Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLl • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Fimmtudagur 16. maí 1996 V". Blað D Mikilvæg viðskipti FYRIR flesta eru íbúðakaup stærstu og mikilvægustu við- skipti viðkomandi á lífsleið- inni, segir Grétar J. Guð- mundsson í þættinum Markað- urinn. Því er mikilvægt, að þessi viðskipti séu eins örugg og frekast er unnt. / 2 ► Hús frá fyrri tímum VIÐGRERÐIR á gömlum timb- urhúsum geta verið vanda- verk, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Þetta á einkum við, þegar gert er við gömul borð eða aðra húshluta, sem fúnað hafa og fella þarf nýjan hluta við gamlan. / 10 ► Leiga á atvinnu- húsnæði VERÐBÓLGUMÆLING- AR benda til þess, að verðlag fari hækkandi og húsaleiga á atvinnuhús- næði mun vafalítið hækka í kjölfarið. Kemurjþetta fram í viðtalsgrein við Olaf Þ. Gylfa- son hjá Hagvangi hér í blað- inu í dag. Hagvangur gerir á hverju ári húsaleigukönnun fyrir atvinnuhúsnæði og er hún nýkomin út fyrir þetta ár. Ólafur stjörnaði þessari könnun. — Markmiðið með þessari könnun var að safna á einn stað sem ítarlegustum uppiýs- ingum um húsaleigu fyrir at- vinnuhúsnæði í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, seg- ir Ólafur, en könnunin bygg- ist á liðlega 500 leigusamn- ingum. Að sögn Ólafs getur húsa- leiga fyrir verzlunarhúsnæði á jarðhæð verið ríflega tvö- fóld miðað við skrifstofuhús- næði á efri hæðum. Stærð húsnæðis hefur líka verulega áhrif á húsaleigu. Nær undan- tekningarlaust er húsaleigan hlutfallslega hæst fyrir leigu- húsnæði, sem er innan við 100 ferm. Ekki er mikill munur á húsaleigu fyrir verzlunarhús- næði eftir hverfum, þó að undantekningar séu til. Kringlan hefur þannig algera sérstöðu, en þar er húsaleig- an miklu hærri en annars staðar. / 16 ► Talsverðar hækkanir á byggingarvísitölu og húsaleiguvísitölu BYGGINGARVISITALAN hefur yfirleitt verið hægstíg undanfarin ár. Hið sama má segj a um húsaleigu- vísitöluna. Á tímabilinu janúar-apr- íl í ár hefur byggingarvísitalan hins vegar stigið skref upp á við og hækkað um 2%. Á sama tíma hefur húsaleiguvísitalan hækkað um 3,9%. Byggingarvísitalan er samsett af kostnaðarþáttum nýbygginga en húsaleiguvísitalan fer eftir breyt- ingum á launum. Síðasta hækkun hennar á rót sína að rekja til launa- hækkana, sem ýmsar stéttir fengu um síðustu áramót. Breytingar á þessum vísitölum skipta máli fyrir marga. Þannig er húsaleiga fyrir atvinnuhúsnæði oft- ast bundin byggingarvísitölu og húsaleiga fyrir íbúðarhúsnæði oftast bundin húsaleiguvísitölunni. Nú eru á döfinni breytingar á end- urgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu á byggingastað, sem myndu hafa í för með sér frekari hækkun á byggingarvísitölunni og nái þessar breytingar fram að ganga, gæti hækkunin komið til framkvæmda 1. júlí nk. Erfitt er að spá með vissu um frekari breytingar á húsaleigu, einkum á atvinnuhúsnæði. Þegar nýir leigusamningar eru gerðir eða eldri samningar endurskoðaðir, ræður verðlagsþróunin ekki öllu um leigugrundvöllinn. Breytingar á framboði og eftirspurn á húsnæði skipta þar einnig máli. Töluvert of- framboð hefur verið á atvinnuhús- næði, en að undanförnu hefur dreg- ið úr því, eftir því sem meiri þrótt- ur hefur færzt í efnahagslífið á ný. Húsaleiguvísitalan fyrir íbúðar- húsnæði fer eftir launaþróuninni sem að framan segir. Að undan- förnu hafa laun hækkað umfram vei'ðbólgu og ef svo heldur áfram, þá gæti húsaleiga fyrir íbúðarhúsnæði hækkað í sama hlutfalli. Byggingarvísitalan og húsaleiguvísitalan 1991-96 i------1-------,------1-------1------,---- 150 1991 1992 1993 1994 1995 ’96 IGNALAN SK AN Skandia býðMrþér sveigjanleg lánskjör efþú þarft að skuldbreyta eða stœkka við þig 'nýtt sitnanúmer 540 50 60 i fáió tuinarí upplýsingar Skandia Dæmi um mánaóatiegar ajborganir af1.000.000 kr. Fasteignaláni Skandia* M*tir<%)10ár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað er við jafngreiöslulán. *Auk verðbóta FJÁRFESTINQARFÉLAQIÐ SKANDIA H F • LAUQAVEGI 170 • SÍMI 540 50 BO • FAX 540 50 B1 Fyrir hverja eru Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar, Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán Fasteignalán Skandia eru íyrir alla á stór-Reykjavíkursvæöinu sem eru að til annarra Qárfestinga. kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár. nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu. Hagstæð vaxtakjör. Þá sem vilja breyta óhagstæðum eldri Minni greiðslubyrði. eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.