Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Lambakjöt á Evrópumarkað Von á meiri framleiðslu næsta haust HREIÐAR Karlsson, formaður Landssamtaka sláturleyfíshafa, segir að ástæðan fyrir því að erfitt er að útvega lambakjöt á Bret- landsmarkað sé sú að búið sé að selja allt það Evrópustimplaða kjöt sem framleitt var í fyrra í þeim þremur sláturhúsum sem þá höfðu leyfi til að framleiða kjöt á Evrópu- markað. Það eru sláturhúsin á Hvamms- tanga, Hornafirði og Húsavík, en ekki tókst að fá leyfi fyrir slátur- húsið á Selfossi. „Það munar um hvert hús, en það er einnig verið að endurskipu- leggja slátrunina með því að færa meira af fé til þessara húsa. Þá standa vonir til þess að sláturhúsið á Selfossi verði komið með tilskilin leyfi Evrópusambandsins í haust, þannig að á haustdögum ættum við að verða betur staddir hvað þetta varðar," sagði Hreiðar. __________________FRÉTTIR__________________________________ Ákvörðun Samkeppnisráðs vegna erindis Sólar hf. varðandi mjólkurbú KEA skílji gerð viðbits og safa frá mjólkurbúinu SAMKEPPNISRÁÐ telur að fjárhagslegur að- skilnaður mjólkurbús frá samkeppnisrekstri KEA í framleiðslu smjörlíkis og ávaxtasafa sé ekki með þeim hætti að t'aki af allan vafa um að reksturinn sé niðurgreiddur af hinni vernduðu starfsemi. Mælir ráðið fyrir um fjárhagslegan aðskilnað þessara þátta frá 1. janúar nk. Hins vegar komst ráðið að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til að hafast að vegna starfsemi mjólkursamlaga Sölufélags Austur-Húnvetn- inga, Kaupfélags Þingeyinga og Mjólkursamsöl- unnar í Reykjavík. Sól hf. krafðist þess að Samkeppnisráð mælti fyrir um fjárhagslegan aðskilnað milli þess hluta rekstrar mjólkurbúanna og Mjólkursamsölunnar, sem fellur undir vinnslu á mjólk og hreinum mjólkurvörum og þess hluta sem er í samkeppni við aðra. Sól hf., sem framleiðir m.a. svala- og ávaxtadrykki, viðbit á brauð og smjörlíki, kvaðst í beinni samkeppni við hliðstæða framleiðslu mjólkurbúanna. í ákvörðun Samkeppnisráðs um KEA kemur fram, að viðbitsframleiðsla afurðastöðva sé hluti þess rekstrar sem njóti opinberrar verndar. Mjólk sé eitt helsta hráefnið í viðbiti, stöðvunum sé skylt að taka við tilteknu magni af mjólk á til- teknu verði og samkvæmt ákveðnum skilmálum, auk þess sem framleiðslan njóti ríkisaðstoðar t.d. í þeim skilningi að beingreiðslur til mjólkur- framleiðenda skili sér í lægra hráefnisverði. Vegna þessa séu ekki lagaskilyrði til að skilja fjárhagslega milli þess hluta rekstrar afurða- stöðva sem lúti að framleiðslu viðbits og þess sem snúi að annarri mjólkurframleiðslu. I umfjöllun um safagerð og smjörlíkisgerð KEA er annað uppi á teningnum. Þar segir, að smjörlíkisgerðin og safagerðin séu í húsnæði mjólkursamlagsins. Mjólkursamlagið leigi afnot af pökkunarvél smjörlíkisgerðarinnar og safa- gerðin leigi afnot af pökkunarvélum mjólkursam- lagsins. Fjárhagslegur aðskilnaður mjólkurbús- ins frá samkeppnisrekstri KEA sé ekki með þeim hætti að taki af allan vafa um að rekstur- inn sé niðurgreiddur. Rekstur afmarkaður og hlutdeild lítil í ákvörðun Samkeppnisráðs um aðrar afurða- stöðvar, sem erindi Sólar náði til, segir um mjólk- urbú Sölufélags Austur-Húnvetninga, að hlut- deild framleiðsluvöru þess, Blöndusafa, sé innan við 0,5% af heildarveltu safamarkaðarins. Verð- lagning á safanum sé eðlileg og ekki tilefni til aðgerða. Um Kaupfélag Þingeyinga segir að efnagerð- in, sem framleiði ýmsar vörur undir heitinu Sana, sé sjálfstæð rekstrardeild í bókhaldi og ekki sé um sameiginleg not á áhöldum eða öðru sem tengist mjólkurvinnslu að ræða. Ekki sé því heldur tilefni til aðgerða gegn KÞ. Loks hnykkir Samkeppnisráð á fyrri niður- stöðu varðandi framleiðslu og dreifingu Mjólk- ursamsölunnar í Reykjavík á ávaxtasafa og seg- ir fjárhagslegan aðskilnað milli Mjólkursamsöl- unnar og Samsöluvara hf. Því er ekki fjallað nánar um Mjólkursamsöluna. Morgunblaðið/Ásdís Minnst með hvítum blómum UNGA kynslóðin lét ekki sitt eftir liggja við að fleyta hvítum blómum á Tjörninni í gær. Míeð blómafleytingunum vildi Is- landsdeild Amnesty Internat- ional minnast atburðanna á Torgi hins himneska friðar í Kína fyrir sjö árum þegar kín- versk sljórnvöld börðu niður andóf námsmanna og lýðræðis- sinna í blóðbaði, en fjöldi fólks lét lífið og hundruð manna voru fangelsuð fyrir andbyltingar- áróður, eins og fram kemur í frétt frá