Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 35

Morgunblaðið - 28.08.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 35 FRÉTTIR STEFÁN Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, tekur við gjöf Ör- yrkjabandalagsins úr hendi formanns þess, Ólafar Ríkarðsdóttur. Oryrkjabandalag Islands færir Greiningar- og ráðgjafar- stöð ríkisins peningagjöf GREININGAR- og ráðgjafarstöð ríkisins barst nýverið höfðingleg gjöf frá Öryrkjabandalagi íslands, þijú hundruð þúsund krónur til kaupa á leiktækjum fyrir leikfangasafn stöðvarinnar. Tilefnið var 35 ára afmæii Öryrkjabandalagsins í maí sl. Formaður bandalagsins, Ólöf Rík- harðsdóttir, afhenti gjöfína að við- stöddum 300 þátttakendum á XI. vomámskeiði Greiningarstöðvarinn- ar sem haldið var í Háskólabíói í júní. Greiningar- og ráðgjafarstöð rík- isins er tíu ára um þessar mundir. Meginhlutverk hennar er rannsókn og greining á fötluðum börnum svo og ráðgjöf til foreldra og þeirra sem annast þjálfun, kennslu og meðferð barnanna. Þar starfa 35 manns, flestir sérhæfðir í fötlunum barna. Leikfangasafn stöðvarinnar er hluti af þjónustu hennar við ung, fötluð börn. Þangað leita foreldrar með börn sín, fá lánuð valin leikföng, sem ætlað er að styðja við ýmsa þroskaþætti og þiggja ráðgjöf. Sum þessar leikfanga eru sérhæfð t.d. ætluð blindum börnum. Heimsóknir í safnið eru á annað þúsund á ári, enda sinnir það öllu höfuðborgar- svæðinu og því ljóst að leikfanga- kosturinn þarf að vera öflugur og krefst sífelldrar endurnýjunar. Stefán Hreiðarsson, forstöðu- maður Greiningarstöðvarinnar, gat þess í þakkarávarpi sínu að gjöf sem þessi væri stöðinni afar mikilvægur stuðningur, ekki einungis vegna hins höfðinglega fjárframlags, held- ur ekki síður vegna þeirrar viður- kenningar og hvatningar sem í gjöf- inni fælist. Gengið á milli aðalumferð- armiðstöðva landsins RAGNHILDUR Karlsdóttir, nýr eigandi að Hannyrðaversluninni Mólý, Kópavogi. ■ NÝLEGA urðu eigendaskipti á Hannyrðarversluninni Mólý í Kópavogi. Nýr eigandi er Ragn- heildur Karlsdóttir en jafnframt eigendaskiptunum fluttist verslunin yfir götuna að Hamraborg 7. Meira vöruúrval er nú á boðstólnum þar sem Mólý býður upp á garn frá Garnbúðinni Tinnu í Hafnarfirði svo sem Smart, Classic og Lanett og Pijónablaðið Ýr. ■ FRAMHALDSSTOFNFUND- UR Hins íslenska kvikmynda- fræðafélags verður haldinn mið- vikudaginn 28. ágúst nk. í Borgar- túni 6, 3. hæð (Rúgbrauðsgerðin). Fundurinn hefst kl. 20.15. A fund- inum verða lög félagsins, sem hafa verið endurskoðuð af fram- kvæmdanefnd, lögð fram til um- ræðu og atkvæðagreiðslu. í fram- haldi af því er m.a. ætlunin að kjósa félaginu stjórn. ■ SÖNGKONAN Anna Mjöll Ólafsdóttir syngur fyrir gesti Píanóbarsins í Hafnarstræti á mið- vikudagskvöld ásamt píanóleikar- anum Kristjáni Þ. Guðmunds- syni. Á efnisskránni verður róleg tónlist auk nokkurra djassstand- arda. HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir í miðvikudagsgöngu sinni á ferð milli aðal sjó-, land- og flugumferðarmiðstöðva landsins. Gangan hefst við Hafnarhúsið kl. 20. Farið verður með hafnarbökkum út á Ægisgarð og þaðan út á Faxa- garð. Til baka verður gengið upp Grófína með viðkomu á útivistarsvæð- inuá Miðbakka og í Miðbakkaijaldinu. Úr Grófinni verður gengið um Ing- ólfstorg, með Tjörninni og um Hljóm- skálagarðinn suður í Umferðarmið- stöð BSÍ. Þaðan er genginn gamli Tívolívegurinn í afgreiðslu innan- landsflugs Flugleiða. Að því loknu verður sprett úr spori vestur í Sund- skálavík og til baka um Háskóla- hverfið niður í Hafnarhús. Óvæntar kynningar verða á BSÍ og afgreiðslu Flugleiða. Allir vel- komnir. t Astkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR RÖGNVALDSDÓTTIR kennari, Stekkjarholti 2, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 14.00. Rögnvaldur S. Gíslason, Steinvör Edda Einarsdóttir, Magnús Gíslason, Ingrún Ingólfsdóttir, Valur H. Gfslason, Unnur Guðmundsdóttir og barnabörn. t Sendum okkar innilegustu þakkir til allra, sem studdu okkur með hlýhug og kaerleika við andlát og útför elsku- legs bróður míns, mágs og frænda, RAGNARS ÞORVALDSSONAR, Munkaþverárstræti 18, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Þor valdsdóttir, Hilmar H. Gislason, Þorvaldur Kr. Hilmarsson og fjölskylda, Ólafur Gísli Hilmarsson og fjölskylda, Kristín Hilmarsdóttir og fjölskylda, annað frændfólk og vinir. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SÓLVEIG SNORRADÓTTIR, lést í Sjúkrahúsi Suðurnesja 24. ágúst síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 31. ágúst kl. 14.00. Jón Einar Guðmundsson, Kristinn Sólberg Jónsson, Snorri Hólm Jónsson. t Hjartkær eiginmaður minn, JÓN SÍMON MAGNÚSSON, Fellsmúla 2, Reykjavík, andaðist 26. ágúst. Jóhanna Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir. t Elskulegur föðurbróðir okkar, STEFÁN STEFÁNSSON bóndi frá Fitjum í Skorradal, lést á Hrafnistu mánudaginn 26. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Fitjakirkju í Skorradal föstudaginn 30. ágúst kl. 14.00. Jón Arnar Guðmundsson, Karólína Hulda Guðmundsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdam amma og langamma, JENNÝJ. LEVY frá Hrísakoti, lést í sjúkrahúsinu Hvammstanga 26. ágúst. Erla J. Levy, Agnar J. Levy, Eggert J. Levy, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar kæra KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu mið- vikudaginn 21. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 29. ágúst kl. 15.00. Magnús Kr. Jónsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Anna Björg Jónsdóttir, Kristín Björg Guðmundsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, Jón Garðar Guðmundsson, Ólafur Gauti Guðmundsson, systkini og aðrir aðstandendur. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, EMIL GÍSLASON húsasmiðameistari, Flókagötu 41, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á morgun, fimmtudaginn 29. september, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarsjóði. Ásdís Gunnarsdóttir, Hulda Emilsdóttir, Jón Einarsson, Þóra Emilsdóttir, Helgi Briem, íris Ingunn Emilsdóttir, Sigurður Grétarsson, Auður Ósk Emilsdóttir, Eiríkur Árnason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.