Morgunblaðið - 17.09.1995, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
• KÍNA Á TÍMAMÓTUM
SKÝJAKLJÚFAR spretta upp úr lágreistri gömlu byggðinni.
AHRAÐFERÐINN
ÍMARKAÐS-
VÆDDA FRAMTÍÐ
TÍMINN, hann er fugl
sem flýgur hratt, sagði
skáldið og það hefur
sannarlega átt við um
þær tvær vikur sem for-
lögin hafa skammtað mér til minnar
fyrstu ferðar til Kína. Svo margt
hefur borið fyrir augu og eyru, að
erfitt er að segja hvað eftirminni-
legast er eða verður þegar fram líða
stundir. Sögulegar minjar stórkost-
legar, sem ég hef aðeins séð smá-
brot af, munu freista til nýrrar ferð-
ar austur þangað þegar aðstæður-
leyfa en líka til að fylgjast með því
hvort takast muni sú merkilega til-
raun, sem verið er að gera til þess
að markaðsvæða hið sósíalistíska
þjóðfélag án þess að upplausn fylgi
í kjölfarið og þjóðfélagshræringar
leiði til stjórnskipulegs hruns eins
og gerðist þar sem áður hét Sovét-
ríkin.
Þess sjást glögg merki í höfuð-
borginni Peking að Kínveijar eru á
hraðferð inn í markaðsvædda fram-
tíð. Fyrir aðeins fáeinum árum var
Peking-gistihúsið hæsta bygging
borgarinnar, en það mun vera eitt-
hvað nálægt 20 hæðum. Síðan hafa
skýjakljúfar sprottið upp eins og
sveppir úr lágvöxnum húsagróðri
borgarinnar, sumir glæsilega hann-
aðar byggingar, skreyttar gullnu
kínversku letri og lituðu gleri en líka
aðrar dapurlegri; einkum eru mörg
hverfí hárra sambýlishúsa lítt spenn-
andi, eins og víða annars staðar.
Peking er mikið flæmi, tekur
yfir nær 17 þúsund ferkílómetra
og skiptist í átján borgarhverfi. Hún
er næststærsta borg Kína, íbúar
11 milljónir og slagar því hátt upp
í þá fjölmennustu, Shanghai, þar
sem búa 13 milljónir manna. Mikill
munur er á gömlu borgarhverfun-
Fyrir 15 árum tók kommúnistaflokkurinn í
Kína þá stefnu að opna landið fyrir umheim-
inum og leyfa erlendar fjárfestingar. Sérstök
svæði voru skipulögð í þessu skyni.
Margrét Heinreksdóttir lögfræðingur
fjallar um þessa þróun.
Höfuð Yangtze-drekans
Sjáist uppgangurinn í efnahagslíf-
inu í Peking er hann nánast yfir-
þyrmandi í Shanghai. Sögulega er
hún borga vestrænust i Kína en líka
ein af stærstu miðstöðvum sem opn-
aðar hafa verið og skipulagðar til
að taka á móti erlendri fjárfestingu.
í hinni opinberu heimsókn forseta
íslands, sem undirrituð fylgdist með
að ósk Morgunblaðsins, var heim-
sótt nýtt 350 ferkílómetra þróunar-
svæði í Shanghai sem neftiist Pu-
dong. Þetta svæði er hugsað sem
einskonar drekahöfuð sem gleypi í
sig fjárfestingu og fyrirtæki, er veiti
síðan lífi, annarsvegar til borga og
bæja sem skipulagðir eru eins og
drekabúkur uppeftir dalnum með-
fram Yangtze fljóti - hinsvegar
verði Pudong einskonar aflstöð sem
geri Shanghai að alþjóðlegri við-
skipta- og fjármálamiðstöð. Það eru
ekki nema fimm ár síðan ríkisráðið
í Peking samþykkti aðalskipulag
fyrir Pudong-svæðið og ári síðar
hófst uppbyggingin. Hún hefur
gengið ótrúlega hratt fyrir sig. Hátt
á þriðja þúsund erlendra fyrirtækja
hafa komið sér þar fyrir og fjárfest-
ing nemur þegar yfír tíu milljörðum
dollara.
En Pudong er aðeins eitt svæði
af fjölmörgum. Þegar árið 1984
höfðu ijórtan hafnarborgir í landinu
verið opnaðar fyrir erlendri fjárfest-
ingu, árið 1992 voru opnaðar höfuð-
borgir allra sjálfsstjórnarsvæðanna
og nokkrar landamæraborgir auk
13 fríverslunarsvæða og tuga ann-
arra þróunarsvæða. Þá eru ótalin
stóru efnahagsþróunarsvæðin í suð-
austurhluta landsins. Upptalningin
gæti orðið býsna löng og því skal
staðar numið, en þegar kortlagning
þessara svæða er skoðuð verður
ekki hjá því komist að dást að því
hversu skynsamlega þau eru skipu-
lögð með tilliti til markmiðsins, sem
Kínveijar segja vera að veita af-
rakstrinum af þessari uppbyggingu
til landsins alls, til sveitanna með
það fyrir augum að halda þeim í
byggð, koma í veg fyrir fólkstreymi
þaðan til borganna og draga eftir
megni úr misskiptingu auðs, - sem
þeir'telja þó augljóst að ekki verði
hjá komist að einhveiju leyti. Mönn-
um blöskrar þó hve mikill launa-
munurinn er orðinn, sumir segja
hundraðfaldur, aðrir að hann geti
verið miklu meiri.
