Morgunblaðið - 28.08.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 37
BREF TIL BLAÐSINS
Velvakandi
og bræður hans
Frá Sigurbirni Sveinssyni:
ÞVÍ miður er nú of langur tími liðinn
síðan uppsagnir heilsugæslulækna
tóku gildi og þeir hurfu úr stöðum
sínum. Þessi tími hefur verið erfiður
sjúklingum, sem hafa ekki lengur
aðgang að læknum sínum og undir
hælinn lagt með hvaða hætti þeir
njóta læknisþjónustu. Óþægindin og
öryggisleysið, sem fylgja, hefur kom-
ið skýrt fram í margvíslegum yfirlýs-
ingum, sem birst hafa frá heilbrigðis-
stjórnum, samtökum sveitarfélaga,
stjórnum heilbrigðisstofnana, ein-
staklingum og fl.
Fréttir í fjölmiðlum bera þetta með
sér. Rætt hefur verið við heilbrigðis-
starfsmenn í þeim héruðum, sem eru
læknislaus. Þar hefur komið fram,
að álagið er mikið og hvorir tveggja
sjúkrahúslæknar og hjúkrunarfræð-
ingar á landsbyggðinni telja ekki
unnt frá faglegum sjónarhóli að
vinna við þessar aðstæður til lengdar.
Sjúkrahúslæknar í Neskaupstað
hafa unnið gott starf fyrir íbúa á
Austurlandi síðustu vikurnar. Þeir
hafa lagt sig alla fram og mætt sí-
vaxandi þörf fyrir bráða læknisþjón-
ustu. Einnig hafa þeir sinnt öðrum
vandamálum, sem enga bið þola.
Fram hefur komið í máli þeirra, að
vaktbyrðin hafi gengið nærri þeim
og að erfitt sé að vera á vakt með
þessum hætti sólarhringum saman.
Þeim er nokkur vorkunn!
Hjúkrunarfræðingar á Austur-
landi og Norðurlandi eystra hafa
sinnt íbúum svæðanna og staðið sól-
arhringsvaktir frá 1. ágúst. Víða er
um reynda hjúkrunarfræðinga að
ræða og hafa þeir sinnt mörgu og
áreiðanlega dregið úr öryggisleysi
íbúanna. Þeim hefur þótt álagið óhóf-
legt svona dögum saman og víða
hafa starfssystkin þeirra komið til
hjálpar til að veita kærkomna hvíld.
’ Enda er erfitt að að eiga ekki nætur-
hvíld vísa vikum saman.
í huga heiisugæslulækna þeirra,
sem sögðu stöðum sínum lausum,
eru þetta allt auðskildar staðreyndir.
Forsendur uppsagna margra þeirra
áttu sér einmitt rætur í gegninga-
skyldunni, sem á þá var lögð og
ekki greidd nema að hluta. Og er
þar ekki líku saman að jafna við þá
heilbrigðisstarfsmenn, sem að ofan
eru nefndir.
Arfur sögunnar og aðstæður hér-
aðslæknanna gömlu fylgja heilsu-
gæslulæknum nútímans. Héraðs-
læknarnir hlutu embættislaun úr rík-
issjóði auk þess sem þeir fengu eftir
atvikum greiðslur frá almenningi
fyrir læknisverk og stunduðu yfir-
leitt búskap. Gegningarskylda var
eitt af því, sem falið var í embættis-
Iaununum.
KOMPU
SALA
allar
helgar
I Kolaportinu er kompusala
aíla markaðsdaga
og bósinn kostar ekki nema
kvf.»2i8iGL0J
Nú er tilvalið að taka til í
geymslunum og fataskápunum,
panta bás i Kolaportinu
og breyta gamla dótinu
í goðan pening.
Pantanasími
er 562 5030 X
>
í þjóðfélagi nútímans hefur sam-
félagið viðurkennt greiðslur til
stétta, sem standa vaktir. Yfirleitt
miðast greiðslur þessar við grunn-
laun þessa fólks og þann tíma, sem
það stendur vaktina. Þetta hefur
þótt eðlileg þróun.
Heilsugaeslulæknarnir hafa hins
vegar ekki fylgt með í tekjuþróun-
inni að þessu leyti. Grunnlaun heilsu-
gæsiulækna, sem eru grundvöllur
vaktagreiðslna, hafa rýrnað sam-
hliða þessari þróun og eru nú 72.669
til 97.605 skv. launatöflu. Til viðbót-
ar því hafa þessir læknar aldrei feng-
ið endurgjald til samræmis við
staðna tíma. Þessar vaktir hafa
læknarnir þó staðið mánuðum sam-
an án hvíldar og án þeirrar vorkunn-
ar, sem aðrir heilbrigðisstarfsmenn
nú njóta.
Vorkunnin er þó ekki mergurinn
málsins eða það, sem læknarnir
sækjast eftir. Það, sem þeir sækjast
eftir eru hins vegar eðlileg grunn-
laun miðað við menntun þeirra og
skyldur og greiðsla fyrir þann vinnu-
tíma, sem inntur er af hendi.
SIGURBJÖRN SVEINSSON,
Holtaseli 28, Reykjavík.
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. september 1996 er 22. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 22 verður frá og með 10. september nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.681,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. mars 1996 til 10. september 1996 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. september 1996.
Reykjavík, 28. ágúst 1996
SEÐLABANKIÍSLANDS
•—-
KOLAPORTIÐ
'nm.iwjp
Allt að 70% afsláttur
Mikið úrval af vönduðum viðlegubúnaði: Hústjöld, kúlutjöld, gönguskór, kælibox, lautarkörfur, tjalddýnur
og einnig úlpur, skíðasamfestingar, skíðabúnaður og margt fleira til að rýma fyrir nýjum vetrarvörum.
Aðeins 28.-31. ágúst!
Mundu! Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær
Póstsendum samdægurs
SKATABUÐIN
-SMtyR FRAMÚK
Snorrabraut 60 • Sími 561 2045
"staðgreitt