Morgunblaðið - 17.09.1995, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 39
BRÉF TIL BLAÐSINS
Riðuveiki hefur
fundist á 15 bæjum af
450 eftir fjárskipti
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
RIÐUVEIKI í sauðfé er að öllum
líkindum víðar á gömlu riðu-
svæðunum en fram er komið. Veik-
in hefur reynst erfið viðfangs eins
og vænta mátti, þar sem hún get-
ur legið niðri 1-2 kynslóðir án
þess að láta á sér kræla. Enn er
margt óljóst um smitefnið sjálft
en þó vitað, að það þolir 8 klst.
suðu án þess að eyðast og sótt-
hreinsiefni önnur en klór vinna lítt
eða ekki á því. Hún hefur komið
aftur í ljós á 15 af þeim 450 bæj-
um sem hafa fengið nýjan fjár-
stofn eftir að öllu fé var fargað
vegna riðu. Þar af eru 405 bæir
sem hafa haft nýjan fjárstofn í 5
ár nú í haust án þess að riða hafi
komið aftur. Af bæjunum fimmtán
þar sem veikin hefur komið aftur
eru fimm í Svarfaðardal, fimm á
Austurlandi, tveir í Suður-Þin-
geyjarsýslu, einn í Skagafirði vest-
an vatna, einn í Langadal austan
Blöndu og einn í Vesturhópi. Sótt-
hreinsun virðist ekki hafa dugað á
þessum bæjum. Ef til vill hefði
þurft að standa öðru vísi að henni
en gert var. Verið er að endur-
skoða reglur um sótthreinsun,
meðferð á fénu og fleira í þeirri
von að árangur batni. Nánari grein
verður gerð fyrir því fljótlega. Sýna
þarf gát við alla meðferð fjárins.
Enginn má bregðast ef vel á að
takast.
Nú þegar göngur og réttir eru
að hefjast er minnt á eftirfarandi
atriði:
1. Hafið hentuga 'kerru með í
göngur og aðrar fjárleitir þar sem
við verður komið, svo taka megi
frá og flytja í einangrun til byggða,
kindur sem sýna riðueinkenni
(kláða, sletting eða óstyrk í hreyf-
ingum, hræðslu eða önnur einkenni
frá miðtaugakerfi og vanþrif). Lát-
ið vita strax um slíkar kindur, sem
skilja verður eftir. Sækið þær og
komið þeim til rannsóknar. Dýra-
lækniskostnað og rannsóknar-
kostnað greiðir ríkið.
2. Látið lóga og rannsaka allar
slíkar kindur, sem koma fyrir í
heimalöndum. Menn geta kallað
dýralækni til rannsóknar á þeim
sér að kostnaðarlausu.
3. Sveitarstjórnir eru hvattar til
að ná samkomulagi sín í milli um
að taka ekki heim heldur láta farga
sem mestu af flækingsfé, sem
kemur fyrir í öðrum afréttum en
hinum eiginlegu og öllu sem fer
langt (t.d. yfir hrepp).
4. Sé ætlast til bóta fyrir slíkar
kindur þarf að ræða um það við
fulltrúa yfirdýralæknis, áætla lík-
legan ijölda og fá samþykki fyrir
útgjöldunum. Þeir sem senda slíkar
kindur til slátrunar verða að taka
fram við réttarstjóra í sláturhúsi
að um bótafé sé að ræða og slátur-
leyfishafi skal gera skýrslu um þær
til yfirdýralæknis.
5. Sveitarstjórnir hafi tiltæka
aðstöðu við réttir til að einangra
frá líffé þegar í stað kindur með
riðueinkenni. Réttarstjórar (hrepp-
stjórar) senda þær til lógunar og
rannsóknar.
6. Hver sem verður var við grun-
samlega kind, hvar sem er og hve-
nær sem er, getur kallað dýra-
lækni til sér að kostnaðarlausu.
Hafa má samband við undirritaðan
dag sem nótt.
7. Ekki skyldu menn hýsa með
líffé sínu ókunnugar kindur og alls
ekki flytja þær milli bæja heldur
beint í réttir eða sláturhús ef lógun
er ákveðin.
8. Flytjið ekki líffé á sláturgripa-
bílum. Þá skal sótthreinsa reglu-
lega, helst hvern dag.
