Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 1
92 SÍÐUR B/C/D 33. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter FRIÐURINN í Bosníu hangir ekki aðeins á bláþræði í Sarajevo, heldur einnig í borginni Mostar þar sem Króatar og múslimar hatast hvorir við aðra. Hér er verið að kanna skilríki króatísks bíl- sljóra, sem farið hefur yfir í múslimska borgarhlutann. Jeltsín á fáa góða kosti í Tsjetsjníju Hefur áhyggjur af endurkjöri Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær að hann stæði frammi fyrir erfiðu vali vegna Tsjetsjníju- deilunnar og báðir kostirnir gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir sig ef hann biði sig fram í forsetakosn- ingunum í júní. Jeltsín tilkynnir á fimmtudag í næstu viku hvort hann gefur kost á sér til endur- kjörs. „Ef við köllum hermennina heim hefjast blóðsúthellingar í Tsjetsjníju," sagði Jeltsín við blaðamenn. „Ef við flytjum ekki hermennina úr héraðinu er útilok- að að ég verði forseti, fólk myndi ekki kjósa mig.“ Forsetinn bætti við að nauðsyn- legt væri að finna einhverja „mála- miðlunarlausn sem myndi henta öllum“. Jeltsín sagði að Viktor Tsjerno- myrdín forsætisráðherra hefði ver- ið falið að ganga frá nýrri áætlun um hvernig leiða ætti Tsjetsjníju- deiluna til lykta. Áætlunin ætti að vera tilbúin innan tveggja vikna. Styðja Jeltsín Margt hefur bent til þess að Jéltsín gefi kost á sér í forsetakosn- ingunum en hann hyggst tilkynna lokaákvörðun sína þegar hann heimsækir heimabæ sinn, Jekater- inburg, á fimmtudag. Tsjernomyrd- ín sagði í gær að flokkur hans myndi styðja Jeltsín í kosningunum ef hann yrði í framboði. Bosníu-Serbar hafa slitið sambandi við fulltrúa NATO og Bosníustjórnar Framkvæmd friðarsamn- inganna talin vera í Vín. Reuter. BOSNÍU-Serbar tilkynntu í gær, að þeir hefðu hætt öllum samskipt- um við fulltrúa NATO-herliðsins vegna handtöku tveggja serbneskra foringja, sem Bosníustjórn ætlar að sækja til saka fyrir stríðsglæpi. Áður höfðu þeir ákveðið að sækja ekki lengur fundi með fulltrúum Bosníustjórnar. Vaxandi ótti er við, að þetta mál hafi alvarleg áhrif á framkvæmd friðarsamninganna um Bosníu. Stríðsglæpadómstóllinn fór fram á það í fyrradag, að serbnesku for- ingjarnir, Djordje Djukic hershöfð- ingi og Áleksa Krsmanovic ofursti, yrðu í haldi meðan kannað væri hvort þeir væru sekir um stríðs- glæpi. Richard Goldstone, forseti réttarins, kynnti þessa ákvörðun .hjá ÖSE, Óryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, í gær en vildi ekk- ert um það segja hvaða sannanir væru gegn mönnunum, aðeins að ástæða væri til að kanna mál þeirra. Serbar segja, að handtaka mann- anna sé brot á Dayton-samkomu- laginu og hafa krafist þess, að NATO leysi þá úr haldi en talsmenn þess segja, að NATO muni ekki hafa nein afskipti af málinu. Banda- ríkjastjórn hefur lýst nokkrum skilningi á óánægju Serba með handtökuna en telur, að hún rétt- læti ekki viðræðuslit. Ætlar hún að senda samningamann sinn, Ric- hard Holbrooke, aftur til Bosníu vegna málsins. Gratsjov styður Serba Pavel Gratsjov, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði í Belgrad í hættu gær, að sleppa ætti serbnesku for- ingjunum strax þar sem þeir væru ekki á lista yfír þá, sem stríðsglæpa- dómstóllinn hefur ákært fyrir stríðsglæpi. Fréttaskýrendur segja, að Serb- um sé þetta mál ekki jafn leitt og þeir láti. Með handtöku foringjanna tveggja og sex