Morgunblaðið - 31.03.1996, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ITÆKIFÆRISRÆÐUM verður
mönnum tíðrætt um íslenskan
hátækniiðnað og jafnvel er
biyddað upp á tölvusmíði og sam-
setningu í því sambandi sem leið Is-
lendinga inn í nýja öld. Slík færi-
bandavinna flokkast þó undir flest
annað en hátækniiðnað; raunveruleg
íslensk hátækni hlýtur að byggjast
á íslensku hugviti sem speglast
hvergi betur er í hugbúnaðargerð.
Hvati að slíkri vinnu er tölvukennsla,
þar á meðal tölvunarfræði sem kennd
er við Háskóla íslands. Oddur Bene-
diktsson er prófessor við tölvunar-
fræðiskor Háskóla Islands og hefur
starfað að tölvufræðslumálum í á
fjórða áratug.
Oddur Benediktsson lærði véla-
verkfræði, skrifaði BA-ritgerð í
henni, og hóf síðan nám í stærð-
fræði. Á þeim tíma voru tölvur komn-
ar til sögunnar og í náminu vann
hann meðal annars ýmsa útreikninga
á vélum sem þættu harla frumstæðar
í dag, en framan af voru tölvurnar
einkum ætlaðar til útreikninga, enda
hægt að reikna með aðstoð þeirra
ýmis flókin dæmi sem ekki hafði
verið hægj; áður nema með miklum
tilkostnaði. Að loknu námi vann
Oddur við reiknistofnun verkfræði-
háskólans sem hann nam við vestan
hafs og vann svo eitt ár hjá rann-
sóknastofu Bell símafyrirtækisins við
skipulagningu tölvuvinnslu.
„Þegar ég var að ljúka doktors-
prófi 1964/65 hafði prófessor Magn-
ús Magnússon staðið fyrir því að
Háskólinn fékk IBM 1620 tölvu, en
Skýrsluvélar fengu líka fyrstu tölv-
una á sama tíma,“ segir Oddur og
bætir við að hann hafi tekið að sér
með öðrum að skipuleggja námskeið
í tölvufræðum í Háskólanum; „og við
vorum fyrsti háskóli á Norðurlöndum
til að hefja skyldukennslu í verk-
fræðideild í forritun."
Eins og áður segir voru tölvur
þess tíma fyrst og fremst útreikn-
ingaapparöt og Oddur rifjar upp að
borgarverkfræðingur hafi reiknað
mikið í háskólatölvunni og fyrir vikið
var hægt að reikna úr öllum lóðamæl-
ingum á skemmri tíma en áður hafði
þekkst. „Þorsteinn Sæmundsson
reiknaði líka hjá okkur aimanakið,
Stefán Aðalsteinsson vann úr erfða-
gögnum sauðfjár, Jakob Jakobsson
vann úr gögnum um fískigengd og
svo mætti lengi telja. Þetta voru al-
menn verkefni sem torvelt og mjög
tímafrekt hafði verið að leysa fram
að þessu. Reiknistofnun Háskólans
vann til að mynda eitt sinn verkefni
fyrir samflot íslensku tryggingafé-
laganna fyrir Bjarna Þórðarson. Þá
var unnið úr öllum tjónaupplýsingum
bifreiða sem ekki hafði verið hægt
áður vegna umfangsins; það þurfti
að keyra um 200.000 gataspjöld í
gegnum tölvuna. Ég tók líka þátt í
að tölvuvæða fasteignamatið með
Helga Sigvaldasyni, Ragnari Ingi-
marssyni og Theodór Diðrikssyni
sem var allt sett á gataspjöld og
þurfti mörg hundruð þúsund spjöld,"
segir Oddur og bendir á að þá hafi
verið algengt að svo mörg spjöld
þyrfti í veigamikla útreikninga;
„Skýrsluvélar voru þá með alla þjóð-
skrána á gataspjöldum, 180.000
spjöld eða svo. Seinna komu svo seg-
ulbönd og diskar sem jaðartæki við
tölvurnar og gataspjöldin heyra nú
sögunni til.“
Til IBM
Oddur hætti hjá Háskólanum og
hóf störf hjá IBM á íslandi, en þá
voru tölvur smárn saman að hasla
sér völl meðal stórfyrirtækja. Um
svipað leyti voru bankarnir að taka
upp tölvuvinnslu og drög lögð að
Reiknistofnun bankanna sem var
mikið hagræði fyrir bankakerfið, þ.e.
