Morgunblaðið - 28.08.1996, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.08.1996, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján FLUTNINGAMIÐSTÖÐ Norðurlands hefur keypt bifreiðaverkstæðið Þórshamar við Tryggvabraut af KEA og VIS og mun flytja starfsemi sína þangað. Félagið hefur þess vegna hætt við að byggja undir starfsemi sína á vöruhafnarsvæðinu eins og til stóð. Flutningamiðstöð Norðurlands ehf. Kaupir Þórshamar af KEA og VÍS SAMKOMULAG hefur tekist milli Flutningamiðstöðvar Norðurlands ehf. annars vegar og Kaupfélags Eyfirðinga og Vátryggingafélags Islands hf. hins vegar um kaup FMN á hlut félaganna í bifreiðaverkstæð- inu Þórshamri hf. á Akureyri. KEA á ríflega helmingshlut í Þórshamri og saman eiga KEA og VÍS um 99% hlutafjár. Ekki hefur enn verið skrif- að undir kaupsamning en gert er ráð fyrir að FMN taki við rekstrinum um næstu mánaðamót. Þórarinn Ivarsson, framkvæmda- stjóri FMN, segir að öll starfsemi félagsins verði flutt í húsnæði Þórs- hamars við Tryggvabraut og þar verði öll vöruafgreiðsla. Félagið verður þó áfram með gámavöll við Togarabryggjuna. „Staðsetningin við Tryggvabraut er mjög góð fyrir vöruafgreiðsluna að okkar mati, þar er aðgengi gott og stór og mikil lóð.“ Húsnæði Þórshamars er um 2.400 fermetrar og segir Þórarinn að strax í haust verði byggð 300-400 fer- metra viðbygging til norðurs. Þórs- hamar rekur í dag bílaverkstæði, varahlutaverslun, bílaverslun, bú- vélasölu og þjónustu við búvélar og bændur. „Það verður áfram rekið öflugt bílaverkstæði í hluta hússins en við stefnum að því að selja þann rekstur frá okkur. Við munum einnig selja frá okkur aðra þætti og varahluta- verslunin, lagerinn og þjónustudeild- in munu fara úr húsnæðinu. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörð- un um sölu á bílaumboðunum," seg- ir Þórarinn. Þegar er ljóst að Bygg- ingavörudeild KEA tekur yfir rekstr- arvörur fyrir bændur og flytur þann þátt á Lónsbakka. Taprekstur síðustu ár Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri segir að Þórshamar hafi verið rekið með einhverju tapi síð- ustu ár. „Þetta félag hafði byggt upp góða stöðu og mikið eigið fé, þannig að það þoldi þennan taprekst- ur án þess að eitthvað þyrfti að koma til. Það var 'hins vegar mat okkar að heppilegt væri að selja á þessum tímapunkti. Jafnvel þótt eitt- hvað sé farið að rofa til í greininni, með auknum bílainnflutningi og umsvifum í kringum hann,“ sagði Magnús Gauti. Flutningamiðstöð Norðurlands fékk nýlega úthlutað um 10.000 fer- metra lóð á vöruhafnarsvæðinu, ofan Tangabryggju. Þórarinn segir að félagið muni í kjölfar kaupanna á Þórshamri aðeins taka um helming lóðarinnar undir starfsemi sína. Hann segir að hætt sé við áform um að byggja húsnæði á vöruhafn- arsvæðinu en þar verði gáma- geymsla og aðstaða fyrir löndunar- þjónustu. Dagskrá um Davíð í Davíðshúsi AÐALSTEINN Bergdal hefur tekið saman dagskrá um skáldið Davíð Stefánsson sem hann flytur í Dav- íðshúsi við Bjarkarstíg á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 28. ágúst kl. 20.30 en hún verður síðan endurflutt á sama tíma á föstudags- kvöld og á laugardag, 31. ágúst kl. 17. „Kvæði mín eru blóð af rnínu blóði, sál af minni sál og hvítt og svart eru mínir litir,“ er yfir- sknft dagskrárinnar. í hugum margra er Davíð síðasta þjóðskáld íslendinga og Sigurður Nordal orðaði það svo að ferill hans hafí verið hreinasta aladdínsævin- týri í samanburði við hlutskipti flest- allra eldri íslenskra skálda. Davíð orðaði tilfinningar og þrár kynslóðar sinnar í heitum og ástríðufullum ljóðum; tungutak hans var nýstár- legt, viðfangsefnin mörg hver fram- andi og í hæsta máta ögrandi. Ljóð hans lifa á hvers manns vörum enn í dag. Dagskráin ætti að höfða jafnt til þeirra sem vilja efla kynnin við Davíð Stefánsson og skáldskap hans