Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 15
ÚRVERINU
Setja þarf hámarks-
verð á kvótaleigu
„ÞAÐ ER mikið ösamræmi í því hvernig kvóta er skipt,“
segir Gísli Jóhannesson, fyrrverandi útgerðarmaður.
„Eg er óánægðastur með hvað leiguverð er hátt á
kvóta. Þeir sem eiga kvóta fá alltof hátt verð. Það á
einfaldlega að setja hámarksverð þannig að allir fái
sitt út úr þorskkílóinu."
Gísli segir að það hangi saman að menn
séu að brölta við að verka fiskinn og koma
honum í verð, t.d. með því að setja hann
í salt, en fái svo sáralítið út úr því miðað
við það verð sem fæst fyrir hann fuli-
verkaðan.
„Leiga á kvóta kostar 90 til 100 krónur
á hvert kíló af þorski á meðan fiskurinn
selst á 120 til 130 krónur," segir hann.
„Það sjá allir að ekki má mikið út af bera.
Ef ekki fæst toppverð er sá sem leigir
kvótann illa staddur."
Að mati Gísla þarf að milda kvótakerf-
ið: „Ef við færum í helmingi lægra verð
í framsali á kvóta yrði það til þess að
útgerðin, sjómenn og þeir sem ynnu í landi
fengju mismuninn. Þá myndi koma á jafn-
ræði með öllum aðilum.“
Hann segist meta ástandið svo að 30
til 40 þúsund tonn hafi gengið á milli manna í fyrra,
en það jafngildi 3 til 4 milljörðum. „Það er alveg með
eindæmum að leiguliðar suður með sjó séu að fiska
fyrir þá fyrir norðan."
Varar við flottrollum í veiðum á loðnu og síld
Gísli segist vera mótfallinn því að loðna og síld séu
veidd með flottrollum. „Ég er gamalreyndur sjómaður,
var í 47 ár til sjós,“ segir hann. „Ég er mjög hræddur
við afleiðingar þess að veiða loðnu og síld
með flottrolli. Það er bara áraspursmál,-
ef það leyfist til frambúðar, að þessir stofn-
ar þurrkist út.“
Hann nefnir dæmi um veiði Þjóðverja á
Rauða torginu hér á árum áður og eins
þegar sfldin hafi verið fyrir Suðvestur-
landi. „Það voru notaðar litlar flotvörpur
þá miðað við núna,“ segir hann.
„Þá voru sjö bátar í sömu torfu 10 míl-
ur suðsuðaustur frá Reykjanesi. Þeir köst-
uðu allir og voru með 100 til 120 tonn
af síld. Þá kemur bátur með troll í eftir-
dragi í gegnum torfuna og eftir það var
hún horfin. Það troll var þó aðeins smá-
bleðill."
Gísli segir að menn þurfi að hugsa sinn
gang áður en þeir fari inn á þessa braut:
„Ef síldin missir ákveðið magn af hreistri
minnka lífslíkur hennar. Það kenndi Jakob
Jakobsson okkur í eina tíð. Það þarf ekki að spyrja
að því að ef hún fer of nálægt garninu í trollinu er
hún fljót að missa hreistrið."
Gísli
Jóhannesson
Fiskmarkaður Suð-
urnesja kaupir end-
urvinnanleg fiskiker
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
NÓTIN hífð um borð í varð-
skipið Tý, en í baksýn má sjá
Haföm KE-14.
Fengu bjarg
í nótina
DRAGNÓTARBÁTURINN Haf-
örn KE-14 var á veiðum á Eldeyj-
arsvæðinu nýverið. Þá kom stór
steinn i nótina og náðu skipvetj-
ar henni ekki inn. Varðskipið Týr
var á svæðinu og aðstoðuðu varð-
skipsmenn við að ná nótinni upp.
Hún var hífð um borð í Tý og
steinninn losnaði úr. Mjög öflug-
ur krani er á Tý og gekk vel að
hífa nótina um borð. Haförninn
tók síðan nótina aftur um borð
hjá sér að mestu óskemmda.
