Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Hver ber ábyrgð á börnunum okkar? Frá Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur: MANNELDISKENNSLA í skólum er mjög bágborin, það sýnir sig best á neysluvenjum ungu kynsló- Guðrún M. Jónsdóttir hús- stjórnarkennari skrifaði í Morg- unblaðið um hræðslu sína um minnkandi fjár- veitingu til heim- ilisfræðslu í skól- um þann 25. jan- úar sl. Að spara heimilisfræðikennslu er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Kennsla í þessu efni hefur verið til skammar í skólum landsins, enda ber ungviði þessa lands það utan á sér. Blessuð börnin eru mörg hver að beijast við ótalin aukakíló. Efnis- kostnaður var víða lítill, en að ætla það að heimilisfræðikennarar séu galdrakonur er því miður ekki til- fellið, þó hagsýni sé þeim kennd í skóla. Það er mjög erfitt að kenna verk- lega grein án þess að hafa nokkurt efni að moða úr. Hvar er skynsemi þeirra sem stjórna rekstri skólanna, vita þeir ekki að vel nærðir einstakl- ingar hafa meiri möguleika á að halda heilsu seinna meir á lífsleið- inni? Hvað er að sliga þessa þjóð, jú, menntakerfíð og heilbrigðiskerf- ið. Er ekki kominn tími til að vinna að langtímamarkmiðum? Heimilisfræðikennsla hefur ekki verið í „tísku“ undanfarin ár enda fljótlegra og þægilegra að kaupa eitthvað tilbúið og hita þegar heim kemur, svo ekki sé talað um allan þann skyndibitamat sem keyrður er um bæinn í sérmerktum bflum allan sólarhringinn. Íslenska þjóðin er mjög fáfróð um hollustu þess sem hún lætur ofan í sig, má það glögg- lega sjá allt í kringum okkur. „Is- lenska þjóðin víkkar út í veröldina." Rétt fæðuval er undirstaða mann- kynsins, til þess að fólk geti haldið kröftum og verið fullgilt í vinnu er nauðsynlegt að borða hollan mat. Það hefur stunduni verið sett út á hæfni kennara, að þeir séu ekki allir nógu góðir en hefur einhvern tímann verið sett út á hæfni ném- andans til að taka við þeirri fræðslu sem kennarinn er að koma frá sér og jafnvel búinn að leggja mikla vinnu í undirbúning? Nei, ekki man ég eftir þeirri athugasemd. Hversu tilbúnir eru nemendurnir til að taka við fræðslu þegar um 30-40% nemenda í efri bekkjum grunnskóla koma svangir í skólann og oft og tíðum örmagna af þreytu. Er námsárangur nemandans þá kennaranum að kenna? Nei takk, hann er vandi heimilanna. Foreldrarnir eru fyrst og fremst uppalendur og fyrirmynd barnanna, það getur aldrei verið neinn annar. Hvar eru foreldrarnir þegar verið er að tala um minnkandi heimilis- fræðikennslu? Hvar eru foreldrarnir þegar verið er að tala um allt gosþamb barn- anna okkar? Já, hvar erum við foreldrarnir yfirleitt, höfum við gleymt hlutverki okkar eða vitum við það ekki? GUÐRÚN ÞÓRA HJALTADÓTTIR, móðir, hússtjórnarkennari og næringarráðgjafi. Guðrún Þóra Hjaltadóttir Hvar voru fjölmiðlar? Kæri höfundur, við sendum til baka þessa kjánalegu sögu þína. Vertu svo vænn að senda okkur ekki fleiri... í öllum lifandis bænum ... Mér finnst svo gaman að heyra þá sárbæna mig... Frá Sebastian Peters: SÍÐASTLIÐINN mánudag var ég viðstaddur opnun sýningar á vegum alþjóðlegra ungmennaskipta um sjálfboðavinnu. Til opnunarinnar yar boðið forseta íslands og fulltrúum allra fjölmiðla. Forseti íslands sýndi okkur þann heiður að mæta og hún sýndi bæði sýningunni og vinnu okk- ar mikinn áhuga. Hún ávarpaði við- stadda og ræddi síðan persónulega við þá sem að sýningunni stóðu. Is- lendingarnir voru afar stoltir af þjóð- höfðingja sínum, eins og við er að búast, og við erlendu gestirnir mjög upp með okkur af áhugasemi hennar. Það vakti aftur á móti athygli mína að enginn fulltrúi fjölmiðla sá sér fært að mæta. Ekki einn. Ég efast ekki um að fjölmiðlafólk hefur í mörg horn að líta og mörgu þarf að sinna. En eftir umræðu síð- ustu vikuna um ungt fólk og „áhuga- mál“ þeirra (áhugaleysi, öllu heldur) hefði mér þótt eðlilegt að a.m.k. ein- um íjölmiðli hefði þótt áhugavert að sjá hvað ungt fólk er að gera annað en að drekka og dópa niðri í bæ. En, nei, það var ekki. Ég leyfi mér að halda því fram að forseti íslands hafi líka í mörg horn að líta og dagskrá hennar sé jafn fullskipuð og fjölmiðlafólks. Hún sá sér engu að síður fært að taka frá tíma og eyddi dijúgum tíma í að ræða við okkur. Kannski veit hún að ungt fólk er að gera fullt af já- kvæðum og skemmtilegum hlutum og vill fylgjast með því sem það er að gera. Kannski hefur hún bara einlægri áhuga á fyrirbærinu „ungt fólk“ heldur en fjölmiðlar, ég veit það ekki. Það voru óneitanlega vonbrigði að finna það áhugaleysi sem fjölmiðlar sýna ungu fólki sem er að vinna uppbyggilegt starf, en sjá og heyra svo alltaf öðru hvoru fjölmiðla sneisa- fulla af tíðindum af þeim minnihluta ungs fólks sem hefur af einhverjum ástæðum ekki tekist að fóta sig al- mennilega í lífinu. Það skortir ekki tímann og áhugann hjá fjölmiðlum þegar það óhamingjusama fólk er annars vegar. SEBASTIAN PETERS, fyrrverandi sjálfboðaliði á íslandi, 13589 Berlin Platz E13, Þýskalandi. Ferdmand pear Contributor, We are returninq your stupid story. jT' Please don’t send us any more..Please, Please.Please... I love to meAr TMEM BE6.. Allt efni sem birtist t Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.