Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 39
ÍDAG
í? fTÁRA afmæli. Á
"tlmorgun, fimmtudag-
inn 29. ágúst, verður sextíu
og fimm ára Bjarni
Bjarnason, Anaheim, Ka-
liforníu, Bandaríkjunum.
Hann dvelur á heimili dótt-
ur sir.nar og tengdasonar,
Jöklafold 27, Reykjavík.
BRIDS
Unisjón Guðmundur Páll
Arnarsun
Á EINU borði varð suður
sagnhafi í fjórum spöðum.
Hann spilaði ekki illa, en
fór samt tvo niður. Á öðru
borði endaði NS fyrir mis-
skilning í sjö spöðum. Sá
sagnhafí fékk alla slagina!
Getur lesandinn ráðið þessa
gátu, án _þess að sjá allar
hendur? Utspilið var tígul-
kóngur i báðum tilfellum:
Norður
♦ D4
V ÁG953
♦ 862
* 863
Suður
♦ ÁG1082
V D7
♦ ÁG3
* ÁKD
Vísbending: Spilið er úr
hinni sígildu bók Darvas og
Hart, Stokknum flett (Right
Through the Pack), þar sem
hvert spil stokksins segir
sögu af minnisstæðu atviki
við bridsborðið. „Sögumað-
ur“ er hér hjartakóngurinn.
Sá sem tapaði fjórum
spöðum gaf fyrsta slaginn á
tígulkóng. Vestur skipti yfír
í hjarta. Sagnhafi svínaði og
austur fékk á blankan kóng:
Norður
4 D4
¥ ÁG953
♦ 862
♦ 863
Vestur
* 765
* 108642
♦ KD10
♦ 52
Austur
4 K93
V K
♦ 9754
4 G10974
Suður
4 ÁG1082
V D7
♦ ÁG3
4 ÁKD
Austur spiiaði tígli til
baka, sem suður drap með
ás og reyndi að fara inn í
borð á hjartaás. En austur
trompaði. Það var þriðji
slagur varnarinnar. Einn í
viðbót fékkst á tígul og ann-
ar á trompkóng.
En hvernig unnust sjö
spaðar? Þannig: Suður drap
strax á tígulás (skynsam-
legt) og spilaði hjartadrottn-
ingu. Þegar vestur lét lítið
hjarta staldraði suður við.
Eftir nokkra umhugsun sá
hann að spilið ynnist aldrei
þó svo að hjartasvíningin
heppnaðist. Hann gæti aldr-
ei losað sig við meira en einn
tígul heima. Sagnhafi stakk
því upp ásnum og felldi kóng
austurs. Síðan var svínað
fyrir trompkóng og öllum
trompunum spilað, ásamt
ÁKD í laufi. Síðasta svarta
spilið þvingaði vestur í rauðu
litunum og þrettán slagir
voru staðreynd.
„Brids er eins og iífið
sjálft," sagði Spaðagosinn
spaklega, „réttlæti er þar
hvergi að finna.“
Arnað heilla
Ljósm. Norðurmynd, Ásgrimur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 13. júlí í Akureyrar-
kirkju af sr. Svavari Jóns-
syni Erla Valdís Jónsdótt-
ir og Gunnar Einar Stein-
grímsson. Heimili þeirra er
á Melasíðu 2i, Akureyri.
Ljósm. Norðurmynd, Ásgrímur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. júlí í Lögmanns-
hlíðarkirkju af sr. Birgi
Snæbjörnssyni # Kristjana
Jónsdóttir og Ásgeir Ás-
geirsson. Heimili þeirra er
á Melasíðu 8M, Akureyri.
ÞESSIR duglegu krakkar sem búa í Hafnarfirði
héldu nýlega hlutayeltu til styrktar Reykjavíkur-
deild Rauða kross íslands og varð ágóðinn 3.800
krónur. Þau heita Ragnhildur Jóna Eyvindsdóttir,
Þorsteinn Árni Steindórsson, Heimir Þór Kjartans-
son, Elías Halldórsson, Friðsemd Sveinsdóttir, Gísli
Rúnar Gíslason og Valdís Ösp Gísladóttir.
skák
l'msjón Margclr
Pétursson
SVARTUR á leik.