serbneskra her- manna að auki hafi Bosníustjórn gefið harðlínumönnum meðal Bosníu-Serba kærkomið tækifæri til að stöðva framkvæmd friðar- samninganna. Metatvinnuleysi í Þýskalandi Flokkarnir taka höndum saman Bonn. Reuter. STJÓRN og stjórnarandstaða í Þýskalandi ákváðu í gær að snúa bökum saman í baráttu gegn at- vinnuleysinu en þá voru birtar tölur, sem sýna, að það hefur aldrei verið meira en nú frá lokum síðari heims- styrjaldar. I janúar voru 3,86 milljónir manna án atvinnu í Þýskalandi eða 10. hver vinnufær maður. Skoraði Helmut Kohl kanslari á jafnaðarmenn, sem eru í stjórnarandstöðu, og verkalýðs- félögin að rétta ríkisstjórninni hjálp- arhönd í baráttunni gegn þessu þjóð- félagsböli. „Við verðum að taka höndum saman í þessu stríði," sagði Kohl á þingi í gær og Oskar Lafontaine, leiðtogi jafnaðarmanna, brást vel við. „Við munum verða við þessari tímabæru áskorun. Ef við getum ekki komið okkur saman um ein- hverjar aðgerðir mun atvinnulaust fólk kunna okkur litlar þakkir, jafnt stjórnarandstöðunni sem stjórninni," sagði Lafontaine. Gúnter Rexrodt efnahagsráðherra sagði, að aukið atvinnuleysi mætti rekja til hás gengis þýska marksins, of mikilla kauphækkana og minni umsvifa í efnahagslífinu, einkum í byggingariðnaði. Ekki yrði komist hjá ýmsum kerfisbreytingum því jafnvel góður hagvöxtur myndi ekki sjálfkrafa leiða til aukinnar atvinnu. ÍVMalcl javiUurs livtia muF ISXtciJumm cnWit I má.»»íitiitit ankTnEt Æ'Æ m m Ýim ('PMwn wöwfflr- Reuter Rándýrseðlinu mótmælt AINA Jonsson og fleira fóik úr Samaþorpinu Ammarnas í Norður-Svíþjóð efndi til nýstár- legra mótmæla í Stokkhólmi í gær. Komu þau fyrir nokkrum hreinsdýrsskrokkum á götu í borginni til að sýna hvernig úlf- ar, gaupur, birnir og ernir léku búsmalann þeirra. A spjaldinu stendur meðal annars, að úlfar hafi drepið dýrin án þess að éta þau. Farþegar voru var- aðir við Frankfurt. Reuter. LÆKNIR stjórnvalda í Dóminíska lýðveldinu sagði í gær, að svo virt- ist sem farþegar Boeing-757-þot- unnar, sem fórst undan strönd landsins aðfaranótt miðvikudags, hefðu á síðustu stundu fengið við- vörun um hvert stefndi því að minnsta kosti eitt líkanna, sem komið var með til lands í gær, var íklætt björgunarvesti. „Farþegarnir hafa verið látnir vita að eitthvað var að,“ sagði lækn- irinn. Hann sagði útlit líka fórnar- lamba flugslyssins benda til þess að þotan hafi skollið á haffletinum með miklu afli. Með þotunni fórust 189 manns, þar af 176 farþegar, og voru þeir flestir þýskir. Helmut Kohl, kansl- ári Þýskalands, vottaði aðstandend- um þeirra virðingu fyrir hönd þjóðarinnar og þingmenn höfðu einnar mínútu þögn á þingfundi í sama skyni. Varað við ódýru leiguflugi Þýskir fjölmiðlar ræddu öryggi flugvéla leiguflugfélaga í umfjöllun sinni um slysið í gær. Beindist gagnrýni að útlendum leiguflugfé- lögum og sagt var að viðhaldi flug- véla þeirra væri ábótavant, áhafnir vanþjálfaðar og yfirkeyrðar af of mikilli vinnu. Þá var fólk varað við því að taka ódýrustu tilboðum í ferðir til vin- sælla áfangastaða; ódýrasti miðinn væri ávísun á minni þægindi og minna öryggi. Skip og flugvélar bandaríska flotans hófu í gær leit að flugrita þotunnar. Þrátt fyrir að hann lægi á a.m.k. 1.200 metra dýpi sögðu talsmenn flotans mörg dæmi um að hlutir á stærð við flugritann hefðu fundist og náðst upp af miklu dýpi. ■ Hátækni beitt/16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.