans. Wallace fer ungur að áram út í hinn stóra heim en snýr aftur til þorpsins síns og gengur að eiga æskuástina sína hana Murron (Catherine McCormack). En það á ekki fyrir hjónakomunum að liggja að njótast lengi. Enskir hermenn myrða Murron þegar hún af hetjuskap veitir harða mótspymu við nauðgunartilraun. Við þennan missi er William Wallace nóg boðið. Óframfærinn og fábrotinn maðurinn tekur ham- skiptum og úr verður frelsishetja sem safnar að sér löndum sínum og leiðir skoska alþýðuherinn í vopnaðri og blóðugri frelsisbaráttu gegn Játvarði I Englandskonungi (Patrick McGoohan). Wallace verður smám saman voldugur andstæðingur krúnunnar en þó takast náin og góð kynni með honum og franskættaðri prinsessunni af Wales (Sophie Marceau). Kóngur leitar hins vegar allra ráða til að ráða niðurlögum þessa andstæðings sem hann getur ekki sigrað á vígvellinum. William Wallace bíða örlög sem gera hann verðugan þess að enn í dag eru Skotar að syngja sagna- Ijóðið um hann. Randall Wallace heitir maðurinn sem gerði kvikmyndahandrit um ævi, ástir og afrek þessarar frelsis- WILLIAM Wallace og Murron (Catherine McCormack) þeysa á vit skoskrar náttúru. hetju Skota. Óvíst er að sagan hefði orðið lengri ef handrit þetta hefði ekki rekið á fjörar Mel Gib- sons sem las það af áfergju að eig- Bardagaatriðin í Brave- heart eiga fáa sína líka. in sögn 'og ákvað samstundis að festa það sjálfur á filmu. Gibson hélt utan um alla þræði og bar ábyrgð á að útvega sjálfur fé til að kosta ævintýrið. Til þess var varið 53 milljónum bandaríkja- dala, eða um það bil 3,5 milljörðum íslenskra króna. Gibson, sem er ein vinsælasta og þekktasta kvikmyndastjarna okkar tíma, fer sjálfur með hlut- verk Wallace og slíkt er aðdráttar- afl kyntáknsins að óþarft var talið að skáka fram öðrum stórstjörnum til að gera myndina Iíklega til vin- sælda. I öðram hlutverkum era því smærri spámenn á borð við Patrick McGoohan og Catherine McCormack, að ógleymdri hinni frönsku Sophie Marceau, sem ekki hefur áður leikið á enskri tungu. í tækniliðinu eru snillingar eins og kvikmyndatökumaðurinn John Toll, sem hlaut óskarsverðlaun fyr- ir tökur á Legends of the Fall og klippimeistarinn Steven Rosen- blum, sem hefur áður klippt mögn- uð bardagaatriði í myndinni Glory en hún færði honum einnig tilnefn- ingu til óskarsverðlauna. Eftir að Mel Gibson hafði æft sig í að tala með skoskum hreim hófust kvikmyndatökur í júní 1994 við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlands þar sem búið hafði verið til skoskt miðaldaþorp. Bardagasenurnar sem era í MEÐ myndinni Braveheart hefur Mel Gibson líklega unnið sinn mesta sigur til þessa. Fyrir var hann heimsþekkt kvik- myndastjarna og kyntákn sem leikið hafði í nokkrum af vinsæl- ustu kvikmyndum seinni ára. En framvegis verður jafnframt litið á hann sem leikstjóra sem ástæða er til að gefa gaum og taka alvarlega. Leikstjórn hans á myndinni Braveheart hefur verið m.a. lýst þannig að hún sé eins konar blanda af handbragði Akira Kurosawa og Sam Peckinpah. Hástemmdar lýsingar af þvi tagi hljóta að vera til marks um að vatnaskil séu að verða á ferli kyntáknsins. Nú muni hann feta í fótspor Clint Eastwood, sem framan af ferli sínum náði frægð en tak- markaðri virðingu framan við kvikmyndavélamar en hefur á síðari árum komist í fremstu röð bandarískra kvikmyndaleik- sljóra. Það eru engar ýkjur að segja að Braveheart hafi verið vel tek- ið af gagnrýnendum vestanhafs. Flestir spá kvikmyndatökusljóra og klippimeistara myndarinnar óskarsverðlaunatilnefningum og sumir telja að framhjá leikstjór- anum verði trauðla gengið. í fótspor Peckinpah og Kurosawa? MEL Gibson leikstýrir Braveheart. Hér er hann ásamt Sophie Marceau sem leikur prinsessuna af Wales. 39 ára gamall er Mel Gibson þess vegna nú á hátindi ferils síns. Hann er Bandarílgamaður fæddur í New York-fylki 9. jan- úar 1956 en flutti ásamt foreldr- um sínum og systkinum til Ástr- aliu árið 1968, þá 12 ára að aldri. Hann nam við leiklistardeild háskóla Nýja Suður Wales í Sydney og vakti fljótt á sér verð- skuldaða athygli að námi Ioknu. Hlutverkið sem færði honum heimsfrægð var titilhlutverkið í fyrstu myndinni um Mad Max. Litlu síðar hlaut hann „ástr- ölsku óskarsverðlaunin“ fyrir titilhlutverkið í myndinni Tim þar sem hann fór á kostum í hlutverki fatlaðs manns. Sömu verðlaun hlaut hann aftur fyrir sannkallaðan stjörnuleik í mynd Peters Weirs, Gallipoli. Tvær framhaldsmyndir héldu frægð hans sem Mad Max á lofti og þá var kominn tími til að Mel Gib- son flytti aftur heim til föður- landsins ásamt eiginkonu sinni og bömum, sem nú eru orðin sex talsins. í Hollywood hefur Mel Gibson vitaskuld orðið þekktastur fyrir leik sinn í Lethal Weapon mynd- unum þremur en eftir að hann fór með titilhlutverkið í mynd Franco Zefferellis um Hamlet mátti hverjum manni vera ljóst að Gibson byggi yfir vemlegum listamannshæfileikum. Um tíma lifði Gibson ansi sukksömu lífi og sögur fóru af skrautlegu drykkjusvalli hans. Þær heyra nú til liðinni tíð. Frumraun sína sem ieikstjóri þreytti hann fyrir nokkram árum íhinni eftirtektarverðu mynd, The Man Without a Face, þar sem hann var jafnframt í aðalhlutverki en auk þess hefur hann undanfarin misseri m.a. leikið í myndunum Forever Young og Maverick.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.