Morgunblaðið - 17.09.1995, Síða 52
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
© 550 7472
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NfTTFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson kominn úr Smugunni
Metverð-
mæti í einni
veiöiierð
FRYSTITOGARINN Haraldur
Kristjánsson HF-2, sem er í eign
Sjólastöðvarinnar hf., kom til
Hafnarfjarðar seint í fyrrakvöld
úr Smugunni með um 400 tonn
af flökum. Aætlað verðmæti afl-
ans er um 100 milljónir króna,
að sögn Guðmundar Jónssonar,
framkvæmdastjóra Sjólastöðvar-
Togarinn kom úr Smugunni
með togarann Eyvind Vopna í
togi til Vopnafjarðar en vél hans
bilaði þar sem skipið var að veið-
um í Smugunni. Björgunarlaun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
vegna dráttaraðstoðarinnar nema
um 5,5 milljónum króna að sögn
Guðmundar og nema því heildar-
tekjur skipsins eftir Smuguferð-
ina um 106 millj. kr. Eru það
meiri verðmæti en dæmi eru um
eftir eina veiðiferð íslensks fiski-
skips, skv. upplýsingum Guð-
mundar. 27 manns eru í áhöfn
Haraldar Kristjánssonar og er
hásetahluturinn eftir veiðiferðina
rúmlega ein milljón króna.
Islenskar rann-
sóknir styrkja
fyrri kenningu
ÍSLENSKIR vísindamenn hafa feng-
ið birtar niðurstöður sínar um
bijóstakrabbamein í körlum í einu
virtasta læknatímariti heims The
Lancet. Rannsóknir hafa staðið yfir
í IV2 ár en að undanförnu hefur
verið lögð áhersla á að kanna fylgni
milli gensins BRCA2 og bijósta-
krabbameins í körlum.
„Þetta er fyrsta rannsóknin sem
styrkir þá kenningu að genið tengist
bijóstakrabbameini í körlurn," sagði
Jórunn Erla Eyíjörð, erfðafræðingur
hjá Krabbameinsfélagi íslands, þar
sem rannsóknirnar fara fram.
Brjóstakrabbamein í körlum er
sjaldgæft og aðeins 1% af öllum
krabbameinsæxlum sem finnst hjá
þeim. Er tíðnin sambærileg við það
sem gerist erlendis. Aftur á móti
greinast um 100 konur á ári með
bijóstakrabbamein hér á landi og
er það langalgengasta krabbamein
kvenna.
■ Brjóstakrabbamein/10
mm
■
Leikið
í lóni
SUMARIÐ hefur verið sérstak-
lega hagstætt Austfirðingum og
ekki hefur haustið verið síðra.
Drengirnir á Borgarfirði eystra
hafa svo sannarlega notið blíðunn-
ar við hefðbundna sumarleiki. En
brátt tekur Vetur konungur völd-
~ ^jn og þá taka við annars konar
^^eikir hjá drengjunum.
♦ ♦ ♦-----
Með fíkniefni
útiág'ötu
FJÓRIR menn á þrítugsaldri voru
handteknir á götu á ísafirði í fyrri-
nótt með fíkniefni í fórum sínum.
A mönnunum, sem áður hafa kom-
ið við sögu lögreglunnar á ísafirði
vegna fíkniefnamála, fundust hass
«^og amfetamín, um það bil gramm
af hvoru, svo og tæki til fíkniefna-
neyslu, þar á meðal sprautur.
Mennirnir voru færðir í fanga-
geymslur lögreglunnar.
Meðan á aðgerðum lögreglunnar
í málinu stóð var fimmti maðurinn
handtekinn. Hann var að sögn lög-
reglu áhorfandi og málinu óviðkom-
x andi en sparkaði í lögreglubílinn
þannig að hurð hans beyglaðist.
Morgunblaðið/RAX
Illa gengur að selja nýjar íbúðir og margir iðnaðarmenn hafa flutt til útlanda
Miklu atvinnuleysi spáð
í byggingaiðnaði í vetur
TALSMENN samtaka í byggingaiðnaði segja
harðan vetur framundan í þeirri atvinnugrein.
