Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ -
10 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
CCO licncco 1Q7n LflRUSt>.VALOIMARSSON,FRAMKVÆMDASTJÓRI
IIUL I luU'UUL lll/U ÞDRBURH.SUEINSSONHDL.LOGGILTUBFflSTEIGNflSflLI
Nýkomin til sölu meðal annarra eigna:
Á móti suðri og sól - gott verð
Skammt frá Árbaejarskóla einbýlishús, ein hæð, um 165 fm auk bíl-
skúrs, 25 fm. Sólríkar stofur viðarklæddar. 4 svefnherb. með innb.
skápum. Ræktuð lóð 735 fm með fallegum trjágróðri. Eignaskipti mögu-
leg. Nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
Sólrík efsta hæð með útsýni
Landsþekktur aflamaður óskar eftir sérhæð, helst við Safamýri, Hjálm-
holt, nágr.
• • •
Góð húseign með
tveimur íbúðum _____________________________________
óskast í borginni. HU6IVE6I1I 5. 552 1158-5521371
ALMEMMA
FflSTEIGNASALAM
Stakfell
Lögfræðingur
Pórhildur Sandholt
Fasteignasala Sudurlanasbrau! 6
568-7633 if
Sölumenn
Gísli Sigurbjörnsson
Sigurbjörn Þorbergsson
Breiðagerði
Fallegt og vandað einbýlishús ásamt bílskúr á góðum
stað í Smáíbúðarhverfinu.
Húsið er steinsteypt og með fallegum garði. Laust strax.
Höfum til sölu þetta stóra og glæsilega hús sem hentar
margháttuöum atvinnurekstri.
Húsið er:
A: Jarðhæð með mikilli lofthæð og góðu athafnarými
utandyra.
B: Götuhæð, sem getur hvortheldur vill verið gott
skrifstofu- eða verslunarhúsnæði.
C: Efri hæð, mjög góðar skrifstofur.
Húsið er falt í einu lagi eða í smærri einingum.
Laust.
GARÐUR
S. 562-1280 562-1201
Skipholti 5
FASTEIGNASALA - Armúla 21 - Reykjavlk
S: 533-4040 - Fa* 688-8366
Traust og Ki-ukk þjónusta
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
Eftirlaunaréttur forseta Alþingis aukinn sam-
kvæmt frumvarpi varaforseta þingsins
Greitt af heildarlaun-
um í alþingismannasjóð
MÆLT var á Alþingi fyrir frum-
varpi um eftirlaunarétt alþingis-
manna aðfaranótt þriðjudags, en
samkvæmt því verður eftirlauna-
réttur forseta Alþingis samræmd-
ur við eftirlaunarétt ráðherra.
Einnig verður makalífeyrir þing-
manna og varaþingmanna skertur.
Þeir þingmenn sem tóku til
máls studdu ákvörðunina um að
skerða makalífeyrinn en gagn-
rýndu þann hátt sem frumvarpið
gerir ráð fyrir að verði hafður á
eftirlaunagreiðslum til forseta Al-
þingis. Ætlunin er að afgreiða
frumvarpið sem lög fyrir þinglok
í dag.
Frumvarpið var lagt fram af
varaforsetum Alþingis, þeim
Ragnari Arnalds, Sturlu Böðvars-
syni, Guðna Ágústssyni og Guð-
mundi Árna Stefánssyni. Ragnar
mælti fyrir frumvarpinu og sagði
að þegar lögum um þingfararkaup
og þingfararkostnað var breytt sl.
vor hafi verið stefnt að því að for-
seti Alþingis nyti sömu launa og
starfskjara og ráðherrar. Þar væri
einnig átt við eftirlaunarétt.
Eftirlaunum ráðherra væri skip-
að með lögum, og væri eftirlauna-
sjóður ráðherra sérstök deild í Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Ekki þætti eðlilegt að forseti Al-
þingis greiddi í ráðherradeildina
og því væri með nýja frumvarpinu
lagt til að hann greiddi af öllum
launum sínum fyrir forsetastarfíð
í eftirlaunadeild alþingismanna og
öðlaðist þannig viðbótarrétt sem
væri hliðstæður eftirlaunarétti
ráðherra. Sá réttur er 6% af ráð-
herralaunum fyrir hvert ár í ráð-
herrastarfi, þó aldrei meira en 50%
af ráðherralaunum sem eru um-
fram þingfararkaup.
Ragnar sagði að útgjaldaauki
alþingismannadeildar Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins vegna
aukinna lífeyrisréttinda forseta
Alþingis væri smár miðað við
sparnaðinn vegna þrengri réttar
til makalífeyris og alls myndi sjóð-
urinn spara á fjórða hundrað millj-
ónir króna.
Samkvæmt frumvarpinu eiga
makar varaþingmanna ekki rétt á
hærri lífeyri en varaþingmennirnir
sjálfír, en eins og lög eru túlkuð
nú getur lífeyrisréttur maka vara-
þingmanna verið margfaldur á við
rétt varaþingmannanna sjálfra.
Ljót lagasetning
Frumvarpinu var nokkuð misvel
tekið af þingmönnum. Pétur
Blöndal Sjálfstæðisflokki sagði að
við fyrstu sýn virtist um ótrúlega
ljóta lagasetningu að ræða þar
sem blandað væri saman mörgum
hlutum í einu frumvarpi. Mun ein-
faldara hefði verið að láta forseta
Alþingis greiða í ráðherradeild líf-
eyrissjóðsins í stað þess að vísa í
frumvarpinu í lög um eftirlaun
ráðherra.
Pétur sagði að eftir sem áður
væru makalífeyrisréttindi ráð-
herra óleyst; ráðherra sem starfað
hefði í 1 ár fengi 6% af ráðherra-
launum, en ef hann félli frá fengi
maki hans 23%. Og eftir 4 ára
ráðherrasetu fengi ráðherra 24%
af ráðherralaunum í lífeyri en
makinn 32%.
Ragnar sagði að vel gæti þurft
síðar að endurskoða fleira í um-
ræddum lögum en ákvæði um
eftirlaunarétt þingmanna og maka
þeirra. En Pétur sagði að nær
hefði verið að samþykkja frumvarp
sem hann flutti um afnám þeirra
lífeyrisréttinda sem þingmenn
nytu umfram flesta aðra þjóðfé-
lagsþegna.
Jóhanna Sigurðardóttir Þjóð-
vaka sagði að þingmenn flokksins
hefðu á sínum tíma ýmist greitt
atkvæði gegn eða setið hjá þegar
atkvæði voru greidd um breytingu
á þingfararkaupslögunum sl. vor.
M.a. hefðu þeir setið hjá þegar
greidd voru atkvæði um að forseti
Alþingis nyti sömu starfskjara og
ráðherra og því myndu þeir ekki
styðja breytingu á eftirlaunarétt-
inum.
Ósamræmi
Ögmundur Jónasson Alþýðu-
bandalagi vakti athygli á að um
sumt væru lífeyrisréttindi þing-
manna og ráðherra svipuð og
gerðist hjá opinberum starfs-
mönnum; þeir greiddu í lífeyris-
sjóð af föstum launum, þ.e. dag-
vinnulaunum og vaktaálagi en
ekki yfirvinnu. Ágreiningur hefði
verið um hvað gera skyldi með
laun embættismanna sem greidd
væru í einu lagi, og kjaradómur
hefði fetað sig inn á þá braut að
sundurgreina föst laun og yfir-
vinnu þannig að samræmi væri á
milli embættismanna og opin-
berra starfsmanna. Því skyti
skökku við, að fjölga í þeim hópi
sem nyti lífeyrisréttinda af
heildarlaunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Kjörtímabilið hálfnað
GUÐRÚN Ágústsdóttir, forseti
borgarstjórnar, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri
og Pétur Jónsson, borgarfull-
trúi Reykjavíkurlistans, af-
KOMIÐ verður á fót embætti ríkis-
lögreglustjóra sem fer með yfír-
stjórn lögreglu í landinu samkvæmt
nýjum lögreglulögum sem Alþingi
samþykkti á mánudagskvöld.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
embætti Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins verði lagt niður í núverandi
mynd en flest rannsóknarverkefni
færð til lögreglustjóra í héraði.
Markmið laganna er að stíga
skref í þá átt að styrkja stjórnsýslu
lögreglunnar, auka samræmingu
hentu bækling á Café París um
helgina, sem gefinn er út í til-
efni þess að kjörtímabil meiri-
hluta Reykjavíkurlistans er
hálfnað.
og eftirlit og efla fagleg vinnu-
brögð. Ráðgert er að færa rannsókn
meginþorra brotamála til einstakra
lögreglustjóra og tengja þannig
betur saman almenna löggæslu og
rannsóknir.
Samhliða lögreglulögunum var
lögum um meðferð opinberra mála
breytt þannig að vinna við rann-
sóknir algengustu brotamála, út-
gáfa ákæru og saksókn fari fram
hjá sama embætti.
Lög sam-
þykktum
staðfesta
samvist
TVEIMUR einstaklingum af sama
kyni verður heimilt að stofna til
staðfestrar samvistar samkvæmt
lögum sem Alþingi samþykkti á
mánudagskvöld.
Gert er ráð fyrir að einstaklingar
í staðfestri samvist njóti sömu eða
svipaðra réttinda og á þeim hvíli
sömu skyldur og á einstaklingum
í hjúskap. Þessir einstaklingar geta
þó ekki ættleitt bom og þeim er
ekki heimilt að fá tæknifrjóvgun.
Ekki er gert ráð fyrir kirkju-
vígslu heldur sjái sýslumenn og
dómarar um að staðfesta samvist.
Á sama hátt eru prestar undan-
þegnir sáttaskyldu sem þeim er
lögboðin í vissum tilvikum í hjú-
skaparlögum, en þess í stað leita
sýslumenn og dómarar sátta.
Margir þingmenn fögnuðu laga-
setningunni og sögðu hana marka
tímamót í mannréttindabaráttu hér
á landi. Frumvarpið var samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
nema einu, atkvæði Árna Johnsen
Sjálfstæðisflokki, en hann gagn-
rýndi frumvarpið við fyrri umræðu
á Alþingi m.a. á þeirri forsendu
að það veitti samkynhneigðum for-
réttindi umfram aðra þjóðfélags-
þegna.
Lögin taka gildi 27. júní, sem
er alþjóðlegur mannréttindabar-
áttudagur samkynhneigðra.
Ný lögreglulög samþykkt
RLR lögð niður