Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 44

Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ /DD/ ÞU HEYRIR MUNlfJH Þær eru ungar, sexí og kyngi- magnaðar Þær eru vægast sagt göldróttar. Það borgar sig ekki að fikta við ókunn öfll. Yfirnáttúrleg, ögrandi og tryll- ingsleg spennumynd eftir leikstjóra Three- ome" The Craft" var NORN AKLIKAN AÐ SJÁ NORNAKLÍKUN/ UJVl HANA. ALLIR VIUA LIKAR VEL VIÐ HAN/ Sýnd í kl. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd vegna fjölda áskorana í A-sal kl. 7 til 29. ágúst Sýnd kl. 5 og 11. B. i. 12. ára. Sýnd kl. 9 Sýnd kl. 6.45 Miðaverð kr.300. Þrjár hetju- dáðir Cruises ► BANDA- RÍSKI leikar- inn Tom Cruise er jafnhugaður í daglega lífinu og þegar hann berst við ill- menni á hvíta tjaldinu. Ný- lega sögðum við frá því þeg- ar hann og kona hans Nic- ole björguðu fólki úr sjávar- háska. Fjölm- iðlafulltrúi Cruise sagði að leikarinn hefði brugðist hár- rétt við á neyð- arstundu og sent skipsbát til að bjarga fólki sem busl- aði í gúmmibát á meðan segl- skúta þeirra brann til kaldra kola. Cruise náði auk þess öllu á myndband sem hann sýndi fólk- inu þegar hann tók á móti því í báti sínum. „Ef ég lendi ein- hverntíma í vandræðum þá vona ég að Tom verði nærri,“ sagði kynningarfulltrúi leikarans him- inlifandi yfir hetjudáðinni sem var sú þriðja á stuttum tíma. Fyrstu dáðina drýgði hann í mars síðastliðnum þegar hann kom að ungri konu sem hafði orðið fyrir bíl en bílstjórinn hafði síðan stungið af. Cruise nam staðar hjá konunni og bað nær- stadda um að hringja í sjúkrabíl og síðan fylgdi hann konunni á sjúkrahúsið og borgaði fyrir hana sjúkrahús- reikninginn sem var 350.000 kr. Hægri fótur hennar brotnaði og rif brákuð- ust. „Ef hann er ekki Ofurmenn- ið þá getur hann verið Batman fyrir mér þar sem Batman býr ekki yfir yfirn- áttúrulegum kröftum,“ sagði Heloisa Vinhas, þakklát Cruise. Enn er ótalin hetjudáð sem leikarinn vann þegar hann mætti á frum- sýningu myndar sinnar „Mission Impossible" í London í júní siðastliðnum þegar 10.000 manna hópur var saman- kominn til að líta kvikmynda- stjörnur augum. Þegar Cruise og kona hans ákváðu að ganga í gegnum hóp aðdáenda og gefa eiginhandaráritanir og heilsa fólki, í stað þessa að fara sér- stakan stjörnuinngang, sá Cruise skyndilega til Laurence Sadler sjö ára þar sem hann þrýstist upp að stálgrind sem ætluð var til að halda mannfjöldánum í hæfi- legri fjarlægð. Cruise rauk til og þreif í drenginn og bjargaði honum frá alvarlegum meiðslum. CRUISE bjargar Laurence Sadler frá því að kremjast upp að stálgrind. HELOISA Vinhíis á hækjum. Tom fylgdi henni á sjúkrahús- ið og borgaði reikninginn. Þennan leik endurtók hann þeg- ar Christos Tzanetis, 13 ára, lenti í sömu aðstæðum. „Þetta hefði getað endað með harmleik. Við erum mjög þakklát Tom,“ sagði móðir Tzanetis, Anna. „Hann er hetjan mín,“ sagði Sadler sem býr með fráskildri móður sinni, Kim, í úthverfi Lundúnarborgar. „Eg óska honum góðrar nætur á hverju kvöldi þegar ég ligg í rúminu mínu og lít á plakat af honum sem hangir fyrir ofan rúmið.“ Einfalt popp TONLIST Gcisladiskur KLÁM Klám, stuttdiskur hjjómsveitarinnar Sóldaggar. Ekkert kemur fram á umsiagi hveijir skipa sveitina, semja lög eða leika á hljóðfæri, en þó get- ið að útsetningar og upptökur séu í höndum Sóldaggar. Hljómsveitin gefur sjálf út, Skífan dreifir. 