Morgunblaðið - 31.03.1996, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINIWAUGL YSINGAR
PÓSTUR OG SÍMI
SAMKEPPNISSVIÐ
óskar að ráða
verkfræðinga
- tæknif ræðinga
1. Boðkerfi
Á farsímadeild er laus til umsóknar staða
umsjónarmanns Boðkerfis.
2. Gagnasendingar
Laus er til umsóknar staða á farsímadeild.
Um er að ræða starf sem tengist nýrri þjón-
ustu farsímakerfa svo sem gagna- og fax-
sendingar, SMS (Short Message Service)
og fleiru.
3. TADIG-prófanir, skráning
og úrvinnsla
Laus er til umsóknar staða á farsímadeild.
Starfið tengist skráningu farsímtala í sím-
stöðvum, úrvinnslu skráningar hjá Reikni-
stofu, umsjá og eftirlit með gögnum sem
send eru á rafrænan hátt til útlendra farsíma-
rekenda og gögnum sem eru móttekin frá
þeim.
(TADIG: Transfer Account Data Interchange Group)
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ólafur
Indriðason, yfirtæknifræðingur, sími 550 6231.
SJÚKRAHÚS
REYKjAVÍ K U R
Hjúkrun
íendurhæfingu
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
óskast til sumarafleysinga og í fastar stöður
á endurhæfinga- og taugadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur á Grensási.
Á Grensásdeild fer fram hjúkrun sjúklinga
eftir heilablóðfall, heila- og mænuskaða
vegna sjúkdóma og slysa, auk fjölmargra
annarra tauga- og stoðkerfissjúkdóma, s.s.
verkjasjúklinga.
Sérstaða deildarinnar felst m.a. í því að taka
við sjúklingum frá bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Hjúkrun sjúklinga í endurhæfingu er vax-
andi áhugasvið innan hjúkrunar og á eftir
að eflast á komandi árum vegna áherslu-
breytinga í heilbrigðiskerfinu.
Við óskum eftir áhugasömum og metnaðar-
fullum hjúkrunarfræðingum til að taka þátt
í uppbyggingar- og þróunarstarfi í endurhæf-
ingahjúkrun.
Við bjóðum upp á aðlögun í starfi, góða
fræðslu og gott og gefandi vinnuumhverfi.
Verið velkomin að koma og skoða Grensás-
deild.
Upplýsingár gefa: Ingibjörg S. Kolbeins,
hjúkrunardeildarstjóri, í síma 525 1672 og
Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 525 1225.
Hjúkrunarfræðingar!
Loksins eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á deild A-5.
Á deildinni eru tvö sérsvið við heila- og tauga-
skurðlækningar. Deildin erein sinnartegund-
ar hér á landi. Hjúkrunin er krefjandi og
metnaður lagður í að veita sem besta hjúkr-
un. Skipulagsformið er hóphjúkrun.
Upplýsingar veita Bjarnveig Pálsdóttir, deild-
arstjóri, Lilja Guðmundsdóttir, aðstoðar-
deildarstjóri, í síma 525 1065 eða Margrét
Tómasdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 525 1306.
Sendiráð
Bandaríkjanna
auglýsir eftir starfsmanni
f stjórnmáladeild
Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir að ráða
aðstoðarstjórnmálafulltrúa. Viðkomandi mun
m.a. gefa út daglegar fréttaþýðingar sendi-
ráðsins, skrifa skýrslur og greinargerðir um
einstaka atburði sem og almenna þróun á
sviði íslenskra stjórnmála, þýða greinar og
bréf sem við koma samskiptum ríkjanna
tveggja, og túlka á fundum og í ferðum
bandarískra sendiráðsstarfsmanna um landið.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
★ Fullkomið vald á ensku og íslensku.
★ Háskólapróf er skilyrði, framhaldsnám
æskilegt, t.d. í alþjóðasamskiptum.
★ Áhuga og þekkingu á alþjóðamálum og
samskiptum íslands og Bandaríkjanna.
★ Staðgóða þekkingu á íslenskum stjórn-
og efnahagsmálum, sögu þeirra og þró-
un.
★ Þekkingu á Bandaríkjunum, helst í gegn-
um nám eða starf.
★ Tölvukunnátta nauðsynleg, einkum
Microsoft Word og Word Perfect.
Umsóknareyðublöð má sækja í afgreiðslu
sendiráðsins á Laufásvegi 21 frá klukkan
8.00 þann 1. apríl. Umsóknirnar verða að
vera á ensku og þeim ber að skila fyrir klukk-
an 16.00 þann 9. apríl. Umsóknir sem ber-
ast eftir þann tíma verða ekki teknar gildar.
Sendiráð Bandaríkjanna mismunar ekki um-
sækjendum eftir kyni, aldri eða kynþætti.
Kennararstöður
við eftirtalda skóla eru lausar tii
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 1996.
Grunnskólinn í Grímsey - almenn kennsla.
Barnaskóli Ólafsfjarðar - almenn kennsla.
Gagnfræðaskóli Olafsfjarðar - raungreinar
1/2 staða.
