Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 21
Fjárvöntun
Háskóla Islands
í GREIN í minni í Mbl. 9. janúar
sl. var sýnt fram á að fjárveitingar
til Háskóla Islands eru orðnar svo
lágar, að þær hafa slitnað úr öllu
rökrænu samhengi við verkefni
háskólans. Sú niðurstaða sem kom
höfundi sjálfum mest á óvart er að
kennslukostnaður á nemanda er
kominn niður fyrir ódýrustu
menntaskólana. Hver er eðlilegur
kostnaður við kennslu háskóla-
nema? Auðvitað eru til ágætar sam-
anburðartölur erlendis frá, þar eru
margir háskólar komnir á fjárveit-
ingar sem nema fastri upphæð á
nemenda á ári. Upphæðirnar eru
mismunandi eftir námsbrautum, en
sé kostnaður við kennsluna í HÍ
borinn saman við þessar tölur reyn-
ist hann tvisvar til þrisvar sinnum
lægri. Þessi samanburður sýnir því
ekkert nema hvað laun háskóla-
kennara eru miklu lægri hér á landi
en annars staðar og er því ónothæf-
ur til að sýna hvað er eðlilegur
kostnaður við kennslu háskólanema
hér á landi miðað við ástand þjóð-
mála eins og það er.
Það eina sem í raun er hægt að
gera er að miða við framhaldsskól-
ana og áætla hversu miklu meira
eigi að veija til háskólakennslu en
framhaldsskólakennslu. Það er
skoðun undirritaðs að það sé eðli-
legt að kosta 50% meiru að meðal-
tali til háskólanáms en náms á
framhaldsskólastigi. Miðað við
þetta er fjárvöntun HÍ 85.000 kr.
á ári á nemenda vegna kennslunnar
eða um 480 milljón kr. á ári. Sem
eðlilegt er, þá er þetta dálítið hærri
upphæð en sú sem yfirstjórn háskól-
ans áætlar sem algert lágmark.
Fjárvöntun til rannsókna
Þýðingarmesti hluti háskóla-
rannsókna eru rannsóknir nemenda
í meistaranámi og doktorsnámi. í
flestum þróuðum ríkjum, nema hér
á landi, fá hæfustu nemendurnir
styrki til þessa náms, sem við hér-
lendar aðstæður má telja eðlilegt
að væru 800.000 til 1.000.000 kr.
á nemenda á ári. Sú tala innifelur
tækjakostnað og laun til þessara
nema. Þess má geta, að margir ís-
lendingar í hliðstæðu námi við er-
lenda skóla eru á slíkum styrkjum
frá viðkomandi landi. T.d. eru flest-
ir nemendur verkfræðideildar, sem
eru í framhaldsnámi í Bandaríkjun-
um, á svokölluðum R/A eða R/D
styrkjum frá sínum skólum sem
nema um 1.000 bandaríkjadölum á
mánuði.
í háskóla af þeirri stærð sem
HÍ er væri eðlilegt að til væru pláss
fyrir 200 meistaranema og 100
doktorsnema. Þetta svarar til þess
að HÍ útskrifaði um 100 meistara
og 25 doktora á ári og gæti þá
tekið tilsvarandi §ölda nýnema í
nám á þessum lærdómsstigum.
Kostnaður af þessu yrði um 260
milljónir króna á ári. Um helmingur
þessa fjár ætti að koma úr ríkis-
sjóði og hinn helmingurinn, 130
milljónir á ári, frá atvinnulífinu.
Atvinnulífið greiðir margfalda
þessa upphæð til HÍ fyrir rannsókn-
ir nú þegar, svo þeirra megin er
um tiltölulega litla aukningu að
ræða sem væntanlega yrði auðvelt
að fá ef ríkið sýnir einhveija við-
leitni sín megin.
Til viðbóta þessu þyrftu að koma
um 100 milljónir sem skiptist á
milli Rannsóknasjóðs háskólans og
Vinnumatssjóðs. Allt í allt yrðu
þetta um 360 milljóna framlag til
rannsókna við HÍ sem ætla má að
sé sú upphæð sem vantar til að
koma rannsóknum í eðlilegt horf.
