Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 31 MINNINGAR + Helga Páls- dóttir fæddist á Seljalandi í Fljótshverfi 24. maí 1908. Hún lést í Landspítalanum aðfaranótt 27. jan- úar síðastliðinn. Helga var hin sjö- unda í röð fimmtán systkina, auk eins hálfbróður. For- eldrar hennar voru Málfríður Þórarinsdóttir, f. 1877, d. 1946; og Páll Bjarnason, f. 1875, d. 1922. Systkini Helgu voru Þórarinn (eldri), f. 1899, d. 1969; Jón, f. 1902, d. 1991; Kristín, f. 1903, d. 1983; Helgi (eldri), f. 1904, d. 1993; Bjarni, f. 1905, d. 1990; Helgi (yngri), f. 1907, d. 1970; Valgerður, f. 1909; Guðríður, f. 1911; Páll, f. 1912, d. 1983; Þórarinn (yngri) f. 1913; Sigurður, f. 1915; Elias, f. 1916; Málfríður, f. 1918; Pálína, f. 1919 og hálf- bróðir Valdimar Pálsson, f. 1905, en móðir hans var Ragn- hildur Ólafsdóttir, f. 1868. Móðir Málfríðar var Kristín Jónsdóttir bónda á Dalshöfða í Fljótshverfi Magnússonar Jónssonar hreppstjóra og með- hjálpara („klausturhaldara") á Kirkjubæjarklaustri Magnús- sonar, en faðir Málfríðar var Þórarinn Þórarinsson bónda á Seljalandi Eyjólfssonar, en með honum kom ættin að Selja- landi árið 1835. Páll var sonur Bjarna bónda og hreppsljóra í Hörgsdal á Síðu Bjarnasonar hreppsljóra á Keldunúpi og Helgu, yngstu dóttur sr. Páls Pálssonar prófasts í Hörgs- dal. Eiginmaður Helgu var Guðbjart- ur Magnús Björns- son f. 1903, d. 1957; sonur Björns Jóns- sonar bónda að Alftavatni í Staðar- sveit á Snæfellsnesi og konu hans Rann- veigar Magnúsdótt- ur. Dóttir Helgu og Guðbjarts er Krist- ín, f. 1935; leikari og leikhússtjóri. Vegna leik- starfa í Englandi tók hún sér nafnið Kristín G. Magnús. Eig- inmaður Kristínar er Halldór Snorrason forstjóri, f. 1924. Sonur þeirra er Magnús Snorri rafmagnsverkfræðingur, f. 1964. Hann er búsettur í Cam- bridge við Boston í Bandaríkj- unum með eiginkonu sinni Ad- ine Storer og syni þeirra Ian Helga, f. 1990. Helga Pálsdóttir fluttist til Reykjavíkur um tvítugt. Hún hóf nám í Samvinnuskólanum 1932 og útskrifaðist þaðan 1934. Hún vann ýmis störf við kennslu, fiskverkun og af- greiðslu. Árið 1945 tók Guð- bjartur við rekstri á Hafnar- böðunum í Reykjavík. Þar ráku þau hjónin verslun fyrir sjó- menn og þvottahús í tengslum við Hafnarböðin og Reykjavík- urhöfn. Heimili Helgu var lengst af í Stórholti 30 í Reykja- vík; Utför Helgu verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. í BYRJUN aldarinnar var margt í heimili víða til sveita. Aðdrættir voru erfiðir og býlin sjálfum sér nóg um flesta hluti. Þannig var um Seljaland í Fljótshverfí þar sem Helga Páls- dóttir fæddist 24. maí 1908. Foreldr- ar Helgu, Málfríður og Páll, byrju’ðu sinn búskap á Seljalandi í tvíbýli við foreldra Málfríðar. Efni voru góð á Seljalandi á þeim ánim en í hönd fóru erfíðir tímar. í páskaáhlaupi 1917 tapaðist nær helmingur íjár- stofnsins. Bóndinn lagðist í btjóst- himnubólgu um sumarið og iá rúm- fastur í hálft annað ár. Vorið 1918 var með eindæmum kalt og sumarið graslítið. Kötlugos í október 1918 bætti gráu ofan á svart og eyðilagði alla beit. Bústofninn komst niður í 60 kindur, 2 kýr og nokkur hross til að framfleyta þrettán barna heim- ili. Heilsa bóndans var brostin, en elstu börnin léttu nú undir, og með seiglu, útsjónarsemi og æðruleysi komst heimilið gegnum þessar þrengingar án nokkurra opinberra styrkja. Bömin komust öll á legg og döfnuðu vel. Bræðumir réðust sem unglingar í vinnu á næstu bæi, og hinir elstu fóm til sjós á vetmm, gangandi um langan veg. Þannig lögðu þeir heimilinu dijúgt til og því var veitt eftirtekt, að systkinin frá Seljalandi bára með sér þann brag, sem einkenndi fólk frá góðum heim- ilum. Þar var risna og hjálpsemi í heiðri höfð og allar