Morgunblaðið - 05.06.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 13
AKUREYRI
Metþátttaka í Heilsu-
hlaupinu í Grímsey
Kærunefnd jafnréttismála um stöðu sviðsstjóra
Ekki brotið gegn ákvæð-
um laga um jafnan rétt
METÞÁTTTAKA var í Heilsu-
hlaupi Krabbameinsfélagsins
sem þreytt var í Grímsey sl.
mánudag. Alls tóku 46 eyjar-
skeggar þátt í hlaupinu í blíð-
skaparveðri en þar búa aðeins
um 120 manns. Jónas Franklín,
læknir og formaður Krabba-
meinsfélags Akureyrar og ná-
grennis, Halldóra Bjarnadótt-
ir, framkvæmdastjóri félagsins
og Kristinn Eyjólfsson, heilsu-
gæslulæknir á Akureyri fóru
til Grímseyjar í tilefni dagsins.
Jónas Franklín fram-
kvæmdi krabbaméinsskoðun á
konum í Grímsey og naut við
það aðstoðar Ilalldóru og hún
aðstoðaði Kristinn við fram-
kvæmd hlaupsins en hann sá
m.a. um upphitun þátttak-
enda. Á myndinni er hópurinn
sem tók þátt í hlaupinu sl.
mánudag.
Ibúar Grýtubakkahrepps
fjölmenntu einnig í Heilsu-
hlaupið á Grenivík sl. sunnu-
dag en alls mættu 90 manns
til leiks. Laugardaginn 8. júní
fer Heilsuhlaupið fram á Ak-
ureyri og í Ólafsfirði og hefst
kl. 12 á báðum stöðum.
KÆRUNEFND jafnréttismála tel-
ur að ráðning Valgerðar Magnús-
dóttur í starf sviðsstjóra félags-
og fræðslumála Akureyrarbæjar
síðasta haust bijóti ekki gegn
ákvæðum laga um jafna stöðu og
jafnan rétt karla og kvenna.
Áskell Örn Kárason sálfræðing-
ur fór þess á leit við kærunefndina
að hún kannaði og tæki afstöðu
til þess hvort ráðning í stöðu sviðs-
stjóra bryti í bága við ákvæði laga
um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla. Staða sviðsstjóra
félags- og fræðslusviðs er ein af
þremur stöðum sviðsstjóra hjá
bænum en þær eru meðal æðstu
embætta Akureyrarbæjar. Karlar
hafa fram til þessa gegnt þessum
stöðum. Tíu sóttu um þegar starf-
ið losnaði á liðnu haust, þijár kon-
ur og sjö karlar.
Kærandi taldi sig hæfari til að
gegna starfinu, þótt þau hafí sömu
menntun sé starfsferill hans lengri
og starfsreynsla víðtækari. Taldi
hann ýmislegt benda til að umsókn
hans hafi verið hafnað vegna kyn-
ferðis, forsvarsmenn bæjarins hafi
fremur viljað ráða konu til starf-
ans.
I greinargerð bæjarlögmanns
Akureyrar er lögð á það áhersla
að verði ekki fallist á það mat
bæjarráðs að Valgerður teljist
hæfari hljóti þau a.m.k. að vera
jafnhæf og gefi það ráðningar-
valdinu að vissu leyti fijálsari
hendur við val á umsækjendum.
Það sé yfirlýst stefna Akureyrar-
bæjar að ráða fremur konu en
karl þegar aðstæður eru með þeim
hætti. Með því að ráða Valgerði í
starfið hafi verið stigið ákveðið
spor í jafnréttisátt þar sem veru-
lega halli á konur í yfirstjórn bæj-
arins.
Hlutlægt og sanngjarnt mat
Fram kemur í niðurstöðu kæru-
nefndar að ein meginforsenda þess
að jafnrétti náist með kynjunum
á vinnumarkaði sé að ákvarðanir
um ráðningar, stöðubreytingar og
stöðuhækkanir séu teknar á
grundvelli hlutlægs og sanngjarns
mats á hæfni umsækjenda eða
starfsmanna. Séu umsækjendur
af báðum kynjum og taldir jafn-
hæfir beri með vísan til jafnrétti-
slaga að láta það kynið ganga
fyrir sem er í minnihluta í viðkom-
andi starfsgrein. Þessi forgangs-
regla sé grundvallarskilyrði þess
að þeim tilgangi laganna að jafna
stöðu kvenna og karla verði náð.
Kærunefnd lítur svo á að at-
vinnurekendur hafi nokkurt svig-
rúm til hlutlægs mats við ráðningu
starfsmanna þegar lítill munur er
á hæfni umsækjenda og munur
milli Valgerðar og Áskels hafi
verið innan þess. Þá beri einnig
að líta til þeirrar stefnu bæjarins
að jafna hlut karla og kvenna í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum.
Færri
karlar eru
atvinnu-
lausir
ATVINNULEYSI er á undanhaldi
hjá körlum en er enn til staðar
hjá konum, samkvæmt tölum frá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á Ak-
ureyri. Um síðustu mánaðamót
voru 335 manns á atvinnuleysis-
skrá, 203 konur og 132 karlar.
Um mánaðamótin apríl/ma:
voru 374 á atvinnuleysisskrá, 20C
konur og 174 karlar, þannig ac
konum hefur ijölgað um þijár á
skrá en körlum fækkað um 42. 1
lok maí í fyrra voru 507 manns á
atvinnuleysisskránni, 264 konui
og 243 karlar. Atvinnuleysisdagai
í maímánuði á síðasta ári voru
10.083 á móti 7.099 í ár.
STANDEX
Alinnréttingar
Hönnum og smíðurn eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
Við skiptum líka á Fordinum okkar
og Baleno
Þorgeir Logi Amason
og Ingunn Ema Stefánsdóttir
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00.
Komdu sjálfum þér oq
fjölskyldu þinni á óvart.
Prufukeyrðu Baleno í dag!
iBALENO