Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 41 BREF TIL BLAÐSINS Gerræði borgar slj órnar - eða hvað? Nokkrar staðreyndir um samskipti íbúa Bústaða- og Smáíbúðahverfis og1 borgaryfirvalda vegna áforma um byggingu leikskóla við Hæðargarð Frá nokkrum íbúum í Bústaða- og Smáíbúðahverfi: 1. Snemma vors 1995 var hald- inn fundur af borgarskipulagi þar sem íbúar mættu og mótmæltu í öllu fyrirhugaðri byggingu á leik- skóla við Hæðargarð. Meginástæða mótmæla þessa eru ekki að gera borgaryfirvöldum erfitt fyrir heldur er ástæðan sú: Með leikskóla fylgir mikil umferð á álagstímum og telja íbúar það bijóta á grundvallarhug- myndum þeirra um nágrenni skóla- lóðar þ.e. að umferð verði haldið í svo miklu lágmarki sem verða má. Umferðartoppar vegna leikskólans munu einmitt vera á sama tíma og börn hverfisins eiga leið til og frá Breiðagerðisskóla og finnst íbúum hverfisins nægur vandi fyrir með tilveru Réttarholtsvegar þvert í gegn um hverfið á milli Breiðagerð- isskóla og Réttarholtsskóla. Einnig finnst íbúum gróflega brotið á sér með áður gefin loforð um nýtingu lóðarinnar við Hæðargarð. 2. Um miðjan júlí var haldinn fundur á vegum borgaryfirvalda þar sem íbúar lýstu sig í einu og öllu andvíga byggingu leikskólans. 3. 10. október 1995 var haldinn fundur á vegum borgaryfirvalda þar sem allir íbúar sem á fundinn mættu lýstu andstöðu sinni við bygginguna. Sem sagt þrír fundir með íbúum þar sem þeir lýstu allt- af fullri andstöðu við fyrirhugaða leikskólabyggingu við Hæðargarð. Samt héldu borgaryfirvöld áfram að ýta þessu máli fram og skyldi það tekið fyrir í borgarráði. Um- hugsun vekur til hvers borgaryfir- völd voru að halda fyrrgreinda fundi. 4. 18. október fór einn íbúi á fund borgarstjóra. Daginn áður hafði borgarstjóra verið afhentar undirskriftir vel á þriðja hundrað íbúa þar sem þeir mótmæltu fyrir- hugaðri byggingu. Borgarstjóra var gerð grein fyrir þeim áhyggjum sem íbúar hafa og undirskriftunum þar með fylgt eftir. Að beiðni borg- arstjóra var þá fundin 4 manna nefnd úr hverfinu til viðræðna við borgaryfirvöld. Undirritaðir hafa mætt á fundi með borgaryfivöldum vegna þessa máls. 5. 19. október mætti vinnu- nefndin á fund í borgaskipulagi. Borgaryfirvöld buðu vistvæna götu í Hæðargarði, og alls konar þreng- ingar og/eða upphækkanir til þess að tefja umferð um Hæðargarðinn. Satt best að segja gátu íbúar vel samþykkt þrengingu í Hæðargarði á móts við Breiðagerðisskólann en ekki þá auknu umferð sem leik- skóla fylgir. Voru þar ræddir ýms- ir möguleikar m.a. við Bústaðaveg ofan við eða gegnt Jarlinum, við Bústaðaskóla, á horni Réttarholts- vegar og neðan Sogavegar, á holt- inu austan við Réttarholtsskóla, í Grundargerðisgarði og síðast enn ekki síst við ofanvert RÚV hús þ.e. við Listabraut. Reyndar er síð- asttalda lóðin sú sem flest með- mæli hefur fengið í viðtölum nefnd- armanna við íbúa hverfisins. 6. 23. október hélt borgarstjóri hverfafund í Réttarholtsskóla. Nefndarmenn höfðu áður rætt það við borgaryfirvöld að þeir ætluðu ekki að hleypa þeim fundi upp með æsingafundi um leikskólamálin við Hæðargarð. Var það gert meðal annars með teknu tilliti til þess að fundurinn var fyrir fleiri hverfi. Á sama fundi sagði borgarstjóri í ræðu sinni að þrátt fyrir ítrekuð mótmæli væri Hæðargarðslóðin enn besti kosturinn þó við værum á þeim tíma að leita lausna með borgaryfirvöldum (gerræði eða hvað?). 