Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 29

Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 29 ÁGÚST OLAFSSON GYÐA JÓHANNSDÓTTIR og kannski ertu fegin að fá hvíld og ég er alveg viss um að afi Krist- ján tekur vel á móti þér. Bless, elsku amma mín. Þín, Manuela. + Ágúst Ólafsson var fæddur í Reykjavík 28. mars 1945. Hann lést í sjúkrahúsi Reykja- víkur 15. ágúst síð- astliðinn. Foreldr- ar hans voru Guð- rún Sörensen og Ólafur Pálsson, sem bæði eru látin. Systkini Ágústar eru Georg Ólafs- son, sem er látinn, Hafsteinn Ólafsson og Jónína piafs- dóttir. Börn Ágúst- ar eru Sverrir, kvæntur Lilju Þorsteinsdóttur og eiga þau tvær dætur, Önnu Katrínu og Erlu Steinu, Karen Gunnhildur, Hanna Rún og Arnar Elís. Eftirlifandi eigin- kona hans er Elísa- bet S. Einarsdóttir. Ágúst stundaði sjó- mennsku frá ungl- ingsaldri, lengst af hjá Eimskipafélagi Islands. Hann lét af störfum vegna veikinda haustið 1993. Útför Ágústar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Nú ertu dáinn, elskulegi afi okk- ar — og við eigum svo erfitt með að skilja það, skiija að þú komir aldrei..., aldrei aftur. Við fengum því miður alltof lítinn tíma með þér, afi, bæði vegna þess hve ungar við erum og vegna þess að við höf- um búið í útlöndum með mömmu og pabba þar sem pabbi var í skóla. En við hittumst alltaf þegar við komum til íslands og nú síðast í sumar en þá varstu orðinn svo veik- ur. Skemmtilegast þótti okkur að hitta þig um jólin, þig og ömmu Betu og krakkana í jólaboði hjá ykkur á Seljaveginum. Einnig eig- um við systumar okkar albúm með myndum af þér og öðrum fjöl- skyldumeðlimum — en þannig lærð- um við að þekkja ykkur enn betur. Eitt höfum við, afi minn, og það getur enginn tekið frá okkur — minninguna um þig. Minninguna um ljúfan, léttlyndan og heiðarleg- an afa. Hana munum við ávallt geyma í hjarta okkar. Við kveðjum þig afi minn og vitum að nú ertu frískur á ný, því þú ert hjá Guði og englunum og þeir munu vaka yfir þér og vernda. Nú legg ég aupn aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Sofðu rótt, elsku afi okkar. Þínar, Anna Katrín og Erla Steina. Mig setti hljóðan þegar systir Ágústar hringdi í mig að morgni föstudagsins 16. ágúst sl. og til- kynnti mér að hann væri dáinn, þótt ég hafi vitað að hveiju stefndi. En þetta er sú fregn sem maður vill síst heyra, en kemst ekki hjá því. Það kom margt upp í hugann þann dag, en sérstaklega síðasta bón hans að muna eftir að senda vini okkar afmælisskeyti vegna fimmtugsafmælis hans daginn áður en Ágúst yfirgaf þessa jarðvist. Hann var ekki sammála hvor okkar ætti að vera á undan vegna undir- skriftar skeytisins, svo við gerðum málamiðlun. Undirskriftin var á þá leið „Frá Gústa og Stjána" og fyrir neðan „Stjána og Gústa“. Oft var hann búinn að rukka mig um minningargrein um sig svo hann gæti ritskoðað hana, en ekki varð af því, hann var kallaður of fljótt. Ég minnist Ágústar sem manns, sem ljómaði af ást og hlýju. Allir sem þekktu hann vissu að þar fór skapríkur maður með stórt hjarta. Okkar vinátta byijaði um haustið 1961 þegar við vorum að byija til sjós. Einn vinur okkar kynnti hann fyrir mér og sagði „hann er vinur okkar“. Og þar með var það ákveð- ið. Ég var að byija á skipum hjá Hafskip en hann hjá Eimskip. Við vorum því aldrei samskipa. Ágúst var glaður og skemmtilegur en gat verið stuðandi við þá sem þekktu hann ekki, sem gat orðið ansi bros- legt. Minningar flæða um hugann er ég leitast við að fínna viðeigandi kveðjuorð fyrir Gústa vin minn. Eðlilegast fínnst mér að þakka honum góðar stundir sem við vinirn- ir áttum saman. Vinátta er kær- komin gjöf hveijum einstaklingi. Okkar vinátta var sérstök að því leyti, að hún var án skilyrða. Það hæfði vel þeim aðstæðum og því ástandi sem við gömlu vinirnir vor- um lagnir við að skapa okkur á þeim tímum víns og rósa. Það sem aldrei gleymist var hans einstaka skopskyn og kærleikslyndi. Áf einlægni bið ég æðri mátt um styrk fyrir ástvini hans í sorginni. Kristján Daðason. Eftir því sem árin líða hverfa félagar manns, einn af öðrum. í dag kveð ég góðan skipsfélaga, Ágúst Ólafsson. Það er langt um liðið frá því ég kynntist Gústa. Við vorum báðir, í áratugi, sjómenn hjá Eim- skipafélagi íslands. Ekki vorum við samskipa nema síðustu ár Gústa til sjós. Ágúst var stéttvís maður og vann félagi sínu, Sjómannafélagi Reykja- víkur, vel. Sem ungur maður lærði Ágúst múrverk en það var með hann sem marga fleiri, sem reyna sjómennsku, að una sér ekki í landi. Farmennska varð því ævistarf hans. Ekki fór á milli mála að Ágúst kunni vel við sig á sjónum og hon- um fóru flest verk vel úr hendi. Oftast er það þannig að það ný- liðna er efst í huga. Gústi hætti til sjós fyrir nokkrum árum. Ekki löngu síðar sóttu á hann veikindi og háði hann þá hetjulega baráttu, sérstaklega síðasta árið. Ljóst var að hveiju dró og aðdáunarvert af hversu miklu æðruleysi hann tók hlutskipti sínu. Við sem fylgdumst með honum í veikindunum dáðumst að hversu vel hann bar sig þrátt fyrir alla þá erfíðleika og þann sársauka sem við vissum að heijuðu á hann. Öllum er hjálp í að hafa einhvern sér við hlið. Þess naut Ágúst því eiginkona hans, Elísabet Sigrún Einarsdóttir, stóð með honum og studdi í þeim erfiðleikum sem ekki urðu umflúnir. Fyrir hönd félaga í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur kveð ég góðan félaga okkar og við sendum um leið eiginkonu og börnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Birgir Hólm Björgvinsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fyigi útprentuninni. Auðveldust er mðttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega linulengd — eða 2.200 slög. Ilöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum. + Gyða Jóhanns- dóttir fæddist í Reykjavík 13. apríl 1929. Hún lést á Landspítalanum 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Steindóra Camilla Guðmunds- dóttir frá Sólheim- um í Hrunamanna- hreppi og Jóhann Guðmundsson frá Dalbæ í sömu sveit. Börn þeirra voru, auk Gyðu, Kristrún, Guðmundur og Hörður sem öll eru látin. Einn- ig ólu þau upp fósturdóttur, Onnu Sigurðardóttur. Gyða giftist Kristjáni Magnús- syni, húsasmíðameistara, f. 20.11. 1923, d. 11.4. 1986, hinn 7. ágúst 1953. Foreldrar hans Elskuleg tengdamóðir mín hlýddi kalli skaparans í síðustu viku. Hann hafði reyndar staðið utan girðingar undanfarin ár, og eflaust dáðst að þolgæði, dugnaði og æðruleysi þessa dygga liðsmanns hans á erfiðum stundum. Gyðu kynntist ég fyrir mörgum árum þegar fund- um mínum og dóttur hennar bar saman. Sú vinátta og hlýhugur sem ég mætti á heimili hennar og Krist- jáns heitins tengdaföður míns var mér dýrmætt og gott vegarnesti um það hversu mannúð og væntum- þykja eru einstaklingum mikilvæg í samskiptum sínum. Gyða var af þeirri kynslóð sem var að komast til manns á sama tíma og hið unga lýðveldi var að slíta barnsskónum og trúnaður hennar við land, þjóð og tungu var fölskvalaus. Af per- sónuleika hennar að dæma þá kem- ur mér í hug að kynslóð hennar hafi verið kynslóðin sem óx úr grasi áður en kröfurnar urðu til. Hún skildi að hver maður verður að rækta garðinn sinn og hver upp- sker sem hann sáir. Hennar upp- skera var heilsteypt og samheldin fjölskylda þar sem umhyggja og kærleikur vörðuðu veginn til ham- inguríks lífs. Samferðarmaður Gyðu í gegnum lífið, Kristján tengdafaðir minn, var einstakur mannvinur og einn þeirra einstaklinga sem aldrei gleyma sam- úðinni með samferðamönnum sínum og þeim sem höllum fæti standa í tilverunni. Hann lést fyrir rúmum áratug, en Gyða hélt ótrauð áfram og var ávallt óijúfanlegur hluti af lífi barna sinna, tengdabama, barnabarna og vina. Nú hvílir hún aftur í ástríkum örmum hans. Ungri dóttur minni varð spurn hver myndi gefa ömmu Gyða að borða þegar hún yrði svöng nú þegar hún væri komin upp til guðs. Svarið var afí Kristján. Þannig lifir minningin og mun lifa áfram. Skrifað hefur verið; daginn sem þú fæddist voru allir glaðir. Þú varst sá eini sem grést. Lifðu þannig að á þinni hinstu stund gráti allir aðrir, þú ert sá eini sem ekkert tár fellir. Þá getur þú tekið Erfidrykkjur Glæsileg kafíi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingai* í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR llflTEI, MIFTLUIHí voru Björg Guð- mundsdóttir og Magnús Pétursson. Börn Gyðu og Kristjáns eru: Dóra Camilla, f. 2.4. 