Morgunblaðið - 09.02.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 9
FRÉTTIR
NÝ SENDING FRÁ
Skeljungur hf. styrkir skóg-
rækt um 10 milljónir króna
KRISTINN Björnsson, forstjóri Skeljungs hf, og Jón Loftsson
skógræktarstjóri undirrita nýjan samning um Skógrækt.
JÓN Loftsson, skógræktarstjóri, og
Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj-
ungs hf., hafa undirritað samkomu-
lag um áframhaldandi samstarf
Skógræktar ríkisins og Skeljungs hf.
undir kjörorðinu „Skógrækt með
Skeljungi". Samkvæmt samningnum
mun Skeljungur hf. leggja 10 milljón-
ir króna til verkefna á sviði skóg-
ræktar á þessu ári.
Frá því samstarf þessara aðila
hófst á miðju ári 1993 hefur Skelj-
ungur hf. styrkt skógrækt í iandinu
um samtals 27 milljónir króna. Fé-
lagasamtök og einstaklingar hafa
fengið skógræktarstyrki, ræktaðar
hafa verið skógarplöntur og skóg-
lendi opnuð almenningi með bættu
aðgengi og áningarstöðum.
Meginmarkmið samstarfs Skelj-
ungs og Skógræktarinnar hefur ver-
ið að efla almennan áhuga á skóg-
rækt og skógræktarstarfið í landinu
í þeim tilgangi að stækka skóglendi
Islands. Vísasta leiðin til að glæða
skógræktaráhuga íslendinga er að
fá þá til að heimsækja þá fjölmörgu
skógarreiti sem til eru í landinu. Slík
heimsókn lætur engan ósnortinn. Því
hefur í þessu samstarfi verið gert
sérstakt átak í að opna skógana.
Skóglendi Skógræktar ríkisins
hafa verið gerð aðgengilegri til al-
mennrar notkunar með grisjun,
göngustígagerð, merkingum og
bættri áningaraðstöðu. í því sam-
bandi má nefna Hallormsstaðaskóg,
Vaglaskóg, Grundarreitinn í Eyja-
firði, Reykjarhólsskóg í Varmahlíð í
Skagafirði, Jafnaskarðsskóg við
Rannsókn
stendur yfir
í Ziirich
ZUrich. Morgunblaðið.
YFIRHEYRSLUR vegna morðsins
á Vivan Öttarsdóttur í Genf í fyrra
standa enn. Roland Niklaus, lög-
fræðingur og aðalræðismaður Is-
lands í Genf, sagðist ekki eiga von
á að málið yrði tekið fyrir dómstól-
ana fyrr en í haust. „Morðinginn
situr inni og það er ljóst að hann
fær langan fangelsisdóm," sagði
hann. „Þess vegna liggur ekki svo
mjög á að koma málinu í gegnum
dómskerfið. Önnur brýnni mál eru
látin ganga fyrir.“
Vivan var myrt á heimili sínu
eftir að hún hafði verið úti að
skemmta sér um nóttina. Niklaus
þarf að tilkynna fyrir miðjan mán-
uðinn hvaða vitni hann hyggst
kalla. Fimmtán ára dóttir Vivan
hefur þegar verið yfirheyrð, svo og
kunningjar sem hittu Vivan um
kvöldið áður en hún lést og rann-
sóknarlæknirinn. Niklaus býst við
að rannsókninni ljúki með vorinu.
„Það getur verið að málið verði tek-
ið fyrir dóm í júní en mér finnst
líklegra að það verði í haust eftir
sumarfríin," sagði Niklaus.
------■■
Framkvæmda-
stjóri NATO
í heimsókn
Framkvæmda-
stjóri Atlantshafs-
bandalagsins,
Javier Solana,
kemur í opinbera
heimsókn að
kvöldi 14. febrúar
1996 og stendur
heimsóknin yfir til
eftirmiðdagsins
15. febrúar. Framkvæmdastjórinn
mun eiga fundi með forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og utan-
ríkismálanefnd.
Hreðavatn, Stálpastaðaskóg í
Skorradal, skóglendið í Esjuhlíðum
við Mógilsá, Haukadalsskóg í Bisk-
upstungum og Tumastaði í Fljóts-
hlíð. Samanlögð lengd skógarstíga
sem unnt hefur verið að leggja vegna
framlagsins frá Skeljungi nemur tug-
um kílómetra og á enn eftir að auk-
ast. Sérstakir skógardagar, sem efnt
hefur verið til í tengslum við opnun
skóganna, hafa verið mjög fjölsóttir.
Reynslan hefur sýnt að landsmenn
kunna vel að meta þetta framtak
enda hefur öll umferð um skóglendin
aukist til muna í kjölfarið.
