Morgunblaðið - 17.09.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 9
FRÉTTIR
...
■V ■!:
jfwíCí
Enginn aðgangseyrir á almenna
dansleiki á Hótel íslandi
Aðrir virðast
ekki fylgja á eftir
SÚ ÁKVÖRÐUN Ólafs Laufdals
veitingamanns að afnema að-
gangseyri á almenna dansleiki á
Hótel Islandi virðist ekki hafa
haft áhrif á verðlagningu annars
staðar. Þó virðist enginn vafi leika
á því að vinsældir kráa hafa haft
áhrif á aðsóknina.
„Við seljum inn í Þjóðleikhús-
kjallarann og Ingólfscafé og báðir
staðirnir eru með röð frá mið-
nætti. Krafa gestanna er því ekki
að leggja niður aðgangseyri.
Krafan er auðvitað að fá almenni-
lega þjónustu og ef gestirnir eru
ánægðir með það sem er í boði
borga þeir, segir Björn Leifsson,
eigandi Þjóðleikhúskjallarans og
Ingólfscafés, og nefndi að eins
og erlendis ættu staðir utan mið-
borga erfiðara uppdráttar en aðr-
ir skemmtistaðir.
Hann staðfesti að vinsældir
kráa hefðu haft afleiðingar fyrir
dansstaðina og nefndi að minnkað
hefði í Þjóðleikhúskjallaranum
þegar Kaffi Reykjavík opnaði. Nú
hafi Þjóðleikhúskjallarinn hins
vegar unnið gestina til sín aftur.
Björn sagði að aðgangseyrir
hefði lækkað á undanförnum
árum. Hann væri nú 500 kr. á
föstudagskvöldum, 700 kr. í Þjóð-
leikhúskjallarann og 800 kr. i
Ingólfscafé á laugardögum. Gest-
ir virtust sætta sig við verðið og
ekki yrði hætt að rukka aðgangs-
eyri.
Tilraun gerð í sumar
Jóhannes Bachmann, skemmt-
anastjóri á Ömmu, sagði að til-
raun hefði verið gerð með að bjóða
gestum frían aðgang að staðnum
í sumar. Reynslan hefði verið sú
að engu máli virtist skipta fyrir
aðsóknina hvort frítt væri inn eða
ekki.
„Ef fólk ætlar á krár, eða stað
þar sem ekki er hægt að dansa,
gerir það það en ef það ætlar að
fara á huggulegri staði til að
dansa fer það á dansstaði og borg-
ar inn ef að aðgangseyrir er rukk-
aður,“ sagði Jóhannes. Hins vegar
sagði hann að aðgangseyrir væri
hafður 500 kr. fyrir hálf tólf og
1000 kr. eftir hálf tólf til að
trekkja að gesti á þeim tíma.
Sveinbjörn Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri veitingasviðs Hót-
els Sögu, sagði að 850 kr. að-~
gangseyrir væri að dansleikjum á
laugardagskvöldum. Aðsókn
hefði heldur farið minnkandi en
staðið í stað síðustu tvö til þrjú
ár. Hann sagði að ekki hefði ver-
ið tekin ákvörðun um hvort breyt-
ing yrði á aðgangseyri.
Nýr ritstjóri
Vinnunnar
•VINNAN, blað Alþýðusam-
bands íslands, er komin út og
hefur blaðinu verið breytt frá því
sem áður var. Vinnan er nú í dag-
blaðsstærð og verður blaðið gefið
út oftar en verið hefur, eða á
þriggja vikna fresti að jafnaði.
Ráðinn hefur
verið nýr ritstjóri
til blaðsins, Arn-
ar Guðmundsson
blaðamaður.
Arnar segir að
hér eftir verði lögð
meiri áhersla á að
ná til yngri kyn- _
slóðarinnar f ASI,
en alls eru í hreyfingunni um 60
þúsund manns. „Framundan eru
átök um ýmis grundvallaratriði
sem snerta raunverulegar kjara-
bætur til launafólks í landinu, lífs-
kjör fjölskyldna, húsnæðismál, at-
vinnustefnu til framtíðar sem getur
unnið gegn atvinnuleysi, lífeyris-
mál og endurskoðun á vinnulögg-
jöfinni svo fátt eitt sé nefnt. Breyt-
ingar á blaðinu nú þjóna þeim til-
gangi að mæta brýnni þörf fyrir
kröftugri rödd launafólks í því
umróti sem framundan er. Arn-
ar er 29 ára gamall. Hann hefur
lokið námi í fjölmiðlafræði og bók-
menntafræði frá Háskóla íslands
og framhaldsnámi í félagsvísindum
frá háskólanum í Birmingham,
Englandi. Arnar hefur starfað sem
blaðamaður á Þjóðviljanum, Helg-
arblaðinu og sem sjálfstætt starf-
andi. Þá hefur hann fengist við
önnur ritstörf og unnið fyrir Ríkis-
útvarpið.
