Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir PÁLL Pétursson félagsmálaráðheRRA og Hólmfríður Árnadótt- ir, framkvæmdastjóri RKÍ, innsigla samninginn. Samið um aðstoð við flóttamenn PÁLL Pétursson,_ félagsmálaráð- herra, og Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross ís- lands, undirrituðu nýlega ramma- samning til fimm ára um liðsinni og hlutverk Rauða krossins við móttöku flóttamanna sem til landsins koma. Hópur flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu er væntan- legur til landsins innan tíðar. Ákveðið hefur verið að sá hópur fari til Isafjarðar og í fréttatil- kynningu frá ráðuneytinu segir að þar verði um að ræða samvinnu RKÍ og ísafjarðarkaupstaðar varð- andi framkvæmd. RKÍ hefur um áratugaskeið annast mótttöku flóttamanna fyrir hönd ríksistjórnarinnar en nú hef- ur í fyrsta skipti verið samið form- lega um það hlutverk. Samkvæmt samningnum skuld- bindur Rauði krossinn sig til að aðstoða félagsmálaráðuneytið og flóttamannaráð við málefni er snerta flóttamenn sem koma til landsins í völdum hópi samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar og með samþykki flóttamannafull- trúa SÞ. Síð&r verður gerð fram- kvæmdaáætlun um hvaða fyrir- komulag verður á þátttöku RKI. Meðal þess sem samningurinn felur í sér er að RKÍ áætli kostnað við val á flóttamönnum, ferðir þeirra og móttöku, svo og sér- fræðiaðstoð sem þeir þurfa á að halda, húsnæðismál og aðlögun að íslensku þjóðfélagi. Gera skal ráð fyrir að endur- gjaldslaust starf sjálfboðaliða, þar á meðal sjálfboðaliða á vegum RKI, verði þáttur í þeirri aðstoð sem veitt verður. Annast framkvæmd í eitt ár RKÍ annast framkvæmd mála í eitt ár frá því hver hópur flótta- manna kemur til landsins, gefur ráðuneytinu reglulega skýrslu um framkvæmdina og fær greitt sam- kvæmt reikningi í samræmi við sameiginiega greiðsluáætlun aðila samningsins. Kostnaði verður haldið aðgreindum í bókhaldi RKÍ og aðgengilegum til skoðunar fyr- ir ráðuneyti og Ríkisendurskoðun. Barna- og unglinga- mót í silungsveiði STANGAVEIÐIFÉLAG Reykjavík- ur gengst, í samvinnu við Reykja- víkurborg og Veiðifélag Elliða- vatns, fyrir veiðimóti fyrir börn og unglinga í Elliðavatni á laugardag- inn. Mótið er opið öllum börnum og unglingum 16 ára og yngri og hefst það klukkan 10 með skrán- ingu þátttakenda á planinu við brúna að bænum Elliðavatni. „Við héldum svona mót í fyrra og það lukkaðist í alla staði frábær- lega og því sjálfsagt að halda áfram á sömu braut. Þetta er liður í því að efla unglingastarfið og lyfta svo- lítið undir silungsveiði. Það er stað- reynd að endurnýjun í röðum stangaveiðimanna er ekki eins ör og fyrrum og því veldur trúlega að það er svo margt annað sem fangar athygli krakkanna en áður var. Við ætlum því að reyna að rækta garð- inn betur," sagði Ólafur H. Olafs- son, varaformaður Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur, í samtali við Morgunblaðið. Ólafur bætti við að annar til- gangur mótshaldsins væri að hvetja fjölskyldur til hollrar og skemmtilegrar útiveru í náttúr- unni og að sýna fram á að veiði er í huga fjölmargra fjölskylduíþrótt sem ekki þarf að kosta mikið að stunda. Þátttakendur þurfa að leggja til stangir og agn, en til staðar verður hópur reyndra veiðimanna sem þekkja vatnið vel og munu liðsinna börnunum eins og frekast er kost- ur. Mótið hefst sem fyrr segir með skráningu klukkan 10 og því lýkur klukkan 14 með verðlaunaafhend- ingu og hressingu sem boðið verður upp á. Veitt verða verðlaun fyrir stærstu fiska í tveimur flokkum, 0-11 ára og 12-16 ára. * Skrifstofu- og rekstrarvörur • Plasthúðun - innbinding • Vélar - tæki - búnaður • Prentborðar - dufthylki - blekfyllingar ISO-9000 gæðatrygging • Leiðir til sparnaðar J. RSTVM.DSSON HF. Skipholíi 33,105 Reykjavik, sími 533 3535, Til hamingju! / Islendingur hafði heppnina með sér síðastliðinn miðvikudag. Hann keypti miða á Horninu á Selfossi á 200 kr. ogfékk upphæðina 75 þúsundfalt til baka, samtals 15 milljónir. Vertu því með fyrir kl. 16.00 V I K I W G A L#TT€» Til mikils að vinna! Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00 HVlTA HÚSIO / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.