Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 8

Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR JGi'AvND* NUNA getum við alveg hrópað ferfallt húrra fyrir yður hr. forseti án þess að hafa PUNKT á milli. Arsskýrsla Félagsmálastofnunar fyrir 1995 Útgjöld hækkuðu um 17,9% milli ára REKSTRARÚTGJÖLD Félagsmála- stofnunar hækkuðu um 17,9% milli áranna 1994 og 1995 samkvæmt ársskýrslunni 1995. Það ár var ráð- stöfunarfé stofnunarinnar 2.108 milljónir króna en hafði verið 1.788 milljónir árið 1994. Fjárhagsaðstoð nam 682.503 miiijónum árið 1995 en 540.172 milljónum árið 1994. Til starfsemi í þágu aldraða var varið 644.409 milljónum árið 1995 en 560.834 milljónum árið 1994. í ársskýrslunni kemur fram að á hverfaskrifstofum fjölskyldudeildar, sem eru þrjár í borginni, hafi verið sinntsamtals 4.110 málum árið 1995 og er það 17,1% aukning frá árinu 1994. Stærsti skjólstæðingahópur hverfáskrifstofanna voru einhleypir karlar, eða 34%, en einhleypar konur með börn voru 30% og einhleypar konur án bama voru tæp 20%. Nýjar reglur Árið 1995 voru teknar upp nýjar regiur um afgreiðslu fjárhagsaðstoð- í TILEFNI af þeim tímamótum sem nú eru að verða í skólamálum Reykjavíkurborgar við flutning grunnskóla frá ríki til Reykjavíkur og stofnun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er öllum starfsmönnum grunnskóla Reykjavíkur, 2.200 tals- ins, boðið til kynningarfundar um Fræðslumiðstöð í Laugardalshöll í dag. A fundinum verður kynnt hlutverk Fræðslumiðstöðvar, skipulag hennar og verkefni. Tilgangur fundarins er jafnframt að bjóða nýja starfsmenn ar sem fela í sér að stærsti hluti þeirra er greiddur út á hverfaskrif- stofunum. Fjárhagsaðstoð var veitt í 3.213 málum árið 1995 en í 2.621 máli árið 1994 og er aukning milli ára 22,6%. Hæstur meðalstyrkur var greiddur til hjóna og sambýlisfólks með eitt bam eða börn en lægstur til einhleypra kvenna. f tæplega 52% málanna var fjárhagsaðstoð veitt í þijá mánuði eða skemur en í rúmlega 8% var hún veitt í tíu mánuði eða lengur. Af þeim sem nutu fjárhags- aðstoðar voru 64% atvinnulausir, 13% voru í launaðri vinnu, 16% örorkulífeyrisþegar, 4% sjúklingar og 4% nemar. Rúm 4 þús. mál Árið 1995 voru 4.110 mál til með- ferðar á hverfaskrifstofunum en þær annast þjónustu við borgarbúa að 67 ára aldri. Meginhluti bamavernd- arstarfs fer fram á hverfaskrifstofum og voru tekin fyrir mál 1.703 barna- fjölskyldna árið 1995. Barnafjöldi í velkomna til starfa hjá borginni. Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, ávarpar fundinn, Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri flytur er- indi og forstöðumenn þjónustu-, þró- unar- og rekstrarsviðs á Fræðlumið- stöð þau Arthúr Morthens, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir og Ólafur Darri Andrason kynna þjónustu hvers sviðs fyrir sig. Loks ávarpar Sigrún Magn- úsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, fundinn. Tónlist verður flutt og að lokum verður boðið upp á kaffiveitingar. fjölskyldunum var 2.990. í árskýrsl- unni kemur fram að langflest barna- verndarmál era unnin af starfsmönn- um fjölskyldudeildar í samvinnu við foreldra og koma ekki til umfjöllunar í barnaverndarnefnd. Fram kemur að bakvakt er sinnt af starfsmönnum íjölskyldudeildar um helgar og á helgidögum vegna barnaverndar- mála. Árið 1995 sinnti bakvaktin 140 erindum, sem