Með samningnum sem nú hefur
verið undirritaður er tryggt áfram-
OPIÐ hús verður í Stóðhestastöðinni
Gunnarsholti frá kl. 14 nk. sunnu-
dag. Verður áhugamönnum um
hrossarækt gefinn kostur á að skoða
hesta og húsakost stöðvarinnar,
ræða við starfsrrienn, þ.á m. Þorkel
Bjarnason, ráðunaut stöðvarinnar.
Að sögn Haraldar Sveinssonar
sem situr í stjórn stöðvarinnar verð-
ur lagt á einhvetja af eldri hestunum
á stöðinni ef veður leyfir. Um þessar
mundir eru hestar á stöðinni vel á
íjórða tuginn og fyrirliggjandi sjö
til átta pantanir. Sagði Haraldur að
starfsemin hefði gengið prýðilega,
aðsókn góð og viðskiptavinir ánægð-
ir með að fá stöðumat eftir tveggja
hald á því ánægjulega samstarfi sem
verið hefur milli Skógræktar ríkisins
og Skeljungs hf. undanfarin ár.
Framtíðarverkefnin eru mörg. Fjöldi
skóglendis bíður grisjunar og bætts
aðgengis, en ákveðið hefur verið að
leggja áherslu á göngustígagerð í
Þórsmörk, á Þingvöllum og í Eiða-
skógi á Héraði. Fljótlega verða aug-
lýstir Skeljungsstyrkir þar sem fé-
lagasamtök og einstaklingar geta
sótt um fjárstuðning til gróðursetn-
ingarverkefna. Lögð verður áhersla
á að veita færri en myndarlegri styrki
en áður. Með haustinu er síðan stefnt
að fræsöfnunarátaki með þátttöku
almennings.
mánaða þjálfun. Eftir slíkt mat hafa
sumir hestanna verið sendir heim,
ekki taldir vænlegir til undaneldis,
og tveir geltir. Nokkrir yngri folanna
hafa verið sendir heim til hvíldar en
munu koma aftur til framhaldsþjálf-
unar síðar. Meðal þeirra sem eru
nýkomnir á stöðina má nefna stóð-
hestinn Gust frá Grund sem efstur
stóð í flokki 5 vetra hesta á Fjórð-
ungsmóti Norðlendinga 1993.
Þá sagði Haraldur að til stæði að
ráða þriðja tamningamanninn til
starfa en fyrir eru sem kunnugt er
Páll Bjarki Pálsson og Sigurður
Vignir Matthíasson.
LIST
Gallerí £
Listhúsinu í Laugardal
5 Gjafavörur
co í SÉRFLOKKI
CCJ
w
Myndlist, Leirlist
Glerlist, Smíðajárn
Listspeglar, Vindhörpur
Síðustu dagar útsölunnar
Enn meiri verðlœkkun
Opið laugardag.
kl. 10.30—14.00.
Hverfisgötu 78,
sími 552-8980.
Kynning á Stóðhesta-
stöðinni Gunnarsholti
DANIELD.
17 jÖ fö NEÐST VIÐ DUNHAGA
* UA ^ SÍMI 562 2230
cLlco. 20 G/VGL
20% afmælisafsláttur
af Guerlain vörum 9. og 10. febrúar
Michel Colas, förðunarmeistari frá Guerlain í Frakklandi,
'og Helga Sigurbjörnsdóttir, snyrtisérfræðingur í Guerlain
á fslandi, kynna vor- og sumarlitina „Pacific Line“ og veita
ráðleggingar um allt er lýtur að meðferð húðarinnar,
förðun og litavali.
w
Gueriain
Snyrtivöruverslunin
Kringlunni • Simi 568 9033
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
122 milljónir
Vikuna 1. til 7. febrúar voru samtals 121.703.273 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæö kr.
I.feb. Háspenna, Laugavegi..... 103.589
1. feb. Háspenna, Laugavegi..... 244.857
2. feb. Háspenna, Hafnarstræti.. 79.657
2. feb. Háspenna, Hafnarstræti.. 57.956
2. feb. Háspenna, Hafnarstræti.. 142.361
2. feb. Gúlliver viö Lækjartorg.... 166.269
3. feb. Gúlliver viö Lækjartorg. 70.967
3. feb. Háspenna, Laugavegi..... 162.740
5. feb. Háspenna, Hafnarstræti.. 289.400
5. feb. Mónakó...................... 183.520
7. feb. Mónakó.................. 291.371
7. feb. Háspenna, Laugavegi..... 80.174
7. feb. Háspenna, Laugavegi..... 79.312
Staöa Gullpottsins 8. febrúar, kl. 11.00
var 2.010.662 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir i 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
YDDA F53.164/SÍA