Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 13
LAIMDIÐ
Reynt við
heimsmet
ísafirði.- íþróttafélagið Höfr-
ungur á Þingeyri stóð fyrir alló-
venjulegri uppákomu í sundlaug
staðarins um síðustu helgi. Þá
freistuðu Höfrungar þess að setja
heimsmet í fjölda sundlaugar-
gesta og sendu 127 íbúa staðar-
ins samtímis í laugina sem er
16,67 metrar að lengd og 8,1
meter að breidd.
Sigmundur Þórðarson, formað-
ur Höfrungs, sagði að sundlaugin
rúmaði mun fleiri, en látið yrði á
það reyna hvort um heimsmet
væri að ræða. Til að allt færi eft-
ir settum reglum mætti Sólveig
Guðmundsdóttir, fulltrúi sýslu-
mannsins á ísafirði, á staðinn og
fylgdist með framkvæmdinni.
Sigmundur sagði tilganginn
með uppákomunni þann að vekja
athygli á íþróttamiðstöð staðar-
ins. „Vegna þeirrar umræðu um
vímuefni sem fer fram í samfé-
laginu vildum við vekja athygli á
heilbrigðu lífemi jafnframt því
að benda á það sem við ættum
að iðka,“ sagði Sigmundur.
Morgunblaðið/Egill Egilsson.
Góður afli
Flateyrarbáta
Flateyri - í síðustu viku lönduðu
bæði Gyllir, Styrmir og Jónína afla.
Gyllir og Styrmir voru með 50 tonn
hvor, en Jónína var með 40 tonn.
Góð veiði hefur verið að undanförnu
og hefur mest verið sótt á Hala-
mið. Veðrið hefur átt stóran þátt í
því hve vel hefur gengið og lítið
verið um brælu. Þetta hefur skapað
aukna vinnu hjá starfsfólki Kambs
og verið unnið langt fram eftir á
kvöldin og um helgar.
Vilja sína
menn í
úrslita-
keppnina
Selfossi. Morgunblaðið.
KRAKKARNIR á Selfossi eru
einlægir stuðningsmenn Sel-
fossliðsins í handbolta og þeg-
ar liðið stendur í ströngu
þiggja þeir gjarnan stríðs-
málningu til þess að auka á
stemmninguna á áhorfenda-
pöllunum. Strákarnir á mynd-
inni eru staðráðnir í að styðja
Selfossliðið vel og dyggilega
og koma liðinu í úrslitakeppn-
ina i handbolta og segja að
ef liðið spili eins vel og gegn
KA á dögunum standist því
ekkert lið snúning á hand-
boltavellinum.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Ein stærsta sko-
útsala ársins hefst
í dag föstudaginn
9 . f e b r ú a r. k 1.13:00
Morgunblaðið/Sigríður lngvarsdóttir.
HALLDÓRA Jónsdóttir, formaður Rauðakrossdeildarinnar, og Kristinn Georgsson slökkviliðssljóri.
Rauði krossinn afhendir
slökkviliði bj örgnnarbúnað
Siglufirði - Rauðakrossdeild
Siglufjarðar afhenti slökkviliði
bæjarins fullkominn búnað til
björgunar úr bílflökum og til notk-
unar við rústabjörgun sl. laugar-
dag. Búnaðurinn samanstendur
m.a. af klippum, glennum og loft-
púðum og verður hann notaður í
tækjabíl slökkviliðsins. Rauði
krossinn stóð fyrir söfnun meðal
fyrirtækja o.fl. á Siglufirði til að
fjármagna kaupin og voru undir-
tektir þeirra sem leitað var til með
ágætum.
Það kom fram í máli Kristins
Georgssonar slökkviliðsstjóra að
hér væri um mikilvægan hlekk í
öryggiskeðju bæjarbúa að ræða.
Búnaðurinn væri af fullkomnustu
tegund og getur nýst við hverskon-
ar björgunarstörf. Mikilvægt væri
fyrir bæjarbúa að vera sjálfum sér
nægir í öryggismálum, enda langt
að leita aðstoðar ef þörf væri á.
Þess má og geta að Rauði kross-
inn á Siglufirði hefur að undanfömu
staðið fyrir kaupum á ýmsum öðr-
um búnaði til notkunar ef stóráföll
verða og komið upp geymsluað-
stöðu fyrir hann í samráði við al-
mannavarnanefnd bæjarins.
í ávarpi Kristjáns L. Möller, for-
seta bæjarstjórnar, við afhending-
una fjallaði hann um mikilvæg
störf slysavarnafélaganna í bæn-
um og Rauða krossins að ýmsum
öryggismálum bæjarbúa og flutti
þeim og þá sérstaklega frú Hall-
dóru Jónsdóttur, formanns Rauða-
krossdeildarinnar og Slysavarna-
deildarinnar Varnar bestu þakkir
bæjaiyfu'valda.
Opio a I I a virka daga,
laugardag og sunnudag
frá k I . 13:00 - 18:00
Borgartúni 20
Kuldaskór, götuskór,
spariskór o.fl. o.fl. o.fl
Stendur aðeins í örfáa daga