7. 24. október fór vinnunefndin á fund í borgarskipulagi. Nefnt var af borgaryfirvöldum að loka mætti Hæðargarði í miðju og eða vera með einhvers konar umferðarte- fjandi framkvæmdir þar. Borgaryf- irvöld höfðu eitthvað á móti öllum þeim möguleikum á öðrum lóðum sem nefndir höfðu verið. Með lokun Hæðargarðs í miðju skapast mörg vandamál. Gatan er snjóþung og hún er lægst í miðju. Ibúar sem búa við miðja götu eiga oft í erfið- leikum að komast út á svokallaðar strætóleiðir á snjóþungum vetrar- morgnum og með lokuninni myndi umferðinni vegna leikskólans vera beint alfarið á annan helming Hæðargarðsins og er það því skammgóð lausn. 8. 25. október var haldinn aðal- fundur í Foreldrafélagi Breiðagerð- isskólans. Félagar í Foreldrafélag- inu eru allir foreldrar og forráða- menn barna í Breiðagerðisskólan- um. Á fundinum var einróma sam- þykkt ályktun á móti fyrirhugaðri byggingu leikskóla við Hæðargarð. Áður hafði kennararáð í Breiða- gerðisskóla samþykkt mótmæli vegna byggingarinnar. 9. I nóvember vorum við boðuð á fund með fulltrúum frá Grundar- gerðisgarði og borgaryfirvöldum. Sá fundur reyndist hin mesta sýndarmennska, þar sem okkur varð ljóst að ætlun borgaryfirvalda var að etja saman íbúum hverfis- ins. Þá lýsti Árni Þór Sigurðsson, formaður stjórnar Dagvistar barna, Frá Kára Sigurðssyni: UNDANFARNA daga hefur mikið verið rætt um fíkniefni og skaðsemi þeirra. Þetta finnst mér vera þörf umræða en eitt sjónarmið hefur mér fundist vanta og mun ég í þess- ari grein reyna að varpa ljósi á það. Þegar verið er að fjalla um eitur- lyf eru gjarnan fengnir gamlir eitur- lyfjaneytendur til að segja frá reynslu sinni. Þetta eru oft á tíðum menn sem hafa náð sér vel á strik og eru á ný orðnir þátttakendur í þjóðfélaginu. En í stað þess að segja frá reynslu sinni á neikvæðan hátt þá segja þeir söguna í hetjusagna- stíl svo það að hafa verið í „rugl- inu“ gefur persónunni aukna dýpt og meiri virðingu. Þetta álít ég að hvetji til neyslu þar sem unglingar sjá fyrirmyndir sínar draga upp rómantíska mynd af ruglárunum. Ég er sannfærður um að ungling- ar vita nákvæmlega um skaðsemi að sér fyndist að Ieikskólann ætti að byggja við Hæðargarð (gerræði eða hvað?). 10. Á almennum fundi í Breiða- gerðisskóla þann 6. febrúar 1996 leggja borgaryfirvöld enn og aftur til að leikskólinn verði byggður við Hæðargarð. Enginn vinna hafði verið lögð í að takmarka umferð á Réttarholtsvegi, hún frekar aukin á álagstímum. Vel var mætt á fund- inn og lýstu fundarmenn enn furðu sinni á vinnubrögðum borgaryfi- valda. Af fyrrgreindum 10 liðum má ljóst vera að íbúar í Bústaða- og Smáíbúðahverfi hafa gert það sem í þeirra valdi stendur til að forða því slysi fyrir hverfið sem þeir telja að leikskólabyggingunni fylgi, þ.e. aukin umferð á leið barna okkar til og frá skóla. Enn förum við fram á við borgar- stjórn: Að tekið verði tillit til þeirra hundruða íbúa í Bústaða- og Smá- íbúðahverfi sem hafa á öllum fund- uin og með undirskriftum lýst sig andvíga byggingu leikskóla við Hæðargarð og hjálpi okkur að skipuleggja hverfið okkar þannig að ekki verði aukin umferð í grennd við skólana. Að Foreldrafélagi Breiðgerðis- skóla