íslendingar á
Cho-Oyu
TÖLUVERÐIR erfiðleikar hafa
þegar mætt þremur íslendingum
og níu öðrum fjallgöngumönnum
í fyrsta áfanga leiðangurins upp
á Cho-Oyu-tind í Tíbet.
Leiðangurinn hélt frá Kat-
mandu yfir Himalayafjöllin til Tí-
bet í síðustu viku. Eina leiðin yfir
fjöllin er svokallaður Vináttuþjóð-
vegur og höfðu monsoon-rigning-
arnar lokað honum með vatns- og
aurskriðum. Tólfmenningarnir
þurftu því að tæma bílana og ýta
þeim yfir skriðurnar. Leiðangur-
inn er nú að fara upp með Kyet-
rak-jökli og bera jakuxar allan
farangur.
íslensku fjallgöngumennirnir
eru Einar Stefánsson, Hallgrímur
Magnússon og Björn Olafsson.
Fjallið er yötta hæsta fjall í heimi
eða 8.201 metri. Fjallstindurinn
Cho-Oyu sést efst hægra megin á
myndinni.
Flotkví Akureyrarhafnar formlega tekin í notkun í gær og sýnd almenningi í dag
Fyrsta skipið
tekið upp
FLOTKVÍ Akureyrarhafnar var formlega
tekin í notkun í gær. Flotkvíin verður al-
menningi til sýnis frá kl. 17 til 18 í dag.
Fyrsta skipið var tekið í kvínna á fimmtu-
dag, en það var Guðmundur Ólafur ÓF frá
Ólafsfirði, sem er í viðhaldi hjá Slippstöð-
inni Odda á Akureyri.
Flotkvíin var smíðuð í Litháen og afhent
þar á liðnu vori, en hún kom til Akureyrar
í byijun júní. Síðan hefur verið unnið af
krafti við að undirbúa kvíarstæðið sem er
norðan við skemmu Slippstöðvarinnar-Odda
en þar voru grafnir út 155 þúsund rúmmetr-
ar til að koma kvínni fyrir. Þær framkvæmd-
ir kostuðu um 75 milljónir króna en flotkví-
in sjálf 177 milljónir. Hún er 2.800 tonn
að þyng og hefur 5.000 tonn lyftigeftu. Hún
er 116 metra löng, 24 metrar á breidd og
getur tekið skip með allt að 7,6 metra djúp-
ristu.
Aðgerðir gegn kýlapest í Elliðaánum
Reynt að ná öllum
fullorðnum laxi
ÞEIR aðilar sem að Elliðaánum
standa hafa komist að samkomulagi
um hvað gera skuli til að stemma
stigu við útbreiðlsu kýlaveikinnar sem
fram kom í laxastofni árinnar í sumar.
Um er að ræða þríþætta aðgerð sem
standa mun fram á vor og felst í þvi
að koma í veg fyrir að fullorðnir laxar
komist aftur til sjávar næsta vor.
Vatnið minnkað stórlega
„Við erum mjög sáttir við þessar
aðgerðir, að sjúkdómurinn sé ekki
orðinn útbreiddari en svo að þær
dugi til að koma böndum á hann,“
sagði Friðrik Þ. Stefánsson, formað-
ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Aðgerðirnar sem ákveðnar hafa
verið eru í því fólgnar, að nú strax
í lok veiðitímans verður vatnsmagn
árinnar minnkað stórlega og síðan
dregið á vítt og breitt. Að sögn Frið-
riks verður þá öllum sýktum laxi
fargað, en hrogn og svil úr heilbrigð-
um fiskum geymd með það fyrir
augum að ala mikið magn heil-
brigðra seiða af Elliðaárstofni til
sieppinga. Síðan verður aðgerðin
endurtekin er líður á vetur, eftir því
hvenær veður leyfir. Loks verður
ánum lokað með vorinu þannig að
hoplax kemst ekki til sjávar. Verður
hann allur drepinn, auk þess sem
allur nýr göngulax verður fangaður
í kistu neðst í ánni og hann skoðaður.
■ftrC /S í 36 ár
Hressingarleikfimi kvenna
hefst mánudaginn 18. september pk.
Kennslustaðir:
Leikfimisalur Laugarnesskóla og
fþróttahús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfingar -
músík - dansspuni -
þrekæfingar - slökun.
Veriö með frá byrjun.
m
Innritun og upplýsingar í síma 553-3290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari.