Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLl • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fimmtudagur 16. maí 1996
V".
Blað D
Mikilvæg
viðskipti
FYRIR flesta eru íbúðakaup
stærstu og mikilvægustu við-
skipti viðkomandi á lífsleið-
inni, segir Grétar J. Guð-
mundsson í þættinum Markað-
urinn. Því er mikilvægt, að
þessi viðskipti séu eins örugg
og frekast er unnt. / 2 ►
Hús frá
fyrri tímum
VIÐGRERÐIR á gömlum timb-
urhúsum geta verið vanda-
verk, segir Bjarni Ólafsson í
þættinum Smiðjan. Þetta á
einkum við, þegar gert er við
gömul borð eða aðra húshluta,
sem fúnað hafa og fella þarf
nýjan hluta við gamlan. / 10 ►
Leiga á
atvinnu-
húsnæði
VERÐBÓLGUMÆLING-
AR benda til þess, að
verðlag fari hækkandi
og húsaleiga á atvinnuhús-
næði mun vafalítið hækka í
kjölfarið. Kemurjþetta fram í
viðtalsgrein við Olaf Þ. Gylfa-
son hjá Hagvangi hér í blað-
inu í dag. Hagvangur gerir á
hverju ári húsaleigukönnun
fyrir atvinnuhúsnæði og er
hún nýkomin út fyrir þetta
ár. Ólafur stjörnaði þessari
könnun.
— Markmiðið með þessari
könnun var að safna á einn
stað sem ítarlegustum uppiýs-
ingum um húsaleigu fyrir at-
vinnuhúsnæði í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði, seg-
ir Ólafur, en könnunin bygg-
ist á liðlega 500 leigusamn-
ingum.
Að sögn Ólafs getur húsa-
leiga fyrir verzlunarhúsnæði
á jarðhæð verið ríflega tvö-
fóld miðað við skrifstofuhús-
næði á efri hæðum. Stærð
húsnæðis hefur líka verulega
áhrif á húsaleigu. Nær undan-
tekningarlaust er húsaleigan
hlutfallslega hæst fyrir leigu-
húsnæði, sem er innan við 100
ferm.
Ekki er mikill munur á
húsaleigu fyrir verzlunarhús-
næði eftir hverfum, þó að
undantekningar séu til.
Kringlan hefur þannig algera
sérstöðu, en þar er húsaleig-
an miklu hærri en annars
staðar. / 16 ►
Talsverðar hækkanir
á byggingarvísitölu
og húsaleiguvísitölu
BYGGINGARVISITALAN hefur
yfirleitt verið hægstíg undanfarin
ár. Hið sama má segj a um húsaleigu-
vísitöluna. Á tímabilinu janúar-apr-
íl í ár hefur byggingarvísitalan hins
vegar stigið skref upp á við og
hækkað um 2%. Á sama tíma hefur
húsaleiguvísitalan hækkað um
3,9%.
Byggingarvísitalan er samsett af
kostnaðarþáttum nýbygginga en
húsaleiguvísitalan fer eftir breyt-
ingum á launum. Síðasta hækkun
hennar á rót sína að rekja til launa-
hækkana, sem ýmsar stéttir fengu
um síðustu áramót.
Breytingar á þessum vísitölum
skipta máli fyrir marga. Þannig er
húsaleiga fyrir atvinnuhúsnæði oft-
ast bundin byggingarvísitölu og
húsaleiga fyrir íbúðarhúsnæði
oftast bundin húsaleiguvísitölunni.
Nú eru á döfinni breytingar á end-
urgreiðslu á virðisaukaskatti vegna
vinnu á byggingastað, sem myndu
hafa í för með sér frekari hækkun á
byggingarvísitölunni og nái þessar
breytingar fram að ganga, gæti
hækkunin komið til framkvæmda 1.
júlí nk.
Erfitt er að spá með vissu um
frekari breytingar á húsaleigu,
einkum á atvinnuhúsnæði. Þegar
nýir leigusamningar eru gerðir eða
eldri samningar endurskoðaðir,
ræður verðlagsþróunin ekki öllu um
leigugrundvöllinn. Breytingar á
framboði og eftirspurn á húsnæði
skipta þar einnig máli. Töluvert of-
framboð hefur verið á atvinnuhús-
næði, en að undanförnu hefur dreg-
ið úr því, eftir því sem meiri þrótt-
ur hefur færzt í efnahagslífið á ný.
Húsaleiguvísitalan fyrir íbúðar-
húsnæði fer eftir launaþróuninni
sem að framan segir. Að undan-
förnu hafa laun hækkað umfram
vei'ðbólgu og ef svo heldur áfram, þá
gæti húsaleiga fyrir íbúðarhúsnæði
hækkað í sama hlutfalli.
Byggingarvísitalan og
húsaleiguvísitalan 1991-96
i------1-------,------1-------1------,---- 150
1991 1992 1993 1994 1995 ’96
IGNALAN SK AN
Skandia býðMrþér sveigjanleg lánskjör efþú þarft að skuldbreyta eða stœkka við þig
'nýtt sitnanúmer
540 50 60
i fáió tuinarí upplýsingar
Skandia
Dæmi um mánaóatiegar
ajborganir af1.000.000 kr.
Fasteignaláni Skandia*
M*tir<%)10ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngreiöslulán.
*Auk verðbóta
FJÁRFESTINQARFÉLAQIÐ SKANDIA H F • LAUQAVEGI 170 • SÍMI 540 50 BO • FAX 540 50 B1
Fyrir hverja eru Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar,
Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán
Fasteignalán Skandia eru íyrir alla á stór-Reykjavíkursvæöinu sem eru að til annarra Qárfestinga.
kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár.
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu. Hagstæð vaxtakjör.
Þá sem vilja breyta óhagstæðum eldri Minni greiðslubyrði.
eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.