Morgunblaðið - 05.06.1996, Qupperneq 41
MQRGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1996 41
BRÉF TIL BLAÐSIINIS
Myndbirtingar
frá slysstöðum
Frá Rögnvaldi Hallgrímssyni:
ÞANN 14 október sl. varð sá
hörmulegi atburður að þrennt lenti
í bílslysi á Suðurlandsvegi skammt
austan Hveragerðis. í slysinu lést
tengdamóðir undirritaðs, sambýlis-
maður hennar og ungur maður.
Eftir u.þ.b. 80 mínútur birtust
myndir af slysstaðnum og bílflökun-
um á Stöð 2. Eins og oft áður voru
mágkonur undirritaðs og maður
hennar að horfa á fréttatíma Stöðv-
ar 2 og þekktu þau bifreiðir ástvina
sinna. Það þarf ekki að orðlengja
það hvernig er að fá svona hörmu-
legar fréttir beint í andlitið umbúða-
laust og án undirbúnings.
Eftir nokkur árangurslaus símtöl
við Stöð 2 vegna myndbirtinganna
ákvað undirritaður að kæra frétta-
stofu Stöðvar 2. Kæran var byggð
á 3. grein siðareglna BÍ. StÖð 2 var
sýknuð af kærunni og skipti það
miklu máli að fagmaður við sölu
varahluta í bifreiðir og greiningu
bifreiða eftir tjón var fenginn til
að skoða myndskeiðin og mat hann
að ekki hefði verið hægt að þekkja
bílflakið. En samt segir í sýknu-
dómnum að það hafi verið mögulegt
að aðstandendur hafi þekkt bifreið-
ina þar sem vitað var af þeim á
Suðurlandsveginum.
Þrátt fyrir álit fagmannsins
þekktist bifreiðin af aðstandendum
og það er staðreynd sem stendur.
En það er þó eitt sem undirrituð-
um finnst skjóta skökku við setu
Marðar Árnasonar í dómnefnd siða-
nefndar BÍ í þessu máli en það er
að hann er með þátt á Stöð 2 sem
tengist fréttastofunni, ásamt dr.
Hannesi H. Gissurarsyni. Og hvern-
ig getur hann þá verið hlutlaus?
Vegna þessara tengsla langar und-
irritaðan að beina tveimur spurn-
ingum að Merði Árnasyni.
Af hveiju vékst þú ekki úr dóm-
nefnd Siðanefndarinnar þegar var
fjallað um ofangreint mál? Hvernig
getur þú réttlætt að fjalla í fjölmiðl-
um um siðleysi Jóns Steinars Gunn-
laugssonar þegar þú sýnir sjálfur
siðleysi með því að dæma í máli
þar sem þú hefur hagsmuna að
gæta?
RÖGNVALDUR HALLGRÍMSSON,
Austurgötu 27, Hafnarfírði.
Opið bréf til
Sophiu Hansen
Frá Albert Jensen:
ÁGÆTA SOPHIA!
Árnesingakórinn í Reykjavík
óskar þér til hamingju með þá sam-
stöðu sem þú hefur með þjóðinni
og að hún skuli Ioks hafa náð inn
á þing. Eins og þú ert svo sárlega
búin að finna fyrir, á Alþingi vort
ekki alltaf samleið með almenn-
ingi. Réttlætið á víða erfitt upp-
dráttar. Við skulum vona að nú
horfi til betri vegar fyrir þig og
börnin.
Kórstarf er áberandi stór þáttur
í menningu okkar íslendinga. Frá
vöggu til hinnar æðri vistar, laðast
fólk í mismunandi stóra hópa til
að fá útrás innri gleði í söng og
félagsskap. En söngur höfðar til
hins besta í öllum.
Margir kórar hafa gefið út söng-
verk sín og hefur verið að því mik-
ill menningarauki og gleðigjafi.
Að geta samhæft gagn og gam-
an hlýtur að auka hatningju hvetj-
um sem á þess kost. Árnesingakór-
inn í Reykjavík er á þeirri braut.