veitingar með sönnum höfðingsbrag. Helga fór að heiman um tvítugt til Reykjavíkur og bjó fyrstu tvö árin á Laufásvegi 4 hjá föðursystur sinni Guðrúnu og Guðmundi Breið- §örð. Hún vann um tíma við fisk- verkun og afgreiðslustörf en réðst síðan í vist hjá Arent Claessen stór- kaupmanni og konsúl. Á þeim ámm þótti það eftirsóknarvert fyrir ungar stúlkur að komast til slíkra heimila að læra heimilisstörf en Claessen- fjölskyldan mun einnig hafa sann- reynt að Helga kunni margt fyrir sér frá stóra heimili á Seljalandi. Hún hafði löngun til að ganga í skóla og þrátt fyrir lítil efni innritaðist hún HELGA PÁLSDÓTTIR í Samvinnuskólann árið 1932 og út- skrifaðist þaðan 1934. Þar kyrintist hún Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Fjalli á Skeiðum. Þær leigðu saman tvö herbergi skólaárin og urðu vin- konur ævilangt. Strax að loknu námi var Helga ráðin sem kennari í bók- færslu og ensku við Samvinnuskól- ann. Hún giftist Guðbjarti Magnúsi Björnssyni frá Álftavatni í Staðar- sveit á Snæfellsnesi árið 1935. Þeim fæddist dóttirin Kristin síðla það ár. Árið 1939 lagðist Helga á Landa- kotsspítala vegna meiðsla sem hún hafði hlotið í æsku. Eftir erfíð veik- indi og langa legu komst hún aftur til heilsu árið 1940 en þessi lífs- reynsla setti mark sitt á viðhorf hennar til andlegra efna. Guðbjartur vann í fyrstu ýmis störf við Reykja- víkurhöfn og var virkur þátttakandi í félagsstörfum verkamanna, meðal annars einn af stofnendum mál- fundafélagsins Óðins. Helga var endurskoðandi hjá Verkakvennafé- laginu Framsókn frá árinu 1942 og gegndi því starfi í áratugi. Árið 1945 tók Guðbjartur við rekstri Hafnarbaðanna í Reykjavík og ári síðar settu þau hjónin upp verslun á sama stað. Verslunarstörf áttu mjög vel við þau bæði og naut versl- unin mikilla vinsælda meðal sjó- manna sem kunnu vel að meta hlý- legt viðmót og vingjarnleika þeirra í allri þjónustu. Einnig ráku þau hjónin þvottahús í sambandi við Hafnarböðin og Reykjavíkurhöfn. Heimili þeirra stóð opið öllurri ætt- ingjum sem dvelja vildu í Reykjavík. Þar var því oft margt í heimili þótt þröngt væri búið. Líkt og á Selja- landi var þar hvergi sparað í gest- risni. Málfríður móðir Helgu kom til Reykjavíkur vegna veikinda síðla árs 1945 og dvaldi þar til dauða- dags 1946. Páll bróðir Helgu kom oft til vinnu í Reykjavík um vetur og bjó þá hjá þeim hjónum. Árið 1947 hóf hann störf við umsjón með Hafnarböðunum ásamt Guðbjarti. Þegar dóttirin Kristín fullorðnað- ist stóð hugur hennar til listnáms. Hún hélt árið 1956 til London og lagði þar stund á ballett. Guðbjartur veiktist'í desember 1956 og barðist við krabbamein á Landspítala þar til yfir lauk í maí 1957. Stuttu síðar andaðist Margrét systir Guðbjarts, en þær Helga voru miklar vinkon- ur. Þetta voru erfiðir tímar fyrir Helgu sem nú var ein eftir í heimili þessarar samrýndu íjölskyldu. Helga hvatti Kristínu þó til að halda áfram námi og styrkti hana til þess á alla lund. Kristín innritaðist síðan í leiklistarnám við Royal Academy of Dramatic Art í London og lauk þaðan prófi í árslok 1959 með slík- um glæsibrag að hún hlaut bæði verðlaun og styrk. Helga skildi vel gildi þess að dóttir hennar sækti sér bestu menntun erlendis en sjálf fór hún aidrei út _ fyrir landsteinana. Hún var mikill Islandsvinur og naut þess að rækta jörð og sinn garð. Til þess hafði hún gott tækifæri í sumarbústað þeirra hjóna Reynis- stað að Laufskógum 10 í Hvera- gerði. Þar dvaldi hún nær öll sum- ur, meðan hún hafði heilsu til, og oft með henni dóttursonurinn Magn- ús Snorri, meðan hann hafði ekki aldur til að hjálpa foreldrum sínum á sumrin við rekstur Ferðaleikhúss- ins. Þegar hann óx úr grasi og vildi leita sér menntunar lagði hún