Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 12
12 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 - MORGUNBLAÐIÐ IPi TOLLMJR 06 STVRIKERFI Hugver hefur SérStððU á tölvumarkaðnum Morgunblaðið/Golli Jón Ragnarsson, starfsmaður Hringiðunnar við BeBox-tölvu. Enn eitt nútíma stýrikerfið Geisladrif hljóðkort og geisladiskar. Viðskiptavinir okkareru að stærstum hluta fyrirtæki og einstaklingar með sérþekkingu á tölvum. Stöðugt vaxandi viðskipti segja okkur að við séumá réttri braut.Við bjóðum: • PC-tölvur með bestu fáanlegu íhlutum, í öllumstærðummeð2 til 3ja daga fyrirvara. • Lageraf helstu tölvuhlutum. • Uppfærslu á eldri tölvum. Föst tilboð. • Uppsetningu á netum. • Ráðgjöf, öryggi, þj ónustu. Góð viðskiptasambönd gera okkur kleyft aðbjóða nýjustu og bestu tækni á frábæru verði. Móðurborð, harðir diskar, diskstýringar, skjáir, skjástýringar, netspjöld, o.fl. af lager á góðu verði. Fáið verðlista. Hugver Laugavegi 168 105 Reykjavík sími 562-0707 fax 562-0706 UNISYS sækir inn á íslandsmarkað þessi áform, því þó BeOs hljómi afskaplega vel og keyri mun hrað- ar en MacOS, er það fráleitt full- búið stýrikerfi og reyndar leggja Be-menn áherslu á að þeir séu enn að þróa það. í nýjustu útgáfu þess, sem er þróunarútgáfa 8, gefst til að mynda fyrst kostur á útprentun og stuðningur fyrir 24 bita lit. Ymislegt fleira er óleyst og Gasse lét þau orð falla í viðtali fyrir skemmstu að endurskrifa ætti skráavistunarkerfi BeOS. Þrátt fyrir það segja menn að ekki muni taka nema hálft ár eða svo að full- gera stýrikerfið og þó lítið sé enn til af hugbúnaði fyrir BeOS segja fróðir að hægðarleikur sé að skrifa á skömmum tíma millilag sem gerði kleift að keyra Macintosh- hugbúnað ofan á BeOS-stýrikerf- inu í „sýndarvél" á svipaðan hátt og Windows NT og OS/2 keyra DOS-forrit, og því engin ástæða til að bíða eftir Copland, sem á ár eftir þróun að minnsta kosti. BeBox til íslands Umboðsaðili fyrir BeBox hér á landi er Hringiðan, sem hefur flútt til landsins eina tölvu til reynslu. Hjá Hringiðunni varð Pétur Ein- arsson fyrir svörum, en hann segir að BeBox tölvan noti tvo PowerPC 603 örgjörva og er fáanleg í 2 útgáfum: 66Mhz og 133 Mhz. „Hún er með 3 PCI tengingum og 5 ISA tengingum. Einnig er inn- byggt SCSI, IDE, 4 serial, 2 MIDI rásir og 3 innrauðar rásir. Einnig er sérbyggt tengi, „GeekPort“ sem er bæði hliðrænt/stafrænt (analog/ digital) fyrir allt mögulegt. Að öðru leyti notar hún „standard“ PC vél- búnað (lyklaborð, mýs, oþh.) Ef þú átt PC tölvu ættirðu að geta notað flest allt sem þú notar við hana, skjá, mýs, lyklaborð og diska.“ Pétur segir að í raun snúist allt um BeOs stýrikerfið. „Þetta er nútíma stýrikerfi, hannað frá grunni til að vinna með mikið magn af gögnum, margmiðlun og álíka. Það er mjög létt í keyrslu og allt kerfið tekur um 15-20 MB af diskplássi. Ahersla er lögð á að kerfið sé snöggt að svara notand- anum. Maður verður sjaldan var við að tölvan hægi á sér þó svo að mælirinn sýni 70-80% álag á örgjörvunum. í núverandi útgáfu getur stýrikerfið nýtt allt að átta örgjörva. Einnig er innbyggður stuðningur við þrívídd og tvívíddar- grafík og jafnvel myndband." Pétur segir að í janúar komi út „BeOs Preview", sem er einskonar „loka verkefnis“-útgáfa fyrir BeOs 1.0. „Þessi útgáfa verður sú fyrsta sem fáanleg verður fyrir almenn- ing. Be stefnir að því að gefa út u.