Morgunblaðið - 05.06.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 49
IHX
DIGITAL
mweawmmvímfs,
Myndlistarsýning TOLLI.
). Opnuð kl. 1 um helgar og kl. 2 virka daga
simi 551 9000
SIMI 553 - 2075
FRUMSÝNIIUG: SKÍTSEIDI JARDAR
HX
DIGITAL
Hringiðjan býður þeim sem sjá HACKERS, fria
Internettengingu i mánuð, gegn framvísun miða á
myndina. Frekari upplýsingar veitir Hringiðjan i
síma 525-4468 og tölvupósti infoovortex.is
^p/NPERiSCOf^
Truth,
ABOU T
BRAÐUR BANI
SUDDEN
utffvl H
Nýjasta mynd Van Damme frá leikstjóra
myndarinnar Time Cop. 17.000 gíslar,
milljarða lausnargjald, fullkomin áætlun
og eitt óútreiknanlegt leynivopn.
Sudden Death, ein besta mynd Van
Damme til þessa.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. B. i. 16.
Cereal Killer, Phantom Phreak, Crash Override ... ef
einhver þessara merkja birtast á tölvuskjánum þínum,
þá máttu vita að allt er um seinan - það er búið að
„hakka" þig. Æsispennandi og flókin barátta þar sem
taktíkin byggist á snilli, kunnáttu og hraða!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
Ljúfir draumar lystar
binnar...
...Mcís
Austurstræti 20, Veitingastofa og næturlúga
Veitingastofa og Beint-í-Bílinn, Suðurlandsbraut 56
Saga úr Bronx
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn
BARIST í BRONX
„RUMBLE IN THE
BRONX“ ★
Ix'ikstjóri: Stanley Tong.
Aðalhlutverk: Jackíe Chan, Anita
Mui, Prancoise Yip. Miramax. 1995.
HASARMYNDAKÓNGUR hins
frjósama kvikmyndaiðnaðar í Hong
Kong heitir sem kunnugt er Jackie
Chan. Hann hefur gert tilraun til
að hasla sér völl í Bandaríkjunum
með þessari kínversk/amerísku
kung fu dellu sinni og vist er að
hún er nógu léleg til að hægt er
að hlæja að henni. Enskt tal er
sett á myndina, sem gefur henni
ósvikinn B-mynda blæ, og röð
óvæntra atvika ásamt dásamlega
vondum leikurum í skelfilegum has-
armyndarullum gera Barist í Bronx
að ósviknu furðuverki. Það er hægt
að bera virðingu fyrir Jackie Chan.
Enginn hefur gert jafnlélega mynd
af jafnmikilli ástríðu og hann.
Allt snýst þetta um mótorhjóla-
gengi sem leggur nýbúann Chan í
einelti strax og hann kemur í
Bronxhverfið frá heimalandi sínu.
Hann fær engan frið til að sinna
starfi sínu sem snyrtilegur og verk-
samur innanbúðarmaður í nýlendu-
vöruverslun en er á sífelldum hlaup-
um undan genginu. Það saman-
stendur af glottandi og larfalega
klæddum ómennum svo aumum í
slagsmálum að Chan berst einatt
við a.m.k. fjóra til sex þeirra í
senn.„Þið eruð úrhrök“, hrópar
hann þegar hæst stendur og ratast
satt orð á munn. En öll þau slags-
mál leiða ekki til neins því eins og
fyrir kraftaverk snúa ijandvinirnir
bökum saman gegn enn verri óvini.
Það eru jakkafataklædd illmenni í
demantaleit (ekki spyija) en elting-
arleikurinn við þá endar í hápunkti
myndarinnar, spaugsamri svif-
nökkvaferð um New York borg.
Þetta er formúla sem dugað hef-
ur Chan í hinu fjarlæga austri en
honum gengur ekki sem best að
heimfæra hana á vestræna vísu.
Hinar miklu og óskiljanlegu svipt-
ingar í frásögninni koma aðdáend-
um hans líklega ekki á óvart og
heldur ekki slæmur leikurinn eða
fremur óspennandi hasaratriði sepi
koma á færibandi. Mikill akkin-
þykir í því að Chan framkvæmir
sín áhættuatriði sjálfur og víst er
að hann er mun betri áhættuleikari
en leikari. Barist í Bronx er vond
mynd en unnin af hjartnæmri ein-
lægni og ósviknum áhuga. Hlátur-
inn sem hún vekur er geðþekkur
bónus.
Arnaldur Indriðason
Fimm
ættliðir
BLAÐINU barst fyrir
skömmu þessi mynd af
fimm ættliðum í beinan
kvenlegg. Frá vinstri:
Vilborg Pálsdóttir fædd
1907, Elínborg Stefáns-
dóttir, Guðrún Sigurjóns-
dóttir, Eyrún Björg Guð-
mundsdóttir fædd 1995
og Guðrún Smáradóttir.
Þær eru allar búsettar í
Neskaupstað.
ATh ín l_íne f)etween
[ove
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sýnd kl. 11. B.i. 16.
Martin Lawrence sem
sló eftirminnilega í
gegn í Bad Boys
síðasta sumar, er nú
kominn í glænýjum
grín- og spennu-
sumarsmell. Myndin
hefur notið mikilla
vinsælda í
Bandaríkjunum að
undanförnu.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
B.i. 12 ára.
Jjynn
Whitjield
Martin
Jiawrence
Loks er komið að frumsýningu þessarar mögnuðu grínhrollvekju úr
smiðju félaganna Quentin Tarantion (Pulp Fiction) og Roberto
Rodriguez (Desperado). Pottþéttur bíósmellur um allan heim!
FORÐIST ÖRTRÖÐ - TRYGGIÐ YKKUR MIÐA í TÍMA!
Frábær tónlist úr myndinni fæst á geislaplötu í betri plötuverslunum.
Handrit: Quentin Tarantino.
Aðalhlutverk: Quentin Tarantino, George Clooney (ER),
Harvei Keitel, Juiiette Lewis.
Leikstjóri: Roberto Rodriguez.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Stranglega bönnuð innan 16 ára.