Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 2

Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fyrirhugaður 200 millj. kr. sparnaður í framhaldsskólum Skólameistarar telja tillögur varhugaverðar „Þetta kemur sér auðvitað mjög illa fyrir skólastarfið, ekki síst vegna þess að það hefur verið mikill niður- skurður undanfarið til framhalds- skóia,“ segir Kristín Amalds. Hún minnir á að skólar eins og FB bjóði ekki eingöngu upp á bóknám heldur einnig verknám. Verknámið sé hlut- fallslega dýrara og segir hún að hingað til hafi ekki verið tekið nægi- lega mikið tillit til þess í íjárveiting- um. „Þessi áform hljóta að bitna á nemendum og þeirri þjónustu sem skólinn veitir," segir Kristín. Hún bendir á að skólastarfið sé mjög bundið. Nemendur þurfi að ljúka ákveðnum fjölda eininga til að ljúka námi og ef fækka eigi kennslustund- um hafí það óhjákvæmilega mikil áhrif á námsframvindu. SKÓLAMEISTARARNIR Kristján Bersi Ólafsson í Flensborgarskóla og Kristín Arnalds í Fjölbrautar- skóla Breiðholts telja tillögur menntamálaráðuneytisins um fyrir- hugaðan sparnað ríkisins í rekstri framhaldsskóla um 200 millj. kr. frá fjárlögum yfírstandandi árs var- hugaverðar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun spamaðurinn einkum hafa í för með sér fækkun kennslu- stunda. Að sögn Ásdísar Höllu Bragadóttur, aðstoðarmanns menntamálaráðherra, er útfærsla tillagnanna á vinnslustigi. Hlynntur fækkun af faglegum ástæðum Kristján Bersi kveðst vera hlynnt- ur fækkun kennslustunda í fram- haldsskólum af faglegum ástæðum enda yrði stuðningstímum fjölgað að sama skapi. Hann segir hægt að kanna hvort hægt sé að ná fjárhags- legri hagræðingu með fækkun en hann hafí miklar efasemdir um það. „Ég held að ekki sé hægt að minnka kennslukostnað í fram- haldsskólum. Jafnvel þótt kennslu- stundum væri fækkað verður að halda uppi ýmiss konar stoðþjón- ustu,“ segir Kristján. Hann segir að fyrir hvem tíma sem felldur sé niður verði að fá a.m.k. hálfan til baka í stoðkennslu. „Almennt séð held ég þó að meiri ástæða væri til að auka fjárveiting- ar til framhaldsskóla, jafnvel þótt árferði sé erfítt. Ég held að það muni skila meira fyrir þjóðfélagið," segir Kristján. Kannabisplöntur í kirkjugarði LÖGREGLAN í Hafnarfirði fjar- lægði 192 litlar kannabisplöntur af 11 leiðum í gamla hluta kirkju- garðsins í Hafnarfirði á sunnu- dagskvöld eftir að vegfarandi um garðinn hafði gert lögreglunni viðvart. Gissur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður hjá rannsóknardeild lögreglunnar i Hafnarfirði, segir að engar vís- bendingar hafi komið fram um hverjir hafi staðið að ræktun plantnanna. Gissur segir að lög- reglan hafi aldrei fundið eða fjar- lægt kannabisplöntur sem rækt- aðar hafa verið undir berum himni. Hann segir að gott veður í sumar hafi hugsanlega gert ræktun mögulega. Það var kona sem bar kennsl á plönturnar í garðinum en hún hafði séð mynd af kannabisplöntu sem lögreglan sýndi á foreldrafundi, að sögn Gissurar. Hann segir að fundur konunnar sanni að kynningin hafi verið árangursrík. Lögreglan gekk skipulega um kirkjugarðinn í leit sinni að kannabisplöntum og segir Gissur að plönturnar hafi, með einni undantekningu, vaxið á leiðum sem voru ekki mjög vel hirt. Úrval-Útsýn hyggur á sókn í Svíþjóð Opnar ferðaskrif- stofu í Stokkhólmi SIGFÚS Erlingsson, forstöðumaður hjá Flugleiðum, hefur látið af störfum sínum hjá Flugleiðum og hefur verið ráðinn tii þess að taka að sér stofn- un, stjórn og uppbyggingu ferðaskrif- stofu Úrvals-Útsýnar í Stokkhólmi, auk þess sem hann mun stjóma ferða- skrifstofum fyrirtækisins sem fyrir eru í Kaupmannahöfn og Osló. Sigfús sagði að hann væri lánaður til þessa starfs frá Flugleiðum en ekki hefði verið ákveðið til hve langs tíma. Hann væri því enn starfsmaður Flugleiða. „Mitt verkefni er það að stofna ferðaskrifstofu og ferðaheild- sölu í Svíþjóð og taka yfír rekstur ferðaskrifstofu Urvals-Útsýnar sem fyrir er í Danmörku og hefur verið þar í tæp fjögur ár og ferðaskrif- stofu fyrirtækisins í Osló, sem þar hefur verið í eitt og hálft ár.