Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 17
Hugðust
sprengja
12 þotur
BANDARÍSKIR rannsóknar-
menn segja að þrír múslimskir
öfgamenn, sem handteknir
voru á Filippseyjum, hafi haft
í hyggju að sprengja alls 12
bandarískar farþegaþotur í
fyrra og haft til þess nægilega
tækniþekkingu og vilja. Var
ætlunin að sprengja á tveggja
sólarhringa fresti og ljóst að
þúsundir manna hefðu getað
farist. Upp komst um mennina
fyrir tilviljun vegna þess að
eldur varð laus í íbúð þeirra í
Manila.
Barnaníðing-
ur ákærður
ÁSTRALÍUMAÐUR á áttræð-
isaldri hefur verið ákærður í
Brisbane fyrir að hafa alls 850
sinnum misnotað átta börn á
aldrinum 13 til 16 ára. Elstu
brotin eru frá sjöunda ára-
tugnum en að auki hefur mað-
urinn verið sakaður um sams
konar glæpi í Tælandi árin
1994 og 1995.
*
Ovissa um
fylgi Chiracs
KÖNNUNUM í Frakklandi ber
ekki saman um stuðning við
Jaeques Chirac forseta. í könn-
un BVA-stofnunarinnar kemur
fram að 46% kjósenda séu mjög
ánægð með forsetann en í
könnun sem CSA-stofnunin
gerði fyrir vikublaðið La Vie
hlaut hann aðeins 41%.
Karl hætti við
giftingará-
form
KARL Bretaprins og Díana eru
nú ekki lengur hjón, skilnaður
þeirra gengur í gildi í dag og
má prinsinn
þá lagalega
séð giftast
vinkonu
sinni, Camillu
Parker Bow-
les. Kirkju-
leiðtogar og
margir
stjórnmála-
Karl prins menn hvetja
hann til að
hverfa frá slíkum hugmyndum
og meðal almennings virðist
einnig sem nýtt hjónaband
muni ekki auka vinsældir
Karls.
Dómstóll
hindrar
brottvísun
DÓMSTÓLL í París kom í veg
fyrir að þrem innflytjendum frá
Áfríkulöndum, er tóku þátt í
52 daga mótmælasvelti til að
fá að dvelja áfram í Frakk-
landi, yrðu sendir til heimkynna
sinna. Óeirðalögregla sl5 hring
um dómshúsið er fjallað var
um mál mannanna og um 80
annarra Afríkumanna sem
hraktir voru úr kirkju sl. föstu-
dag. Þeir höfðu lokað sig inni
til að leggja áherslu á kröfur
um landvistarleyfi. Franskir
ráðamenn saka stjórnvöld í
Afríkulöndum um að gera ekk-
ert til að draga úr fólksflutn-
ingum til Evrópuríkja og eink-
um Frakklands.
Friðarhorfur í Mið-Austurlöndum
Sýrlendingar vilja viðræður
Damaskus. Reuter.
AMR MOUSSA, utanríkisráðherra
Egyptalands, greindi frá því í gær
að Sýrlendingar væru reiðubúnir
til friðarviðræðna við ísraela í
Washington. Tilkynnti Moussa um
þetta að loknum fundi sínum með
Assad Sýrlandsforseta í Damaskus
í gær.
„Ég get tjáð ykkur eindregin
vilja Sýrlendinga til þess að halda
áfram friðarumleitunum innan þess
ramma fyrirheita og grundvallar-
atriða sem samið var um,“ sagði
Moussa við fréttamenn, og vísaði
til þeirra skilyrða að Israelar láti
af hendi land fyrir frið við ná-
grannaríkin.
Ríkisstjórn Benjamins Netanya-
hus, forsætisráðherra ísraels, hefur
hafnað þessu skilyrði, sem fyrri
stjórn Yitzhaks Rabins og síðar
Shimonar Peres fylgdi.
Utanríkisráðherra Sýrlands,
Farouq al-Shara, tók undir orð
Moussa og sagði Sýrlendinga reiðu-
búna til viðræðna við ísraela. Sagði
hann nokkurn árangur hafa náðst
í viðræðum við fyrri ríkisstjórn í
ísrael og taka ætti upp þráðinn þar
sem frá hefði verið horfið.
Friðarviðræður milli ísraela og
Sýrlendinga, með milligöngu
Bandaríkjastjórnar, hafa lengi
strandað á deilum um Gólanhæðir,
sem ísraelar hertóku í sexdaga-
stríðinu 1967 og hafa haldið síðan.
Til sölu
Honda fjórhjól 4x4,
nánast nýtt ('95)
Hugsanlegt að taka
eldra hjól upp í kaupin.
Nýinnflutt, notuð, afkastamikil
rófu-upptökuvél.
Mjög gott verð. Einnig ný
Complett kúpling í Fiat
dráttarvél, 100 hö og stærri.
Verð 45.000 og vsk.
Nýtt fullbúið ferðahús á japanskan
pallbíl, niðurfellanlegt.
Hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 567 4709
á milli 9 og 18, virka daga.
TILKYNNING
Stöð 2 er sérstök ánœgja að tilkynna eftirfarandi í tilefni
10 ára afmœlis íslenska útvarpsfélagsins:
Undirritaðir hafa verið samningar milli Stöðvar 2 og
Columbia Tri-Star, 20th Century Fox, Warner Bros.,
Walt Disney Company, Paramount Pictures og Universal
um einkarétt Stöðvar 2 til sýningar á kvikmyndum
í sjónvarpi á íslandi frá þessum stórfyrirtœkjum
í kvikmyndaheiminum.
Við þökkum samningsaðilum okkar traustið,
sem þeir sýna þannig Stöð 2, og viljum jafnframt
nota tœkifœrið til að láta í Ijós þá sannfœringu okkar
að með þessum einkaréttarsamningum er okkur gert kleift
að veita áskrifendum Stöðvar 2 betri þjónustu
á komandi vetri og nœstu árum.
Brautryðjendur í 10 á r