Kórinn hefur þrisvar staðið í út-
gáfu. Heitir sú nýjasta Sönglistin
og er á diski og snældu.
Kórinn ákvað að veita þér af
starfsgleði sinni á þann hátt, að
lækka verðið á Sönglistinni og láta
til þín hluta af sölu hvers disks og
snældu. Sala er nú hafin með þessu
formi í Bókabúð Steinars, Berg-
staðastræti 7 og Búsáhöld og gjafa-
vörur í Kringlunni. Ákveðið er að
bjóða íþróttafélögum að styðja
málefnið með því að selja Sönglist-
ina.
Þau sem styðja þig með þessum
hætti, fá auk kórsins, nokkra þjóð-
kunna einsöngvara og hljóðfæra-
leikara inn á heimili sitt.
Von okkar í Árnesingakórnum
er að fleiri kórar og einstaklingar
komi á eftir og veiti þér og börnun-
um lið.
Fyrir okkur í Árnesingakórnum
í Reykjavík, óska ég þér og þínum
alls hins besta.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
AUGLYSING
Evrópusamvinna um vísinda- og
tæknisamstarf við lönd utan EES
Kynningarfundur
Evrópusambandið veitir styrki til vísinda- og
tæknisamvinnu við lönd utan evrópska efnahags-
svæðisins. Áhersla er lögð á samstarf við Mið- og
Austur-Evrópulönd og við þróunarlöndin.
Dr. Rainer Gerold, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs
vísindasamvinnu Evrópusambandsins kynnir styrki
á þessu sviði, fimmtudaginn 6. júní nk., kl. 15.00-
17.00 í Borgartúni 6, 4. hæð.
Fundarstjóri og kynnir verður Vilhjálmur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs
íslands.
Fáðu Moggann
til þín í fríinu
Morgunblaðið þitt sérpakkað
ú surnarlr yfisstuðinn
Viltu fylgjast með í allt sumar?
Morgunblaðið býður áskrifendum sínum þá þjónustu að fá blaðið sitt sérpakkað
og merkt á sölustað nálægt sumarleyfisstaðnum innanlands.
Hringdu í áskriftardeildina í síma 569 1122 eða sendu okkur útfylltan seðilinn
og þú fylgist með í allt sumar.
Já takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblabsins og fá
blaóib sent á eftirfarandi sölustab á tímabilinu
frá____________________________til_
Hvert viltu fá blaðið sent? Merktu við.
□ Esso-skálinn, Hvalfiröi
□ Ferstikla, Hvalfirði
□ Hyrnan í Borgarnesi
Q Baula, Stafholtst., Borgarfiröi
□ Munaöarnes, Borgarfiröi
□ Bitinn, Reykholtsd., Borgarfiröi
□ Sumarhóteliö Bifröst
□ Hreðavatnsskáli
□ Brú í Hrútafirði
□ Staöarskáli, Hrútafiröi
□ Varmahlíð, Skagarfiröi
□ Illugastaöir
□ Hrísey
□ Grímsey
□ Grenivík
□ Reykjahlíö, Mývatn
□ Laufið, Hallormsstaö
□ Söluskálar, Egilsstööunr
□ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri
□ Víkurskáli, Vík í Mýrdal
□ Hlíðarlaug, Úthlíð, Biskupstungum
□ Laugarás, Biskupstungum
□ Bjarnabúð, Brautarhóli
□ Verslunin Hásel, Laugarvatni
□ Minniborg, Grímsnesi
□ Verslunin Grund, Flúðum
□ Árborg, Gnúpverjahreppi
□ Þrastarlundur
□ Ölfusborgir
□ Shellskálinn, Stokkseyri
□ Annað______________________
NAFN
KENNITALA__________________________________________
SUMARLEIFISSTAÐUR__________________________________
PÓSTNÚMER______________________SÍMI________________
Utanáskriftin er:
Morgunblabib, áskriftardeild, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
ii