viðskiptaútreikninga með mörgum
færslum. Á þeim árum, um 1970,
segir Oddur að tölvurnar hafi verið
mjög dýrar og fyrirtæki hafi gjarnan
skipulagt samflot til að ná kostnaði
breíkkar
hratt
íslendingar hafa náð góðum árangrí í
hátækniiðnaði undanfarin misseri. Qddur
Benediktsson, prófessor við tölvunarfræði-
*
skor Háskóla Islands, sagði Arna Matthías-
syni að ástæða væri til að herða róðurinn
til að dragast ekki aftur úr öðrum þjóðum.
Oddur og kímir. „Ekki má heldur
gleyma áráttu íslendinga að safna
upplýsingum sem er hæglega yfir-
færanleg í tölvuvinnsluna og fólk fær
mikla útrás fyrir þennan áhuga sinn,
ættarskráningar og skráningar
hverskonar, þýðingar og álíka.“
Að mati Odds fellur áhugi íslend-
inga á sagnaritun ekki síst að tölvu-
starfi því aðspurður hvaða eiginleik-
um góður forritari þurfi að vera bú-
inn svarar hann eftir stutta þögn:
„í rauninn þarf góður forritari að
hafa svipaða eiginleika og góður rit-
höfundur; hann þarf að ná utan um
einhvern heim og geta tjáð sig,“ seg-
ír hann og nefnir sem dæmi Friðrik
Skúlason, sem hann segir að sé á
við Halldór Laxness í sínu fagi.
„í hátækni er ekki margt sem ís-
lendingar geta gert sem gæti staðið
öðrum þjóðum á sporði. Við höfum
ekki gamlan gróinn tækniiðnað, véla-
iðnað, rafeindaiðnað eða málmiðnað
sem stórþjóðir byggja sína hátækni
og iðnað á. Aftur á móti er hugbún-
aðargerð ný vídd, poppið reyndar líka
að við stöndum jafnfætis öðrum, að
fyrirtæki hafi svipaða gátt inn á net-
ið og fyrirtæki í öðrum löndum, svip-
aðan hraða fram og til baka og líka
svipaðan kostnað af tengingunni.
Þetta verður sennilega meginatriði í
þróuninni og þar þarf ríkið að að
koma inn því netið er eins og hver
annar vegur, höfn eða flugvöllur."
Oddur segir að netið skipti ekki
síst miklu máli varðandi möguleika
á að dreifa upplýsingum um hérlend
fyrirtæki og framleiðslu um allan
heim, að dreifa hugbúnaðinum og
þjónusta hann. „Til þess verður netið
að vera gott. Nokkrir aðilar hafa flutt
starfsemi sína til útlanda meðal ann-
ars vegna þess að gáttin hingað til
lands hefur einfaldlega verið of lítil.“
Umtalsverður hluti af
þjóðartekjum
Hugbúnaðariðnaður er þegar orð-
inn umtalsverður hluti af þjóðartekj-
um íslendinga og Oddur nefnir sem
dæmi fyrirtækið Marel; það framleiði
við fyrstu sýn vélbúnað, en sérstaða
þess sé í.raun hugbúnaður. „Marel
flytur út fyrir um milljarð, aðrir hug-
búnaðarframleiðendur flytja út fyrir
um hálfan milljarð og samanlagt er
þetta á við helming útflutnings hjá
ISAL þegar þar er búið að draga
innflutning frá.
