Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KRISTJAN ODDSSON + Kristján Odds- son var fæddur 16. október 1938 í Reykjavík. Hann lést á Selfossi 4. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Oddur Hjalta- lín Kristjánsson frá Hjarðarbóli í Kol- grafarfirði, fram- kvæmdasljóri í Grafarnesi og síðar eftirlitsmaður, f. 1903, d. 1983, og kona hans Kristín Ólafsdóttir frá Reykjafirði við ísafjarðardjúp, f. 1903, d. 1981. Kristján átti þrjá bræður, Ólaf Jónsson, sammæðra, lækni í Reykjavík, f. 1924, d. 1987, Reyni, kvikmyndagerðarmann búsettan í Bandaríkjunum, f. 1936, og Hrafn Heiðar flug- stjóra, f. 1946, búsettur í Reykjavík. Sambýliskona Kristjáns var Rósanna Hjartar- dóttir verkakona á Selfossi, fædd 26. janúar 1930 á Bakka í Ölfusi, dóttir Hjartar Sig- urðssonar bónda í Auðholtsleigu í Ölf- usi, f. 1898, d. 1981, og konu hans Jó- hönnu Ástu Hann- esdóttur, f. 1898, d. 1966. Kristján og Rósanna voru barn- laus. Kristján fluttist að Selfossi fyrir rúmum 20 árum og stundaði þar ýmis störf, var fyrst verka- maður hjá Hitaveitu Selfoss og síðar starfsmaður Pósts og síma á Selfossi. Kristján var einnig mikill áhugamaður um flug og vann töluvert að mál- efnum flugs á Selfossi. Útför Kristjáns fer fram frá Selfosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. HORFINN er til annarra heim- kynna Kristján Oddsson langt um aldur fram. Kristján varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Selfossi. Kynni okkar hófust þegar við vorum báðir starfsmenn Sambands íslenskra samvinnufélaga um 1970. Kaflaskil verða í lífi Kristjáns skömmu síðar þegar hann kynnist Rósönnu Hjartardóttur og flytur á Selfoss. Kristján hóf störf hjá Hita- veitunni á Selfossi og gerðist síðan starfsmaður Pósts og síma á Sel- fossi og vann þar til dauðadags. Hann hafði mikinn áhuga á fram- > gangi flugs á Selfossi og vann tölu- vert að þeim málum. Hann var álit- inn traustur, vandvirkur og ötull starfsmaður. Kristján og Rósanna bjuggu í sama húsi og foreldrar mínir meðan þau höfðu síðustu við- veru hér. Á fyrstu árum Kristjáns á Selfossi var faðir Rósönnu, tengdafaðir minn, heimilisfastur hjá þeim. Það verður að segjast eins og er að með þeirri umönnun og hlýju sem hann sýndi foreldrum mínum og tengdaföður sýndi hann einstaka hlið á sér. Sama á við um háaldr- aða frænku mína, Ástu á Selfossi, og Skúla manninn hennar. Kristján bar tilfinningar sínar lít- ið utan á sér en maður sem sýnir slíka natni og umhyggju fyrir þeim sem aldraðir eru og bágt eiga eða minna mega sín er maður með stórt hjarta. Fyrir þessa hluti verðum við honum sem næst stóðum ævarandi þakklát og minnumst hans sem slíks. Kristján og Rósanna urðu ekki þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast börn en tóku ætíð bömum okkar og barnabörnum sem sínum eigin. Skapast hafði sú hefð að við fjöl- skyldan fórum alltaf til Kristjáns og Rósönnu á jóladag og var það orðinn ómissandi liður í helgihaldi okkar. Verður Kristjáns nú sárt saknað. Fyrir hönd okkar mága, og systra Rósönnu, þakka ég aftur fyrir sam- fylgdina. Elsku Rósanna, við biðjum góðan guð að vernda þig og veita þér styrk. Gísli Erlendsson. Langt er flug til fjarra stranda, fýkur löður, stormur hvín. Eins og fugl, sem leitar landa, leita ég, ó, Guð, til þín. Eins og sævarbylgjan breiða býður faðminn þreyttri lind, þannig, Faðir, lát mig leiða löngun háa’ að þinni mynd. Leið þú mig í myrkri nauða, mig þú leið, er sólin skín. Leið þú mig í lífi’ og dauða, leið mig, Guð, æ nær til þín. (Jakob J. Smári.) t Faðir okkar, SKÚLI ÞÓRÐARSON skipasmíðameistari, lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 8. febrúar. Ágústa Skúladóttir, Svandís Skúladóttir, Skúli Þ. Skúlason, Árni Skúlason, tengdabörn og aðrir vandamenn. t Útför GÍSLA ÁGÚSTS GUNNLAUGSSONAR, Ölduslóð 43, Hafnarfiröi, fer fram frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, mánudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á heimahlynningu