9. Sýnataka úr fullorðnu fé fer
fram í sláturhúsum vegna riðu-
eftirlits. Sláturleyfishöfum verður
tilkynnt um það úr hvaða fé á að
taka sýni í haust. Taka ætti sýni
þar að auki úr öllum kindum, hvar
sem er á landinu, sem sýna ein-
kenni frá miðtaugakerfi. Þeir sem
kaupa fé af öðrum til að fylla fram-
leiðslurétt sinn til slátrunar þurfa
að gera grein fyrir því við slátur-
húsið og á uppruna þeirra, ef eitt-
hvað finnst athugavert.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
dýralæknir, Keldum.
Vetrarstarf
Dómkirkjunn-
ar að hefjast
Frá Jakobi Ágústi Hjálmarssyni:
SUNNUDAGINN 17. september kl.
11 hefst barnastarf Dómkirkjunnar
með fjölskylduguðsþjónustu. Frá og
með sunnudeginum 24. september
verða tveir kirkjuskólar starfræktir,
annar í Safnaðarheimilinu, Lækjar-
götu 14a kl. 11 og hinn í Vesturbæj-
arskólanum kl. 13.
Með fjölbreyttum hætti verða
börnin frædd og virkjuð í helgihaldi
safnaðarins. Umsjónarmenn eru sr.
María Ágústsdóttir og Guðmunda
Inga Guðmundsdóttir guðfræðinemi.
Í guðsþjónustunni predikar sr. María
en sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
þjónar fyrir altari.
Innritun fermingarbarna Dóm-
kirkjunnar verður í kirkjunni
fimmtudaginn 21. september kl. 16.
Fermingarundirbúningurinn verður
annan hvern laugardagsmorgun og
hefur að markmiði að ná til ungling-
anna með efni trúarinnar á alhliða
hátt.
JAKOB ÁGÚST HJÁLMARSSON,
sóknarprestur Dómkirkjusafnaðar.
Spekingar
Frá Eggerti E. Laxdal:
NÚ HAFA spekingar hjá dagblað-
inu „TÍMINN“, fundið upp nýja
aðferð til þess að svipta fólk ritfrels-
inu.
Þeir krefjast þess að aðsendar
greinar sem berast blaðinu séu á
tölvudisklingi, annars er óvíst um
birtingu. Þetta er manréttindabrot,
að svipta fólk ritfrelsinu ef það á
ekki tölvu, eða hefur ekki aðgang
að slíku tæki.
Vonandi fara önnur blöð ekki að
taka upp þessa firru að gera flölda
fólks ókleift að láta álit sitt í ljós
í blöðunum, nema með ærnum til-
kostnaði og kostnaðarsömu námi
við að læra á apparatið og festa
kaup á því, en verð á tölvum mun
vera um 100.000 krónur, eða jafn-
vel meira. Ekki meira um þetta að
sinni.
EGGERTE. LAXDAL,
810 Hveragerði.
Budget
Bílaleigan Budget auglýsir til sölu nokkra
notaða bíla á góðu verði. Engin útborgun.
Sjón er sögu ríkarí.
- kjarni rnálvins! Budget bílaleigan,
Ármúla 1,108 Reykjavík, sími 588-0880.
SKÓVERSLUN KÓPAVOGS
MEIRIHATTAR KULDASKOR Verð frá kr. 5.680-6.900.
Svartir/brúnir, stærðir 36-41.
Troðin búð af nýjum vörum...
hað er erfitt líf aS vera með gleraugu á litlu nefi.
Börn þurfa sterkar og eftirgefanlegar
umgjaröir með óbrjótanlegum plastglerjum.
Komið og sjáið nýju barnaumgjarðirnar hjá
PROFIL OPTIK Gleraugnamiðstöðinni á sérlega
hagstæðu verði, umgjarðir + gler.
Frítt út september
Öll börn sem kaupa gleraugu hjá okkur fá derhúfu og
fara sjálfkrafa inn í barnaklúbbinn hjá PROFIL OPTIK.
Valdar umgjarðir
+ plastgler frá +/+ 4.00
Vid pössum vel upp á sjónina þína
profil^Toptik
GLERAUGNAMIÐSTÖÐIN ■ Laugavegi 24,simar 552 0800 og 552 2702.