samtökunum. Hvítum blómum var fleytt á Tjörninni því að í Kína er hvíti liturinn sorgarlitur. Dagskráin næstu daga Miðvikudagur 5. júni: Heimsóknir á Stór-Reykjavíkursvæðinu Bein útsending á Stöð 2 kl. 20:55 Fimmtudagur 6. júní: Á ferð um Austurland: Heimsóknir í fyrirtæki á Neskaupsstað Fundur: Egilsbúð kl. 12:00 Heimsóknir í fyrirtæki á Eskifirði og Reyðarfirði Fundir: Seyðisfjörður, Hótel Snæfell kl. 17:30 Egilsstaðir, Valaskjálf kl. 20:30 Upplýsingar um forsetakosningarnar eru gefnar á kosningaskrifstofunni í Borgartúni 20 og í síma 588 6688 Upplýsingar um atkvœða- greiðslu ,utan kjörfundar eru gefnar í síma 553 3209 Þorsteinn Jóhannesson kosinn forseti bæjarstjórnar Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson JÓNAS Ólafsson bæjarfulltrúi, aldursforseti nýkjörinnar bæjar- stjórnar, óskar Þorsteini Jóhannessyni til hamingju með kjör hans sem fyrsta forseta bæjarstjórnar ísafjarðarbæjar. ísafjarð- arbær varð fyrir valinu ísafirði. Morgunblaðið. ÞORSTEINN Jóhannesson oddviti sjálfstæðismanna var kosinn fyrsti forseti nýkjörinnar bæjarstjórnar Isafjarðarbæjar á fyrsti fundi hins sameinaða sveitarfélags í gær. Ákveðið var að endurráða Kristján Þór Júlíusson sem bæjarstjóra. Áuk meirihlutans greiddu bæjarfulltrúar Funk-listans atkvæði með Þorsteini og Kristjáni. Nýja sveitarfélagið varð formlega til 1. þessa mánaðar með sameiningu sex sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum. Eftir kosningarnar á dögunum mynduðu fimm bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokks og fulltrúi Alþýðuflokks meirihluta um stjórn bæjarmála. Á fundinum í gær var ágreiningur um nafn nýja sveitarfé- lagsins. Meirihlutinn lagði til að nafnið yrði Isafjarðarbær, í sam- ræmi við niðurstöður skoðanakönn- unar sem gerð var meðal íbúanna samhliða bæjarstjórnarkosningun- um. F-listi Álþýðubandalags, Kvennalista og óháðra vildi að nafn- ið yrði ísafjarðarbyggð og annar fulltrúi Funk-listans sagði að Partý- bær væri besta nafnið. Tillaga meiri- hlutans um ísafjarðarbæ var sam- þykkt með 8 atkvæðum gegn 2, einn sat hjá. Samþykktlr til umræðu Þorsteinn Jóhannesson var sem fyrr segir kosinn forseti bæjarstjórn- ar og Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri. Magnea Guðmundsdóttir af D-lista var kosin fyrsti varaforseti ■ og Kristinn Hermannsson af Funk- lista 2. varaforseti, bæði án mót- : framboðs. Kosið var í fimm manna bæjarráð og verður Sigurður R. | Olafsson formaður þess fyrra árið. Á fundinum í gær voru samþykkt- ir hins nýja sveitarfélags teknar til fyrri umræðu. Gert er ráð fyrir mik- illi fækkun nefnda frá því sem var í Isafjarðarkaupstað og skilvirkara stjórnkerfi. Stone Free í Borgarleikhúsinu í júlí Höfundur viðstaddur heimsfrumsýningu BRESKA leikskáldið Jim Cartwright verður viðstaddur heimsfrum- sýningu á leikriti sínu Stone Free á Stóra sviði Borgarleikhússins 12. júlí nk. Eftir sama höfund eru Icikritin Stræti, Barpar og Taktu lagið Lóa. Leik- félag íslands setur verkið upp í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur. Stone Free verður frumsýnt á West End í London í ágúst. í frétt frá Leikfélagi íslands segpr að ástæðan fyrir staðarval- inu felist í því að Magnús Geir Þórðarson, leikstjóri verksins, hafi unnið með Cart- wright að forsýningum þess í Englandi. I framhaldi af því vann Magnús Geir að þýð- ingu verksins í nánu samstarfi við Cart- wright. Mörg af vinsælustu lögum sjöunda áratug- arins eru flutt í leikrit- inu. Leikarar verða Ingvar Sigurðsson, Margrét Vil- hjálmsdóttir, Eggert Þorleifsson, Emilíana Torrini, Gísli Rúnar Jónsson, Daniel Agúst Haralds- sorij Kjartan Guðjónsson, Guðlaug E. Olafsdóttir og Jóhann G. Jim Cartwright Mildur | oghag- stæður maí MAÍMÁNUÐUR var mildur og hag- stæður segir í yfirliti frá Veðurstof- unni. Það var helst í útsveitum á Norður- og Austurlandi að kvartað var um kalsasama tíð. í Reykjavík var meðalhitinn 7,2 j gráður og er það 0,9° yfir meðal- lagi, á Akureyri var meðalhitinn 6,5° og er það 1 gráðu yfir meðal- lagi. Hiti í maí hefur oft verið svip- aður á undanförnum árum. Úrkoma í Reykjavík mældist 48 mm, 10% umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 7,4 mm, sem er 40% af meðallagi. í Reykjavík voru sólskinsstundir 202, eða 12 umfram meðallag og ; á Akureyri mældust 178 sólskins-1 stundir eða 8 umfram meðallag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.