einn- ig sitt af mörkum til þess að hann gæti leitað til bestu skóla í Banda- ríkjunum og árið 1988 útskrifaðist Magnús Snorri úr Harvard College. Helga var trygg vinum sínum og laus við að öfunda nokkurn mann. Erfiðleikum tók hún með stillingu og leysti sjálf úr. Henni þótti gaman að gefa öðram en átti erfitt með að þiggja. Hún vildi ekki skulda öðrum neitt né láta þá hafa fyrir sér. Hún var ekki mannblendin en þó glöð og ræðin í góðra vina hópi. Helga hafði gott lag á dýrum og nánustu félagar hennar síðustu árin voru páfugl og kettir sem hún tók í fóstur af Magnúsi Snorra og ná- grönnum. Þeim hélt hún heimili síð- -V ustu árin sátt við guð og menn. Sveinbjörn Björnsson. + Eyjólfur Elías- son var fæddur á Reyðarfirði 28. maí 1909. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Þorbjarnardóttir og Elías Eyjólfsson handverksmaður á Reyðarfirði. Alsyst- ir Eyjólfs var Guð- rún Björg, hús- freyja á Reyðar- firði, en hún er Iát- in. Hálfsystkini Eyjólfs sam- feðra voru: Valdór, Herborg Margrét og Stefán, öll látin, Matthías búsettur á Reyðar- firði, Kristrún búsett í Reykja- vík, Marteinn búsettur í Stykk- ishólmi og Elín Jóna búsett í Reykjavík. Eiginkona Eyjólfs var Svein- björg Einarsdóttir frá Norð- „SÆLIR eru hógværir því að þeir munu landið erfa.“ Þessi fögru fyr- irheit Fjallræðunnar hafa ómað mér við eyrum frá því ég fékk þá fregn að horfinn væri af heimi hollvinur minn allt frá bernskudögum, Reyð- firðingurinn Eyjólfur Elíasson. Víst áttu þessi orð við hann Eyjólf - og eiga ekki síður nú. Við leiðarlok leitar hugur fyrst til löngu liðinna stunda. Oðfluga fækkar þeim eðli- lega sem á bernskutíð mína brugðu bjarma gleði og kærleika og einn þeirra er þakklátum huga kvaddur kært í dag. Að honum varð ég sem ungur hnokki svo elskur að með ólíkindum var, honum hjartanlega fagnað og úr fangi hans vart vikið meðan stað- ið var við. Um barngæði þessa öðl- firði, f. 19.3. 1906, d. 20.10.1975. Börn þeirra eru Brynjar Elías, pípulagn- ingamaður, búsett- ur í Reykjavík, Guðrún Filippía, húsmóðir, búsett í Reykjavík og Jar- þrúður Margrét, búsett í Gautaborg í Svíþjóð. Eyjólfur ólst upp á Reyðarfirði og stundaði ungur maður sjó frá Vest- mannaeyjum og Hornafirði. Síðar vann hann um árabil hjá Kaupfélagi Hér- aðsbúa á Reyðarfirði. Þau hjón fluttust til Reykjavíkur um ára- mótin 1960-61 og hér vann Eyjólfur hjá Bílasmiðjunni til loka starfsdags. Utför Eyjólfs verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ings segir þetta sína fallegu sögu, en alla ævitíð var hann mér samur í hlýrri, fölskvalausri velvild sinni og vináttu góðri. Og nú er hann horfinn okkur, ljúflingurinn og lipurmennið mikla, hagleiksmaðurinn bægláti og hug- umprúði og mörg mæt þökk mun fylgja honum yfir á eilífðarlandið, þökk fyrir margar góðar stundir. Þá síðustu áttum við Þórir frændi minn og systursonur Eyjólfs með þessum höfðingja góðvildarinnar í liðnum mánuði og okkur frændum báðurn þessi minning munakær. Lífsins góða gæfa gefst okkur á ýmsan veg en ekki hvað sízt er hún fólgin í fylgd gefandi samferðafólks sem birtu veitir á brautina tneð sín- um ágætu eigindum. Eyjólfur var einn þeirra er eiga sérstakan heiðurssess í huga mér. Hann varð raunar hvetjum þeim er honum fékk að kynnast hugþekk- ur vel. Hann fór hljóðlega lífsins leiðir og það fór ekki mikið fyrir honum en engum duldist hversu þar fór traustur þegn og trúr yfir hvetju einu. Hann átti þetta undurhlýja bros sem lýsti hans innri manni svo afar vel, hóglætið og hæverskan héldust í hendur, en gamansemi átti hann dtjúga, grómi fírrta. Hann var maður aðgætinn og athugull vel, greindur og fróður alþýðumað- ur sem allt lék í höndunum á, enda lagvirkni og iðjusemi honum