18,25 min. HIJÓMSVEITIN Sóldögg er í þunnskipuðu liði íslenskra poppara sem leggja rækt við íslenska texta og frumsamda tónlist. Gott er að ÓNEFNDIR liðsmenn hljóm- sveitarinnar Sóldaggar. einhveijir taka upp þráðinn því end- urnýjun í þeim hópi hefur verið hæg og tilviljanaken,nd. Tónlist Sóldagg- ar er aftur á móti lítt til þess fallin að glæða vonir um íslenska endur- reisn, en ekki vert að örvænta yfir frumsmíð sem að auki er rúmur fjórðungur að lengd. Á Klámi eru nefnilega ágætis lög og margt vel gert sé litið framhjá ungæðishætt- inum sem spillir til að mynda lagi eins Slími; prýðilegt lag sem hefði orðið enn betra með markvissari útsetningu. Fleira er þokkalega gert á plötunni og söngvari sveitar- innar hefur prýðilega rödd og beitir henni vel. Hljóðfæraleikur er og ágætlega heppnaður og ýmislegt leyst vel af hendi þó ekki sé það allt frumlegt. Textar sveitarinnar, en ekki kem- ur fram hver semur, eru sumir ótta- legt bull, til að mynda textinn við upphafslagið, Slím, en vel brúklegir í einfaldri popptónlist eins og þeirri sem Sóldögg leikur. Besti textinn er hæfílega væminn í væmnu lagi, „Tusa“, sem er nokkuð spillt með útsetningunni. Það er aftur á móti vel sungið, og bendir til þess að Sóldögg eigi eftir að gera betur. Árni Matthíasson BICBCE 0^-0 SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384 ^trnpld; Bönnuð innan 16ára Sýnd kl. 4.55,7,9 og 11.10 ITHX SAMUtO DIGITAL Arnold Schwarzenegger er John Kruger, sérhæfður málaliði í vitnaverndinni. Vanessa Williams er sjóðheitt vitni og fjölmargir í æðstu stöðum vilja koma henni frá. Eraser fór beint á toppinn í Bandaríkjunum og er ein stærsta mynd sumarsins fyrir vestan. hrikaleg átök og brellur í sannkölluðum sumarsmelli HLJÓMSVEITIN REM. Bill Berry trommuleikari, Peter Buck, gítarleikari, Michael Stipe, söngvari, og Mike Mills, bassaleikari. REM undirritar sögulegan hljómplötusamning BANDARISKA rokkhijómsveitin REM er búin að skrifa undir nýjan plötusamning við hljómplötufýrir- tækið Warner Bros. Samningurinn, sem er sá stærsti sinnar tegundar sem gerður hefur verið, hljóðar upp á fimm stórar hljómplötur og er verðmæti hans um 5,3 milljarðar íslenskra króna. „Þetta eru vatna- skil fyrir Warner Bros og þýðingar- mikið fyrir nýja byijun fyrirtækis- ins,“ sagði forseti fyrirtækisins, Steven Baker, en Wamer hefur af mörgum verið talið vera að missa orðstír sinn sem gróskumikið út- gáfufyrirtæki. „Hljómsveitin er geysilega dugleg, nýtur mikilla vin- sælda, og hefur háleit markmið. Ég get ekki lýst því hve stoltur ég er yfír því að hljómsveitin leyfir okkur að halda samstarfi við þá áfram.“ Með samningnum lauk slag nokkurra útgáfurisa um að fá samning við hljómsveitina. Þrátt fyrir að samningurinn hafi ekki enn verið kynntur í smáatriðum fyrir fjölmiðlum þá segja heimildir að hljómsveitin fái 660 milljónir króna við undirskrift plús 1,320 milljónir fyrirfram fyrir væntanlega sölu næstu sex hljómplatna. Auk þessa fá þeir 660 milljóna króna trygg- ingu fyrir hveija plötu og 24 pró- senta hlut af sölu hverrar einstakr- ar hljómplötu. Samningurinn kveð- ur einnig á um að hljómsveitin eign- ist frumupptökur væntanlegra platna sjö árum eftir að samningn- um lýkur. Ný plata hljómsveitarinn- ar „New Adventures in Hi-Fi“ er væntanleg á markað innan tveggja vikna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.