Krabbameinsféiagsins eða MND-félagið. Berglind Ásgeirsdóttir, Ásgeir, Sigrún Ingibjörg og Sæunn, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Gunnlaugur Þorfinnsson, Sigrfður Ólöf Gunnlaugsdóttir, Magnús Þorkelsson, Þorfinnur Gunnlaugsson, Sæunn Sveinsdóttir, Ásgeir Jóhannesson. Við þökkum Kristjáni fyrir sam- fylgdina. Minningin um góðan mann lifir í hjarta okkar. Við biðjum góðan guð að styrkja Rósönnu frænku okkar í þessari miklu sorg. Hulda, Helga og fjölskylda. Okkur iangar með nokkrum orð- um að minnast hans Kristjáns sem óvænt er fallinn frá langt um aldur fram. Kristján hefur verið sambýlis- maður hennar Rósönnu frænku minnar í yfir tuttugu ár og man ég ekki eftir henni öðruvísi en með Kristján sér við hlið. Kristján var yndislegur maður, rólegur og yfir- vegaður. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann á svona stundum. Þegar ég var að alast upp bjuggu þau hjón í sama húsi og afi minn og amma og var ég oft hjá þeim til styttri dvalar á sumrin. Þá var margt sér til gamans gert og voru þeir ófáir bíltúrarnir sem ég fór með þeim Rósönnu og Kristjáni í Eden í Hveragerði eða annað. Einnig tókst honum tvisvar að draga mig í flugtúr og var seinni ferðin farin núna síðasta vor og var þá dóttir mín hún Rósanna með í för. Þetta var heilmikið ævintýr fyrir 5 ára stúlku en litli bróðir sem beið á jörðu niðri var ekki eins glað- ur og beið eftir að verða nógu stór til að fljúga með Kristjáni vini sín- um. Það var alveg aðdáunarvert hvað hann Kristján var bamgóður og hlakkaði Sindri alltaf til að hitta vin sinn og fara með honum í bíltúr út á flugvöll að skoða flugvélarnar. Aðaláhugamál Kristjáns var ein- mitt flug og flugvélar þó ekki hefði hann flugréttindi sjálfur en átti ótal kunningja sem buðu honum með í flugferðir. Hann starfaði einnig mikið í tengslum við flugvöllinn og hafði mikla ánægju af. Það má segja að flug og bílar hafi verið hans aðaláhugamál og bar bíllinn hans þess merki, alltaf gljáandi hreinn og fínn. Það var ánægjulegt í sumar þegar ég og bömin mín urðum samferða þeim Rósönnu og Kristjáni til Noregs. Þar dvöldum við á sitthvorum staðnum en hitt- umst þó. Þau hjón dvöldu hjá frænku okkar Rósönnu og áttu þar alveg yndislegan tíma og var mikið keyrt um og farið í skoðunarferðir og nýr flugvöllur í nágrenninu skoð- aður. Einnig eru ógleymanleg öll jólaboðin sem við áttum hjá þeim á Víðivöllunum á jóladag ár hvert. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þennan kæra vin. Rósanna og Sindri eiga svo sann- arlega eftir að sakna þessa vinar sem var alltaf boðinn og búinn að gera allt fyrir þau og var þeim svo hlýr og góður. Við biðjum góðan guð að styrkja þig á þessum erfiðu tímum elsku Rósanna okkar og í hjarta okkar lifir minningin um góðan mann. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hjördís Jóna, Andrés, Rósanna og Sindri. í dag kveðjum við Kristján Odds- son sem verið hefur samstarfsmað- ur okkar um árabil. Fyrstu árin vann hann með símamönnum við línulagnir, viðhald og annað sem til féll. Síðar gerðist hann póstbíl- stjóri og flutti póst á stöðvarnar með ströndinni og í Hveragerði. Milli póstferða sinnti hann ýmsum daglegum störfum sem ekki létu alltaf mikið yfir sér en þurfti að sinna. Mikilvægi þeirra kom betur í Ijós þá sjaldan Kristján var fjarver- andi og var hans þá oft saknað. Kristján hafði gaman af að vera með vinnufélögunum og fjölskyld- um þeirra þegar komið var saman utan vinnutíma. Hann var afar barngóður og nutu börn okkar þess í samskiptum við hann. Kristján mun ekki alltaf hafa gengið heill til skógar en sinnti þó störfum sínum af samviskusemi alla tíð. Við þökkum honum samstarfið og samfylgdina um veraldarveginn. Rósönnu sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira. Drottinn minn gefi dauðum ró og hinum líkn er lifa. (Sólarljóð, 82) Starfsfólk Pósts og síma, Selfossi. Þau sorgartíðindi bárust út sl. mánudag að Kristján Oddsson, Víðivöllum 2 á Selfossi, starfsmaður hjá Pósti