í blóð borin. Það var enginn svikinn af verkunum hans Eyjólfs míns. Hann tókst á við verkefni lífsins af ein- Iægni og alúð þess sem allt vill sem allra bezt af hendi leysa. Hvort sem hann var að störfum í Kaupfélaginu heima á Reyðarfirði eða í Bílasmiðj- unni hér þá voru handtökin hans fumlaus og örugg, aldrei slegið slöku við og kappkostað að hvergi væri minnsta missmíð á einu eða neinu. Eyjólfur var verkmaður góð- ur pg vandvirkur um leið svo af bar. í minningunni merla nú allar þær indælu stundir sem ég átti á heim- ili hans heima á Reyðarfirði, en þar átti ég ævinlega athvarf gott. Heimilið var enda hans uppáhalds- staður enda var hann sannkallaður hamingjuhrólfur, eignaðist harð- duglega geislandi hressa og glað- lynda öndvegiskonu og þtjú börn hinna beztu eðliskosta. Með þeim hjónum var einstakt ástríki og svo ólík sem þau voru að ýmsu leyti voru þau einstaklega samstiga í öllu, þar réði eindrægnin ríkjum. Heimili þeirra Sveinbjargar var einkar smekklegt og bar hand- bragði beggja fagurt vitni. Eyjólfur missti sína mætu konu alltof fljótt en missi sinn og sáran harm bar hann með þeirri heiðu hugarró sem honum var svo eigin- leg. En hann naut ástríkis og um- hyggju sinna góðu barna. Það er mikil heiðríkja yfir tninn- ingu Eyjólfs Elíassonar og margt sem mér ber að þakka. Það var heiðríkja í svip hans við síðustu samfundi okkar, veikum en undur- skýrum rómi bað hann okkur frændum blessunar og brosið hans hlýja fylgdi okkur á leið. Þeir sem áttu með honum farsæla fylgd munu enda á einu máli um dreng- lyndi hans og hlýja velvild í allra garð, en ég á þar af einstaka sögu sem aldrei bar á skugga. Ég mun hafa kallað hann ein- hverju undranafni sem smár hnokki og oft minnti hann mig á þetta svo og þann fögnuð í róm mínum er hann birtist og ég flýtti mér í faðm hans. Þar fann barnið fjarska vel þann hjartans hlýleik sem ætíð vermdi öll samskipti okkar. Við Hanna sendum börnum hans og aðstandendum öðrum okkar ein- lægu samúðarkveðjur, sér I lagi sendi ég æskuvini mínum, Brynj- ari, samúðarkveðjur, en hann reyndist föður sínum fágæta vel. Þessi dyggi þegn hógværðar, heiðarleika og samvizkusemi hefur gengið göngu sína á enda. Hann Eyjólfur minn átti einlæga og sterka trú og hana sýndi hann sann- arlega i öllum sínum verkum og viðmóti. Megi honurn hafa orðið að þeirri styrku trú sinni um fögnuð í ríki föður síns með endurfundum við þá sem honum voru hjarta kær- astir. Ljómandi minning lýsir inn í hugskot mitt, þrungið þökk. Blessuð sé minning ntíns góða vinar. Helgi Seljan. Elsku afi, okkur langar til að kveðja þig með nokkrum orðum og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Minningarnar um þig geymum við í hjarta okkar, því þú varst okkur svo kær. Huggun er okkur þó að vita, að nú eruð þið loks aftur sam- an á betri stað, afi og amma í Bræðró. Við minnumst áranna í Bræðra- tungu, þar sem þú varst alltaf tilbú- inn til þess að leika við okkur og alltaf varstu til staðar fyrir okkur ef éitthvað bjátaði á. Rólyndi þitt gerði það að verkum að okkur fannst alltaf gott að vera í návist þinni. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þokk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við systkinin kveðjum þig, elsku afí, með söknuði og sárum trega og þökkum þér samfylgdina. Með tímanum hverfur sársaukinn en minningin.um þig mun vara að ei- lífu í huga okkar. Eydís, Elín Hildur og Ástráður. Skilafrestur minningargreina Eigi ntinningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf grein- in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hef- ur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. EYJOLFUR Þ. ELÍASSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.