“ Sigfús segir að til að byrja með verði þrír starfsmenn á hverri ferða- skrifstofu en hann geri ráð fyrir ijölgun starfsmanna innan tíðar. Áðspurður hvað eigendur Úrvals- Útsýnar hefðu í huga með opnun enn einnar ferðaskrifstofu á Norðurlönd- um, sagði Sigfús: „Þeir eru m.a. að styrkja sína innkomudeild með þess- ari ráðstöfun. Norðurlöndin og sér- staklega Svíþjóð hafa verið nokkuð sterk á því sviði. Sérferðir til ís- lands, ráðstefnuhald hér á landi og þess háttar, verður meðal þess sem við munum leggja áherslu á í starf- seminni og reyna að efla enn frekar.“ Sigfús sagðist auk þess mundu beita sér fyrir því að reynt yrði að auka sölu á ferðum Flugleiða frá Norðurlöndunum vestur til Banda- ríkjanna. Myndlistarsýning í Síðumúlafangelsi MYNDLISTARSÝNING í Síðu- múlafangelsinu er nú í undirbún- ingi og er ætlunin að opna hana um miðjan nóvember næstkom- andi. Illugi Eysteinsson, mynd- listarmaður, vinnur að skipulagn- ingu sýningarinnar og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að fangelsið hefði staðið autt í sum- ar. Hann segist hafa haft sam- band við fangelsismálayfírvöld og fengið leyfí til að setja upp sýn- inguna. Illugi sagði að fjórtán myndlist- armenn myndu sýna í fangelsinu. „Hver listamaður fær einn klefa til umráða og ég er að vonast til að þeir muni allir vinna verk sér- staklega inn í sinn klefa. Þetta er svo sterkt rými að það er eigin- lega ekki hægt að hengja upp ein- hver landslagsmálverk þarna.“ HERINN’BUKT HERINNBUfiT ÆfSi&i rmfí’ HEIlWiaWf: j Morgunblaðið/Ámi Sæberg HÓPUR fólks mótmælti komu herskipanna á Miðbakkanum síðdegis í gær. 5.000 sjóliðar í Reyldavík NÍU herskip á vegum NATO komu hingað til lands í gær. Með skip- unum eru 5.000 bandarískic og kanadískir sjóliðar. Hjörleifur Hjörleifsson, umboðsmaður Eim- skips, segir að sjóliðarnir séu afar jákvæðir gagnvart heimsókninni. „Þeir hafa lýst yfir ánægju með móttökumar hér. Allt hefur geng- ið snurðulaust fyrir sig og eins og gert er ráð fyrir,“ sagði hann. Hann sagði að sjóliðarnir myndu gera sér ýmislegt til skemmtunar hér á landi. Vinsælt væri að fara í styttri skipulagðar ferðir, t.d. í Bláa lónið, og 30 bílaleigubílar hefðu verið leigðir til sjálfstæðra ferðalaga. Sjóliðarnir verða borg- aralcga klæddir hér á landi. Fyrstu herskipin komu til Iands- ins um kl. 6 í gærmorgun. Öll vom skipin svo komin hingað um kl. 15. Þijú skipanna liggja við Sundahöfn, tvö í Reykjavíkurhöfn og þijú við ytri höfnina. Eitt ligg- ur í Helguvík. Skipin koma frá Halifax og halda héðan hvert í sína áttina á föstudag. Almenningi gefst kostur á að skoða eitt skipanna í Sundahöfn í dag og á morgun mill kl. 10 og 12 og 13 og 17. Friðsamleg mótmæli Hópur fólks mótmælti komu herskipanna á Miðbakkanum síð- degis í gær samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar í Reykjavík. Mótmælin fóru friðsamlega fram. OfiUÐjÐ MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá BYKO. Staðínn að verld við meint brot gegn tveggja ára bami KARLMAÐUR á fertugsaldri hefur verið kærður fyrir meint kynferðisafbrot gegn tveggja ára gömlu bami aðfaranótt sunnudags í ísafjarðarbæ. Maðurinn var handtekinn skömmu eftir að lögregl- unni barst tilkynning um að komið hafí verið að honum með baminu í heimahúsi. Héraðsdómur Vestfjarða hafnaði kröfu um gcésluvarðhald á sunnudag. Rannsóknardeild lögreglunnar á ísafírði rann- sakar máiið en að sögn Ólafs Helga Kjartansson- ar, sýslumanns á ísafírði, er m.a. verið að ganga úr skugga um hvort maðurinn hafí átt við annað barn, sem er fjögurra ára gamalt. Börnin vom bæði flutt til Reykjavíkur til rannsóknar á Lands- spítalanum og er niðurstaðna úr læknisrannsókn- um beðið. Kröfu um gæsluvarð- hald hafnað Krafíst var úrskurðar um gæsluvarðhald yfir manninum á sunnudagkvöld. Samkvæmt upplýs- ingum frá Héraðsdómi Vestfjarða var krafa um gæsluvarðhald byggð á 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála. Þar segir að úr- skurða megi mann í gæsluvarðhald „ef sterkur grunur er um að hann hafí framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna." Kröfunni var hafnað á þeim forsendum að skilyrði sem tilgreind eru í lagagreininni hafí ekki verið uppfyllt. Úrskurður héraðsdóms verður ekki kærður til Hæstaréttar að sögn Ólafs Helga. Að sögn rannsóknarlögreglumanna á ísafírði hefur maðurinn ekki, svo vitað sé, áður tengst kynferðisafbrotamálum. Maðurinn var talsvert ölvaður þegar hann var handtekinn. Að rannsókn lokinni verður málið sent til ríkis- saksóknara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.