Hið opinbera getur gert mjög
margt til að örva þessa þróun, meðal
annars með því að kaupa hugbúnað
til að mynda með því að bjóða út
Morgunblaðið/Ásdís
niður. í lok áttunda áratugarins
höfðu þær aftur á móti lækkað veru-
lega í verði og einstakar ríkisstofnan-
ir, sveitarfélög, stöndug fyrirtæki og
jafnvel sumár verkfræðistofur
keyptu sér tölvur.
Háskóli íslands fékk fyrstu fjöl-
notendatölvu sína árið 1980, en þá
var Oddur kominn aftur til starfa
þar. „Jón Þór Þórhallsson, sem þá
var forstöðumaður Reiknistofnunar
Háskólans, gekkst fyrir því að við
fengum þá mjög öfluga tölvu, VAX,
sem var víst ein sú fyrsta sinnar
tegundar sem kom til Evrópu. Síðan
komu stærri vélar af þeirri gerð. Nú
eru um 35 UNIX vélar og 250 ein-
menningstölvur á háskólanetinu og
nokkur örtölvuver eru rekin með
einkatölvum sem allir háskólanem-
endur hafa aðgang að,“ segir Oddur.
„Helsta byltingin í tölvuheiminum
var síðan þegar fyrsta einka- eða
einmenningstölvan kom á markað
1983. Við vorum tiltölulega fljótir
að átta okkur á þessu, fengum fyrst
Victor-tölvur og síðan komu IBM og
Macintosh."
Tölvuvinnsla fellur vel að
geðslagi íslendinga
„Við höfum verið nokkuð framar-
lega;_ tölvuvinns'ia fellur vel að geðs-
lagi íslendinga. Iðnbyltingin fór fram
hjá okkur, við iðnvæddumst ekki
fyrr en fram á þessari öld, tveimur
öldum á eftir öðrum þjóðum, en við
vorum alltaf að skrifa og lesa, skrifa
og lesa og tölvunotkun, er að hluta
byggð á því að skrifa og lesa,“ segir
eins og sannast á Björk, og kvik-
myndaiðnaðurinn; það þarf fyrst og
fremst mjög færa einstaklinga og
að vera með á nótunum, sem er á
okkar færi. Hugbúnaðariðnaður á
margt sameiginlegt með kvikmynda-
gerð og poppinu. Ef tekst að búa til
eitthvað sem nær mikilli útbreiðslu
þá er hagnaðarvonin gríðarleg. Að
mínu mati er hugbúnaðargerð, fyrir
utan að skrifa bækur, fyrsta greinin
þar sem íslendingar geta gert sig
og hafa gert sig gildandi alþjóðlega;
skapandi starf sem selst og skapar
útflutning."
Alnetið á eftir að
breyta miklu
„Alnetið á líka eftir að breyta miklu
og þess vegna er mjög mikið atriði
verkefni og draga úr slíkri vinnu
innan ríkisstofnana. Þannig mætti
til dæmis bjóða út verkefni fyrir hita-
eða rafveitur, í heilbrigðiskerfinu eða
vegna bankastarfsemi, svo eitthvað
sé nefnt, og menn fengju síðan að
selja hugbúnaðinn til annarra landa.
Það skiptir meginmáli að skapa
starfsgrundvöll á heimavelli."
Oddur segir að viðhorf til hátækni
og tövunnar sé nokkuð að breytast,
á árum áður var vísindamaðurinn
bjargvættur sem lét gott af sér leiða
en afþreyingariðnaðurinn sé núorðið
að gera tækni og tæknimenn mjög
tortryggilega. Tölvumenn séu gerðir
sérstaklega álappalegir og samvisku-
lausir og bijálaði vísindamaðurinn sé
að verða eitt þekktasta minni nútím-
ans. Hann mótmælir þessu og bendir