Dalvíkurskóli - almenn kennsla.
Grunnskólinn í Hrísey - almenn kennsla.
Árskógarskóli - almenn kennsla.
Þelamerkurskóli - almenn kennsla.
Barnaskóli Akureyrar - almenn bekkjar-
kennsla, heimilisfræði.
Lundarskóli - almenn bekkjarkennsla.
Oddeyrarskóli - staða aðstoðarskólastjóra,
almenn bekkjarkennsla, sérkennsla.
Gagnfræðaskóli Akureyrar - íslenska, enska,
stærðfræði, smíðar.
Glerárskóli - almenn bekkjarkennsla, saum-
ar, smíðar, heimilisfræði, tónmennt.
Síðuskóli - almenn bekkjarkennsla, sér-
kennsla, myndmennt, smíðar, heimilisfræði,
íþróttir.
Giljaskóli - almenn bekkjarkennsla í
1.-3. bekk.
Bröttuhlíðarskóli - sérkennsla.
Hrafnagilsskóli - almenn kennsla,
þroskaþjálfi.
Valsárskóli - almenn kennsla.
Grenivíkurskóli - almenn kennsla.
Stórutjarnaskóli - almenn kennsla.
Grunnskóli Skútustaðahrepps - almenn
kennsla.
Litlulaugaskóli - almenn kennsla.
Hafralækjarskóli - almenn kennsla.
Borgarhólsskóli - almenn kennsla, enska á
unglingastigi.
Grunnskólinn í Lundi - almenn kennsla.
Grunnskólinn á Kópaskeri - almenn kennsla.
Grunnskólinn á Raufarhöfn
- almenn kennsla.
Grunnskólinn Svalbarðshreppi
- almenn kennsla.
Grunnskólinn á Þórshöfn - almenn kennsla.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
Skólaþjónusta Eyþings.
Gjaldkeri
Hard Rock Café í Reykjavík óskar eftir starfs-
manni til að gegna starfi gjaldkera í verslun
sinni. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af verslunarstarfi og sölumennsku. Viðkom-
andi þarf að vera metnaðargjam, samvisku-
samur, heiðarlegur, vinnusamur og hafa líf-
lega og skemmtilega framkomu.
Umsækjendur þurfa að vera eldri en 23 ára.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„Hard Rock - 4125“, fyrir 5. apríl nk.
A
KÓPAVOGSBÆR
Framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits
Kópavogssvæðis
Staða framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Kópavogssvæðis er laus til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að hafa réttindi sem
heilbrigðisfulltrúar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1996.
Upplýsingar veitir Ómar Logi Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Kópavogs-
svæðis, í síma 564 1515.
Umsóknir sendist Heilbrigðiseftirliti Kópa-
vogssvæðis, Fannborg 2, pósthólf 337,
202 Kópavogi.
Starfsmannastjóri.
Guðfræðingur
Hjallakirkja í Kópavogi
Sóknarprestur og sóknarnefnd Hjallasóknar
í Kópavogi óska eftir að ráða guðfræðing til
starfa við Hjallakirkju.
Starfið felur m.a. í sér eftirfarandi:
• að aðstoða sóknarprest og sóknarnefnd
við leiðsögn og umsjón með starfi kirkju,
safnaðar og starfsfólks.
• að annast og fylgja eftir áætlanagerð á
vegum sóknarprests og sóknarnefndar,
sem taka skal til allra helstu þátta þeirra
starfsemi, sem fram fer í nafni kirkjunnar.
• að annast allt nauðsynlegt skrifstofuhald
og erindrekstur á vegum sóknarprests
og sóknarnefndar, þ.m.t. bréfaskriftir,
skýrslugerð, boðun funda, skjalavarsla,
gerðabækur o.þ.h.
• að ritstýra útgáfu á riti Hjallakirkju: „Glatt
á Hjalla“.
Umsækjandi þarf að vera reiðubúinn til að
sækjast eftir stöðu aðstoðarprests við Hjalla-
kirkju, sem hugur sóknarnefndar stendur til
að verði veitt sem fyrst.
Boðið er upp á afar góða vinnuaðstöðu og
sjálfstætt starf, þar sem einstaklingur með
forystuhæfileika, frumkvæði og hugmynda-
flug fær að fást við og móta verðug verkefni.
Þessi starfsmaður þarf að vera vinnufús og
hafa góða framkomu og samstarfshæfni,
sem sæmir hlutverki hans og kirkjunnar.
Hann þarf, auk guðfræðimenntunar sinnar,
að búa yfir nægilegri menntun og leikni í
almennum skrifstofustörfum, þ.m.t. að
kunna á tölvur og algengustu forrit.
Nánari upplýsingar um starf þetta veita sókn-
arprestur og formaður sóknarnefndar.
Skriflegar umsóknir þerist til Hjallakirkju fyrir
20. apríl nk.
Sóknarprestur og sóknarnefnd
Hjallasóknar,
Álfaheiði 17, 200 Kópavogur,
sími 554 6716.