„Iðnaðarmenn flýja land og það verður nánast
engin nýliðun í stéttinni. Það gengur ekkert að
selja íbúðir," sagði Atli Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði,
í samtali við Morgunblaðið. Spáð er miklu atvinnu-
leysi í greinni í vetur.
Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðn-
aðarins, sagði að byggingaiðnaðurinn geti því
aðeins tekið við sér, að reglum um lánskjör og
lánshlutfall við kaup á íbúðum verði breytt.
„Veturinn verður skelfilegur," sagði Atli Ólafs-
son. „Nú hefur hið opinbera tilkynnt að það ætli
að draga saman seglin í framkvæmdum eins og
hægt er, til dæmis hefur heilbrigðisráðherra hætt
við ýmsar byggingar.
Það væri nær að ríkið héldi uppi framkvæmdum
þegar einkageirinn dregst svona saman, enda gæti
ríkið gert góða samninga nú, þegar hart er í ári.
Þess í stað heldur ríkisvaldið að sér höndum og
þegar einkageirinn tekur við sér fylgir það í kjölfar-
ið og skapar þannig samkeppni um vinnuaflið.“
Atli sagði að iðnaðarmenn væru að flýja land
og fyrstu tvo daga þessarar viku hefðu tveir hringt
til Meistarafélagsins til að afla sér upplýsinga um
hvernig þeir ættu að bera sig að við slíka flutninga.
„Ef tekin verður ákvörðun um stórframkvæmd,
til dæmis stækkun álversins, þá gæti skapast
vandræðaástand, því við töpum fagmönnum og
þekkingu."
íbúðarhús standa auð
eins og draugaborgir
Atli sagði að lítið væri um stórframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu nú. „Stærsta framkvæmdin
er fyrirhuguð bygging fjölbrautaskóla í Garðabæ,
í Hafnarfirði er lítið að gerast í einkageiranum
og nánast ekkert á vegum sveitarfélagsins. Mesta
uppbyggingin í íbúðarhúsnæði er í Kópavogi, en
hvernig gengur að selja þær íbúðir er annað mál.
Þrátt fyrir að lánshlutfall hafi verið hækkað í 70%
hjá þeim sem eru að kaupa fyrstu íbúð hefur það
ekki skilað sér með kipp í sölu.
í Grafarvogi standa auðar blokkir, til dæmis í
Rimahverfi, þar sem heilu blokkirnar hafa staðið
eins og draugaborgir í 2-3 ár. Loks má svo nefna
að viss tregða er að myndast í félagslega kerfinu.
í Hafnarfirði hafa verið byggðar 30-40 félagsleg-
ar íbúðir á ári, en nú virðist einhver mettun þar.
Biðlistar eftir félagslegu húsnæði virðast því orð-
um auknir og mér skilst að sama sé uppi á teningn-
um á Akureyri, svo dæmi sé nefnt.“
Daprasti þáttur atvinnulífsins
Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðn-
aðarins, sagði að ástandið í byggingaiðnaði væri
daprasti þáttur atvinnulífsins og hann gæti ekki
séð að birti til á næstu mánuðum.
„Það er kannski ekki hægt að benda á eina
ástæðu annarri fremur. Efnahagsástandið almennt
leiðir til þessa og ákveðinn ótti almennings um
vinnu og afkomu. Sérstaklega skortir þó á að
stjórnvöld hafi bætt aðstöðu lántakenda til að
kaupa íbúðir. Hækkun lánshlutfalls til þeirra, sem
eru að kaupa í fyrsta sinn, var ekki nægjanleg.
Það þarf að bæta kjör á þessum lánum og hækka
lánshlutfallið."
Haraldur sagði að afskaplega illa gengi að selja
nýjar íbúðir. „Hjá byggingamönnum er alvarlegt
atvinnuleysi og á enn eftir að versna, því vetrar-
mánuðirnir eru alltaf verstir."