Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 37
Guðmundur
Pétur Haukdal
Jónsson var fæddur
15. janúar 1919 í
Höll í Haukadal í
Dýrafirði. Hann
lést í Landspítalan-
um 2. febrúar sl.
Foreldrar hans
voru hjónin í Höll,
Ásti-íður Jónína
Eggertsdóttir
Andréssonar skip-
stjóra frá Skálará
og Þórdísar Jóns-
dóttur konu hans,
fædd 18. júní 1888,
dáin 22. mars 1969, og Jón
Guðmundur Guðmundsson
bóndi og trésmiður Eggerts-
sonar bónda í Höll og Elínborg-
ar Jónsdóttur konu hans, fædd-
ur 19. ágúst 1886, dáinn 17.
desember 1950. Börn þeirra
hjóna voru, talin í aldursröð:
ÞAÐ ER alltaf erfitt og sárt að sjá
á bak góðum dreng, sem manni
þykir vænt um. Svo er með mig á
þessari stundu, er ég með örfáum
orðum kveð gamlan æskuvin og
frænda, Guðmund Pétur Haukdal
Jónsson eða Gumma Pé, eins og
við í daglegu tali nefndum hann.
Þegar mér barst sú sorgarfregn,
að frændi minn Guðmundur Pétur
frá Höll væri dáinn, hrönnuðust
minningarnar upp. Mér fannst
þetta nær ótrúlegt, en það var veru-
leiki.
Það voru bara nokkrir dagar frá
því að ég talaði við hann í síma
og þá var hann hress og ræðinn
að vanda, þótt maður vissi, að heils-
an væri ekki alltaf upp á það besta,
þá bar hann sig vel.
Á seinni árum hafði Elli kerling
strokið hann frekar ómjúkum hönd-
um og á sjúkrahús hafði hann
nokkrum sinnum farið, en allt þetta
hristi Gummi Pé af sér, en alltaf
þyngdist heldur fyrir fæti, og eins
og fyrr segir, lést hann á Landspít-
alanum 2. febrúar sl., 77 ára að
aldri.
Eggert Haukdal
Jónsson, f. 17. maí
1913, d. 14. október
1984, Elínborg
Haukdal Jónsdóttir,
f. 19. september
1916, d. 8. mars
1991, Guðmundur
Pétur Haukdal
Jónsson, f. 15. jan-
úar 1919, d. 2. febr-
úar 1996, Magnús
Þorberg Haukdal
Jónsson, f. 20. nóv-
ember 1920, Gunn-
ar Agnar Ilaukdal
Jónsson, f. 1. des-
ember 1922, Hákon Haukdal
Jónsson, f. 29. janúar 1925, Sig-
ríður Guðmunda Haukdal Jóns-
dóttir, f. 23. júní 1931.
Útför Guðmundar Péturs
Haukdal Jónssonar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Öll sín bernsku- og unglingsár
átti Gummi Pé heima í Höll í
Haukadal. Snemma þótti hann iið-
tækur til allra starfa og vann heim-
ili sínu strax allt er hann gat og
mátti. Hann naut góðrar tilsagnar
í litla barnaskólanum, farskólanum,
i Haukadal en fór siðan í tvo vetur
á Núpsskóla. Þessi lærdómur skil-
aði honum vel í gegnum lífið. Guð-
mundur Pétur var smiður góður.
Má segja lipur við hvaðeina. Er
árin færðust yfir leitaði hann burt
í atvinnu eins og fleiri. Stundaði
hann þá allt er gafst, bæði til sjós
og lands, þó mest sjóinn, bæði fyr-
ir vestan og sunnan, allt frá smá-
bátum upp í togara. Þótti það skip-
rúm vel setið, er hann sat.
Gummi Pé var fínn náungi. Hann
var vænn maður og drengur góð-
ur. Þéttur á velli og þéttur í lund
og sómdi sér vel. Hann hafði sínar
ákveðnu skoðanir á mönnum og
málefnum og hélt þeim fram af
festu og rökum og þeim varð lítt
hnikað.
Það var oft gaman að ræða við
Gumma Pé, því bæði gat maðurinn
verið hnyttinn í tilsvörum og svo
hitt að hann var minnugur vel og
fróður um svo margt, ekki hvað
síst, er snéri að gömlum atburðum
í tíma og rúmi.
Árið 1950 lést bóndinn í Höll,
Jón G. Guðmundsson, og 12 árum
seinna flytur svo fjölskyldan í Höll
suður og flytur í íbúð á Rauðalæk
20 í Reykjavík. Þarna búa systkin-
in, Eggert, Guðmundur Pétur,
Gunnar og Sigríður áfram nieð
móður sinni Ástríði en hún lést
1969. Nokkrum árum seinna flytja
Hallarsystkinin í Bogahlíð 10, þar
sem þau hafa átt heima síðan.