Ýmis viðbrögð
við fyrri grein
Þórir Olafsson, rektor KHI, ritar
ágæta grein í Mbl. 18. þ.m. Hann
telur að kostnað við nám í Kennara-
háskóla íslands þurfi að reikna bet-
ur en þær tölur sem ég nota í fyrri
grein. Þetta má rétt vera, en ég
nota Verkefnavísi fjármálaráðu-
neytisins til að reikna út kennslu-
kostnað á nemanda á ári, en for-
mála þeirrar bókar ritar íjármála-
ráðherra sjálfur og segir þar orð-
rétt. „Áhersla er lögð á einfalt form
en þess jafnframt gætt að verkefna-
vísirinn gefi raunhæfa mynd af
starfseminni." Eg treysti mér ekki
til að nota aðrar tölur að öllu
óbreyttu og til þess liggja tvær
ástæður. í fyrsta lagi má búast Við
að kostnaður við kennslu á nem-
anda verði grundvöllur íjárlaga-
gerðar í framtíðinni, en slíkt verður
æ algengara hjá nágrannaþjóðun-
Það er eðlilegt að kosta
50% meiru til háskóla-
náms, segir Jónas El-
íasson, en náms á fram-
haldsskólastigi.
um. í öðru lagi er útilokað annað
en nota tölur sem koma frá viðkom-
andi skólum sjálfum, en tölurnar í
Verkefnavísi fjármálaráðuneytisins
eru einmitt frá skólunum sjálfum.
Þess vegna þurfa þær ekki að vera
algerlega smanburðarhæfar. En ég
held það vera verðugt verkefni fyr-
ir 13 háskóla samstarfsnefndina,
sem Þórir getur um, að leggja lín-
urnar fyrir skólana um hvernig eigi
að ganga frá tölum í Verkefnavísinn
þannig að þær gefi réttari mynd
af kostnaði á nemanda en Þórir
telur þær gera nú. Þeir skólar sem
telja sig á háskólastigi eru að vísu
mun fleiri en 13, en niðurstaða sam-
starfsnefndarinnar mun samt sem
áður vega þungt fyrir þá sem standa
utan við nefndina. Þar vil ég koma
með eina tillögu, en hún er sú að
töiurnar um nemendafjölda í Verk-
efnavísinum verði látn-
ar passa við tölur Hag-
stofu íslands, en það
gera þær ekki í dag.
Samt sem áður hef ég
notað Verkefnavísinn
og mun gera það
áfram, einfaldlega til
að halda samræminu
og samanburðar-
grundvellinum
óbrengluðum.
Guðbrandur Stein-
þórsson ritar grein í
Morgunblaðið 1. febr-
úar sl. og er stóryrtur.
Hann telur líka að töl-
urnar gefi ekki rétta
mynd af kostnaðinum,
svo hann þarf líka að athuga hvaða
tölum hann er að skila í Verkefna-
vísinn. Að miða kennslukostnað ein-
göngu við útskrifaða nemendur,
eins og hann leggur til, gengur að
sjálfsögðu ekki upp og er hvergi
gert. í HÍ er verið að gera tilraunir
með að áætla tölu „virkra" nem-
enda, en tíminn á eftir að leiða í
Ijós hvort það gefi betri raun en
að nota heildarfjöldann. Fullyrðing-
ar hans um að meðalkostnaður há-
skólanáms segi ekki neitt vegna
þess að innanum séu „ódýrar“ deild-
ir eins og húmanískar greinar eru
í meira lagi undarlegar. Hinar húm-
anísku greinar heimspekideildar HÍ
hafa það mikilvæga verkefni að
mennta framhaldsskólakennara. Er
Guðbrandur að halda því fram að
það sé fyllilega eðlilegt að menntun
framhaldsskólakennara kosti ekki
nema brot af menntun grunnskóla-
kennara og sé ennþá ódýrari en
menntun væntanlegra nemenda
þessara manna í framhaldsskólun-
um? Þá telur rektorinn það „út í
hött“ að skólar á háskólastigi hafi
það hlutverk að búa nemendur sína
undir nám í einhveijum af deildunr
HÍ. Auðvitað eiga skólar á háskóla-
stigi að undirbúa nemendur sína
þartnig, að þeim standi framhalds-
nám við HI opið ef það á annað
borð er til. Það hefur hingað til
verið keppikefli allra slíkra skóla
að nemendur þeirra uppfylli inn-
tökuskilyrði sem allra flestra há-
skóla sem bjóða framhaldsmenntun
á þeirra sviði.