þ.b. 3 útgáfur á ári og hefur reyndar gert það hingað til. Einnig eru/verða fáanlegar útgáfur fyrir PowerMac,“ segir Pétur og bætir við að sumir kalli BeOs reyndar MacOs NT. markað með hug- og vélbúnaði fyrir fjórmálastofnanir. LÍTIÐ hefur borið á bandaríska stórfyrirtækinu UNISYS á ís- lenskum tölvumarkaði til þessa, en í liðinni viku bárust fregnir af því að fyrirtækið hefði hafið sókn inn á íslenskan tölvumarkað. Það hlýtur að teljast til tíðinda þegar nýtt stórfyrirtæki haslar sér völl á, tölvumarkaði hér og því meiri fréttir þegar eitt af helstu tölvu- fyrirtækjum heims á í hlut, en UNISYS gerði samning við Bún- aðarbanka íslands í liðinni viku, um að sjá bankanum fyrir heildar- láusn á afgreiðslu- og sölukerfi bankans og útibúa hans. UNISYS varð til við kaup Burroughs á Sperry Univac 1986. Samruninn kom í kjölfar erfiðar samkeppni á móðurtölvumarkaði, og urðu þær skuldir sem þá urðu til fyrirtækinu þungur baggi fram- an af. Nýr stjórnarformaður og framkvæmdastjóri, Jim Unruh, tók við 1990 og undir hans stjórn var fyrirtækið endurskipulagt með góðum árangri. Síðasti áfangi í þeirri endurskipulagningu var þegar því var skipt upp í þijú meginsvið; ráðgjafasvið, tölvusvið, og alþjóðlegt þjónustusvið, en það síðastnefnda hefur reynst dijúgt vppn í baráttunni um markaðs- h|utdeild. Höfuð áhersla á tilbúnar lausnir | Síðustu árin hefir UNISYS lagt hpfuðáherslu á fullbúnar lausnir fýrir fjármálastofnanir, flugfélög og símafélög, ásamt upplýsinga- kferfum fyrir stærri fyrirtæki og opinberan rekstur. Þannig er 41 banki af 50 stærstu bönkum heims viðskiptavinur UNISYS, 18 af 25 helstu flugfélögum, 50 af helstu símafyrirtækjum heims og hátt í tvö þúsund opinberra stofnana um heim allan. UNISYS vinnur mjög náið með öðrum tölvufyrirtækjum, svo sem Microsoft, Oracle, Cisco og Intel, til að ná fram lausnum sem falla að opnu umhverfi. ACO hf. hefur verið umboðsað- ili UNISYS á íslandi undanfarin 20 ár, og þeirra helsti viðskiptavin- ur á þessu sviði hefur verið Póst- gíróstofan, með tengingar á öll pósthús landsins. Það var þó ekki fyrr en með breyttu skipulagi hjá UNISYS að möguleikar sköpuðust á því að UNISYS kæmi beint að stórum verkefnum hérlendis og valdi þá ACO hf úr þau sérsvið hjá UNISYS sem augljóslega hent- uðu á íslenskum markaði, þar með talinm banka- og upplýs- ingakerfi. íslenska bankakerfið Komið er að því í ís lenska bankakerfinu að víða er þörf endurnýjun- ar, bæði á sviði vél- og hugbúnaðar, og ekki er síður nauðsyn á endurnýjun verk- og vinnuferla í ljósi stöð- ugra tækniframfara og síaukinnar sam- keppni á öllum sviðum. Þegar menn fara að hug leiða hvemig þessu verður mætt, þ.e. hvort skrifa eigi ny hugbúnað- arkerfi eða finna til- búnar lausnir, sem hentað geta mjög breyttum aðstæðum kom- andi ára, segja UNISYS-menn næsta augljóst að hagkvæmasta leiðin sé ekki sú að fara að finna upp hjólið enn og aftur, því það starfsumhverfi sem hér er að skap- ast sé löngu þekkt erlendis. Þeir segja að UNISYS bjóði fram á þessu sviði háþróað hugbúnaðar- kerfi, sem byggi á hlutbundinni hönnun, en við gerð þess séu nú komin langt í tvö hundruð mann- ár. Að sögn má líkja einingunum sem í því eru við kassa fullum af Lego-kubbum, þar sem hægt að byggja úr þeim sértæka lausn fyr- ir hvern og einn. Þessa lausn hef- ir UNISYS sett upp í yfir 40 lönd- um. Síma- og samskipta- þjónusta Símafyrirtæki heims hafa staðið og standa frammi fyrir verulegum breytingum vegna nýrrar tækni og óheftrar samkeppni. Hér á landi eins og annarstaðar telur UNISYS þörf á fyrirtæki sem hefir sérþekk- ingu og reynslu á þessu sviði, og þess vegna hefur Póstur og sími á íslandi undanfarið haft samstarf við UNISYS. U pplýsingakerfi Eitt af þeim