Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Tommi og Jenni
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Ellert Borgar Þorvaldsson
og Jóhann Gunnar Berg-
þórsson beðnir afsökunar
Frá Birni V. Ólasyni:
GREININ, „Hafnfirðingar krefjast
meirihluta jafnaðarmanna", sem
birtist í Morgunblaðinu 21. ágúst
sl., og var sögð eftir mig, var skrif-
uð af Sverri Ólafssyni, varamanni
í stjórn Alþýðuflokksfélags Hafnar-
fjarðar. Sverrir hefur verið at-
kvæðamikill í umijöllun sinni um
málefni flokksins að undanförnu og
verið óspar á skoðanir sínar um
núverandi meirihluta bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar. Ég hafði vitneskju
um innihald greinarinnar og lánaði
Sverri nafn mitt til að koma á fram-
færi málefnalegum upplýsingum
um stöðu mála en við nánari athug-
un á því sem þar kemur fram kom
hins vegar í ljós að greinin er full
af röngum fullyrðingum og stað-
lausum stöfum.
Ætlunin var að nota greinina og
birta fyrir fulltrúaráðsfund Alþýðu-
flokksins, en í ljósi framkominna
upplýsinga hafði ég samband við
Morgunblaðið og óskaði eftir að
greinin yrði ekki birt. Tekið var
jákvætt undir það, en bréfið var
birt eftir sem áður.
Vegna þessa vil ég biðja þá Ell-
ert Borgar og Jóhann Gunnar af-
sökunar á að nafn mitt skuli hafa
verið notað í framangreindum til-
gangi. Þá harma ég að nefnd skrif
skuli hafa bitnað ómaklega á nefnd-
um einstaklingum og aðstandend-
um þeirra. Skiptar skoðanir geta
verið um núverandi meirihlutasam-
starf í Hafnarfirði og sameiningu
jafnaðarmanna til framtíðar, en
skoðanaskipti þar að lútandi þurfa
að vera málefnaleg og fara fram
með heilbrigðari hætti en raunin
hefur orðið á.
BJÖRN V. ÓLASON,
félagi í Fulltrúaráði Alþýðuflokksfé-
laganna í Hafnarfirði.
Aths. ritstj.
Efni þessa bréfs er sem betur fer
einsdæmi í ijölmiðlun okkar og sýn-
ir að höfundur þess, og sá sem
hann lánaði nafn sitt, Sverrir Ólafs-
son, hafa notað aðferðir við greinar-
skrif hér í blaðinu, sem telja má til
nýmæla og eru í raun siðlausar.
Blaðið varaði sig hvorki á rang-
færslunum í grein Sverris undir
nafni Björns né „dulnefninu."
Þessi aðferð þeirra félaga heyrir
til fádæma.
Blaðið frábiður sér efni af þessu
tagi og með þessum aðferðum.
Þess skal að lokum geta, að rit-
stjórn Morgunblaðsins kannast ekki
við ósk Björns þess efnis, að grein
Sverris undir hans nafni yrði ekki
birt.
Ferdinand
Smáfólk
Stundum velti ég því fyrir mér
hvort það sé þörf á öllum þessum
sandi. . .
„Gróa á Leiti“ í
fj ölmiðlaþj óðfélagi
Frá Páli V. Daníelssyni:
„GRÓA á Leiti“ hefur lengi verið
þekkt sögupersóna sem bjó til alls
konar slúðursögur um menn og mál-
efni sérstaklega í þeim tilgangi að
níða fólk niður og fá aðra til að trúa
slúðrinu. Margir eru það hrekklausir
að þeir geta ekki ímyndað sér að
fólk fari með ósannindi um náungann
og því síast óhróðurinn, sé hann
sagður nógu oft, inn í vitund fólks
bæði því sjálfu til skaða og þeim sem
slúðrað er um til tjóns. Svo langt er
hægt að ganga í þessum efnum að
hægt er að eyðileggja traust og
mannorð fólks með getsökum og
ósönnum sögum, sögum sem oftast
er ekki hægt að festa hendur á og
afsanna.
Áður fyrr var „Gróa á Leiti“ frem-
ur hægfara, varð að staulast bæ frá
bæ með söguburð sinn. Þó gat hann
breiðst furðu fljótt út. „Gróur“ nú-
tímans búa við allt önnur skilyrði.
Þær þurfa ekki annað en að búa
sögurnar til. Ijölmiðlar á ýmsum
sviðum virðast tilbúnir til að koma
þeim til almennings.
Við Hafnfirðingar höfum orðið
mjög ástsælir hjá „Gróu á Leiti“ og
fjölmiðlarnir eru búnir að flytja
óvandaðan fréttaburð og því miður
hreint slúður um menn og málefni í
bænum. Fólk er orðið leitt á þessu
og þykir það léleg fjölmiðlun sem
ekki leitar sannleikans til að flytja
fólki. Það hefur þó ekki farið að elt-
ast við að leiðrétta allar rangfærsl-
urnar.
Þó tók steininn úr þegar grein
birtist í Morgunblaðinu 21. ágúst
undirrituð af Birni Ólasyni. Þar er
samsafn af slíkum óhróðri, ósannind-
um og ærumeiðingum að furðu sæt-
ir. Hafnfirðingar eru nánast upp til
hópa gerðir að vandræðamönnum
sem ekkert gott geri. Og illt er að á
meðal bæjarbúa skuli vera til menn
sem tilbúnir eru til að sverta bæinn
sinn og íbúa hans eins og gert er í
greininni.
Það getur verið að fjölmiðlar telji
í lagi að flytja óhróðurir.n ef hægt
er að segja að greinarhöfundur beri
ábyrgðina. En er það svo einfalt? Það
getur verið að fjölmiðill geti komist
undan íjárhagslegri ábyrgð ef á
reynir á þeim grundvelli. En undan
siðferðilegri ábyrgð kemst hann ekki.
Fólk á að geta treyst því að fjölmiðl-
ar fari ekki með staðlausa stafi og
það á að geta treyst því að fjölmiðl-
ar leggi ekki líf þess í rúst með því
að flytja ósannindi og slúðursögur
um það enda þótt einhver „Gróan“
hafi sett nafn sitt undir sögu sína
eða annarra.
Mér er sagt að Blaðamannafélag
íslands hafi siðanefnd á sínum snær-
um. Hvar er hún? Blaðamenn vilja
hafa tjáningarfrelsi. Er það til að
flytja „Gróu“-sögur? Þarf ekki að
fara að skipa umboðsmann fólksins
til að vernda það gegn íjölmiðlum?
Hvar er réttur þess ef bæði fjölmiðla-
menn og stjórnendur bregðast þeim
skyldum að gæta þess að flytja sann-
leikann í hveiju máli? Eða eiga ekki
fjölmiðlamenn að kappkosta það að
segja satt?
PÁLLV. DANÍELSSON,
Suðurgötu 61, Hafnarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirlingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.