Morgunblaðið - 05.06.1996, Page 17
MQltGUi),'B4AÐ}Ð
ERLENT
MIDVIKUDAGUR 5.,4ÚNÍ 1996 17
Eiginkona
Abiola
skotin
KUDIRAT Abiola, eiginkona
Moshood Abiola, sem margir
telja réttkjörinn forseta Níger-
íu, var skotin til bana í höfuð-
borginni, Lagos, í gær. Skutu
ókunnir menn á bíl hennar og
lést hún skömmu síðar á
sjúkrahúsi. Að sögn lögregl-
unnar voru einhverjir ótíndir
glæpamenn að verki en í Lag-
os er mikill orðrómur um, að
Kudirat hafi verið ráðin af
dögum. Maður hennar bar sig-
ur úr býtum í forsetakosning-
unum í Nígeríu 1993 en herinn
ógilti kosningarnar og hefur
hann nú í haldi. Barðist Kudir-
at fyrir því, að hann yrði leyst-
ur úr haldi.
Flugvélar-
flakið fundið
LEIFAR farþegarflugvélar-
innar, sem hrapaði tii jarðar
í fenjasvæðum Flórída fyrir
rúmum þremur vikum, eru
fundnar ásamt líkamsleifum
flestra farþeganna. 110
manns fórust með flugvélinni
og hefur það vakið furðu, að
hingað til hefur aðeins um
helmingur flaksins og lík 24
manna fundist. Það, sem á
vantar, virðist vera í gíg, sem
myndaðist í fenjunum við
hrapið og er að sjálfsögðu á
kafí í vatni.
Mary Robin-
son til SÞ?
MARY Robinson, forseti Ir-
lands, sagði í gær, að yrði hún
beðin um að gerast fram-
kvæmdas-
tjóri Sam-
einuðu þjóð-
anna myndi
hún velta
boðinu vel
fyrir sér.
Búast marg-
ir við, að
henni verði
boðin staðan
þegar Boutros Boutros-Ghali
lætur af embættinu í desem-
ber nk. Robinson, sem fór í
fyrstu opinberu heimsókn
írsks forseta til Bretlands í
gær, kvaðst ekki sækjast eftir
framkvæmdastjóraembættinu
hjá SÞ en á hinn hefði hún
mikinn áhuga á mannréttinda-
málum og yrði því að hugsa
sig vel um ef til kæmi.
Tyrkir ræða
vantraust
TYRKNESKA þingið sam-
þykkti í gær að taka til um-
ræðu vantrauststillögu á ríkis-
stjórn Mesuts Yilmaz for-
sætisráðherra. Studdi annar
stjómarflokkanna, flokkur
Tansu Cillers, fyrrverandi for-
sætisráðherra, tillöguna en
þau Yilmaz hafa átt í stöðug-
um deilum síðan þau mynduðu
stjórn. Vantrauststillagan er
flutt að frumkvæði Velferðar-
flokksins, flokks bókstafstrú-
armanna, sem nú nýtur mests
fylgis tyrknesku stjórnmála-
flokkanna. Búist er við, að
þingið samþykki einnig í vik-
unni að hefja rannsókn á íjár-
reiðum Cillers en hún er sökuð
um spillingu.
Robinson
A
Bretar og Irar undirbúa friðarviðræður
IRA segir litlar
líkur á vopnahléi
Belfast, London. Reuter, The Daily Telegraph.
BRESKIR og írskir embættismenn
reyndu í gær að semja dagskrá
fyrirhugaðra viðræðna um frið á
Norður-írlandi, sem hefjast eiga á
mánudag. Breskur ráðherra mál-
efna Norður-írlands, Sir Patrick
Mayhew, og utanríkisráðherra ír-
lands, Dick Spring, kváðust síð-
degis í gær hafa átt árangursríka
fundi, þótt ekki hefðu þeir fundið
aðferð til að fá írska lýðveldisher-
inn (IRA) til að lýsa yfir vopna-
hléi og verða um leið við kröfum
sambandssinna á Norður-írlandi.
Breska ríkisútvarpið, BBC,
hafði í gær eftir heimildamönnum
innan IRA að litlar líkur væru á
að herinn lýsti yfir vopnahléi áður
en friðarviðræðurnar hæfust á
mánudag.
Breskir ráðamenn sögðu í gær
að ekki kæmi til greina að fulltrú-
ar Sinn Fein, stjómmálaarms IRA,
fengju að taka þátt í viðræðunum
vegna þess að IRA hefði ekki lýst
yfir vopnahléi.
Afvopnun
í september?
Talið er að Mayhew og Spring
hafi í gær rætt um málamiðlun
sem felur í sér að skæruliðar IRA
þurfí ekki að afvopnast fyrr en í
september, þrem mánuðum eftir
að viðræðurnar hefjast. Þessi til-
laga hlaut á mánudag stuðning
David Trimble, formanns stærsta
flokks sambandssinna.
Blaðið Financial Times greindi
frá því á mánudag að ekki væri
gert ráð fyrir að IRA myndi byija
að láta vopn af hendi fyrr en í
september, eða þrem mánuðum
eftir að viðræðurnar hæfust. Þetta
myndi þýða að Sinn Fein tæki
þátt í viðræðunum á sama tíma
og IRA hefði vopn undir höndum.
Þessum möguleika hefur breska
stjórnin ætíð hafnað algerlega.
Fulltrúi Johns Majors, forsætis-
ráðherra, kvaðst ekki kannast við
að frétt Financial Times væri á
rökum reist. „Við höfum sagt að
hefja verði afvopnun um leið og
viðræður hefjast,“ sagði fulltrúi
forsætisráðherrans.
Aukið fylgi Sinn Fein
í síðustu viku fóru fram á Norð-
ur-írlandi kosningar fulltrúa á
friðarráðstefnu sem haldin verður
samhliða viðræðunum. Sinn Fein
hlaut 15,5% fylgi, sem er rúmlega
3% meira en það fylgi sem flokkur-
inn hefur yfírleitt notið. Sagði
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
að flokkur hans ætti að fá að til-
nefna fulltrúa sína í viðræðunum,
eins og önnur stjórmálasamtök
sem eiga sæti á ráðstefnunni.
Nýbýlavegi 12, sími 554-4433.
Sumarveisla í Ceres
Fínir sumarkjólar frá kr. 3.000-4.800
Síðasta vika veislunnar.
HERRAR ATHUGIÐ !
Bráðlega veráa
tískufötin frá stærstu
herrafatakeðju
noröurlanda fáanleg á
ÍSLANDI !
Opnum 13. júní
Laugavegi 1 8 b
Reykjavik
Horfðu og hlustaðu með opnum huga!
Hvern vilt þú hafa sem forseta næstu árín?
Ailir forsetaframbjóðendurnir verða á Stöð 2
í kvöld kl. 20.30. Nú er kosningabaráttan að hefjast!
Stuðningsmenn
Guðrún Pétursdóttir
ein af okkur