Marga ferðina hef ég átt til frænd-
fólksins, enda gott að koma þang-
að.
Hér syðra komust þau systkini
fljótlega í vinnu í landi. Guðmundur
Pétur vann lengst af í Kassagerðini
meðan kraftar og heilsa leyfðu.
Hann var ákaflega traustur starfs-
maður, trúr og samviskusamur.
Gummi Pé var mikill Haukdæl-
ingur og hafði mikla ást á dalnum
sínum vestra og hann heimsótti
æskustöðvarnar eins oft og hann
gat. Nú síðast í sumar lagði hann
leið sína vestur, þótt óhægt væri
um vik að hreyfa sig mikið með
staf í hendi, en tryggðin við dalinn
var alltaf órofin.
Að leiðarlokum þakka ég frænda
mínum, Guðmundi Pétri, fyrir sam-
fylgdina gegnum árin, bæði í leik
og starfi heima í sveitinni okkar,
og hin síðari ár ógleymanlegar
rabbstundir heima og heiman.
Á þessari hinstu kveðjustund,
sendi ég og fjölskylda mín systkin-
unum frá Höll og þeirra ástvinum
öllum, samúðarkveðjur.
Farðu vel, frændi og vinur.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Jón Þ. Eggertsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnsiu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum.
GUÐMUNDUR PETUR
HA UKDAL JÓNSSON
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSMUNDUR HÁLFDÁN
MAGNÚSSON,
Eyrarstíg 1,
Reyðarfirði,
verður jarðsunginn frá Reyðarfjarðar-
kirkju laugardaginn 10. febrúar kl. 14.00.
Helga Kristjánsdóttir,
Halldóra Ásmundsdóttir, Steindór Björnsson,
Jóhanna Ásmundsdóttir, Jón Kr. Ólafsson,
Ásmundur Ásmundsson, Sigurbjörg Hjaltadóttir,
Kristján Ásmundsson,
Magnús Ásmundsson
og barnabörn.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem auð-
sýnduð okkur vinsemd og hlýhug vegna
andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
LOVÍSU SIGURGEIRSDÓTTUR,
Melgötu 3,
Grenivík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
hjúkrunardeildinni Seli.
Guð blessi ykkur.
Örn Árnason, Sveina Sigurjónsdóttir,
Guðjón Ágúst Árnason, Kristín Jónasdóttir,
Guðný Árnadóttir, Törolv Noreng,
Gísli Arnason, Sofffa Daðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÖNNU GUÐRÚNAR
ÞORKELSDÓTTUR,
Vallargötu 18,
Vestmannaeyjum.
Sigurjón Sigurðsson,
Viktor Sigurjónsson,
Þorkell Sigurjónsson, Elísabet Ólafsdóttir,
Karl Björnsson, Ásta Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
RADAUGi YSINGAR
Frá Gunnskólanum
í Hveragerði
Vegna veikindaforfalla vantar kennara við
skólann nú þegar.
Upplýsingar gefa Guðjón Sigurðsson, skóla-
stjóri, í símum 483 4195 og 483 4950 og
Pálína Snorradóttir, yfirkennari, í símum
483 4195 og 483 4635.
Skólastjórnendur.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
óskar eftir því að ráða starfskraft tímabund-
ið til bókavörslu og prófarkalesturs.
Um er að ræða hálft starf.
Laun verða samkvæmt kjarasamningi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk.
Umsóknir skal senda Jóni Finnbjörnssyni
skrifstofustjóra, sem veitir nánari upplýs-
ingar í síma 562 8546.
Dómstjórinn í Reykjavík,
Friðgeir Björnsson.
JKIPUI A G R í K I S I N S
Hágöngumiðlun
Mat á umhverfisáhrifum
- frumathugun
Skipulag ríkisins kynnir mat á umhverfisáhrif-
um fyrirhugaðrar 385 Gl miðlunar í Köldu-
kvísl við Hágöngur.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar
liggur frammi til kynningar frá 9. febrúar til
18. mars 1996 hjá Skipulagi ríkisins, Lauga-
vegi 166, í Þjóðarbókhlöðunni við Melatorg
í Reykjavík og í þjónustumiðstöðinni Hlíðar-
enda, Austurvegi 3, Hvolsvelli. Einnig hjá
oddvitum Ásahrepps og Djúpárhrepps, eftir
samkomulagi.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
18. mars 1996 til Skipulags ríkisins, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur
nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
HIÐ ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAG
Aðalfundur
Hins íslenska Biblíufélags verður haldinn
ísafnaðarheimili Háteigskirkju sunnudaginn
11. febrúar kl. 15.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Eitt blab
fyrir alla!
fRðranniilbibtb
- kjarni málsins!