snertu 170 börn, en árið 1994 bárust 87 tiikynningar vegna 129 barna. Aukningin er því rúmlega 60% milli ára. Hverfaskrifstofur og unglinga- deild sinna einnig málum þar sem grunur leikur á kynferðisafbrotum gegn börnum eða unglingum og bár- ust samtals 35 erindi vegna barna á árinu 1995, þar sem grunur lék á kynferðisbroti. Rúmlega helmingur var kærður til rannsóknarlögregl- unnar. Meðalstyrkur 64 þús. Öldrunarþjónustudeild Félags- málastofnunar annast félagslega þjónustu við aldraða Reykvíkinga. Helstu verkefni deildarinnar eru fjár- hagsaðstoð, ráðgjöf, leiðbeiningar og fræðsla ásamt félagslegri heimaþjón- ustu, matarþjónustu og aðstoð við böðun. Skipulagðar eru orlofs- og sumarferðir, uppbygging og rekstur félags- og tómstundastarfs aldraða, húsnæðis- og vistunarmál, rekstur leiguíbúða, þjónustuíbúða og hjúkr- unar- og vistheimila fyrir aldraða. Árið 1995 fengu 319 aðilar aðstoð hjá félagsráðgjafasviði öldranarþjón- ustudeiidar. Fjárhagsaðstoð fengu 202 eða 63,3% og var meðalstyrkur- inn á ári rúmar 64 þús. Af þeim sem báðu um aðstoð var 31% yfir átt- rætt. í skýrslunni kemur einnig fram að 113 nýjar umsóknir bárust um íbúðir fyrir aldraða frá 95 einstakl- ingum en í áfslok voru umsóknir um íbúðir 419. Á árinu var úthlutað 44 íbúðum, þar af 27 í vernduðum leigu- íbúðum, en borgin rekur samtals 164 verndaðar leiguíbúðir fyrir aldraða. Kynning á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur 2.200 manna fund- ur í Laugardalshöll Margir í erfiðleikum með lestur og skrift Brýnt að greiiia dyslexíu snemma Margrét Sigrún Sigurðardóttir MARGRÉT Sigrún Sigurðardóttir er formaður ís- lenska Dyslexíufélagsins. Dyslexía er sértækir lestr- ar- og skriftarörðugleikar sem hafa verið kallaðir les- og skrifblinda. Félagið var stofnað þann 23. ágúst árið 1994. Hvert er markmið þessa félagsskapar? - Markmið félagsins er að veita upplýsingar til fólks með dyslexíu, for- eldra og kennara. Hið eig- inlega markmið er að bæta aðstöðu barna með dyslex- íu í skóla með því að auka skilning á vandanum og hvetja til þess að úrræði verði fundin bæði almennt séð og fyrir hvern og einn einstakling. Við vildum helst að allir grunnskóla- nemar verði greindir sem fyrst í grunnskólanámi til þess að hægt verði að hægt verði að koma til móts við vandamál þeirra strax í upphafi náms og koma þannig í veg fyrir að vandamálið verði ill- viðráðanlegt. Er þetta vandamál margra? - Erlendar rannsóknir sýna að 4 til 10% manna séu með dyslexíu og engin ástæða er til að ætla annað en að hlutfallið sé svipað hér á landi. Ef við heimfærum þá tölu á bekk í skóla má ætla að 2 til 3 nemendur séu með dysiexíu. Hvers vegna notið þið ekki gamla orðið lesblinda yfir þennan vanda? - Við teljum orðið lesblinda vill- andi. Dyslexía er ekki eingöngu lestrarvandamál heldur einnig stafsetningarvandamál. Auk þess sem síðari hluti orðsins lesblinda leiðir til ályktunar um að dyslexía tengist augunum sem hún gerir ekki. Af hverju stafar dyslexía? - Dyslexía stafar af tauga- fræðilegum orsökum. Svo virðist vera að heilafrumur í fólki með dyslexíu raði sér ekki eins upp og þær gera í öðru fólki. Lestrarstöð hjá því er ekki samansöfnuð á einum stað í öðru heilahveli heldur er dreifð um bæði heilahvel. Er dysiexía ættgeng? — I 75% tilvika finnast fleiri en einn einstaklingur í fjölskyldu með dyslexíu. Erfitt er að