og síma, hefði orðið bráð- kvaddur í bíl sínum daginn áður, sunnudaginn 4. febrúar, langt um aldur fram. Ferðinni hafði verið heitið út á flugvöll, en þangað lá leiðin oft. Kristján, sem var félagi í Flug- klúbbi Selfoss, hafði mikinn áhuga á flugi og tók mjög virkan þátt í störfum klúbbsins. Vandvirkni og snyrtimennska einkenndu störf hans og kom það þess vegna sjálf- krafa í hans hlut að halda öllu í röð og reglu í flugstöðinni. í tengsl- um við lendingarkeppnir sá hann oftast um merkingar flugbraut- anna og fleira er að þeim laut. Ógleymanlegar voru einnig stund- irnar á sunnudagseftirmiðdögum þegar ekki var flogið, en rabbað í flugstöðinni í staðinn. Valur And- ersen, flugrekandi í Vestmannaeyj- um, naut starfa Kristjáns. Þetta samstarf var orðið í nokkuð föstum skorðum, en upphaflega þróaðist það úr greiðasemi og lipurleika. Svona var Kristján. Fyrir þetta og miklu meira viljum við félagarnir í Flugklúbbi Selfoss þakka góðum félaga, nú þegar leiðir skilja í bili. Um leið vottum við Rósönnu Hjart- ardóttur, sambýliskonu Krisstjáns, innilega samúð. Jón Guðbrandsson. Það er mikill og sár söknuður að Kristjáni Oddssyni, sem svo óvænt og óvægið er fallinn 'frá langt fyrir aldur fram. Kristján var ein- staklega traustur og góður félagi og var alltaf tilbúinn til þess að leysa úr málum sem leysa þurfti. Ég kynntist Kristjáni fyrst í fluginu á Selfossflugvelli þar sem hann var daglega kallaður Stjáni, enda fé- lagsskapurinn í kring um flugið þess eðlis að gælunöfnin eru svo eðlileg. Stjáni var sérstaklega bón- góður, alltaf tilbúinn til þess að hjálpa, alltaf á vaktinni og hann var svo sannarlega vinur vina sinna. Stjáni var snyrtimenni fram í fing- urgóma og það gilti fyrir allt sem hann kom nálægt, hvort sem það var heimilið, bíllinn, flugvöllurinn eða annað. Hann var pottþéttur eins og maður segir um þá sem standa til fulls fyrir sínu. Stjáni kippti sér ekkert upp við það að vera endalaust í snúningum á sínu sérstaka áhugasviði fluginu, dytta að, skjótast eftir hinu og þessu og honum þótti ekkert til- tökumál að skreppa til Þorlákshafn- ar í Heijólf með bíl eða að sækja bíl. Stjáni leyndi á sér á mörgum sviðum, því hann flíkaði ekki skoð- unum sínum, en hann var mikill flugáhugamaður og í hópi þeirrar harðsnúnu og kraftmiklu sveitar flugáhugamanna á Selfossi sem hafa byggt upp flugvöllinn þar af meiri ósérhlífni en þekkist nokkurs- staðar á landinu í hópi áhuga- manna. Stjáni átti fullkomið tal- stöðvar- og hlustunarkerfi og hafði „control" á mörgum þáttum, flug- umferð og ýmsu fleiru. Hann var nánast öllum stundum í frítíma sín- um á Selfossflugvelli, hellti upp á könnuna, pússaði og snyrti bæði smátt og stórt. Eins var hann á heimili sínu svo ánægður og glað- ur, og að koma heim til þeirra Rós- önnu og Stjána var eins og að koma heim til sín. Heimili þeirra, svo hlý- legt og fallegt, bar þeim báðum gott vitni. Það er sárt að sjá á eftir Stjána hverfa yfir móðuna miklu í blóma lífsins og mannlífið og athafnalífið í fluginu verður fátækara eftir og ekki eins svipmikið. Einhvernveginn af sjálfu sér varð Stjáni svo mikil- vægur í umhverfi sínu þótt hann krefðist einskis í þeim efnum. Við Inga vottum vinum og vanda- mönnum Stjána dýpstu samúð og megi minningarnar um góðan dreng og traustan milda sársaukann. Það var gott að eiga Stjána að í leik og starfi og þakklæti er okkur efst í huga þegar við kveðjum hann. Valur og Inga. • Flciri minningargreinar um Kristján Oddsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Heiðargerði 96, Reykjavík, lést í Landspítalanum 7. febrúar. Jón Frímann Eiríksson, Steinunn Ásta Björnsdóttir, Ester Eiríksdóttir, Örn Ingvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum öllum þeim, er sýndu hlýhug og samúð við útför GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Hólabraut 3, Hafnarfirði. Oddur Ingvason, börn, tengdabörn, barnabörn, systkini hinnar látnu og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.