STAÐAN kom upp í lands-
keppni Armena og Þjóð-
verja í ágúst. Philip
Schlosser (2.560) var með
hvítt, en Sergei Movsesjan
(2.635) hafði svart og átti
leik. Hvítur var með yfir-
burðastöðu, en lék síðast
24. Ddl-d2?! sem gaf
svarti færi á mótspili.
24. - Hxf2! 25. Hxh6??
(Það er greinilegt að
Schlosser yfirsást 24. -
Hxf2 og leikurinn hef-
ur sett hann úr jafn-
vægi. Ef hann hefði
haldið ró sinni hefði
hann fundið 25. Hh4!
Og hvítur hefur ennþá
sterka stöðu. 25. - Kg7
má þá svara með 26.
Rb5.) 25. - Rxh6 26.
Bxh6! - Hf4 (Skyndi-
lega er hvítur glatað-
ur.) 27. Kg2 - Bh3+!
og hvítur gafst upp.
Movsesjan er aðeins
17 ára gamall og nýj-
asta stjarna Armena á
skáksviðinu. Þeir ættu að
eiga góða_ möguleika á því
að verða Ólympíumeistarar
á heimavelli, þótt rúss-
neska sveitin með Ka-
sparov og Kramnik í farar-
broddi sé auðvitað sigur-
stranglegust.
HÖGNIHREKKVÍSI
//7fcmn,er góíur í icamte.. "
STJÖRNUSPÁ
cftir Kranccs Drakc
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú sýniröðrum tiliitsemi
ogvelvild, ogátt
trausta vini.
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Þú verður að sýna tillitsemi
í samskiptum við þína nán-
ustu í dag. Og þegar kvöldar
þarfnast ástvinur einnig
umhyggju.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er óþarfl að láta alla
vita um fyrirætlanir þínar.
Mundu að ekki er öllum trey-
standi, og einhver gæti
hlunnfarið þig.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní) 4»
Þú vinnur vel fyrri hluta
dags og kemur miklu í verk.
Þegar á daginn líður er þér
óhætt að slaka á og sinna
fjölskyldumálunum.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) HSB
Góður vinur aðstoðar þig í
dag við að fínna réttu lausn-
ina á gömlu vandamáli. Síð-
degis nærð þú hagstæðum
samningum í vinnunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vandaðu valið á þeim sem
þú umgengst. Slæmur fé-
lagsskapur getur spillt fyrir
velgengni þinni. Varastu
deilur við ástvin.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú vinnur vel á bak við tjöld-
in í dag og nærð umtalsverð-
um árangri. Ástvinur er eitt-
hvað miður sín og þarfnast
umhyggju í kvöld.
vög
(23. sept. - 22. október)
Þér gefst tími til að hugsa
um heimilið í dag og gera
hagstæð innkaup. Lipurð og
háttvísi skilar árangri í
samningum.
Sporðdreki
(23. okt.-21.nóvember)
Þú hefur unnið vel að undan-
fornu og getur látið það eft-
ir þér að slaka örlítið á í
dag. Sumir eru að undirbúa
ferðalag.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember)
Gott samstarf skilar árangri
í vinnunni í dag, en heima
bíður smá vandamál, sem þú
ert fær um að leysa ef þú
leggur þig fram.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert með hugann við fram-
kvæmdir á vinnustað, og
hefur tilhneigingu til að van-
rækja ástvin. Reyndu að
bæta úr því í kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18.febrúar) ðh
Hafðu stjórn á skapinu. Þú
hefur tilhneigingu til að ríf-
ast við þína nánustu að
ástæðulausu. Reyndu að
sýna smá umburðarlyndi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú átt auðvelt með að ein-
beita þér að því sem gera
þarf, og getur náð hagstæð-
um samningum, sem lofa
góðu fyrir framtíðina.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár a f þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hvert mundir þú
ferðast eftir að
hafa unnið rúmlega
44 milljonir i
Víkingalottóinu?
V I K I N G A
LðTTð
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00