Rektor Háskólans á Akureyri
skrifar grein í Mbl. 16. þ.m., en í
grein hans er efnislega ekkert. Er
mér því nokkur vandi
á höndum að svara
grein hans og .verður
það ekki gert að þessu
sinni.
Að lokum
Ef farið yrði eftir
þessum tillögum sem
hér eru settar fram um
aukið fjármagn til
kennslu og rannsókna
við HÍ mundi heildar-
kostnaður á nemanda
verða um 440 þúsund
krónur á nemanda á
ári. Þetta er svipuð
upphæð og látin er til
Kennaraháskóla ís-
lands og Háskólans á Akureyri nú
þegar. Þetta er ekki há upphæð,
hér er langt frá því um óraunhæfan
reksturskostnað að ræða. Til upp-
lýsingar má geta þess, að þeir skól-
ar „háskólastigsins" sem dýrastir
eru kosta meira en þrefalda þá
upphæð sem hér er verið að ræða
um, eða um eina og hálfa milljón
króna á nemanda á ári. Þar er um
stofnanir að ræða sem hafa hvergi
nærri þá þýðingu fyrir íslenskt þjóð-
líf sem Háskóli íslands hefur, hvorki
í menningarlegu né atvinnulegu til-
liti. Það er skoðun þess sem hér
ritar, að gera þurfi rækilega tiltekt
á háskólastiginu. Taka saman litlu
skólana í stærri stofnanir. Staðsetja
skólana þar sem nemendurnir og
rekstraraðstaðan er. Búa til nýtt
líkan fyrir framhaldsskóla — há-
skólastig, þar sem stúdentsprófið
er fært niður um eitt aldursár og
háskólastiginu markað rúm milli
stúdentsprófs og BA- og BSc-prófs
þannig að tryggt verði að nemendur
eigi beina leið áfram í framhalds-
námi í háskóla. Þessi menntun á
háskólastigi yrði rekin fyrst og
fremst í tengslum við þá framhalds-
skóla sem til þess eru hæfir. Síðast
en ekki síst kostnaðargát þar sem
sett er þak á nemandakostnað og
rekstri þeirra skóla þar sem kostn-
aður er upp úr öllu valdi og mennt-
unin tiltölulega lítils virði verði
hætt í núverandi mynd. Þetta myndi
spara fé í menntakerfinu sem
hundruðum milljóna nemur.
Höfundur er prófessor í verk■
fræðideild HÍ.
Jónas
Elíasson
Obærilegur ójöfnuður
SUMIR hópar þjóð-
félagsins standa hall-
ara fæti en aðrir í lífs-
baráttunni. Ýmsir
þessara þjóðfélagshópa
hafa bundist samtök-
um vegna þess að það
hefur sýnt sig að sam-
tök geta fremur þving-
að fram réttarbætur en
barátta hvers og eins
út af fyrir sig.
Einn er sá hópur,
sem á enga málsvara
og mætir litlum skiln-
ingi í vandræðum sín-
um, en það er hópur
fólks, sem lendir í því
að þurfa að sækja bæt-
ur vegna líkamstjóns til trygginga-
félaganna. Samt hefur svo vel tek-
ist til að lögmenn, sem fara með
slík mál og verða öðrum betur
áskynja þess ójafnaðar, sem falinn
er í skaðabótalögunum nr. 50/1993
og vita að þetta fólk á sér enga
málsvara, hafa gengið fram fyrir
skjöldu til þess að fá réttan liiut
þess og gera það í samræmi við
lögmannsköllun sína.
Án þess að ætlun mín sé að
móðga neinn, þá hefur hæstaréttar-
lögmaðurinn Jón Steinar Gunn-
laugsson verið ósérhlífnari í þessu
efni en aðrir. Það er blessun hveiju
þjóðfélagi að eiga slíka menn, sem
eru óhræddir við að gagnrýna það
sem miður fer í þjóðfélaginu. Gagn-
rýni hans leiddi til þess, að lög-
mannafélagið fékk þá hina mætustu
lögfræðinga, hæsta-
réttarlögmennina Gest
Jónsson, fyrrv. for-
mann lögmannafélags-
ins, og Gunnlaug Cla-
essen, núverandi
hæstaréttardómara, til
þess að semja tillögur
um breytingar á lögun-
um til þess að sníða af
helstu vankantana á
þeim.