Viðmælendur mínir voru yfirleitt
ekkert að breiða yfir að ýmis vanda-
mál væri við að etja, laun væru mun
hærri í borgum en sveitum, verð-
hækkanir hefðu orðið of miklar,
verðbólga væri of mikil, grundvöllur
landbúnaðarframleiðslunnar of veik-
ur og náttúruhamfarir settu þar allt-
af stórt strik í reikninginn og þótt
miklar breytingar hefðu orðið á
rekstri, verðlagningu og markaðs-
setningu í landbúnaðarhéruðunum
væri mismunur tekna og lífsskilyrða
orðinn hættulega mikill. Mér var
hvað eftir annað tjáð að í næstu
fimm ára áætlun yrði lögð höfuð-
áhersla á að bæta úr þessu, því að
mikið væri í húfi, sjálfur stöðugleik-
inn, sem væri grundvallarforsenda
fyrir því að þessi tilraun tækist.
Lög og samningar
Það er nokkuð fróðlegt að sjá
með hveijum hætti þessi þróun hef-
ur verið byggð upp, stig af stigi.
____________ Sú stefna að leiða landið
Mismunur yfir á braut markaðs-
að finna í hinum stóru og fögru
görðum borgarinnar, en því miður
vannst ekki tími til annars en rétt
að tylla tánum niður í Drekagarðin-
um svonefnda.
Vegalengdir eru ótrúlegar. Sam-
kvæmt korti af borginni átti gisti-
húsið þar sem ég dvaldist að vera
aðeins steinsnar frá Tiananmen
torgi, en þegar til kom reyndist
þangað 15 mínútna akstur í leigu-
bifreið. Frá gistihúsinu að ráð-
stefnumiðstöðinni var um hálftíma
akstur þegar umferðin var greið-
ust. Eins gott að leigubílar eru ódýr-
ir á okkar mælikvarða og ástæða
til að geta þess að leigubílstjórar í
Peking eru sennilega flinkustu öku-
menn sem ég hef komist í kynni
við. Umferðin er þung og mikil ör-
tröð reiðhjóla, ekki auðvelt að
sjá hvaða reglur gilda en einkenn-
andi á öllum æðruleysi og vark-
árni. Það er ekkert verið að æpa
eða steyta hnefana þar á
bæ. Hagvanir íslendingar _________________
sögðust hinsvegar hvergi tekna hættu- hySSu °S °Pna það um-
hafa þurft að vera eins heiminum var opinberlega
frekir í umferðinni og í lega mlKm
Peking, því að þar svínaði
EIN AF hallarbyggingunum í forboðnu borginni.
um þar sem götur eru þröngar og
byggðin lágvaxin og þétt og hinum
nýrri, þar sem hús njóta sín vel,
götur eru breiðar og nægilegt svig-
rúm fyrir umferð bæði gangandi
manna, hjólandi og akandi. Aðal-
götur borgarinnar eru greinilega til
þess hannaðar að um þær geti far-
ið fjölmennar göngur og á Tiananm-
en torgi, hinu stærsta í heimi, gæti
íslenska þjóðin öll staðið samtímis.
Tuttugasta öldin mætir miðöldum
norðan torgsins þar sem er For-
boðna borgin með höllum 24 kon-
unga Ming- og Qing-ættanna, sem
ríktu frá 1368 til 1911. Þrátt fyrir
nokkurn fjölda ferðamanna var þar
griðastaður frá borgarskarkalan-
um. Svo var einnig í hinum mikla
garði umhverfis Hof himinsins þar
sem keisararnir báðu fyrir góðri
uppskeru. Enn meiri friðarreiti mun
hver á öðrum sem mest hann mætti.
Umhverfis borgina hafa verið
skipulagðir fimm umferðarhringir
og lá leið mín oftast eftir hring nr.
2, sem er þriggja reina í hvora átt.
Var mér sagt, að borgaryfirvöld
hefðu verið harðlega gagnrýnd af
borgarbúum fyrir að hafa þann
hring ekki breiðari, - á sama tíma
hefði verið lagður fimm reina hring-
ur umhverfis þriðju stærstu borg
landsins Tianjin - og óspart verið
skorað á þá sem réðu breiddinni í
Peking að finna sér aðra vinnu sem
hentaði þeim betur en skipulagning
akbrauta.
______ mörkuð f árslok 1978 en
þá voru nýlega ráðin úrslit
valdabaráttunnar í kjölfar menn-
ingarbyltingarinnar sem árum sam-
an hafði leitt yfir þjóðina miklar
hremmingar. Gert var ráð fyrir að
þróunin yrði í þremur þrepum, í
fyrsta lagi að bæta úr skorti á brýn-
ustu lífsnauðsynuum, í öðru lagi
að stefna að 8-9% árlegum hag-
vexti fram til aldamóta og stefna
að þolanlegu lífi fyrir landsmenn,
og í þriðja lagi að ná hagvexti sam-
bærilegum við meðalhagvöxt þró-
aðra ríkja. Eins og horfir virðist
ekkert því til fyrirstöðu að þessi
markmið náist öll.
Árið 1982 var landinu sett ný