Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 9
FRÉTTIR
íslenska útvarpsfé-
lagið heldur upp á tíu
ára afmæli sitt
Tónleikar,
dagskrárbrot
og 10.000
manna
afmælisterta
í TILEFNI af tíu ára afmæli sínu
í dag, miðvikudaginn 28. ágúst,
býður íslenska útvarpsfélagið til
veislu á Hótel Borg, Hard Rock
Café og á Ingólfstorgi. Verður dag-
skránni útvarpað og sjónvarpað
beint á Bylgjunni og Stöð 2.
Dagskráin hefst á Hótel Borg
klukkan 7, þar sem gestum og
gangandi verður boðið til morgun-
verðar og umræðna undir stjórn
Margrétar Blöndal og Þorgeirs Ást-
valdssonar. Óvæntir gestir koma í
heimsókn og dagskráin verður í
beinni útsendingu á Stöð 2 og
Bylgjunni.
Klukkan 9 taka Gunnlaugur
Helgason og Hjálmar Hjálmarsson
við stjórntaumunum og bjóða meðal
annars til hamborgaraveislu fyrir
1.000 manns á Hard Rock Café
milli klukkan 11 og 13. Bein útsend-
ing verður á Stöð 2 og Bylgjunni.
Frá klukkan 13-16 verður litið
yfir farinn veg á Bylgjunni með
stjórnmálamönnum, gömlum þátta-
gerðarmönnum og öðrum gestum í
sérstakri dagskrá helgaðri afmæl-
inu.
Tíu þúsund manna afmælisterta
verður á boðstólum á Ingólfstorgi
milli klukkan 16 og 19 og hátíðarút-
gáfa af íslandi í dag verður send
þaðan út frá klukkan 18.
Útitónleikar hefjast jafnframt á
Ingólfstorgi klukkan 18 og standa
til klukkan 22. Fram koma Stjórnin
og Björgvin Halldórsson, Vinir vors
og blóma, Bubbi Morthens, Emil-
íana Torrini og Jón Ólafsson, SSSól
og Greifarnir. Bein útsending verð-
ur á Bylgjunni.
Afmælisfréttir verða sendar út á
Stöð 2 klukkan 19.30 og hálfri
klukkustund síðar hefst þáttur
helgaður sögu Islenska útvarpsfé-
lagsins. Rifjuð verða upp minnis-
stæð brot úr dagskrá Stöðvar 2 og
Bylgjunnar. Spekingar spjalla og
sagnfræðilegar vangaveltur verða
um þær þjóðfélagsbreytingar sem
urðu í kjölfar afnáms einkaréttar á
rekstri ljósvakamiðla og margt
fleira. Þá verður boðið upp á
skemmtiatriði. Útsendingunni lýkur
klukkan 22.30.
FRANSKAR DRAGTIR
EINHNEPPTAR OG TVÍHNEPPTAR
TESS
v neð
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
MaxMara____________
Útsölunni lýkur á föstudag
Hverfisgata 6-101 Reykjavík - s.562 2862
Hjá •kknr sfáii þið
tanásim mssta úrvaí
af fallsgum húsgognum.
Húsgögn frá Danmörku, Sviþjóð, Ameriku,
Þýskalandí, Spáni, Ítaliu ofl. = Alþjóðlegt úrval.
eldhusið, borðstofuna,
sól-
nn. svefnherberaið,
barna og unglingaherbergin.
-Leitið ekki langt yfir skammt
t»vi hjá okkur er urvalið
jölbreytt og gæðin vís.
HÚSGAGNAHÖLLIN
IJílcMiitlOi 2(1 - 112 Rvik - S:587 1100
Nýjar vörur
Dragtir, ullarjakkar, síðbuxur
Tískuskemman
Bankastræti 14, sími 561 4118.
r
v
IWKOMIÐ
Undirfatasett í zebra- og hlébarðamunstri.
Stærðir: 34-36 A, B og C
Verð kr.
1.995
Síðustu dagar útsölunnar
Enn meiri verðlækkun
Póstsendum
NY SENDING
Stretsbuxur frá
CULctojUé
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Tilboð óskast
TOPPEIIUTAK MEÐ ÖLLU
Grand Cherokee
Limited 5,2, V8, árg. '93.
Dökkgrænn, sjálfskiptur,
rafm. í öllu,
leðurinnrétting, ABS,
Airbag, fjarstýrð þjófavörn,
spoiler að aftan,
aksturstölva, uppýsinga-
tölva, hraðastillir,
loftkæling, litað gler,
Chrysler sound system
þ.m.t. geislaspilari og 10
hátalarar o.m.fl. Einn
eigandi frá upphafi.
Þjónustubók, skoðaður ‘98.
Gott stgr. verð eða skipti á ódýrari.
Upplýsingar í síma 897 4800 eða 551 2772.
Átt þú spariskírteini í 2.fl. D 1988,8 ár,
sem nú eru tfl innlausnar?
Hafðu samband og fáðu alla aðstoð við innlausnina.
• Mánudaginn 2. september 1996 koma til innlausnar spariskírteini ríkissjóðs í 2. fl. D 1988,
8 ár, með lokagjalddaga 1. september.
• Útboð á nýjum spariskírteinum fer fram 28. ágúst og með þátttöku í útboðinu geta eigendur
innlausnarskírteinanna tryggt sér bestu mögulegu vexti á nýjum spariskírteinum.
• í útboðinu verða í boði verðtryggð spariskírteini til 5, 10 og 20 ára og 10 ára Árgreiðsluskírteini.
• Komdu núna með innlausnarskírteinin, nýttu þér þjónustu og ráðgjöf sérfræðinga okkar
og láttu þá aðstoða þig við tilþoðsgerð í ný spariskírteini.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hvcrfisgötu 6,2. hæö 150 Reykjavík, sími 562 6040, fax 562 6068
Spariskírteini - val þeirra sem hafa sitt á hreinu