Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 E 7
IImm FRÉTTIR
■EKKI væru mikil not af alnet-
inu/veraldarvefnum ef ekki væri
til leitarforrit því upplýsinga-
flæðið er þvílíkt að ekki er fyrir
venjulega menn að kunna skil á
nema brotabroti. Leitarforrit eru
legíó og slagur harður á milli
þeirra, því besta forritið fær
flestar auglýsingar. Lycos var
eitt það fremsta fyrir margt
löngu, en síðan komu ýmsar
öflugri leitarvélar og það hvarf
í skuggann. Lycos-menn settust
þá niður og hófu endurbætur og
fyrir skemmstu bættust nýir val-
möguleikar við, því Lycos getur
nú leitað að margmiðlunarefni,
myndum, hreyfimyndum, hljóð-
bútum, grafík, tónlist og hvað-
eina, sem er stórt skref
frammávið fyrir netbúa. Aðrar
leitarvélar standa Lycos langt
að baki í þessum efnum, en vænta
má að þar sitji menn nú sveittir
að flokka upplýsingar og semja
viðmót.
■ÞAÐ ER best að fara varlega
þegar ókennilegur hugbúnaður
er annars vegar, eða í það
minnsta að keyra ekki forrit sem
viðkomandi veit engin skil á. Að
þessu komust þeir kaupendur
Windows NT 4.0, sem fóru að
grúska inni á geisladisknum sem
stýrikerfið er selt á. Þar var að
finna lítið forrit og meinleysis-
legt sem heitir rollback.exe.
Sumir fylltust forvitni, vildu
komast að því hvað forritið gerði,
ræstu það og biðu eftir niður-
stöðunum. Ekkert gerðist að því
er virtist en þegar átti að fara
að nota tölvuna frekar var hún
ónothæf, eða réttara sagt stýri-
kerfið gafst upp. Málið var að
rollback.exe var til þess ætlað
að hreinsa úr registry, eða því
svæði í tölvunni þar sem allar
upplýsingar um stýrikerfið og
viðmót þess og um uppsetningu
tölvunnar eru geymdar. Ekki er
hægt að ná þessum upplýsingum
aftur og því eins gott að nýbúið
sé að taka afrit, því það eru ekki
bara registry-upplýsingar frá
NT sem hverfa, heldur alltþað
sem önnur forrit hafa skráð þar
inn. Að sögn Microsoft-manna
átti rollback.exe alls ekki að fara
með í hugbúnaðarpakkanum og
bentu á það sér til málsbóta að
það fylgi ekki með i innsetningu
af disknum. Yfirlýsingu frá
Microsoft um rollback.exe má
finna á slóðinni http://www.mic-
rosoft.com/kb/bussys/win-
nt/ql49283.htm.
■OS/2 VARÐ aldrei það yfir-
burðastýrikerfi sem IBM ætlaði
og finnst mörgum sem fyrirtækið
hafi gefist upp á afkvæminu
sjálft. Þrátt fyrir það að notend-
ur séu á fimmtándu milljón að
sögn IBM-manna sjálfra, kvarta
þeir hástöfum yfir því að fyrir-
tækið sinni stýrikerfinu hang-
andi hendi. Ný útgáfa af OS/2
ætti þó að vera sárabót, því ekki
er nóg með að innbyggt í það sé
raddstýrikerfi, heldur styður það
Java og má segja að með því
rætist úr skorti á hugbúnaði fyr-
ir OS/2 því allir skrifa í Java um
þessar mundir.
Taktu flugið með Makkanum
Macmtosn Performa 6320/120
er kraftmikil tölva fynr þá sem gera miklar kröfur.
Útgáfa 7.5.3 (sú alnýjasta) af kerfishugbúnaði
fylgir tölvunni og er ab sjálfsögðu á íslensku.
Performa 6320 er 120 MHz og er með 12 Mb
vinnsluminni, 1200 Mb harðdisk, 8 hraða
geisladrif, hátalara o.fl. Skjárinn er 14" MultiScan
með innbyggðum víöóma hátölurum.
Henm fylgja tólf geisladiskar (kennsluforrit,
fróbleiksefni og leikir), ClarisWorks 3.0
[ritvinnsla, teiknrforrit, töflureiknir og gagnagrunnur)
allt á íslensku og 5 leikir að auki.
Nú er um aö gera að hafa hraðan á, því þetta er
kraftmikil tölva á frábæru veröi.
Afb.verð: 173.579,- kr. eöa
164.900,-«
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíöa: http://www.apple.is
Kodah EOS DCS 3 Kodah oc 50 KodaK DC 20
Hammer co rltari KodaH RitgeisiadisKur
Hégaeða ritari fyrir BB2 Mb / 74 mín. með
MAC og PC. verndarlagi gegn Ijósi og
rispum.
tlm ÍFTRm itodak^
L y n g h áIs 1 • s í m i 5 6 7 5 1 0 0 ' vörur