verði sýnd sú virðing að tek- ið verði fullt tillit til samþykkta fíkniefna. En það er alltaf einhver ævintýraljómi yfir því að vera í „ruglinu“. Dáðst er að mönnum sem sagt er að séu í „ruglinu“, en standa samt sína plikt. Þessi lífsstíll að vera í „ruglinu“ og athyglin sem honum fylgir heillar unglinga og nú er svo komið að margir hella sér út í „ruglið“, en flestir klikka á pliktinni. Fólk spyr sig gjaman af hveiju krakkar, sem hafa allt til alls, byija í fíkniefnum. Foreldrar minnast gjarnan á að það hafi verið annað þegar þeir vom að alast upp, þá hafi þau þurft að vinna fýrir nauð- synjum. Kannski er mergurinn máls- ins sá að þegar fólk býr við allsnægt- ir og hefur mikinn frítíma er hætt við að það vanti spennu í lífið. Þeg- ar búið er að vinna fyrir nauðsynjum hefst lífsgæðakapphlaupið. Senni- lega er neysla tískueiturlyfja og hraði lífsmátinn sem henni fylgir Foreldrafélagsins. í Foreldrafélag- inu eru allir foreldrar barna í skól- anum. Sýnum samstöðu fyrir betri borg fyrir börn á öllum aldri. Að hlustað verði á Kennararáð Breiðagerðisskóla sem hefur sent borgaryfirvöldum mótmæli við fyrirhugaðri byggingu við Hæðar- garðinn og þar með að auka vísvit- andi umferð á götunum næst skól- anum. Láti borgaryfirvöld verða af leik- skólabyggingu við Hæðargarð munu þau gerræðislegu vinnubrögð auka slysahættu til muna. Lýsum við því fullri ábyrgð á hendur borg- aryfivöldum. Þau okkar sem kusu R-listann í síðustu borgarstjórnarkosning- um telja sig örugglega ekki hafa verið að kjósa yfir sig gerræðis- stjórn heldur þvert á móti. Stönd- um því saman og leysum málin án sundrungar í hverfinu. Það hlýtur að vera okkur öllum fyrir bestu eða svo teljum við sem sát- um í vinnunefnd að beiðni borgar- stjóra. EDDA SÓLEY ÓSKARSDÓTTIR Rauðagerði 61, Rvk. ELÍN HREFNA HANNESDÓTTIR, Langagerði 13, Rvk. GUÐLAUGUR ÁGÚSTSSON Hólmgarði 42, Rvk. GUNNAR GUÐNASON, Hæðargarði 52, Rvk. nokkurskonar framlenging á lífs- gæðakapphlaupinu. Krakkar hér á landi eru ekki í neyslu af fáfræði. Þeir vita upp á hár hvað er rétt og hvað er rangt en þeir elska spenn- una, taka hégómann og athyglina framyfir hinn andlausa veruleika. Unglingar þrá meira en andlausa búskaparvelgengni og efnahagslegt öryggi, þeir þrá draumhygð og nær- ingu fyrir ímyndunaraflið. Nú á tím- um fínna unglingar ekki frið meðal gömlu góðu dyggðanna því þær samræmast ekki hraða nútímans. Meðan þessi friður er ekki fundinn, er andanum svalað af augna- bliksnýjungum, og hvað er eðlilegra en slíkt móti hverfullynda augna- bliksmenn sem fúsir eru að prófa eitthvað nýtt. Ég álít rót eiturlyfjavandans ekki síður vera hjá heimilunum en yfir- völdum. Heimilin eru búin að týna gömlu dyggðunum í neyslukapp- hlaupinu og það skapar markað fyrir eiturlyf. Til að stöðva eitur- lyfjaneysluna þarf hugarfarsbreyt- ingu en til að hún geti orðið verða allir að leggjast á eitt og það er hægara sagt en gert. KÁRI SIGURÐSSON, Stapaseli 5, Reykjavík. Æ vintýralj ómi „ruglsins“ WtÆKWÞAUGL YSINGAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Reykjaneskjördæmi Kjördæmisþing laugardaginn 10. febrúar 1996 Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi boð- ar stjórnir félaga, fulltrúaráða, sveitarstjórnarmenn og kjördæmis- ráðsfulltrúa flokksins í kjördæminu til kjördæmisþings I Gafl-inum, Dalshrauni 13, Hafnarfirði, laugardaginn 10. febrúar nk. kl. 09.00 árdegis. Dagskrá: 09.00 Morgunkaffi. 