Þetta var ný nót og aðeins búið
að nota hana i þrjá daga.
SÆPLAST hf. á Dalvík hefur hafið
sölu á endurvinnanlegum fiskikerum
á innanlandsmarkaði, en hingað til
hafa slík ker aðeins verið seld erlend-
is. Það er Fiskmarkaður Suðurnesja,
sem fyrstur íslenskra fyrirtækja,
hefur pantað svona ker.
Að sögn Þóris Matthíassonar,
sölustjóra hjá Sæplasti hf., hefur
Fiskmarkaður Suðurnesja pantað
um 200 kör og verða þau fyrstu
afgreidd í dag. Hann segir þessa
nýju gerð hafa verið í þróun í þrjú
ár og menn hafi beðið lengi eftir
þeim. „Munurinn á þessum kerum
og hinum gömlu er sá að í gömlu
gerðinni var polyuretan einangrun-
arefni en í hinum nýju er svokaliað
polyetelyn plastefni. Nýju kerin eru
því nánast plast í gegn.“
Sterkari og endingarbetri ker
Þórir segir að fyrst í stað verði
aðeins framleidd 660 lítra ker og
að þó að þau verði 4 kílóum þyngri
en þau gömlu, séu kostir þeirra
margir. „Kerin eru algerlega endur-
vinnanleg og verða auk þess mun
sterkari og endingarbetri. Einn
st.ærsti gallinn við gömlu kerin var
sá að ef gat kom á þau, til dæmis
eftir gaffla á lyftara, saug polyuret-
an efnið í sig vatn sem vildi þá gjarn-
an úldna í kerunum. En í nýju kerun-
um er þessu ekki að skipta því að
vatnið kemst ekki inn í þau,“ segir
Þórir.
Þórir segir að nýju kerin hafi ver-
ið seld í nokkru magni til Danmerk-
ur og Hollands en fram að þessu
hafi ekki borist pöntun innanlands
frá. „Menn hafa sett fyrir sig verðið
á kerunum, en þau eru tvöfalt dýr-
ari en þau gömlu. Fiskmarkaður
Suðumesja hefur verið með ker til
reynslu í eitt ár og ákvað í fram-
haldi af því að snúa sér alfarið að
þeim. Þó að kerin séu dýrari minnk-
ar viðhaldskostnaður til muna. En
það var langþráð markmið að fá
pöntun hér innanlands og við erum
því mjög ánægðir með þessa pönt-
un,“ segir Þórir.
Mun minni afföll
Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja, segir að þau ker sem þar
hafi verið til reynslu hafi reynst
mjög vel. „Þessi ker endast mun
betur og við teljum að þrátt fyrir
að þau séu eitthvað dýrari muni það
skila sér í minni afföllum og minni
viðgerðarkostnaði. Þar að auki er
stutt í að borga þurfi fyrir endur-
vinnslu úrgangsefna og talað um að
gera ísland að hreinasta landi í heimi
árið 2000 og því ágætt að byrja á
þessu,“ segir Ölafur.
varmaskiptar
stjórnbúnaður
Þú finnur |
varla betri j
lausn. - í
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
ÓGtEYMANTEG UPPEIFUN
FYRIR BRAGÐLAUKANA
eykur orku og úthald
Eitt hylki á dag og þú finnur muninn!
Fæst í apótekinu
Locobase® hentar
fólki meó exem og
psoríasis og þeim
sem starfsins vegna
eru oft í snertingu
vib vatn og hreinsi-
efni (ræstitæknar,
fískverkunarfólk,
heilbrigöisstarfs-
menn o.fí.) Einnig
gott sem vörn gegn
kulda og veörun fyrir
börn, sjómenn,
skíöafólk o.fí.
30 g, lOOg túpur og
350g krukkur.
ÖKKLA-
SKÓR
Verð:
1.995r
Ath.: Ur mjúku leðri
m/finum gúmmísóla
Tegund: 26205
Stærðir: 36-41
Litur: Svartur