Það er staðreynd, að
eins og lögin eru í dag
eru með þjóðinni
tvennskonar tjónþolar,
sem er gert herfilega
og óskiljanlega mis-
jafnt undir höfði eins
og ofangreindir lögfræðingar og
aðrir liafa bent á, en verður ekki
endurtekið hér.
Tillögur þeirra tvímenninganna,
sem miða að því að stemma stigu
við slíkum ójöfnuði, eru tvímæla-
lausar réttarbætur. Hið háa Alþingi
óskaði eftir að fá tillögurnar, vænt-
anlega í þeim tilgangi að unnt væri
að lögfesta þær. Á hinu háa Alþingi
hafa þær hins vegar ekki mætt þeim
skilningi þingmanna, sem vænta
mátti og málið situr fast. Heyrst
hafa getgátur um að annarleg og
voldug undirheimaöfl hafi róið í
þingmönnum og þar liggi hundurinn
grafinn.
Svo merkilega hefur tekist til að
á þriðja hundrað lögmanna hafa
skorað á Alþingi með undirritunum
sínum að afgreiða réttarbæturnar.
Heyrst hafa getgátur
um, segir Gunnlaugur
Þórðarson, að annarleg
og voldug undirheimaöfl
hafí róið í þingmönnum.
Það er einstakt að svo stór hópur
lögmanna sé sammála.
Af „princip-ástæðum" var mér
ómögulegt að skrifa undir skjalið,
þar sem ég vil ekki skrifa undir
mótmælaplagg, sem fleiri en 5
standa að.
Allt kemur fyrir ekki og þrátt
fyrir mikilvægi slíkrar undirskrifta-
söfnunar situr málið sem fyrr segir
fast hjá þingi, sem mörgum virðist
dugminna en áður. Og þá ber svo
við að einn löglærður maður, sem
aldrei hefur fengist við lögmennsku,
lætur þau orð falla í fjölmiðlum að
þessir lögfræðingar séu að þessu í
þeirri von að fá auknar tekjur. Því-
lík aðdróttun kemur upp um skort
á rökum og lágkúrulegan hugsun-
arhátt og sýnir að sá maður hefur
ekki skynjað þá köllun sem í lög-
mennsku felst, enda reiðubúinn að
sverta kollega sína. Þjónkunarlund-
in er oftast söm við sig. Vonandi
reka þingmenn af sér slyðruorðið.
Höfundur er hæstaréttarlögnmd-
ur.
Gunnlaugur
Þórðarson
Jeep Cherokee Limited, árgerð 1991.
Litur hvítur. Ekinn 100.000 km. Sjálfskipting. Vökva- og veltistýri. A.B.S. bremsukerfí. .
Leðurklæðning. Rafdrifnar rúður, rafdr. sepglar. rafdr. stólar fr., samlæsing með fjarstýringu,
útvarp og segulband. Vetrardekk á álfelgum, sumardekk á álfelgum. Bifreiðin er í toppástandi.
Einneigandi. „ .. . „ , , . ,, „
Opið a laugardag fra kl. 12-16
Báðir bílarnir eru til sýnis hjá Brimborg hf.,
Faxafeni 8, sími 515-7010.
Toyota 4Runner Executive, árg. 1992.
Vél 3.0 lítra, 6 cyl, 150 hö, bensín, ekinn 55.000 km. Litur dökkblár. Sjálfskipting, vökva-
og veltistýri, sjálfvirkar framdrifslokur, upphækkun frá Toyota, 36' ný dekk og pro 18"
álfelgur, grind framan á bíl, toppgrind, dráttarkúla, vindskeið að aftan, útvarp og
geislaspilari. Loftlæsing, Downey fjöðrunarkerfi. Einn eigandi. Bifreiðin í toppástandi
Góð kjör.
Sk. á ódýrari
fólksbifreið
æskileg.
Góð kjör.
Ódýrari bíll
óskast
í skiptum.
Til sölu