09.20 Setning. Ávarp formanns fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði. 09.40 Hópar starfa.* 12.00 Léttur hádegisverður. 12.40 Hópar starfa.* 14.30 Samantekt. 15.00 Þingslit. Þingstjóri: Mjöll Flosadóttir. *Hver þingmaður er 30 mínútur með hverjum hópi og ræðir ákveðin málefni. Gestir fundarins og þátttakendur í hópstarfi verða Björn Bjarna- son, menntamálaráðherra, og Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra. Þinggjald kr. 1.500 (veitingar innifaldar). I.O.O.F. 12=17709027'h = þb l.O.O.F. 1 = 177298V2 = 9.O.* Frá Guðspeki- félaginu Ipgólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 I kvöld kl. 21 heldur Jón Bene- diktsson erindi, „í kompaníi við Siddha", i húsi félagsins, Ingólfs- stræti 22. Á laugardag er opið hús frá kl. 15-17 með fræðslu kl. 15.30. Einar Þorsteinn Ás- geirsson fjallar um „Handbók um tilvist". Á fimmtudögum kl. 16-18 er bókaþjónusta félags- ins opin með mikið úrval and- legra bókmennta. Þá er skrif- stofa félagsins einnig opin á fimmtudögum frá kl. 17-19. SHtCI auglýsingar Skíðafélag Reykjavíkur mun sjá um skíðagöngukennslu á Miklatúni nk. laugardag og sunnudag milli kl. 13 og 15 (ef veður leyfir). Upplýsingar í síma 551 2371. Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur. ^ Viðurkcnndur mcistari 4L_ % (sRéikisomtok aPsLmdf Heilunarkvöld Opið hús í kvöld milli kl. 20 og 23 á Sjávargötu 28, Bessastaða- hreppi, fyrir alla þá, er hafa lært Reiki hjá viðurkenndum meist- ara, til þess að þjálfa sig og spjalla. Éinnig er öllum þeim, er vilja þiggja Reiki-heilun (hluta Reiki) og fræðast, boðið að koma. Aögangur ókeypis. Símsvari 565 5700, sími 565 2309. FERÐAFÉLAG © ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Ferðafélag íslands NÝJUNG: Skiðagöngunámskeið fyrir almenning Næstkomandi laugardag 10. og sunnudag 11. febrúar stendur Skíöasamband (slands, í sam- vinnu við Feröafélagið og fleiri aðila, fyrir ókeypis skíðagöngu- kennslu í Laugardalnum. Mæt- ing kl. 10, kl. 12, kl. 14 eða kl. 16 báða daganna. Hvert nám- skeið er 1 klst. Komiö með eigin skíði, en einnig verður eitthvað af skíðum til láns. Kennslan verður á Valbjarnarvellinum, mæting við stúkuna. Námskeið i Þelamerkursveiflu á skfðum, sem fyrirhugað er sunnudaginn 25. febrúar, verð- ur að panta á skrifstofunni. Sjáifboðavinna Sjálfboðaliðar óskast ! skála- smíðavinnu o.fl. í vetur. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Munið sunnudagsferðirnar 11. febr. kl. 10.30 Bláfjöll - Heiðin há - Grindaskörð. Fyrir vant skíðagöngufólk. Kl. 13.00 Skíða- ganga. Fyrir þá, sem vilja styttri og auðveldari göngu. Kl. 13.00 Helgafell - Dauðadalir. Brottför í ferðirnar frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Munið næsta myndakvöld mið- vikudagskvöldið 14. febrúar kl. 20.30 í Mörkinni 6. Ný fjöl- breytt f erðaáætlun er komin út. Ferðafélag fslands. Aðventkirkjan í Reykjavik, Ingólfsstræti 19. f kvöld kl. 20 tónlistarsamkoma. Laugard. kl. 9.45 biblíuleshópar. Efni ársfjórðungsins: Að rannsaka ritningarnar. Kl. 11 .OOalmenn guðsþjónusta. Ræðumaður: Björgvin Snorra- son. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.