1954, búsett á Ak- ureyri. Eiginmaður hennar er Ari Karlsson og eiga þau tvær dætur. Magnús Már, f. 27.8. 1957, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Isabelle de Bissc- hop og eiga þau tvö börn. María Björg, f. 23.9. 1965, búsett í Reykja- vík. Sambýlismaður hennar er Loftur Ólafsson og eiga þau eina dóttur. Útför Gyðu fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. dauðanum með ró hvenær sem hann kemur. Þannig lifði elskuleg tengdamóðir mín. Loftur. Elsku amma Gyða. Það er erfitt að hugsa sér lífíð án þín, en þótt þú sért ekki meðal okkar lengur muntu alltaf lifa í hjarta okkar sem elskum þig svo mikið. Ég hef varla styrk til að skrifa núna, en mig langar samt svo mikið að skrifa nokkrar línur fyrir þig. Það var svo gott að koma í heimsókn til þín með pabba, mömmu og Kristjáni, eða ein eftir skóla og læra heima hjá þér og fá sér síðan pönnukökur og eitthvað að drekka með. Það var svo gott að spjalla við þig um heima og geima, spila á spil eða bara fá að hvíla sig í róleg- heitunum með þér. Amma, þótt þú værir stundum lasin og þreytt, sérstaklega þegar þú komst heim úr nýrnavélinni, varstu alltaf jafn falleg og fín. Mér finnst svo sárt að ég var stödd úti í Frakklandi þegar þú skildir við okkur, ég var farin að hlakka svo til að hitta þig og sýna þér gjöfína sem við höfðum keypt handa þér. Ég veit að þú ert búin að vera veik Elsku amma Gyða. Ég á erfítt með að sætta mig við aö þú sért farin. Það er alltaf sárt fyrir þá sem sitja eftir með minning- amar en það er huggun að vita að nú ertu ekki veik lengur og ert kom- in tii afa Kristjáns. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki komið í heimsókn til þín, sagt þér frá því sem er að gerast í mínu lífí og um leið ieyft þér að hneykslast svolítið á því hvað unga fólkið er uppátækjasamt. Ég bjó hjá þér mín þijú fyrstu menntaskólaár og á þeim tíma áttum við fjölmargar góðar stundir saman. Ég man til dæmis eftir að hafa setið inni í herbergi eitt kvöldið þegar ég heyrði þig byija að hlæja frammi í stofu og þá varstu að horfa á félag- ana Walter Mattheau og Jack Lemmon fara á kostum. Ég settist hjá þér og við veinuðum úr hlátri yfír vitleysunni. Núna vildi ég óska þess að við gætum sest niður yfír The Odd Couple og ég gæti heyrt þig hlæja aftur. Takk fyrir allan tímann sem við áttum saman bæði á Kleppsveginum í gamla daga og svo í Hólmgarðit inum. Ekki fara langt. Guðný Camilla. Nú ertu farin til afa Kristjáns, elsku amma mín og ég veit að þér iíður miklu betur núna þar sem afi stendur við hlið þér og nú getur þú passað okkur öll í einu. Ég man hvað það var nú gott að koma til ykkar afa á Kleppsveginn, þar sem ég naut þess að fá að vera litla dekurrófan ykkar og vissi a£-* ég fengi besta hafragraut í heimi. Ég man hvað mér þótti vænt um það að þú skyldir ferðast alla leið til Danmerkur til þess að sjá mig fermast í Holmenskirke, þessar minningar og allar hinar mun ég varðveita og geyma á sérstökum stað þar sem ég get alltaf leitað til þeirra. Þótt það sé sárt og erfítt að ímynda sér að þú sért farin, þá veit ég að við munum einhvem tímann hittast á ný. Ég sakna þín, elsku amma. Þín, Gyða Björk. RANNVEIG ÁGÚSTSDÓTTIR + Rannveig Guðríður Ágústs- dóttir fæddist á ísafirði 22. apríl 1925. Hún lést á Landspít- alanum 2. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Foss- vogskirkju 9. ágúst. Ó, blessuð vertu, sumar sól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir Qöllin himinhá og heiðarvðtnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár Sérliieðingar i hloinaskreytingiim við «11 tækifa*ri ICiblómaverkstæði WNNA^ Skólavörðustíg 12, á horni Bergstadastrætis, sími 19090 sér una við þitt gyllta hár, nú fellur heitur haddur þinn á hvíta jökulkinn. (Páll Ólafsson). Þetta ljóð kemur mér í huga þeg- ar ég hugsa til hennar Veigu frænku. Hún geislaði birtu á lífið og umvafði alla með hlýju sinni. Minning um hana mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Krisljánsdóttir, Lúðvík Eiiasson LAUGARNES APÓTEK Kirkjuteigi 21 ÁRBÆJAR APÓTEK Hraunbæ 102 b eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Laugarnesapótek

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.