vita í hinum 25% hvort allir í þeim fjölskyldum séu algerlega lausir við dyslexíu eða vilji ekki viðurkenna að eiga við þann vanda að stríða. Það þykir því sannað að dyslexía sé arfgeng. Eru til úrræði sem koma að veru- legu liði? - Það eru ekki til neinar krafta- verkalausnir. Dyslexían verður ekki læknuð. Hins vegar er hægt að vinna á einkennunum og lifa eðlilegu lífi með dyslexíu. Barn sem á erfitt með að læra að lesa getur lært að lesa með mikilli hvatningu, það þarf að gera barninu ljóst að vegna dyslexíunnar þurfi það að leggja helmingi harðar að sér en önnur börn til þess að ná þokkalegum árangri. Þess þarf að gæta að hrósa barninu fyrir hvert skref sem það tekur fram á við. Börn með dyslexíu missa gjarn- an móðinn þegar þau sjá að þau standa bekkjarfélögum sínum að baki í lestri og skrift. Kennarar og foreldrar skilja heldur oft ekki við hvaða vanda barnið á að etja og auðvelt er að skýra hæga fram- för með leti eða heimsku. Sjálfs- mynd slíkra barna er því oft mjög brotin. Úrræði felast því fyrst og fremst í hvatningu og stuðningi, ► Margrét Sigrún Sigurðar- dóttir er fædd í Reykavík árið 1972. Hún lauk stúdentsprófi á náttúru- og félagsfræðibraut frá Menntaskólanuni í Kópa- vogi 1992 og er um það bil að ljúka B.A.-prófi i heimspeki við Háskóla Islands. Hún starfar sem aðstoðarmaður dagskrár- stjóra við Stöð 3. Hún er ógift og barnlaus. bæði frá foreldrum og kennurum. Þegar lengra lætur er hægt að nota ýmis hjálpartæki til þess að yfirvinna hægan lestur og staf- setningarörðugleika. Hljóðbækur eru góð hvíld frá því að lesa sjálf- ur og leiðréttingaforrit á tölvum geta hjálpað við að skrifa sæmi- legan réttan texta. Eru margir í Dyslexíufélaginu? - Félagar eru nú yfir 260, sem er mikið samanborið við fjölda félaga í öðrum slíkum félögum erlendis. Félagið er með opinn símatíma á mánudagskvöldum milli klukkan 20 og 22. Opið hús er fyrsta laugardag í hvetjum mánuði. Þá gefst fólki tækifæri til að koma og spjalla, fá upplýs- ingar og þiggja kaffisopa. Félagið gefur út fréttabréf og heldur fræðslufyrirlestra. Hefur félagið mikil samskipti við sambærileg félög erlendis? - Frá upphafi hefur félagið átt í miklum samskiptum við norrænu dyslexíufélögin og breska félagið. Við höfum meðal annars fengið fyrirlesara frá Bretlandi og Noregi til að koma og halda fyrirlestra hér á landi. Um síðustu helgi kom Solveig Alma Lyster til landsins og fjall- aði um fyrirbyggjandi aðgerðir við dyslexíu á ráðstefnu sem félagið, ásamt Námsráðgjöf Háskóla ís- lands og Endurmenntunardeild Kennaraháskóla Islands, stóð fyr- ir. Félagið er einnig í Evrópusam- starfi en það sótti um styrk til Leonardo- sjóðsins til kennslu- gagnagerðar og próf- unar á þeim gögnum. Verkefnið er unnið í samstarfi við sambæri- leg félög í Danmörku, Spáni og Bretlandi. Verkefnið ber titilinn Stuðningur við ungt fólk með dyslexíu í starfsnámi. Getur haft alvarlegar afleiðingar ef fólk er ekki greint með dyslex- íu á barnsaldri? - Það hefur óneitanlega áhrif á sjálfsmynd einstaklings. Honum gefst ekki eins gott tækifæri til að nota hæfileika sína. Það hafa verið dæmi þess erlendis að fólk hafi kært skólakerfið fyrir van- rækslu á þessu sviði sem leitt hafi til menntunarskorts og at- vinnuleysis síðar á ævinni. Hrósa þarf barninu fyrir hvert skref fram á við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.