upplýsingakerfum sem UNISYS markaðssetur er Oracle Applications, sem er safn af sjálfstæðum kerfum fyrir hvert viðfangsefni, sem síðan geta myndað heildarupplýsingakerfi hvers fyrirtækis eða stofnunar. Oracle Applications kerfin ná stöð- ugt meiri útbreiðslu víða um lönd, og hafa nú verið sett upp hjá um SLAGURINN á milli PC- samhæfðra tölva og Mac- intosh stendur enn sem hæst og þó PC-tölvan sé með mikla yfirburði sem stendur er langt í land að Makkinn leggi upp laupana. I þeirri stöðu ættu víst fáir von á að ný gerð af tölv- um með enn einu stýrikerf- inu ætti eftir að ná nokkr- um árangri. Þrátt fyrir það setti tölvufyrirtækið Be nýja tölvu á markað í haust, svo- kallað BeBox. Stofnandi Be tölvufyrir- tækisins og hugmyndasmiður er Jean-Louis Gosse, sem áður starfaði hjá Apple fyrirtækinu. Hann var ráðinn til Apple til að stýra þróunarsvið Apple þar til John Scully, stjórnarformaður Apple, rak hann fyrir nokkrum árum. Gasse var þó ekki af baki dottinn, hann hafði ákveðna skoð- un á því hvernig tölva framtíðar- innar ætti að líta út og setti á stofn eigið fyrirtæki til að smíða slíka tölvu fyrir sárabæturnar frá Apple. Fimm árum síðar kynnti hann fyrstu BeBox tölvuna, sýndi á henni fimm vefsíður samtís, spilaði MIDI-skrá, sýndi þijú myndbönd á sama tíma og leitaði í gagna- grunni á meðan tölvan spilaði Let it Be Bítlanna. Fullkomið fjölvinnslukerfi og mjörg hraðvirkt Gosse segist hafa hannað nýtt stýrikerfi vegna þess að Windows og MacOS séu einfaldlega ekki nógu góð stýrikerfi. Það hafi safn- ast upp í þeim allskyns óþarfi sem framleiðendur hafi skirrst við að hreinsa úr eða ekki haft tíma til í hörðum slag hvorir við aðra. BeBox-stýrikerfið, sem kallast BeOS, er fullkomið fjölvinnslukerfi og mjög hraðvirkt eins og sannað- ist þegar Gasse setti það inn á Macintosh-klóna og sýndi muninn á System 7.x og BeOs. Með því sannaði Gasse að stýrikerfið er ekki aðeins töluvert hraðvirkara heldur einnig mun stöðugra en Macintosh-stýrkerfið, enda hyggst Gasse kynna BeOS fyrir Macintosh í janúar og setja það á almennan markað fyrir vorið. Þetta hefur ekki farið fram hjá Apple, sem á í miklum vanda með eigið stýri- kerfi. Þannig gengur illa að standa við stóru orðin um Copland sem átti að leysa allra vanda, enda herma síðustu fregnir að viðræður séu hafnar á milli Apple og Be um að Apple annaðhvort kaupi fyrir- tækið eða stýrikerfið. Makkavinum líst misjafnlega á Lítið hefur borið á bandaríska stórfyrirtækinu UINIISYS ó íslenskum tölvumarkaði. í liðinni viku bárust þó fregnir af því að fyrirtækið hefói hafið sókn inn á íslenskan tölvu- 3.000 notendum í 59 löndum. í krafti sinnar ráðgjafa- og há- tækniþjónustu er UNISYS í dag stærsti seljandi þessara kerfa í Evrópu og hélt nýverið fyrir nokkra af stærstu rekstraraðilum hér á landi kynningu á Oracle Fin- ancials og Oracle Human Resource kerfunum. Upplýsingakerfi Þó bjartari tíð virðist framund- an hjá UNISYS, stendur talsverð- ur styrr um Unruh. Aðgerðir þær sem hann greip til í upphafi báru skjótan árangur og réttu við fjár- hag UNISYS fjárfestum til mikill- ar gleði, en þegar hann tók við var mál manna að UNISYS væri nánast gjaldþrota. Á síðustu miss- erum hefur þó nætt um Unruh og það þó nýjar tölvur frá UNISYS hafi fengið góðar viðtökur. Þannig hefur brostið flótti í stjórnarliða suma, enUnruth svarað því til að þeir sem óttist breytingar eigi ekki að starfa í tölvuiðnaði. Það er því ljóst að hann telur sig enn hafa kúrsinn og hyggst halda stefnunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.