og þeirra sem þekkja hann gjörla og þrá af honum sífelld kynni. Morgunblaðið/Kristján Halldór Ingólfsson besti leikmaðurinn HAUKAR sigruðu á sex liða hrað- móti í handbolta á Akureyri um helgina, eins og fram kom í Morg- unblaðinu. í lokahófi í mótslok voru jafnframt veittar viðurkenn- ingar til einstaklinga fyrir góðan árangur á mótinu. Halldór Ingólfs- son, Haukum var valinn besti leik- maður mótsins, Julian Robert Duranona, KA var valinn besti sóknarmaðurinn, Finnur Jóhanns- son, Selfossi besti varnarmaður- inn, Hailgrímur Jónasson, Selfossi besti varnarmaðurinn og Þorleifur Ananíasson, fékk viðurkenningu fyrir dómgæslu á mótinu. Þá fékk Valdimar Grímsson, Stjörnunni sérstaka viðurkenningu, forláta skammbyssu á stalli, fyrir hreint ótrúlegt skotæði allan sinn keppn- isferil. Með þeirn á myndinni er Gústaf Bjarnason, fyrirliði Hauka með sigurlaunin. Það var Hörður Davíð Harðarson, liðsstjóri Hauka sem veitti viðurkenningu Halldórs viðtöku en aðrir voru viðstaddir. Fyrir aftan hópinn stendur Krist- ján Sverrisson, stjórnarmaður í handknattleiksdeild KA. Morgunblaðið/Kristján HOPUR fatlaðra sænskra ferðamanna hefur verið á hringferð um ísland siðustu daga. I blíðskapar- veðri í gær fór hópurinn og skoðaði Lystigarðinn á Akureyri. leiðin til Siglufjarðar þar sem m.a. var litið inn á Síldarminjasafnið. í dag verður hópurinn í Stykkishólmi og verður farið í siglingu um Breiðafjörð, en þaðan verður ekið í Borgarfjörð og um Kaldadal. „Þetta hefur verið afskaplega ánægjuleg ferð og við höfum ekki rekist á neinar hindranir sem ekki hefur verið hægt að yfirstíga," sagði Tyra Anderson. „Við höfum ferðast víða um lönd, en hvergi fundið fyrir eins góðu viðmóti og hér á íslandi, þjónustan sem við höfum fengið er alveg frábær." bætti Lars við. Enginn eftir í bílnum Níu í hópnum eru í hjólastól og sex komast leiðar sinnar með aðstoð göngugrindar. í þeim ferðum sem hópurinn hefur áður farið hefur það fólk sem ekki kemst auðveldlega leiðar sinnar setið eftir í rútunni á meðan hinir fara út og skoða sig um. Með aðstoð lyftunnar og hins knáa bílstjóra Hannesar Hákonar- sonar og fieira fólks tekur nú aðeins um tíu mínútur að koma öllum far- þegunum út. Göngustígar og útsýn- ispallar, sem gerðir hafa verið við fjölsótta ferðamannastaði, auðvelda fólkinu aðkomuna. „Við komumst öll út að skoða þessa merkilegu staði, nú þurfum við ekki að skilja neinn eftir í bílnum,“ sögðu þau Lars og Tyra. Þau hefðu í upphafi verið dálítið smeyk, þegar vegakerf- inu og náttúrunni var lýst töldu þau fullvíst að margskonar vandamál kæmu upp. „En við höfum aldrei upplifað annað eins, ævintýri.“ Hópur fatlaðra sænskra ferðamanna í hringferð um landið F erðin ævin- týri líkust TUTTUGU og fjórir fatlaðir sænsk- ir ferðamenn hafa verið á hringferð um ísland síðustu daga. Þeir ferð- ast um í sérútbúnum langferðabíl frá Hópferðaþjónustu Reykjavíkur, en í honum er sérstök lyfta sem hífir það fólk sem er í hjólastólum inn í bílinn og úr honum. Farar- stjóri hópsins er Jón Örn Kristleifs- son. Engar hindranir „Við verðum hér í níu daga,“ segir Lars Eklund, einn sænsku ferðalanganna, en hann og Tyra Anderson ræddu við Morgunblaðið í Kjarnalundi, hóteli í Kjarnaskógi við Akureyri. Eitt af fyrstu verkum hópsins við komuna til landsins var að baða sig í Bláa lóninu, en síðan hefur ýmislegt á dagana drifið, þau hafa farið til Vestmannaeyja þar sem farið var í siglingu og þá var farið í Þórsmörk og grillað. Ekið var norður Kjöl og komið við á Hveravöllum. Á mánudag var hóp- urinn í Mývatnssveit, en í gær lá HANNES Hákonarson hjá Hópferðarþjónustu Reykja- víkur er með sérútbúinn bíl með lyftu sem gerir fötluð- um auðvelt að komast inn í rútuna og úr henni. Hér aðstoðar hann einn hinna sænsku ferðalanga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.